Þjóðviljinn - 11.10.1963, Side 7

Þjóðviljinn - 11.10.1963, Side 7
Föstadagur XX. ofctóber 1963 ÞTðÐVIUINN SÍÐA 7 S MALARALIST Á HAUSTI Það á oft við um haustið að það býður upp á skemmti- legan litaleifc. 1 ár hefur það boðið upp á margt skemmti- legt í myndlist. Fyrst yfir- litssýningu Nínu Tryggva- dóttur, sem var öllum ó- gleymanleg sem sáu og bar vott hugkvæmni hennar. næmri litakennd og áræði við ný viðfamgsefni. Þá kom þar næst sýning ungs mann Jes Einars Þor- steinssonar, sem kom á óvart. Hann mólar myndir sem kenndar eru við tachisma en í þeim dúr að ekki leyna sér hæfileikar og litagleði hins unga manns. Glaðleg sýning. Þá er sýning Félags ís- lenzkra myndlistarmanna í Listamannaskálanum,' sem nú stendur yfir og er samstillt og skemmtileg að þessu sinni. Myndilistarmennimir okkar sanna enn einu sinni að þeir halda uppi íslenzku listalifi. Þama eru 66 myndir eftir 27 höfunda. Mér virðist þeir margir hverjir aldrei hafa verið betri, þeir eru í stöð- ugri sókn og hver um sig er búinn að hasla sér völl og hefur sitt sérstaka svipmót. Þessi sýning segir hvað myndlistarmennimir eru vandir að virðingu sinni og láta efcki frá sér fara nema það, sem þeir telja fullunn- ið. Ýmislegt er hér með ný- stárlegum blæ bæði í mál- verkum og höggmyndum. Hin abstrakta listastefna heldur enn velli, sem höfuð- stefna í myndlist í dag enda þótt þarna séu líka merk myndræn verk á öðrum grundvelli. Myndlistarmennimir okkar láta engann nema vilja sinn og vandvirkni segja sér fyr- ir verkum. Haldi þeir svo fram stefnunni. Jóhann Briem sýnir i Bogasal Þjóðminjasafnsins 28 myndir, sem hann hefur mál- að á seinustu 3 ámm. Það er alttaf einhver fullkom- leiki í byggingu og litameð- ferð mynda hans. Myndir hans taka stöðugum breyting- um, þótt hægt fari, og helzt má sjá hvemig atriðum fækk- ar á myndfietinum og lita- skalinn hækkar. Mörgum finnst oft mikið atriði hvað Jóhann smálar. En nú er reyndin að myndin hefur hlutgengt gildi án þess vitað sé hver fyrirmyndin er. Sér- lega á seinni árum hefur hann náð þeim tökum á lit- um að þeir eru heilar lista- veraldir sem bera meistara sínum vitni. D. -3> Íslenzki arnarstofninn í bráðri hættu Róttækar ráóstafanir til bjargar nauðsynlegar strax Fuglavemdarfélag Islands hefur sent Þjóðviljanum svo- hljóðandi fréttatilkynningu: Eins og kunnugt er, var í byrjun þessa árs skipulagður félagsskapur til þess að koma i veg fyrir að fuglategundir dæju út af mannavöldum hér á landi. Stjóm þessa félags skipa: Úlfar Þórðarson, læknir, formaður, Hákon Guðmunds- son hæstaréttarritari og Svav- ar Pálsson dósent, gjaldkeri. Félagið skipulagði strax snemma á þessu ári eftirlit með öllum varpstöðvum is- lenzkra ;\narins, en eins og vitað er, er hann kominn mjög hætt að deyja út hér á landi. Var haft samband við alia Stórhýsi / Búkarest Þessar myndarlegu byggingar sjá þeir sem koma til Búka- rest, höfuðborgar Rúmeníu. — Þær standa viú aðaltorg borg- arinnar. bændur sem lönd eiga þar sem öm hafði sézt, eða haft varp- svæði á undanfömum árum. Skýrslur um varp amarins á islandi eru síðast frá 1959, þegar, að tilhlutan Mennta- málaráðs, var gerður út leið- angur til þess að rannsaka ná- kvæmlega og telja varpsvæði íslenzka amarins. Það kom í Ijós á þessu ári, að á öllu landinu voru verp- andi fem pör, og komust sex ungar út úr fjómm hreiðrum. Borið saman við 1959, voru átta hreiður og komust tólf ungar út fleygir. Á þessu ári drápust ungar úr tveimur hreiðrum og hurfu emimir líka. Um orsakir þessa er ekki vitað, en mjög sennilegt þykir að þeir hafi farið af eitri; lík- lega hefur verið borið eitrað hræ inn í hreiður, sem unginn síðan drapst af og öminn á eftir, en algengt er að emir sem taka eitur, fljúgi til hafs og heyja þeir þar dauðastríðið. Á árinu fundust fjórir full- orðnir emir dauðir og þar af var einn við eitrað hræ, en ná- kvæmlega er ekki vitað um hina þrjá, en allar líkur benda til þess, að minnsta kosti tveir þeirra hafi drepizt af eitri. Það er mjög áberandi hve iítið hefur sézt af ömum á landinu, jafnvel þó beint hafi verið gerðir út menn til að gá að þessu og fylgjast með því, og láta þá stjóm félagsins vita ef sézt hafi til ama, og eftir þvi sem næst verður komizt, er tala arnanna komin niður fyrir 20 nú. Áður fyrr voru aðalvarp- svæði amanna á Vestfjörð’.im en á öllum vestfjarðakjálkan- um komst ekki upp á þessu ári neinn amarungi, og má telja líklegt að þar hafi verið eitrað allmikið, enda var eitr- un lögboðin á Alþingi 1957. Það er ljóst af þessari skýrslu, að gera þarf mjög rót- tækar ráðstafanir strax ef ís- lenzki amarstofninn á ekki að deyja út. Það er öllum hugsandi mönnum Ijóst, að slíkt væri óhæfa, sérstaklega ef stjómar- völdin gerðu ekki það sem í þeirra valdi stæði til þess að aðstoða áhugamenn um að þetta komi ekki fyrir. Þar sem öminn á mjög fáa óvini hér á landi nema mann- inn, þá ber að gera sér það ljóst, að aðaldauðaorsök am- arins nú er eitur, sem borið er út til að drepa ref og veiði- bjöllu. Það er því krafa allra góðra manna, að Alþingi sem nú kemur saman, samþykki þegar í stað að banna algjör- lega að bera út eitur á öllu landinu. Aðferðir til að drepa tófu og veiðibjöllu, þó ekki sé af eitri, eru allmargar og flest- ar eru árangursríkari en eitr- ið. Á þessum árum er svipað á- stand á Bretlandi um gjóður- inn. eða fiskiöminn, sem tók sér þar bólfestu fyrir nokkr- um árum og hafa fuglavemd- arfélög í Bretlandi, Royal So- ciety for protection of birds, varðmenn allt árið til þess að gæta þess að ekki verði tmfl- un við varpsvæðin, meðan á varpinu stendur. Það eru ekki nema örfá ár síðan þrjú am- arhreiður voru hér sunnan- lands, en þau hafa öll verið eyðilögð gf mannavöldum. Vafalaust væru þessi hreiður enn við lýði, hefði þeirra verið gætt. Islendingar eru miklir nátt- úruunnendur og hafa mikið auga fyrir stórbrotnu landslagi. Það er stórkostlegt að sjá is- lenzka’örnin á flugi yfir hrika- legum fjöllum. Ótalinn fjöldi fólks mun að okkar dómi koma hingað til lands til bess að sjá þessa sýn, ef okkur tekst að forða eminum frá »ð verða eitri eða skammsýnum mönnum að bráð. Skamma stund verður hönd höggi feg- in. Allir góðir íslendingar ættu nú að leggjast á eitt að forða því að öminn deyi út. Það er ekki ennþá of seint Jóbann Briem: Via Appia. — (Á sýningunni í Bogasalnum). Jóhannes Geir: Jarðarför á Króknum. — '(I Listamannaskálanum). Málgagn launastéttanna Þjóðviljinn hefur verið, er og verður bitrasta vopn allra launastétta í land- inu, fyrir bættum kjör- um. Þjóðviljinn berst fyrir réttlátri skiptingu þjóðar- teknanna. Þjóðviljinn berst fyrir hverskonar framförum í atvinnulífi þjóðarinnar. Þjóðviljinn hefur bar- izt fyrir stækkun land- helginnar og fordæmt allt undanhald í þeim málum. Þjóðviljinn berst fyrir fullkomnu sjálfstæði ís- lenzku þjóðarinnar þæði efnahagslega og stjórn- arfarslega. Þjóðviljinn krefst þess að af landinu sé hreins- aður allur her, herstöðv- ar og drápstæki. Þjóðviljinn berst fyrir því að íslenzka þjóðin fái nú og um alla framtíð að stjórna landi sínu sjálf, óháð öllum stórveldum og hernaðarbandalögum. Þjóðviljinn hefur með allri baráttu sinni reynt að vekja stolt þjóðarinn- ar fyrir öllu sem íslenzkt er, og gera s'jálfstæði lands og þjóðar að veru- leika. Þetta eru í stuttu máli helztu baráttumál Sósíal- istaflokksins, og það er hlutverk Þjóðviljuns að flytja landsfólkinu þau og vinna þeim fylgi. Til þess að Þjóðviljinn geti rækt þetta mikla hlutverk, vantar hann peninga. Það er dýrt að gefa út dagblað, sem er vandað bæði að efni og frágangi eins og Þjóðvilj- inn er og verður að vera. Því hetri sem Þjóðvilj- inn er, þess máttugri er hann og áhrifameiri í bar- áttunni fyrir fólkið á móti starblindu aftur- haldi, óðaverðbólgu og ó- alandi ríkisstjórn. Fyrir 25 ára afmæli Sós- íalistaflokksins hefur ver- ið ákveðið að safna til styrktar Þjóðviljanum 1/2 milljón króna, til að standa undir kostnaði við vélakaup og breytingu á húsnæði; ríður mikið á að þessu marki verði náð. Allar launastéttir, sem í sumar hafa staðið í launabaráttu og hafa nú þegar fengið verulegar kjaraþætur, og eins þið, sem standið nú í eldinum, eða eigið þaráttuna fram- undan, munið það, að Þjóðviljinn eÞ ykkar eina málgagn þegar á hólminn er komið, og mun hann aldrei bregðast ykkur. Þessvegna megið þið ekki heldur bregðast honum. Látið öll eitthvað af hendi rakna, mikið eða lítið eft- ir getu og ástæðum hvers og eins. Sú fjárfesting færir ykkur vissulega aukið öryggi. Kaupið Þjóðviljann! Lesið Þjóðviljann! Styrkið Þjóðviljann! Árni Guðmundsson. ! !

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.