Þjóðviljinn - 01.10.1963, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 01.10.1963, Qupperneq 12
! i Bruninn í Blesugróf Aðalvatnsleiðslan til borgarínnar milli húsanna-en hvergi hægt að ná s vatn Selhagi í Blesugróf brann í fyrrinótt — ofan af hjónum og 8 bömum þeirra. Eigandinn, Pétur Hraunfjörð, byr'jaði að byggja húsið árið 1951, sama árið og íhaldið framkvæmdi hér banda- rísk fyrirmæli um að banna íslendingum að byggja yfir sig. Fjárhags- ráð neitaði því Pétri um timbur — en hann byrj- aði samt, og að lokum varð húsið hans 90—100 ferm. Nú er það brunnið. Aðalæðar vatnsleiðsl- unnar til borgarinnar liggja þarna milli húsanna — en slökkviliðið gat hvergi tengt dælurnar við vatnsleiðslu og varð því að flytja vatn í tönkum! Slík er umhyggja og for- sjá íhaldsins fyrir fólkinu í úthverfunum. — í>að var um kl. 2 — við vorum að hátta. þegar við heyrðum einkennilegt hljóð, svaraði Pétur er ég spurði hann um brunann. Við fórum strax út til að athuga olíu- kyndinguna. Reyndist þá hafa runnið olía út úr skál- inni og stóð sterkur logi upp með katlinum. Olíukyndingin var í gryfju í skúr er var á- fastur við húsið, gryfjan sjálf steypt en skúrinn múr- húðað timbur og var annar hluti hans forstofa. Við aetluðum að ausa sandi eða mold á eldinn, en meðan við leituðum skóflu magnaðist eldurinn svo að við urðum að hörfa frá bæn- um. Ég og 2 stálpaðir synir okkar vorum úti og þegar við komumst ekki inn varð okkur fyrst fyrir að ýta burt bílum er stóðu skammt frá, en konan hringdi til lögregl- unnar, braut síðan glugga og ! Þetta eru sex af börxuun bjónanna Péturs Hraunfjörð og Helgu Tryggvadóttur. Við vegginn standa Birkir 16 ára, Pétur 13 ára, Bera tólf ára og beldur á Báru sem er 5 ára en framar standa Öttar 7 ára og Gaukur 4 ára. Elztu börnin, Kristján og Björg, voru ekki viðiátin. (Ljósm. D. Hjv.). tók yngri bömin 5, sem voru í rúmum sínum og lét þau út í sængurfötum. — En hvað um slökkvilið- ið? — Slöikkviliðið kom fljótt, og það voru víst einir 50 menn með sex eða sjö bíla, Og þeir voru með vatn á bíl- unum, en þeir gátu hvergi náð í vatnsæð þama, þótt aðalæðar vatnsveitunnar til borgarinnar liggi milli hús- anna þarna uppfrá. og urðu því að sækja vatn töluverð- an veg niður í Blesugróf. — Hvað bjargaðist? — Slökkviliðsmennirnir björguðu sviðinni saumavél og sængurfötum eitthvað brunnum og skemmdum og fataskáp með yfirhöfnum. Húsið sem var úr timbri brann allt. — Eru mörg hús á þessu svæði? — Það eru ein 8 hús með 15—100 m millibili. — Hvað eigið þið mörg böm, Pétur? — Þau eru 8, þrjú þeirra yfir fermingaraldri. Góðir nágrannar skutu skjólshúsi yfir þau. — Hvenær byggðir þú þarna? — Þáð var í húsnæðisleys- inu 1951. — Nú, árið sem fslending- um var bannað að byggja yfir sig! Hvemig fórstu að því að byggja? — Nú, ég fór til fjárhags- ráðs og bað um leyfi fyrir 300 rúmfetum af timbri, sem ég taldi mig komast af með. En fjárhagsráð sagði nei, slikt væri allt of mikið timbur. — Hvernig fórstu þá að? — Bróðir minn bjó þama í næsta húsi svo ég flutti með fjölskylduna í tjald þarna á lóðinni. Svo rændi ég viðum úr gömlu jarðhúsi er Bretar höfðu skilið eftir fyrir ofan Vifilsstaði, keypti svo fiskkassa — og byrjaði að byggja! — Hvað varð húsið stórt? — Vitanlega stsekkaði ég það síðar svo það varð 90— 100 ferm. — Þú áttir mikið af bók- um — brunnu þær? — Já, það brunnu þama 15 métrar af bókum, eins og þeir segja á nútímamáli. Mest sé ég eftir Rétti — en mér tókst þó að hrifsa vand- ferigtnustu árgangalna. Úrið og gleraugun fóru þarna líka, ég hafði lagt þau frá mér þegar ég fór að hátta — og ég sé ekki á bók nerna með gleraugum! En þau kosta ekki nema 500 kr. J.B. I Leiftur gefur út bök um hraðreikningsa&ferðina Prentsmiðjan Leiftur hefur nú hafið sókn sína á jólamarkaðinn, og er það ekki vonum fyrr. Það sem hvað mesta athygli mun vekja hjá fyrirtæk- inu er bákin Hraðreikningur, eftir Michael Schröder. Er þar kennd ný hraðreikningsaðferð, kennd yið Trachtenberg nokkurn. Hefur aðferð þessi vakið mikla athygli, og er þess skemmst að minnast, að bandaríska tímaritið Life fjallaði um hana í ítarlegri grein í júlímánuði í sumar. Fyrsta áætlun- arferð Panam- þotuámorgun Bandaríska flugfélagið Pan American World Airways byrj- ar á morgun, 2. október, reglu- bundnar áætlunarferðir með þot- um af gerðinnii DC-8 milli Ame- ríku og Englands um Island. Kemur fyrsta áætlunarþotan til Keflavíkurflugvallar snemma í fyrramálið, hefur þar þriggja stundarfjórðunga viðdvöl, en Sýgur síðan áfram til Skotlands og þaðan til Lundúna. Eftir tæpra þriggja stunda dvöl á Lundúnaflugvelli kemur þotan til baka um Skot’land til Kefla- vikurflugvallar og heldur til Bandaríkjanna strax um kvöldið. Pan American flugfélagið hef- ur boðið nokkrum íslenzkum gestum, þ.á.m. fréttamönnum blaða, með í fyrstu áætlunar- ferðina, en félagið ráðgerir ferð- ir sem þessar með þotum viku- lega, jafnan á miðvikudögum. DEEP RIVER BOYS, hinir vin- sælu skemmtikraftar, eru komnir hingað til lands á veg- um skrifstofu skemmtikrafta. Héldu þeir fyrstu skemmtanir sinar í Austurbæjarbíói í gær- kvöld við mikla hrifningu á- heyrenda. ^ Aðrar jólabækur Leifturs eru Ástir Ieikkonu, eftir Somerset Maugham, en Steinúnn S. Briem þýi|ir. Steinunn þýðir einnig bók eftir Cyril Scott, er nefnist Fullnuminn vestanhafs. Er það framhald dulrænnar sögu, Fullnuminn, er út kom í fyrra. Þá vaða þeir Ludv. Kemp og Finnbogi J. Arndal fram á rit- völlinn. Bók Finnboga nefnist Síðustu spor og er ferðasaga og ljóðmæli. Kemp, hinn góðkunni hagyrðingur, nefnir bók sína Sagnir um slysfarir j Skefils- staðahreppi 1800—1950. Þá gef- ur Leiftur út niðjatal Vigfúsar Árnasonar, lögréttumanns, og hefur Jóhann Eiríksson safnað því. Fjórar barnabækur gefur for- lagið út að þessu sinni. Er það, Fjársjóður sjóræningjanna, eft- ir Henri Vemes, Kim og stúlkan í töfrakistunni, eftir Jens K. Holm, Kata og Pétur eftir Thomas Michael, og Zorro berst fyrir frelsinu, eftir sjálfan Walt Disney. Hannes Jónsson, félagsfræð- ingur, ritar stutt fræðslurit um ísland, á ensku. Lestina reka þau Ingibjörg Jónsdóttir og Egill Þórláksson. Hefur Egill samið Stafrófskver, þeim ætl- að, er kenna að stafa og kveða a_ð. Bók Ingibjargar nefnist Ást til sölu, en áður hefur hún gefið út bækurnar Máttur ást- arinnar og Ást í myrkri. Höf- undur lét þess getið í blaðavið- tali í fyrra, að hún skrifaði sökum þess að hún væri að byggja. Fer það hús vonandi senn að komast undir þak. Bragi og Jó- hann efstir Eftir 4 umferðir á Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur er Bragi Bjömsson efstur á meistara- flokki A með 3% vinning og Jóhann Sigurjónsson í meistara- flokki B með sama vinninga- fjölda. Næsta umferð verður tefld annað kvöld, miðvikudag. Þúsundkailar fjúka eins og dögg Selfossi í gær. Aldrei hafa verið eins tíðir og fjölmennir réttardansleikir í sögu Suðurlands og á þessu hausti. Þessi ósköp byrjuðu á Minoi Borg síðastliðinn þriðjudag og sóttu þann dansleik um 160 manns. A miðvikudag voru 600 manns í Aratungu, fimmtudag 500 manns á Flúðum, föstudag 400 manns í Brautarholti, Iaugardag 500 manns i Þjórsárveri og á sunnudag var mikill dansleikur í Hveragerði. Mikil ölvun hefur verið á þessum dansleikjum og nokkur ólæti höfð í frammi. Þannig er dansað á hverju kvöldi heima í kjördæmi landbún- aðarráðherra meðan óðaverðbólga geisar um landið. Enda segir svo í einu vinsælasta tvistlaginu. „Þúsundkallarnir fjúka eins og dögg“. Opnar næsta fimmtudag Siglufirði í gær. 1 gær byrjaði snjóýta að moka Siglufjarðarskarð og er búizt við að skarðið opnist næstkomandi fimmtudag, ef engar sérstakar veðrabreytingar eiga sár stað. Göngur hófust í gær Miðnesi í gær. I dag byrjuðu göngur í Reykjaneshólfinu og er það viku seinna en í sveitunum í kring. Er gengið norður af Þorskaf jarðarheiði og höfðu göngumenn gott veður. Má búast við góðum heimtum. Merkur áfangi Hellissandi í gær. 1 næstu viku er væntanlegt hingað stálþil með Mánafossi og verður það sett niður í Rifshöfn. Er það um 160 metra langt. Þetta er merkur áfangi í þeim byrjunarframkvæmdum, sem nú standa fyrir dyrum í þessari hafnargerð. Stálþilið bindur sand- inn og nær hann ekki að síga í rennumar. Síðar í haust verða byggðir ytri vamargarðar að sunnan og norðan. Þá er byrjað á vegarlagningu að grjótnámi þar skammt frá. Gáfu presti sínum bíl Jlafsvík í gær. Fjölmennt hóf var haldið hér um helgina og voru þar kvödd með sóma prestshjónin hér á staðnum þau Séra Magnús Guðmundsson, prófastur, og kona hans frú Rósa Thorlacius, Séra Magnús lætur nú af emb- ætti eftir 42 ára þjónustu i preststarfi. Hann kom hingað fyrst árið 1920 og réðist sem skólastjóri barnaskólans en ár- ið cftir var hann vígður að- stoðarprestur til Séra Guð- mundar Einarssonar og síðan varð hann sóknarprestur árið 1923. Síðustu árin þjónaði hann þremur kirkjum, en það voru Ólafsvíkurkirkja, Brimilvallar- kirkja og Ingjaldshólskirkja. Tvær fyrrnefndu sóknirnar stóðu að þessu hófi og skildu sóknarbörn höfðinglega við prest sinn og gáfu honum Volvobifreið. Sandarar höfðu kvatt prest sinn helgina áður með fjölmennu sam- sæti eftir guðsþjónustu í Ingjaldshólskirkju. Guðsþjónustan var tekin upp á scgulband og gáfu sóknar- börnin presti sínum segulbandstækið. Séra Magnús var vel Iiðinn sem sálusorgari. 1 veraldlegum efnum gat hann sér einnig góðan orðstír sem formaður Sparisjóðs Ólafsvíkur og formaður skóla- nefndar og hreppsnefndarmaður. Prestur var þó vinsælastur sem einstakur snillingur í meðferð á bátavélum og var fundvís á bilanir jafnt í mótorbátum sem trillum og hljóp oft undir bagga í þeim cfnum um áratugi. Prestshjónin munu setjast að í Rcykjavik. Rafvirkjameistarar á fundi Reykjavík í gær Aðalfundur Landssambands íslenzkra rafvirkjameistara var haldinn í Rvík fyrir skömmu. Var þetta fjölmennasti fundur sam- takanna til þessa, sóttur af rafvirkjameisturum víðsvegar að af landinu, en sambandið telur nú 153 félagsmenn. Séra Magnús Guömundsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.