Þjóðviljinn - 24.10.1963, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.10.1963, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. október 1963 ÞlðÐVILIINN StD4 3 Talið sennilegt að USA minnki herafla í Evrópu Big-lift áætlunin „gengur vel’ FRANKFURT 23/10 — Stórkostlegustu herflutn- ingar Bandaríkjamanna á friðartímum eru nú í algleymingi. Allt bendir til þess, að búið verði að koma 14.500 manna stórskotaliðsherdeild frá Tex- as til Vestur-Þýzkalands á morgun. Flutningar þessir eiga að sýna Evrópuþjóðunum fram á að Bandaríkin geti varið þær þótt þær minnki fasta- her sinn í Evrópu. í morgun lentu 7 þotur, með alls 1006 manns innanborðs á flugvellinum í Frankfurt. Flntningar „ganga vel“ Þessir herflutningar eru, eins og sagt hefur verið frá. hður í svokallaðri Big-lift heræfinga- áætlun. Mikið er undir þvf kom- ið hvort flutningamir „gangi vel“, þvi að það á að sýna Ev- rópu fram á. að Bandaríkjamenn verði snarir í snúningum, ef til Home vill fresta haustþinginu LONDON 22/10 — Hinn nýi for- sætisráðherra Breta, Home lá- varður, ætlar að fara þess á leit við drottningu að hún fresti haustþinginu sem átti að koma saman 29. október um hálfan mánuð. Þetta hefur mælzt illa fyrir í Verkamannaflókknum og sagði Wilson, leiðtogi hans, í dag að hann teldi vafasamt að nokkur heimild væri til slíkrar frest- unar, sem stafaði eingöngu af því að íhaldsflokknum þætti hún hentug. átaka kemur, og skilji Evrópu- búa ekki eftir vamarlausa, þótt þeir kalli nokkum hluta fasta- hersins heim. Enn gengur allt að óskum — allt bendir til þess, að búið verði að koma 14.500 manna stórskotaliði búnu langdrægum eldflaugum frá Texas til Vestur- Þýzkalands á morgun. Reyndar var svartaþoka yfir flugvellinum í Frankfurt og olli það nokkrum trafala. Eftir hádegi í dag var búið að flytja 200 hermenn til V estur-Þýzkalands. Minni fastaher? Mikið hefur verið ritað i Þýzkalandi og víðar um mögu- leikann á því, að hluti banda- ríska herliðsins í Evrópu verði kallaður heim. Vestur-þýzka dagblaðið AU- gemeine Zeitung segir, að flutn- ingamir yfir til meginlandsins sanni ekkert, því að ýmslegt fleira í þessu sambandi sé tíma- frekt. Það þurfti að safna saman herliðinu, kom því og öllum búnaði um borð. síðan þurfi að gera áætlun í hvert skipti o.s.frv. Velheppnaður flutningur her- liðs og vopnaliðs og vopna geti ekki komið í staðin fyrir bað herlið Bandaríkjanna, sem nú sé í Evrópu. þar að auki muni slík loftbrú reynast veikasti liðurinn í vöminni. Blaðið Baltimore Sun segir í leiðara. að ekíki leiki lengur vafi á, að Bandaríkin ætli sér að kaMa hluta Evrópuheriiðsins heim. Blaðið bendir Kennedy á. að áður en hann taki slíkt skref verði hann að semja við Sovét- ríkin um að þau minnki einn- ig herlið sitt í Austur-Þýzika- landi. 4 sinnum meira flutningsþol Edwin Burba hershöfðingi og stjómandi flutninganna í dag sagði blaðamönnum frá því í dag, að flutningsmagn banda- rískra flugvéla í heild muni verða 4 sinnum meira á næsta ári. Flugvéflar af gerðinni CC-141 Starfighter muni verða teknar í notkun og geti þær flutt 154 manns hver, í 11.200 kílómetra án viðkomu. Burba hershöfðingi taldi engar líkuráþvi, aðBanda- I ríkjamenn muni kalla herliðið I heim frá Evrópu, a.m.k. sann- aði Big-lift áætlunin ekkert i þeim efnum. Rusk til Bonn í Washington hefur þvi verið lýst yfir. að Dean Rusk utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, fari á morgun til Bonn og eigi að tilkynna vestur-þýzku *óm- inni, að Bandarikin hyggi ekki á brottflutning hers frá Evrópa. Bandaríkin hafa nú 250.000 manna herlið í Vestur-Evrópu. Útvarpið í Moskvu lét í gær í Ijósi áhyggjur sovézkra yfir- valda vegna þessara herflutn- inga, sem væru ekki til neins nema deyfa friðarvonina. Bandariskt hveiti flutt inn til Sovétríkjanna. Franska stjórnin reynir að stöðva verkfallaöldu Home lávaröur orðinn Sir fllec LONDON 23.10. — Home lá- varður hefur sagt af sér aðals- titlinum og getur nú setið i neðri deild þingsins. 1 morgun skrifaði Home lá- varður, hinn nýkjömi forsætis- ráðherra Bretlands, undir öll nauðsynleg skjöl til þess að afsala sér aðalstitlinum. Nú getur hann va'lið milli lávarða- deiidar og undirdeildar. Kosn- ingamar fara fram 7. nóvem- ber í Kinross og Perthsire í Skotlandi. 10 sjómenn drukknn vii Spánarstrendur PENZANCE 23/10 — Tíuspánsk- ir sjómenn fórust, þegar 682 smálesta strandferðaskip, Juan Ferrer. tók niðri. Þetta gerðist við suð-vesturströnd Spánar, bar sem siglingaleiðir eru hættuleg- astar, nálægt Lamom Cove. Fimm manns björguðust, þar á meðal skipstjórinn. Slysið skeði í þoku og kulda- strekkingi um tvöleytið. Rétt eftir að skipið hafði sent úr neyðarkall þagnaði senditækið og ómögulegt var að koma auga á skipið fyrir þokunni. Björgun- arlið var sent út af örkinni. og var leitað lengi fram eftir nóttu. Þegar birta tók af degi lögðu tvær leitarflugvélar af stað. Þyrilvængja kom með annan þeirra sem fannst í sjónum í land, hinn tóku björgunarbátar. Þrír þeirra sem björguðust kom- ust í land af eigin rammleik. Sjö lík hafa fundizt af þeim tíu, sem drukknuðu. Fyrir ári fórst franskt skip á sömu slóðum og fórust 12 manns af 18 manna áhöfn. Býður 4% launahækkun París 23/10 — Franskir jám- brautarverkamenn hófu verk- faU kL 3 í nótt, sem á að standa einn sólarhring. Verkamennimir væna stjómina um að hafa svikið loforð s£n frá því í vor, er samið var um 3% launa- hækkun. og krefjast hærri launa og betri vinnuskilyrða. Viðreisnin mun taka sinn tima Pompidou fors ætisrá ðherra skýrði frá því, að launahækkun- in sem samið var um í vor mundi hækka upp í 4% á ári, meðan á viðreisninni stæði. Samningurinn var gerður til eins árs. Miðað hefur verið viö að viðreisnin tæki 6 mánuði, en upplýsingamálaráðherrann sagði í dag að það væri enn óráðið með öllu. Stjómin ber sig illa, og segir, að þessar aukalauna- hækkanir muni kosta ríkið um 200 milljónir franka. Hin upprunalega 3% launa- hækkun var miðuð við, að þjóð- artekjur yrðu þær sömu og búizt var við. Kaupmátturinn lækkar um 12% Jámbrautarverkamenn krefj- ast þess, að samningurinn frá þv£ í vor verði haldinn, og benda ennfremur á, að kaup- máttur launa þeirra hafi minnk- að um 12%: frá því samningur- inn var gerður. Viðræður fóru fram í dag milli forsætisráðherrans og full- trúa verkamanna. Ráðherrann sagði stjómina vera ákveðna í að halda viðreisninni til streitu. Verkfallið algjört Jámbrautaumferð stöðvaðist að heita má alveg. Eitthvað var þó haldið uppi samgöngum i Mið- og Austur-Frakklandi, en umferð lamaðist alveg kringum París. Meira en 300 herbflar vora sendir á kreik til þess að skjóta fólki milli bæja. Verkfall í kauphöllinni Verkamenn, sem vinna við kauphölHna í París efndu eiim- ig til verkfalls í dag til stuðn- ings kröfum sínum um launa- hækkun. Gengu þeir um götnr og sungu og hrópuðu kröfur sln- ar. Kauphöllin starfaði ekki í dag og var henni lokað hálfum öðrum tíma fyrr en vanalega. Kúbu engin miskunn sýnd Frá Alsír WASHINGTON 23.10.—Band- íska utanrikisráðuneytið lýs- ir yfir í dag, að Bandaríkin muni halda áfram að einangra Kúbu þangað til stjóm Kastr- ós falli frá stefnu sem sé fjandsamleg Bandaríkjunum. Nýafstaðnar náttúruhamfarir Kúba á nú við mikla erfið- leika að stríða, vegna tjóns- ins af völdum fellibylsins Flóru. Fór Kastró þess því á leit við stjóm Bandaríkjanna, að ein- angraninni yrði aflétt til þess að auðvelda þeim uppbygging- una. Þetta var svarið. Þeim var nær Bandaríkin bentu á í svari Róstur á landa- mærum fllsírs í dag réðst alsi'rsikt herlið á landamærastöðina Ain Tannezz- ara i Norð-austur Marokkó. Á- rásinni var hrundið. en ekki er vitað hvort mannfan varð. sinu, að Rauði Krossinn hafi boðið Kúbu aðstoð. en henni hafi verið hafnað. Sagði og, að Bandaríkjamenn hefðu samúð með þjóðinni, sem hefði verið rænd persónufrelsi og efnahagslegri velmegun. En við getum ekki breytt öðru vísi gagnvart landi, sem stjómað er af kommúnistum. Kosningar í Jap- an eftir mánuð TOKIO 23/10 — Ikeda, forsætís- ráðherra Japans slcit í dag jap- anska þjöðþinginu og fara nýjar kosningar fram 21. nóvcmber. Hin opinbera skýring er súj að efnt verði til þessara kosu- inga samkvæmt kröfu þjðSar- innar, sem heimti nýja stefnu f stjómmálum. Kjósendum er sér- staklega bent á íhaldsflokkinn (liberaldemókratíska flokktan)j sem þeir geti treyst. Stefna hans sé að koma á fót velferðarþjóð- félagi og efla frið í Asfu og öll- um heiminum. Kunnugir benda á, að kosn- ingamar muni ekki hafa neina breytingu á stjómmálalífi Jap- ans í för með sér. en sé Ikeda forsætisráðherra með þessu að- eins að styrkja aðstöðu sína inn- an flokksins og klekkja á keppi- naut sínum Sisaku Sato, sem talinn er enn íhaldsamari en Ikeda. .H Life segir verð- laun Paulings móðgun við USA NEW YORK 22/10 — Hið út- breidda bandaríska vikublað „Life“ segir í dag um úthlutun friðarverðlauna Nóbels til vís- indamannsins Linus Paulings að hún hafi verið „móðgun við Bandaríkin". Blaðið segir að enda þótt dr. Pauling hafi svar- ið eið að því að hann væri ekki kommúnistij hafi hann árum saman lagt hinni kommúnis' ísku friðarbaráttu lið. Þjóðviljann vantar uuglinga eða roskið fólk til útburðar i eftirtalin hverfi: Grimstaðahoit L og IL Tjarnargata Laugarás Heiðargerði Herskólahverfi 1!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.