Þjóðviljinn - 24.10.1963, Blaðsíða 6
ÞIODVILIINN
Fimmtudagnir 24. október 1963
g SÍÐA
Spiegelmálið enn á ferðinni
Erhards í
á fyrsta
Ríkisstjórn
hluta strax
Aðeins fáeinum tímum eftir að Ludwig Erhard tók við stjórnar-
taumum i Vestur-Þýzkalandi klofnaði ríkisstjórn hans við at-
kvæðagreiðslu í þinginu, og Erhard Ienti í minnihluta. Ástæðan
var, að Iitli ríkisstjórnarflokkurinn, Frjálsir demókratar, greiddu
atkvæði með sósíaldemókrötum. og gegn flokki kristilegra.
Þessi óvenjulegi atburður
gerðist, er greidd voru atkvæði
um þá tillögu Kristilega demó-
krataflokksins að svipta einn
af þingmörmum sósíaldemó-
krata þinghelgi. Maður þessi
heitir Gerhard Jahn og er á-
kærður um að hafa veitt viku-
ritinu Der Spiegel ýmsar upp-
lýsingar og lánað því skýrslur,
sem áttu að vera trúnaðarmál,
en Jahn á sæti í vamarmála-
nefnd sambandsþingsins.
Það kom öllum á óvart. að
Frjálsir demókratar studdu
sósíaldemókrata, sem börðust
ákaft gegn því að Jahn yrði
sviptur þinghelgi. Þetta er
stórhneyksli, hrópaði einn af
formælendum Kristilegra demó-
krata, er úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar urðu kunn.
Litlar breytlngar
á stjórninni
Erhard birti ráðherralista
sinn fyrir nokkrum dögum. og
kom í ljós, að litlar breytingar
höfðu verið gerðar. Erich
Mende, foringi Frjálsra demó-
krata, er nú settur yfir „al-
þýzk“ málefni auk þess sem
hann er varakanslari. Kurt
Sc'hmúoker tekur við embætti
Erhards sem efnahagsmála-
ráðherra.
Samtímis þessum breytingum
er Hans Globke látinn fjúka
úr embætti ráðuneytisstjóra,
en hann hefur eins og kunn-
ugt er verið afhjúpaður sem
náinn samstarfsmaður Hitlers
á sínum tíma. Vesturþýzka
stjómin þráaðist lengi við að
hreyfa við honum, þrátt fyrir
mikla gagnrýni víða að úr
heiminum, en nú hefur hún
gefizt upp á að halda hlifi-
skildi sínum yfir þessum hátt-
setta, gamla nazista.
Ráðherramir fá að reykja!
A fyrsta ráðuneytisfundinum
sem Erhard stýrir, var gamalli
erfðavenju Adenauerstímans
kastað fyrir borð — meðlimir
Adenauer: Astæðan til þess, að ég, maður á bezía aldri, eftirlæt kanslaraembættið ungllng eins
og þér, Erhard, er sú, að ég geri ráð fyrir að taka við af þér, þegar þú nærð aldurstakmarkinu.
John Steinbeck hyllir ásta-
lífið í nútímabókmenntum!
en kallar Nóbelsver&launin grafskriff
Hinn helmsfrægi rithöfund-
nr. John Steinbeck, var stadd-
ur í Helsingfors fyrir nokkr-
um dögum á Ieið til Moskvu.
Hann ræddi þar nokkra stund
við blaðamenn og sagði. aö
Bandaríkjamaðurinn Carl Sand-
burg eða enska ljóðskáldið Ró-
bert Graves ættu helzt skilið
að fá bókmenntaverðlaun Nó-
bels í ár. En hvað Sandburg
snertir, sagði Steinbeck, er
tæplega þess að vænta. að eld-
ingunni Ijósti niður á sama
staðinn tvisvar í röð!
Eins og kunnugt er hlaut
Steinbeck sjálfur bókmennta-
verðlaun Nóbels á seinasta ári.
Hann lét þau orð falla um
verðlaunin, að rithöfundum
væri varla gerður mikill greið'
með því að veita þeim slíkan
heiður. Verðlaunin eru miklu
frekar eins konar dauðadómur
eða grafskrift sagði Steinbeck.
Og hann bætti þvi við, að
sjálfur hefði hann aldrei tekið
við verðlaununum, ef hann
hefði ekki talið sig nógu sterk
an á svellinu til að veita slík-
um heiðri viðtöku.
— Ég er stöðugt að vinna
sagði Steinbeck. Ég er ekki á
nægður með tvær seinustu lin
umar á minnisvarðanum mm
um!
Steinbeck fékkst ekkert ti
að ræða um nútímabókmennti
í Sovétríkjunum og sagðis
ekki þekkja nógu vel til þeirr;
Hins vegar ræddi hann tölu
vert um vandamál svertinc'
í Bandaríkjunum og sagði. r
í Suðurríkjunum væri ekk* 1
aðeins um uppreisn að ræða
Þetta væri bylting.
Steinbeck var spurður um
álit sitt á bókmenntum og sið-
ferðilegri ritskoðun, og sagðis*
hann vera mjög hrifinn af
kynlífi og ástafarslýsingum f
nútímabókmenntum. — Hann
John Steinbeck
bætti því við, að ritskoðun
gæti aðeins skapað óþarflega
mikinn áhuga almennings á
fölskum verðmætum og léleg-
um bókmenntum.
minni-
degi!
rikisstjómarinnar fengu að
reykja, meðan á umræðum
stóð!
1 öll þau fjórtán ár. sem
Konrad Adenauer var kanslari
Sambandslýðveldisins, voru það
óskrifuð lög, að ekki mætti
reykja á ráðuneytisfundum.
Adenauer reykir aldrei sjálfur.
Á hinn bóginn er arftakinn,
Ludwig Erhard mikill vindla-
maður. og nú eru loksir.s
komnir öskubakkar á borð
rikisstjórnarinnar. Þar er líka
klukka, sem Adenauer hefur
gefið ríkisstjóminni.
AKCHIE SHEPP
Rœft vi& djassleikarann ARCHIE SHEPP
Með lögregluna á hælunum
eftir heimsmót í Helsinki
Hinn kunni bandaríski jassleikari Archie Shepp
hefur átt viðtal við danska blaðið Information.
Þar kemur meðal annars fram, að eftir að
Shepp fór á heimsmót æskunnar í Helsinki sum-
arið 1962 má hann varla um frjálst höfuð strjúka
í Bandaríkjunum, en leyniþjónustan FBI er alls
staðar á hælunum á honum.
heim gerði lögreglan hvað
eftir annað húsleit hjá mér.
Við þetta bættist, að i vor
ritaði hann grein í New York
Post og kvartaði yfir, að svert-
ingjar og innflytjendur frá
Puerto Rica fengju alltof lé-
lega kennslu og slæma aðbúð
af hálfu skólayfirvaldanna í
New York.
— Nei, ég held ekki að ég
muni alltaf leika djass. segir
Archie Shepp við blaðamann-
inn. Það er alltof erfitt líf.
Engin önnur list reynir jafn
mikið á listamanninn. Á engu
öðru sviði listanna er þess
krafizt að maður sé stöðugt að
framleiða eitthvað nýtt, klukku-
stundum saman og kvöld eftir
kvöld. Hugsaðu þér bara, hvað
það er í rauninni ótrúlegt, að
tónlistarmaður eins og John
Coltrane skuli geta framleitt
eitthvað, sem þykir vel gert og
skemmtilegt, á hverju einasta
kvöldi eða þó ekki væri nema
fimm kvöld af hverjum tíu.
Maður er algjörlega útkeyrð-
ur. bæði líkamlega og tilfinn-
ingalega, þegar maður er bú-
inn að leika heilt kvöld. Og
það eru ekki margir djassleik-
arar í Bandaríkjunum, sem
geta leyft sér að pústa ofur-
lítið — þeir eru yfirleitt ekki
fastráðnir.
Archie Shepp er 26 ára gam-
all saxófónleikari frá New
York og leikur þessa stundina
i Montmartre djasshúsinu.
Enda þótt hann sé einn
af frægari tenórsaxófónistum
yngri kynslóðarinnar, hefur
hann alltaf átt í erfiðleikum^
með atvinnu sína og oft verið
atvinnulaus langtímum saman.
— Þegar ég var unglingur
og heyrði tónlist Charlie
Barkers í fyrsta sinn, fór ég
að reyna að herma eftir hon-
um, en faðir minn sagði við
mig: Það er ágætt að dunda
við þetta í tómstundum sínum,
en enginn getur lifað á slíku.
Líklega hafði hann alveg rétt
fyrir sér. Það er fyrst nú, eft-
ir að ég kom til Evrópu, að
ég fæ fasta vinnu lengur en
í mánuð. Á hverju ég lifði?
Ta, það má guð vita. Marair
iiassleikarar halda áfram enda-
laust þrátt fyrir allt og reyna
að venja sig við lífskjörin, því
að þeir elska tónlistina meir
en nokkuað.
Meðal annars sem Archie
Shepp hefur fengizt við er að
leika tónlistarmann í hinu
kunna leikriti Jack Gelbers
The Connection í The Living
Theatre í New York. Shepp
segist hafa lært mikið þessar
þrjár vikur, sem hann var í
leikhúsinu. en hann hefur ný-
lokið við fimm ára nám í leik-
ritagerð og hefur ritað mörg
leikrit.
Eftir heimsmótið
í Helsinki
Shepp hefur stundað noklkuð
kennslustörf á undanfömum
árum til að bæta upp hinar
rýru tekjur af tónlistinni, og
hefur hann kennt í skóla fyrir
lömuð og fötluð böm. 1 sumar
var hann rekinn fyrir smá-
vægiíega yfirsjón, en aðal-
óstæðan var tvímælalaust sú,
að hann var grunaður um tor-
tryggilegar stjórnmálaskoðanir.
Shepp tók þátt í æskulýðs-
mótinu í Helsinki sumarið 1962.
og segist hann hafa verið
hundeltur af leynilögreglunni
FBI, eftir að hann kom heim.
Ég vissi það, áður en ég fór
á mótið, hvaða afleiðingar
þessi ferð mundi hafa fyrir
mig. en ég var reyndar þá þeg-
ar orðinn vonlaus um að fá
nokkum tíma að starfa f friði
í New York. Eftir að ég kom
Kennedy klókur
tækifaerissinni
Þegar Shepp er spurður,
hvað þvf valdi. að hann skuli
vera svo miklu pólitískari en
margir starfsbræður hans,
svarar hann:
— Ég hef átt þvi láni að
fagna að íá betri menntun en
flestir aðrir. Faðir minn var
vakandi í stjómmálum og
brýndi ævinlega fyrir mér, hve
mikilvægt væri, að menn
neyttu kosningaréttarins. Þetta
var ólíkt flestum öðrum negr-
um. og einmitt þetta er einn
liðurinn í kerfisbundnum kúg-
unaraðferðum. En nú er þetta
að breytast. Bandarískir negrar
fá ekkert gefins. Kennedy bef-
ur engan raunverulegan áhuga
— hann er aðeins klókur oe
tækifærissinnaður. Hann hefði
alveg eins getað hugsað sér að
lóta Wallace fylkisstjóra kom-
ast upp með hvað sem var. Og
þegar Wallace tapaði orast-
unni, var það fyrst og fremst
heimsku hans sjálfs að þakka,
en ekki Kennedy forseta.
Kennedy gerir ekki handtak
í þessum málum. Honum finnst
gaman að vera forseti.
Mjolkurverkfall í
V-Þýzkalandi
— Hættið að drekka, ef þér
mögulega .getið! Reynið að láta
yður nægja eins lítið magn og
mögulegt er! — Þannig hljóða
slagorðin í mótmælahreyfingu.
sem gerir nú vart við sig um
allt Þýzkaland. I fljótu bragði
kynnu menn að halda. að bind-
indishreyfingin gengi nú ber-
serksgang. En það er ekki.
Drekkið vín, ef þið viljið, en
drekkið ekki mjólk!
Upphaf málsins er það, að
stjómmálamennimir í Bonn
samþykktu að hækka mjólkur-
verðið sem nemur 60 ísl. aur-
um á lítrann. Og auðvitað fór
það eins og oftast óður. að
bændumir fengu aðeins lítinn
hluta af hækkuninni, en af-
gangurinn lenti hjá milliliðun-
um, sem nóg höfðu fyrir.
Nú rignir mótmælunum gegn
nýja mjólkurverðinu úm allt
V estur-Þýzkaland. Mótmæla-
aldan átti upptök sín við
Bodenvatnið syðst í landinu og
Framhald á 8. sfðu