Þjóðviljinn - 11.10.1963, Side 5
Föstudagur 11. október 1963
í Reykjavík
Ásmundarsal, Freyjugötu 41, simi 11990.
Innritun í bamadeildir öll kvöld frá kl. 8 — 10 nema
laugardaga frá kl. 2 — 6.
SKÖIASTJÖEI.
Hrútasýning
Hrútasýning fyrir Reykjavík, Kópavog og Seltjarnarnes
verður Ihaldin sunnudaginn 13. okt. 1963 kl. 10 f.h. í
hesthúsum Fáks við Elliðaár.
Allir fjáreigendur eru hvattir til að koma með hrúta
sína.
UNDIRBÚNINGSNEFNDIN
Sendisveinn óskast strax
Prentsmiðjan HÓLAR H.F.
ÞingHoltsstræti 27,«
Verzlunin ÁSBORG
Höfum opnað nýja verzlim að Baldursgötu 39 undir nafn-
inu Verzl. ÁSBORG. Höfum fjölbreytt úrval af vefnaðar-
vönu« faitnaði, alls konar smávörum til saumaskapar,
skólavörur, leikföngum og ýmsar gjafavörur í miklu úr-
vahj og m.£L
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin,
VERZfeUNIN ÁSBORG,
BalcDursgötu 39, sími 35142.
Verzl. Ásborg Verzl. Ásborg.
Japanskt MOSAIK
í miklu úrvali nýkomið.
Einnig lím og Fugu-sement
Byggingavöruverzlun Kópavogs
Kársnesbraut 2, — Sími 23729.
HÓÐVILJINN
Fimmtugur í dag
Grímar Jónsson
í Varmá
Þeir, sem horfðu að stað-
aldri á knattspyrnuleiki Vals
á árunum 1932 til 1942, munu
hafa veitt athygli grönnum og
spengilegum náunga, sem lék
nær undantekningarlaust í
stöðu hægri bakvarðar. Þótt
maðurinn væri ekki mikill fyr-
irferðar, reyndist mörgum það
nokkur þraut að komast fram
hjá honum í leik, og ógna
marki því, er hann varði. Hann
hafði að vísu til að bera mik-
inn flýti, en hafði lag á því
að láta hraða sinn og flýti
ekki hlaupa með sig í gön-
ur, hann íhugaði hverja að-
stöðu, og lét höfuðið ráða.
Leikurinn var honum eins og
tafl — þar var um að gera
að valda sem bezt, láta hvergi
koma sér að óvörum.
Þessi maður var Grímar
Jónsson, eða Grímar í Varmá,
eins og hann er nefndur í dag-
legu tali. Og það var rétt, að
hann skoðaði knattspyrnuna í
ijósi taflsins. Hann átti það
til að „tefla“ upp kafla úr
leikjum, sem hann lék, og þá
á pappírsblaði, til þess að sjá
hvað hefði verið betra að gera
í ákveðnum tilvikum, eða til
að sannfæra sig og aðra um
það, að rétt hefði verið leikið.
Þetta voru hans hernaðar-
leyndarmál, sem mótherjinn
átti erfitt með að sjá við.
Hann tók sem sagt hlutverk
sitt alvarlega, og var fylginn
sér í hverjum leik. Þessi
framkoma hefur síðan spegl-
ast í viðhorfi hans til annarra
mála, sem hann hefur látið
sig skipta.
Vegna heilsubrests varð
Grímar að hætta þátttöku
sinni í íþróttum, en hann var
einnig mikill áhugamaður um
handknattleik, og náði þar
mjög góðum árangri. Á frjáls-
um íþróttum og skák náði
hann góðum tökum, og tók
þær íþróttir sömu alvarlegu
tökum og önnur áhugamál sín.
Hann hefur þrátt fyrir lasleika
sinn verið virkur í félagslífi
Vals á margan hátt, og þá ekki
sízt í sambandi við félags-
heimili félagsins.
Oft hefur verzlunin Varmá
verið nokkurskonar miðstöð
fyrir ungt Valsfólk og ýmsa
aðra íþróttaáhugamenn, og hef-
ur Grímar þar haft sín góðu
áhrif til hvatningar.
Það leynir sér heldur ekki,
að hann var frábær kennari
og leiðbeinandi, þegar hann
tók sér slíkt fyrir hendur, en
það gerði hann með æfingum
meðan hann keppti. Var þá
sama, hvort hann sneri sér
að handknattleik eða knatt-
spymu, nemendurnir komust
ekki hjá því að taka æfing-
amar alvarlega, og árangurinn
lét ekki á sér standa.
Um skeið var hann lands-
liðsþjálfari i handknattleik.
Grímar er heilsteyptur, hvar
sem hann kemur fram, hefur
sínar ákveðnu skoðanir á mál-
unum, og er óhikandi að bera
þær fram, þótt þær séu ekki
eins og allra annarra, ef svo
ber undir.
Grímar hefur því verið einn
af þessum dyggu þjónum í-
þróttanna, sem hefur unnið
störf sín af ást og áhuga á
málefninu. Einn af þeim sem
hefur skilið, hvað verið er að
fara, þegar hrópað er til æsk-
unnar að hópast undir merki
íþróttanna. Öll þessi mál skoð-
ar hann í hinu raunsæja ljósi,
enda er hann óvenju raunsær
sjálfur, og því skemmtilega
hreinskilinn.
Þess má að lokum geta, að
hann var einn í hinni kunnu
Valsvörn, og vissulega ekki
veikasti hlekkurinn í þeirri
keðju.
Valsmenn, og raunar allir
sem íþróttum unna, þakka
Grímari störfin og áhugann,
og undirritaður fyrir sam-
starfið á velli og vináttu alla.
Frímann.
sitt af hverju
■Jr Austurríkismaðuriim
Heinz Thun sigraði hcims-
methafann í sleggjukasti,
Harold Connolly frá Banda-
ríkjunum í keppni í Vínar-
borg sl. sunnudag. Thun
kastaði 68,57 m. en Connolly
68,48 m. Heinz Thun er efst-
nr á afrckalista heimsins í
sleggjukasti í ár með 69,77
metra.
Laszlo Papp.
Ungverjinn Laszlo Papp,
sem er Evrópumeistari í
í millivigt hnefaleika, mun
verja titil sinn gegn Spán-
vcrjanum Luis Folledo f
Madrid í lok nóvembcr eða
byrjun desember. Papp, sem
nú er 38 ára gamall, hefur
háð 24 kapplciki sem at-
vinnumaður og aldrei beðið
ósigur. Áður en hann gerð-
ist atvinnumaður vann hann
það cinstæða afrek að sigra
á þrennum olympíuleikum í
röð (1948, 1952 og 1956).
utan úr heimi
Útveqs-
mannafélag
Vestfjarða
stofnað
ísafirði, 8. október. — Sl. 'aug-
ardag komu útvegsmenn á Vest-
fjörðum saman hér á tsafirði og
stofnuðu með sér félag, Otvegs-
mjmnafélag Vestfjarða. Var fé-
lagsstofnun þessi gerð að til-
hlutan Landssambands íslenzkra
útvegsmanna. Formaður félags-
ins var kjörin Guðmundur
Guðmundsson á tsafirði en aðrir
í stjórn eru Guðfinnur Einars-
son Bolungarvík, Matthías
Bjamason ísafirði, Óskar Krist-
jánsson Súgandafirði, og Bogi
Þórðarson Patreksfirði.
• !
SlÐA
Mikil þátttaksa i meistara
móti Kópawgs í frjálsum
Árangur í einstökum kepprs-s
isgreinum var nakkuð misjafrn,/
en úrslit fara hér á eftir:
KONUR:
Hástökk:
1. Dröfn Guðmundsdóttir 1/ÁO
2. Arndís Sigurðardóttir t/,'10
3. Arnþrúður Jónsdóttir Í1Í 05
2. Arndís Sigurðard.
3. Edda Halldórsdóttir
3)8.47
Sp jótkast:
1. Arndís Bjömsdóttir
2. Dröfn Guðmundsd.
3. Amþrúður Jónsdóttir 4 19,05
i
SVEINAR:
1500 m hlaup:
1. Börkur Bergmann
2. Óskar Þórmundsson :
60 m hlaup: f (
(12 ára og yngri).
1. Sverrir G. Ármanmsson/ 9j8
2. Daníel Þórisson
3. Börkur Bergmann '
Hástökk (12 ára og yngrQ :
1. Sverrir G. Ármannss. ,1.15
2. Daníel Þórisson J 1.10
3. Þorgeir Baldurason j 1.10
Hástökk sveinar: f
1. Reynir Lúthersson ’ 1.40
2. Gunnar Húbner 1.30
3. Ti-yggvi Gunnarsson 1.30
Spjótkast:
1. Reynir Lúthersson 34.82
2. Einar Sólmundsson 32.50
3. Gunnar Húbner 24.00
4. Tryggvi Gunnarsson 23.34
KARLAR: £
100 m hlaup:
1. Hörður Ingólfsson 12.0
2. Sigurður Geirdal 12.0
3. Unnar Jónsson 12.2
4. Gunnar Snorrason 12.2
1500 m hlaup:
1. Gunnar Snorrason 4.50,2
2. Þórður Guðmundsson 4.57,5
6. október 1963:
Hástökk:
1. Ingólfur Ingólfsson
2. Gunnar Snorrason
3. Ingvi Guðmundsson
1.67
1.57
1.52
Kúluvarp:
1. Ármann Lárusson
2. Ingvi Guðmundsson
3. Ingólfur Ingólfsson
13.21
12.54
11.33
Spjótkast:
1. Hörður Ingólfsson
2. Ólafur Ingólfsson
3. Ingvi Guðmundsson
38.67
36.47
35.55
Kringlukast:
1. Ármann Lárusson
2. Ingólfur Ingólfsson
3. Ingvi Guðmundsson
38.63
32.21
31.26
400 m hlaup:
1. Sigurður Geirdal
2. Gunnar Snorrason
56.2
57.0
Þristökk:
1. Ingólfur Ingólfsson
2. Hörður Ingólfsson.
3. Sigurður Geirdal
4. Unmr Jónsson
5. Gunnar Snorrason
Stangarstökk:
1. Grétar Kristjánsson
2. Gunnar Snorrason
3. Ingólfur Ingólfsson
2.
2.
2.
Langstökk:
1. Hörður Ingólfsson
2. Sigurður Geirdal
3. Gunnar Snorrason
Kringla:
1. Dröfn Guðmundsd.
6.12
5 88