Þjóðviljinn - 01.10.1963, Page 4

Þjóðviljinn - 01.10.1963, Page 4
4 SlÐA Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjórar: Jón Bjamason, Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði. Reiknings- dæmi gjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, fjallar einvörðungu um verðlag landbún- aðarafurða í Reykjavíkurbréfi sínu í Morgunblað- inu í fyrradag. Auðsætt er að ráðherrann gerir sér ljóst að allur almenningur lítur það mjög al- varlegum augum þegar mjólkin hækkar í einu vetfangi um fjórðung og kjötið um meira en þriðj- ung, að hvarvetna má heyra hina þyngs'tu dóma um gjaldþrot viðreisnarinnar. Og þess vegna reyn- ir ráðherrann að firra ríkisstjórnina allri ábyrgð. „Það er ekki ríkisstjórnin sem ákveður verð land- búnaðarvara, heldur er það einskonar gerðardóm- ur“, segir hann; þetta er „hlutlaus verðákvörðun“. Og hann heldur áfram: „Slíku úrskurðarvaldi fylgir mikill vandi, en engum sem til þekkir kem- ur annað til hugar en það sé í höndum góðs manns, þar sem núverandi hagstofustjóri er. Öll- um kemur saman um, að hann sé einhver færasti og samvizkusamasti embættismaður hér á landi. í þessum efnum býr hann yfir meiri reynslu og þekkingu en nokkur annar.“ £|n hagstofustjóri sækir ékki úrskiir'ð sinn í pér- sónulega eiginleika sína og hæfileika, held- ur er hann að reikna tiltekið dæmi. Hann kannar hversu mikið útgjöld meðalbúsins hafi aukizt, hversu miklu meira en áður bóndinn verður að greiða fyrir áburð og fóðurbæti, rekstrarvörur og vexti, girðingar o. s. frv. Hann reiknar út hversu mikið tekjur meðalbúsins þurfi að aukast til þess að bændur hafi sambærilegar tekjur og aðrar vinnandi stéttir. Hann er að framkvæma einskon- ar úitekt á viðreisninni, sýna með köldum tölum hverjar búsifjar hún hafi haft í för með sér á einu einasta ári. Og sú niðurstaða hans að búvörur verði að hækka um næstum því þriðjung að jafn- aði er ákaflega þungur áfellisdómur yfir ríkis- stjórninni og stefnu hennar. Sá dómur hlýtur að vera þeim mun þungbærari sem formaður Sjálf- stæðisflokksins viðurkennir að hagstofustjóri sé einhver færasti og samvizkusamasti embættis- maður landsins og vinni öll sín verk af reynslu og þekkingu. Þetta er ekki gagnrýnandi áfellis- dómur stjórnarandstæðinga, heldur niðurstaða eins grandvarasta sérfræðings. En jafnframí lýsa bændur því að þeir telji áfellisdóminn yfir við- reisninni til muna of vægan. ^uðvitað er það ríkisstjórnin sjálf sem hefur á- kveðið hina stórfelldu hækkun á landbúnað- arvörum. Hún hefur með viðreisnarstefnu sinni á- kveðið alla liðina í dæmi hagstofustjóra; hans verkefni var það eitt að meta þær staðreyndir sem ríkisstjórnin ber alla ábyrgð á. Og þessi dóm- ur kallar á annan dóm. Engum þarf að koma til hugar að verkafólk uni því að brýnustu nauðsynj- ar þess hækki snögglega í verði um þriðjung. Stórfelld kauphækkun hjá verkafólki er einnig reikningsdæmi sem auðvelt er að leysa af sam- vizkusemi, reynslu og þekkingu. — m. ÞJðÐVILJINN Þriðjudagur 1. október 1963 Minningarorð ÁSMUNDUR J0 frá Skúfsstöðum ' Hann var gestur Reykvík- inga um áratugi, en nú hefur hann kvatt. Höfuðborgin er einum litríkum ’karakter fá- tækari; enginn getur fyllilega komið í hans stað. Hann kom úr Skagafirði fyrir um það bil fjörutíu ár- um og gekk til móts við lífs- æfintýrið, opnum huga, dreyminni lund, nokkuð svo af öðrum anda en tíminn sem hann lifði á, enda ltom þeim ekki að öllu leyti vel saman. Hann var í eðli sínu höfðingi, dæmdur til að umgangast smámenni; alla tíð. Hann var sífellt stórríkur maður, en hafði sjaldan peninga milli handa. Hann var milljóna- mæringur, en ég efast um, að samanlagðar tekjur hans um dagana hafi numið einni millj- ón. Allt sem hann átti vildi hann gefa okkur, sem kynnt- umst honum. Hitt er svo ann- að mál, hvað við kunnum að þiggja. Ég minnist hans frá því ég var drengur á þeim aldri, að æfintýrið bar enn ekki í sér brum óttans. Þá var Ásmund- ur frá Skúfsstöðum kærkomn- asti gestur í litlu húsi, gestur sem ekki kunni að vera leiðin- legur; hann kom með heims- borgina, og allt varð með nokkrum hætti stórt, æsilegt og fyndið, og þó einnig mátu- lega hátíðlegt. Hann var uppi á löngu liðnum öldum, og hann var einnig maður dags- ins. Þetta breyttist ekki. Það var þippyeggr; ég sem breytt- ist, og mat mitt varð að sumu leyti annað. En Ásmundur frá Skúfsstöðum varð mér samur alla stund. Vitur maður hefur sagt, að það sé vafasamt hrós um menn, að segja þá mikil skáld; hitt skipti fullteins miklu máli, hvort þeir kunni að meta skáld. Ég fullyrði, að það kunni Ásmundur. Einkum kunni hann betur en flestir sem ég hef kynnzt að meta þann skáldskap þar sem sam- an fór orðkynngi og mann- þekking. Hann var af þeim toga, að fyrir honum var<$> þetta höfuðatriði; hann gerði ekki aðrar kröfur meiri til skáldskapar. Undanfarin miss- eri heyrði ég hann ekki tala um annað skáld en Bjama Thorarensen. Einar Bene- diktsson var honum sem gleymdur; einnig Matthías. Öll háspeki þeirra var hjöðn- uð, en eftir lifðu nokkur kvæði þar sem talað var um hlátraheima, lax sem leitar móti straumi, skrípitröll, skjaldmeyjar og skóga hug- mynda. Sjálfur kom hann aldrei á pappír nema litlum hluta af eigin kveðskap. Ljóðabækur hans gefa aðeins hugmynd um hann sem skáld. Hann orti ekki póesíuna á blað, heldur í líf sitt; líf hans var frá upphafi fjölbreytilegur skáldskapur — og efni í skáldskap. Hann lifði með vissum hætti þá tuttugustu- aldar grettlu, sem líklega verður aldrei skráð. En allt í kringum hann varð að yrkis- efni. Ég leit inn til hans í litla, vínalega íbúð við kyrrláta götu örskammt frá skarkala miðbæjarins, og ég var horf- inn aftur í tíma Heima- stjórnarmanna, ellegar kom- inn á vígvöll Nepóleons; orð- inn samtíðarmaður löngu dauðra. Það var kynlegt að heyra í bifreið fyrir utan. Hann leit upp úr miðri ræðu ritaðri af honum. Hann var sérfræðingur í Hannesi Haf- stein, ekki aðeihs sKálds'káp hans, heldur öðrafremur manninum, uppruna hans og og sagði, eins og innan svigat- -samtíð; Teskeiðin sem þú ert að hræra með — veiztu hver átti hana? Svo kom lítil þögn. Schiller átti þessa teskeið, konan mín hefur erft hana (Eða sagði hann Heine?). Á borðinu lá sendibréf, sem hann hafði fengið um morguninn. Stór- kallaleg rithönd. Fjölskyldu- mynd hjá. Hann var að fá línur frá vinkonu sinni, dótt- ur Vilhjálms H. Þýzkalands- keisara. Þegar ég fór, fylgdi hann mér úr hlaði með ljós- mynd af Hannesi Hafstein, á- Það er mikill skaði, að sá tæknitími sem við lifum á skuli ekki hafa varðveitt Ás- mund frá Skúfsstöðum, frá- sagnargáfu hans, eftirhermu- hæfileika, skammir hans og hrós, lífsfílósófíu hans með kostum hennar og göllum. Má vera, að Ríkisútvarpið eigi einhverjar spólur með upp- lestri hans á Einari Ben., sett- legum og mátulega viðeigandi. En það er ekki Ásmundur Jónsson. Jafn vel og honum fór að túlka verk þeirra jkálda sem hann þekkti og mat hvað mest, þá var það þó aldrei nema örlítið brot af því sem hann gat „túlkað“ með sinni eigin orðræðu, og fór því þó fjarri, að sú orð- ræða væri mér eða öðrut' alltaf að skapi. Við vorur- iðulega ósammála. En síða- árin held ég að ég hafi kunr - að að þegja, þegar ég heyrð' rödd liðins tíma. — Fyrir nokkram vikum kom hann í vinnustofu mína, og tal okkar féll um ætt hans og átthaga. Undir það hann var að fara komst hann að orði eitthvað á þessa lund: Mér er heiður að því að vera kenndur við skúf — það þýðir nefnilega sverð. Þeir gera sér víst ekki grein fyrir því, sumir .... Á sjötugasta afmælisdegi Kristjáns X. Islandskonungs fann Ásmundur hvöt hjá sér til að ydkja langt og há- stemmt kvæði til þjóðhöfð- ingja þessa, svosem til að sýna, að enn ættu íslendingar það til að mæra konung sinn líkt og endur fyrír löngu. Tómlátum mörlandanum fannst reyndar, mörgum.hverj- um slík viðhöfn dottin úr tízk- unni fyrir nokkru; en kóngur tók við kvæði Ásmundar með þökk og kurt eins og vera bar, og gott ef skáldið fékk ekki bréf. Hitt fór síður í hámæ'.i og mun hingaðtil fáum kunn- ugt, að ekki hafði Ásmundur fyrr lokið kvæði þessu en hann orti rammíslenzka bragarbót, eitt erindi, runhendu, og er ég ekki grunlaus um að þær fáu Ijóðlínur kunni máski að gagnast honum betur á efsta degi en öll mærð konungs- kvæðis. Það varð allt fagurt í hönd- um Ásmundar. Hann gat handleikið ómerkilega hluti, og manni fannst þeir vera dýrgripir. Þetta var auðkýf- ingurinn. En hann var öllu öðra frem- ur gestur. Hann gisti Reykja- vik um áratugi; fór að vísu nokkram sinnum utan og dvaldist þar Iengi; kvæntist ríkri, stórættaðri og höfðing- lyndri konu, sem varð honum mikil draumadís. En hann kom heim aftur. Sú heim- koma var aðeins bið hins þreytta ferðalangs. Gesturinn var á heimleið. Nú er hann kominn í dalinn norður. I dag verður hann lagður næst föður sínum í grafreit Hóladómkirkju. Skag- firzkur drengur hefur fengið hvíld. Elías Mar. 6000 hitaeiningar á dag,án þess æðakölkunar gæti Maður sem nærist að heita má eingöngu á úlí- aldamjólk (5—10 lítrar daglega) og íær rúmlega 6000 hitaeiningar (2880 hitaeiningar er talið eðli- legt magn á dag) ætti að þjást aí þeim sjúkdómum, sem settir eru í samband við slíka ofneyzlu hita- eininga, og þá fyrst og fremst hjartasjúkdómum. Sú er samt ekki raunin um hirðingjana á sléttum Sómalíu, segir í tímariti Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, „WHO CHRONICLE''. Rannsóknir hafa þvert á móti leitt í ljós, að hjarta- og æða- sjúkdómar meðal þeirra eru afarsjaldgæfir. Þessir hirðingjar á hinum hrjóstrugu sléttum Sómalíu fást fyrst og fremst við úlf- aldarækt. Þeir eru hávaxnir og magrir og einstaklega þol- góðir. Talið er að þetta eigi rætur sínar að rekja til þess, að þeir eru sambland af sem- ítiskum (arabiskum) og blökk'Umanna- (Ibantu) kyn- stofnum, Fæða þeirra er fyrst og fremst úlfaldamjólk, sem þeir drekka þegar þeir eru hungraðir eða svangir, og hafa enga ákveðna matmálstím,, Úlfaldamjólk er nálega helm- ingi feitari en kúamjólk. G200 hitaeiningar á dag Sé reiknað með 5 lítrum af mjólk (margir drekka allt að 10 lítrum á dag), auk þeirra 200-250 gramma af sykri sem þeir nota út í teið sitt, bá er dagleg hitaeininganeyzla hjá þeim kringum 6200. Samkvæmt ath., sem gerðar hafa verið í háþróuðum lönd- um, ætti slíkt mataræði að hafa skaðlegar afleiðingar, m. a. leiða af sér æðasjúkdóma Læknar við siúkrahúsið í Mógadisciu, höfu'/org Sóm- alíu. skvra hins vegar frá því. að slíkir sjúkdómar séu þar mjög sjaldgæfir Margra alda aðlögun Hópur vísindamanna, sem sent hafa frá sér skýrslu á vegum Alþjóðaheilbrigðisma^a- stofnunarinnar. hefur rannsak- að 203 hirðingia á aldrinum 11-70 ára. Þessir vísindamenn komust meðal annars að raun um, að hjartaæðarnar virtust Framhald á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.