Þjóðviljinn - 31.10.1963, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 31.10.1963, Blaðsíða 6
6 S1DA-----------------------------■ -v... HÖDVUIINN Fimmtudagur 31. október 1963 Skuldaði milljón í skatta ,Lifandi leikhúsinu' í New York hefur nú verið lokað Leíkhús í New York sem að áliti gagnrýnenda og þeirra ekki aðeins bandarískra hefur lagt fram einna drýgstan skerf til bandarískrar menningar eftirstríðs- ins hefur nú lokað dyrum sínum, eða öllu heldur hef- ur þeim verið lokað með lögregluvaldi, hald verið lagt á allar eigur leikhússins, leiktjöld og búninga, og leik- hússtjórinn ásamt leikurum og nokkrum aðdáendum eiga yfir höfði sér fangelsisdóma. Hér er um að ræða „The Living Theater" (Hið lifandi lefkhús) sem stofnað var árið 1946 og hefur síðan verið brautryðjandi í bandarískri leiklist. I>að hefur verið til húsa í litlum sal við Sjötta stræti, í hjarta Greenwidh Village, listamannahverfis New York borgar, drjúgan spöl frá hinum írægu leikhúsum á Broadway, sem ekki rísa ævinlega undir frægðinni. Milljón krónur Skattheimtumenn sem gerðu kröfu um greiðslu á 23.000 doUurum '( um milljón kr.) höfðu fyrirskipað að leikhús- inu skyldi lokað á föstudags- kvöldið í fyrri viku og höfðu innsiglað allar dyr. En þótt dyr leikhússins væru raromlega læstar, féll leiksýn- ing ekfci niður á laugardag- inn. Leikarar og áhorfendur komust inn í húsið gegnum glugga og bakdyr sem gleymzt hafði að læsa og sýning fór frarri eins og ekkert hefði í skorizt. Sumir klifruðu upp á þök næstu húsa og kom- ust þannig inn í leiksalinn eft- ir krókaleiðum. Lögreglan sem gætti dyr- anna varð einskis vör fyrr en eftir að sýning var hafin Qg áræddi þá ekfci að trufla hana. Sýnt var leikritið „The Brig“ sem er ófögur lýsing á lífinu í landgöngusveitum flotans og hefur verið sýnt þarna í marga mánuði. Það var ekki fyrr en að sýn- ingu lokirmi að sló i hart. Leikhússtjórinn, Julian Beok, eiginkona hans Judith Malina, leikaramir og nokkrir áhorf- enda tóku sér þá sæti á hring- I sviðinu í miðjum salnum og neituðu að hreyfa sig þaðan. , Viðureign þeirra við lögregl- una lauk með því að þau voru öll sett í járn og þeim ekið í tukthúsið. Þeim var ekki sleppt úr haldi fyrr en á sunnudag, og á mámudag- inn var ákveðið að þau yrðu leidd fyrir rétt 4. nóvember. Það er tekið hart á því i Bandarfkjunum að sýna lög- reglunni mótþróa og hvert þeirra á því á hættu allt að þriggja ára fangelsisvist og 5.000 dollara sekt. Selt á uppboði Allar eigur leikhússins, sem að vísu munu ekki vera mik- ils virði í dollurum, búning- ar, áhöld og leiktjöld, voru gerðar upptækar og munu seldar á uppboði innan skamms til lúkningar skatt- skuldinni, þótt hætt sé við að uppboðstekjumar muni hrökkva skammt. Mæltist illa fyrir í Bandaríkjunum Hindruð kvikmynd um líf og duuðu Saccos og Vanzettis í janúar s.l. boðaði hið volduga ítalska kvikmynda- íélag De Laurentiis að það hefði ákveðið að láta gera kvikmynd um líf og dauða Saccos og Vanzettié, ítölsku innflytjendanna og stjómleysingjanna, sem dæmdir voru til dauða saklausir af dómstól í Boston og teknir af lífi í rafmagnsstólnum árið 1927. Nú hefyr félagið tilkynnt að töku kvikmyndarinnar hafi verið frestað, en ítölsk blöð fullyrða að hætt hafi verið við hana vegna þess að bandarískir aðilar hafi hótað kvikmyndafélaginu öllu illu, ef það léti verða af henni. Ætlunin hafði verið að taka útiatriða hæfist í Boston í marz s.l„ en þar í borg var glæpur sá framinn, rán og morð, sem þeir Sacco og Vanz- etti voru sakaðir um og dæmd- ir til dauða fyrir. Kvikmyndastjóri hafði ver- ið ráðinn Richard Fleischer og einn af kunnari tökurits- höfundum Bandaríkjanna, Edward Anhalt („The Young Lions“, „Panic in the Streets“), hafði samið tökuritið. Að- eins átti eftir að ganga frá samningum við leikarana, sem áttu að vera bæði bandarískir og ítalskir. ftölsk blöð þykjast vita, enda þótt því hafi ekki verið flaggað, að voldug öfl í Banda- ríkjunum hafi gert De Laur- entiis það ljóst, að hann myndi ekki fá leyfi til að sýna kvikmyndina um Sacco og Vanzetti þar vestra og það sem meira væri, að sett myndi sýningarbann á aðrar kvik- myndir sem hann hefur á prjónunum og hefur þegar lagt offjár í sem hann hefur ætlað að vinna inn aftur á hinum mikla markaði í Banda- rikjunum. Er þar fyrst og fremst um að ræða margum- talaða kvikmynd sem heitir hvorki meira né minna en „Biblían". Á það er bent að málgagn kaþólska biskupsins í Boston, „The Pilot“, lagðist í for- ustugrein eindregið gegn kvikmyndinni. í greininni sem hafði fyrirsögnina „Ekki enn- þá“ var m.a. sagt, að „þar sem ómögulegt myndi vera að sýna réttar staðreyndir máls- ins, myndi kvikmyndin að- eins verða vatn á myllu komimúnista, sem helguðu sér málstað Saccos og Vanzettis og hafa gert sér mikinn áróðurs- mat úr honum“. Enginn kvik- myndaframleiðandi sem hyggst sýna myndir sínar á banda- rískum markaði getur leyft sér að ganga í berhögg við kaþólsku kirkjuna þar, sízt af öllu sá sem hefur á bo.ðstól- um kvikmynd byggða á biblí- unni. Þar sem farið er að fymast yfir harmsögu þeirra Saccos og Vanzettis, er rétt að rifja upp helztu „staðreyndir máls- ins“ sem ekki leikur neinn vafi á. Þeir Nicola Sacco '(fæddur 1891) og Bartolomeo Vanzetti (fæddur 1888) komu báðir ungir menn til Bandaríkjanna, og settust eins og margir land- ar þeirra á þeim tima að í Boston. Stjómleysingjar áttu þá talsverðu fylgi að fagna í Bandaríkjunum, ekki sízt meðal ítalskra innflytjenda, og þeir Sacco og Vanzetti höfðu sig í frammi í samtökum þeirra. Upp úr fyrrl heims- styrjöldinni hófst í Bandaríkj- unum ofsóknaralda gegn ÖU- um róttækum mönnum og verklýðssinnum, sem voru þúsundum saman handteknir og dæmdir, oftast án þess að nQkkur fótur væri fyrir á- kærunum. Þeir Sacco og Vanzetti voru handteknir í apríl 1920 og á- kærðir fyrir morð á gjaldkera í South Braintree í Massachus- etts. Þeir voru dæmdir til dauða, enda þótt ekki væri snefill af sönnunum fyrir sekt þeirra. Mál þeirra vakti gif- urlega athygli og fyrir bar- áttu verkalýðdhreyfingarinnar Framhald á 8. siðu. Réttarrannsókn gegn 102 menntamönnum á Spáni I Madrid cr hafin réttarrannsókn gegn 102 spænskum rit- höfundum, listamönnum, prófessorum og öðrum mennta- mönnum, sem höfðu undirritað ávarp til spænsks almcnnings þar sem mótmælt var misþyrmingum verkfallsmanna og pólitískra fanga í Asturias-héraði. Þeir hafa verið sakaðir um „undirróðursstarfsemi”. Ávarp þeirra var afhent spænska upplýsingamálaráðherranum Fraga Iribame 30. september s. I. og samtímis fengu eriendir fréttamenn á Spáni eintök af því. Iribarne hefur iátið hafa eftir sér, að ávarpið sé runnið undan rifjum kommúnista. Enn halda þeir áfram að marséra Hér fyrir nokkrum dögum birtist mynd af marg krossuðum og ordíneruðiun hermönnum Vilhjálms keisara og Adolfs Hitlers á gangi í Vestur-Berlín, þar sem þeir marséruðu sig aftur inn á það stig sálarlífsins sem þeir höfðu þá. Þarna eru þeir enn að spásera í Marktheideníeldt. Þeir höfðu líka verið á vígvöllunum Um sama leyti og þessir gömlu stríðsmenn sýndu vegfarendum krossa sína í Vestur-Þýzkaiandi voru andvígismenn þeirra forðum einnig á gangi í París. Þeir báru þó hvorki orður né krossa, heldur kröfuspjöid um að ckki yrði meira þrengt að þeirra hag en þegar hefur verið gert. Kr'ustjoff segist ekki vera með Er nokkur keppni um að verða fyrri til tungisins? Kennedy forseti hcfur iýst á- ætlun Bandaríkjamanna að koma manni til tunglsins sem mesta marki þjóðar sinnar. Flestallir áhrifamcnn á Banda- ríkjaþingi munu honum ósam- mála. Keldisj, forseti Vísinda- akademíu Sovétríkjanna, hefur lýst það söguburð og þvætl- ing að Sovétríkin ætli sér ekki að senda mann til tunglsins við fyrsta tækifæri. Nú hefur Krústjoff forsætisráðherra cinnig látið til sín heyra um þctta hugstæða mál. Hann seg- ir að sovétmönnum komi ekki til hugar að taka þátt í neinni keppni við bandaríska um hvorir verði fyrstir til tungls- ins. — Ef Bamdaríkjamenn verða þangað fyrstir allra, þá er full ástæða til að samfagna þeim. En hvemig ætla þeir að koma aftur til jarðarinnar? spurði hann síðan. Þetta er náttúrulega mjög mikið atriði og hinn sovézki forsætisráðherra lét í það skína í viðtali við blaðamenn rétt fyTÍr helgi, að litlar líkur væru á því að nolckur lausn fyndist á því fyrst um sinn. 1 Bandaríkjunum hafa aðr- ar eins raddir heyi-zt, og hafa þar margir víðþekktir vísinda- menn haldið fram að keppnin að komast fyrstur til tunglsins væri hjákátleg, þegar höfð væru í huga öll þau miklu vandamál sem biðu mannsins á jörðinni. Fjárveitinganefndir Bandaríkjaþings hafa tekið all- mikið t/illit til þessara sjónar- miða, og hafa þær skorið niður þær fjárveitingar sem ætlað- ar voru til tunglsiglinga. En hvað sem Kennedy og Krústjoff segja, hvað sem Kcldisj og nafntogaðir banda- r'V.kír starfsfélagar hans segja, m ™„nn fiesfjir engu nær urn ■' "c~» koppwst um að 'il tungW.ns eða ekki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.