Þjóðviljinn - 24.09.1963, Síða 1
FYRRÍ HOLSKEFLAN
STEYPIST NÚ YFIR
MJOLK HÆKKAR UM FJORÐUNG!
■ í dag kemur til 'framkvæmda stórfelld hækk-
un á mjólk og mjólkurafurðum, en ennþá stór-
felldari hækkun á kjöti kemur til framkvæmda
á morgun.
■ Mjólkin hækkar um 25%, nákvæmlega fjórð-
ung, og smjörið hækkar um hvorki meira né
minna en 28,2%! Er þetta langmesta hækkun sem
orðið hefur á hversdagslegustu og brýnustu
neyzluvörum almennings NOKKRU SINNI hér
á landi, og þótt víðar væri leitað. í nágranna-
löndunum telja ríkisstjómir það skyldu sína að
segja af sér ef verðlag á algengustu neyzluvör-
um hækkar um nokkrar prósentur, nú síðast til
að mynda finnska stjórnin, en hér stuðlar rík-
isstjórnin að því að magna verðbólguna og telur
þá væntanlega stökkbreytinguna á búvöruverði
sigur fyrir sig.
Hér fer á eftir yfirlit yfir helztu verðbreytingamar sem koma til <®>"
framkvæmda í dag:
Mjólk
Mjólk í lausu máli hækkar úr kr. 4.60 eins og það var í fyrra-
haust í kr. 5.75 lítirinn. Nemur hækkunin kr. 1.15 eða nákvæmleea
25%. Mjólk í umbúðum hækkar um sömu upphæð í krónutölu.
Mjólk í heilflöskum hækkar þannig í kr. 5.95 og mjólk í hymum
í kr. 6.40.
RlKIÐ HLEÐUR
UNDIR ÍSLENIKA
AÐAL VERKTAKA
Blaðið heíur haít spurnir af einstæðu hneyksli í
sambandi við vegagerð á íslandi. Hneyksli þetta
mun hafa orðið í sambandi við vélakaup til Kefla-
víkurvegarins.
Eins og kunnugt er Ihefur
hermangsfyrirtækið „fslenzkir
aðalverktakar“ lagningu vegar-
ins á hendi og keyptu verktak-
arnir vélamar til landsins.
Hinsvegar hefur Þjóðviljinn það
eftir góðum heimildum, að
Vegagerð ríkisins hafi haft á
hendi allan undirbúning að véla-
kaupunum, m.a. sent út menn
til að velja vélarnar og gera
samninga um kaup á þeim.
Þegar þessari undirbúnings-
vinnu Vegagerðarinnar var lok-
ið tóku Aðalverktakar við og
keyptu vélamar, þannig að nú
eru þeir eina fyrirtækið á ís-
landi, sem hefur yfir að ráða
fullnægjandi vélakosti til að
steypa með íslenzka þjóðvegi.
Þannig er ríkið látið velja
tækin í hendurnar á einkafram-
ta-kinu, á sinn kostnað. og síð-
an getur þetta fyrirtæki sett
ríkin-u alla kosti í sambandi
við varanlega vegagerð.
Sigurpáll
með metafía
í GÆRMORGUN kom Sigurpáll
til Seyðisfjarðar með 800 mál
af síld. Þar með var Eggert
skiipstjóri Gíslason búinn að
slá sitt eigið aflamet síðan i
fyrra, þegar hann veiddi 308-
03 mál og tunnur á Víði II.
NC ER HANN búinn að fá 31439
mál og tunnur. Myndin er tek-
in á Scyðisfirði í sumar, þeg-
ar Sigurpáll er að koma inn
með um 1500 mál. (Ljósm.
C* • ..
5m|or
Sjör hækkar mest af mjólkurafurðunum. Kílóið fer upp i »r.
103.55 úr kr. 80.75. Nemur hækkunin á kílóinu kr. 22.80 eða 28.2%.
Rjómi
Rjómi í lausu máli hækkar úr kr. 50.00 lítirinn í kr. 57 80.
Hækkunin nemur 15.6%. Rjómi í umbúðum hækkar á hliðstæðan
hátt
Skyr
Kílóið af skyri hækkar úr kr. 12.75 í kr. 14.65. Hækkunin nem-
ur kr. 1.90 eða um tæp 15%.
Mjólkurpotturinn í hyrnunum er nú kominn upp í kr. 6.40 en
var kr. 5.25 í fyrra á sama tíma. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Síldveiðiskýrsla Fiskifélagsins:
SÍLDVEIÐINNI
ER AÐ LJÚKA
f skýrslu Fiskifélags íslands^
um sfldveiðarnar á miðnætti sl.
laugardag segir að heiidarafl-
inn hafi þá verið 1.620.421 mál
og tunnur, en heildaraflinn sl.
sumar var 2.370.066 mál og
tunnur. Síldarskipin eru nú
flest hætt veiðum og munu að-
eins um 30 skip halda ennþá út.
í fyrra um sama leyti voru öll
skip hætt veiðum.
Vikuaflinn sl. viku var
50.918 mál og tunnur en var í
sömu viku í fyrra enginn. Svo
til öll sildin fór í bræðslu en
lítið eitt var þó fryst. Söltun
var én-gin.
Eftir hagnýtingu skiptist
heildaraflinn í sumar þannig:
f söltun 4-63.235 upps tn.
f frystingu 33.124 uppm. tn.
f bræðslu 1.124.062 mál.
f fyrra skiptist heildaraflinn
þanpig:
f söltun 375.429 upps. tn.
f frystin-gu 39.122 uppm. tn.
f bræðslu 1.955.515 mál.
Á 2. síðu er birt skrá yfir afk
79 skipa og er það síðasta síld-
veiðiskýrsla Eiskifélags fslands
á þessu sumri.
Ostur
45% mjólkurostur hækkar úr kr. 71.35 kílóið í kr. 84.15. Hækk-
unin á kflóinu nemur kr. 12.50 eða 17.9%. Aðrar tegundir af mjólk-
urosti hækka samsvarandi. Kílóið af mysuosti hækkar úr kr. 20.00
í kr. 35.35, eða um 17.8%.
Kjöt og kartöflur í dag
Sveinn Tryggvason, framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbún-
aðarins, skýrði Þjóðviljanum svo frá í gær, að enn hefði ekki verið
gengið til fullnustu frá verði á kjöti, slátri og kartöflum, en það
kæmi til framkvæmda á morgun. Eins og Þjóðviljinn hefur áður
greint frá verður hækkunin á kjöti enn meiri en mjólkurhækkunin.
Sveitarstjórnir
kosnar í Noregi
í gær fóru fram bæjar- og sveitastjómarkosningar í Noregi.
Skömmu fyrir miðnætti í nótt höfðu verið talin rúml 110 þúsund
atkvæði i 100 af 525 sveitafélögum landsins. Atkvæði og fulltrúar
skiptust sem hér segir (tölur síðustu kosninga í svigum):
Verkamannaflokkurinn: 41.322 (39.803) — 695 fulltr. Hægri flokk-
urinn: 8.194 (7.078) — 99 fulltr. Kommúnistaflokkurinn: 1.521 (2.037)
— 12 fulltrúar. Kristilegi flokkurinn: 8.030 (7.105) — 124 fuiltr.
MiðfIokkurinn: 19.937 (17.254) — 343 fulltr. Vinstri flokkurinn:7.818
(8,591) — 128 fulltr. Sósialistiski alþýðuflokkurinn 538 (0) — 7 fuU-
trúa. Óháðir og aðrir: 23.585 (25.187) — 531 fulltr.
Hlutfaflstala floíkkanna var sem hér segir:
Verkamannaflokkurinn: 37,25 (34,73), Hægri fl.: 7.39 (6.87) Komm-
únistaflokkurinn: 1.37 (1.98) Kristil.fi.: 7.24 (6.89) Miðfl.: 17,97 -16,-
74) Vinstri ffl.: 7,05 (8.33) Sós.alþýðufl. 0.48 (0,0) Öháðir og aðrir 21,26
(24,45).
X
\
*