Þjóðviljinn - 04.12.1963, Side 6
ÞlðÐVIUINN
Miðvikudagur 4. desember 1963
g SlÐA
Hver hlekkurinn af öðrum finnst í keðju samsærisins
OHUGSANDIER AD OSWALD HAF
EINN MYRT KENNEDY FORSETA
Á hverjum degi sem liðið hefur síðan Kennedy forseti var skotinn til
bana í Dallas hefur eitthvað orðið uppvíst sem varpar Ijósi á málið, en
þó er enn langt frá því að menn geti sagt með nokkurri vissu með hvaða
hætti morðið átti sér stað, né hverjir stóðu að því. Allt sem á daginn
hefur komið bendir þó eindregið til þess að annaðhvort hafi Oswald sá
sem ákærður var fyrir glæpinn engan þátt átt í honum eða þá að hann
hafi verið í vitorði með öðrum og sér voldugri mönnum, sem hafi síðan
rutt honum úr vegi, svo að hann kæmi ekki upp um þá.
ÍBifrcið I Húsið sem íalið er að skotin .þrjú ‘hafi
PCeimedvj komið úit LlH *44jnT0j3SJr
PACIFIC AVE.
llllPIPII
7~1 ! ~1 1 |
1 Ltífixeglu-i . [ .stöðln
I
i 1
i □
I
COMMERCE ST.
■
' JACKSON ST.
: ' r-'.b-í'V.'.i-í
—
l’ ' ? .
Kitstjóm
„Pallas Momituý NéwsK
„Carousel“,
uœturklúbburinn.
. M '-----v\ vi rLiiaÍÍEl---J
j \^\|
Kortin hér að ofan ættu að skýra sig sjálf, þegar þau eru skoðuð í ljósi þess sem
segir annars hér á síðunni. Það verður augljóst af þeim að fjarstæða er að ímynda
sér, eftir allt sem gerzt hefur, að engin tengsl hafi verið milli þeirra Oswalds, Ruby
og Tippits; að fundur þeirra Tippits og Oswalds hafi verið tilviljun ein; að hending
hafi því ráðið að strax eftir morð Kennedys hélt Oswald beinustu leiðina til Ruby.
Hér fara á eftir meginatriðin
í frásögn fréttamanns ítalska
blaðsins ,,l’Unitá“ i Washing-
ton. Hún hefst á þessari spum-
ingu:
— Lfður senn að því að
miklir hlutir gerist í rannsókn-
inni á morði Kennedys for-
seta? Þrennt nýtt sem komið
hefur á daginn virðist benda
til þess:
INú er leitað að „öðrum
« manni“, sem sagður er
vera kunnur svertingjahat-
arl, þótt nafn hans hafi ekki
verlð látið uppi.
2Frá því hefur nú verið
. skýrt að það hafi ekki
verið ákveðið fyrr en á
allra sxðustu stundu hvaða
leið bíialest forsetans skyldi
fara inn í Dallas og aðeins
örfáir menn í lögreglunni
þar og öryggisþjónustunni
hafi vitað um hana fyrir-
fram.
O Fyrir því er nú fengin
0« nær alger vissa að eftir
morðið var Oswald á ferð
heim til Rubys, sem siðar
skaut hann til bana og ekki
hafi það verið nein tilviljun
að Tippit Iögreglumaður
varð fyrir honum á þeirri
leið.
Að vísu er þvf haldið fram
líka, segir fréttamaðurinn, að
sambandslögreglan FBI hafi við
athugun sína á gangi máls-
ins komizt að sömu niðurstöðu
og lögreglan í Dallas, en fáir
trúa lengur þeirri staðhæfingu
lögreglumanna í Dallas að Os-
wald hafi verið einn um morð-
ið, ef hann átti þá nokkum
hlut í því. Allt það sem komið
hafi fram við eftirgrennslan
blaðamanna og þeir hafa ekki
látið á sér standa við rannsókn
þessa flókna máls og heldur
ekki þagað yfir niðurstöðum
sínum — allt gangi það í ber-
hðgg við fullyrðingar lögregl-
unnar í Dallas.
Félagi úr flotanum
Blaðið „New York Post“
segir að lögreglan leiti nú
manns, kunns svertingjahata.ra,
sem hún gruni um að hafa
verið í vitorði méð Oswald.
Hann er sagður hafa komizt í
kast við lögregluna í Green-
wich VUlage í New York þeg-
ar óspektir urðu vegna illinda
hans í garð svertingja. Blaðlð
fullyrðir að þeir Oswald hafi
sézt í slagtogi saman þar í
hverfinu. og hafi þeir kynnz'
þegar þeir voru samtímis í
landgönguliði flotans.
Yfirheyrður af FBI
Nokkra athygli hefur vakið
sú frásögn blaðsins „Dallas
Moming News“ að sambands-
lögreglan FBI hafi undanfarið
fylgzt vel með ferðum Os-
walds. Það hefur eftir móður
hans og hún eftir honum að
menn úr FBI hafi þrívegis yf-
irheyrt hann nú nýlega. Fyrst
f Fort Worth í fyrra, sköm-^u
eftir að hann sneri heim á
Sovétrikjunum, í annað sinn i
New Orleans í fyrrasumar og í
þriðja siinn í september, þegar
hann fluttist með fjölskyldu
sína til Irving.
Örfáir vissu leiðina
Á það er þá um leið bent
að allar frásagnir af áhuga
FBI á Oswald og ferðum hans
séu komnar frá Dallas, en
fulltrúar sambandslögreglunn-
ar hafi borið á móti þeim.
Miklu athyglisverðari eru
þær upplýsingar stórblaðsins
„New York Herald Tribune'*
að leið sú sem bílalest for-
setans skyldi fara. frá flugvell-
inum inn í Dallas hafi ekki
verið ákveðin í aðalatriðum
fyrr en tveimur dögrum fyrir
morðdaginn og þó ekkl endan-
Iega fyrr en þá um morguninn,
og hafi þá aðeins 10—12 menn
vitað hana. Þetta var ekki
beinasta leiðin inn í borgina
heldur var ekið í nokkum
sveig svo að hann gæti séð
meira af henni.
Af þessu er augljóst að úti-
lokað var að Oswald hefði
hugboð um hvaða leið forset-
inn myndi fara, nema hann
hefði fengið vitneskjuna frá
einhverjum háttsettum manni i
lögreglunni eða öðrum sem
baðan hefði fengið hana. Það
vaknar jafnvel sú spurning
hvort leita bera þess eða þeirra
sem lögðu á ráðin um morðið
á forsetanum á æðri stöðum
f Washington. meðal þeirra
sem þar ákváðu leið forsetans
inn í Dallas.
Ætlaði heim til Ruby
En hvað sem því líður enx
þessar upplýsingar ,,New York
Herald Tríbune" þær merkileg-
ustu sem komið hafa á dag-
•nn og em einar sér nær óræk
sönnun þess að óhugsandi er
að Oswald hafi verið einn um
morðið.
En 4>að er fleira sem bendir
f þá áttina. Það er fullyrt að
Oswald hafi ekki einungis
þekkt Ruby, heldur að öll-,
um líkindum einnig lögreglu-
manninn Tippit sem hann var
sakaður um að hafa skotið til
bana. Og það hafa verið leidd-
ar Hkur að því að Oswald
hafi verið á leið heim tíl Rubv
þegar hann hitti Tippit.
Fréttamaður frönsku frétta-
stofunnar AFP í Dallas hefur
reynt að rekja slóð Oswalds
eftir morð Kennedys, frá hús-
inu sem skotið var á forset-
ann úr, „Texas School Book
Depository“ til kvikmyndahúss-
ins ,.Texas Theatre", þar sem
Oswald var handtekinn.
Dallasborg með úhverfum er
talin vera 28—38 ferkílómetrar
að flatarmáli, en tvær helztu
nersónur morðmálsins. Oswald
og Ruby- áttu heima f sama
'ítla borgarhverfinu. Oak Cliff
sem ekki er nema lítill depill
á korti yfir alla borgina. Og
hetta hverfi er í námunda vi*
morðstaðinn.
Athugun AFP-mannsins á
ferðum Oswalds leiðir í ljós
að hann var aðeins 12 mín-
útna gang að helrnan frá sér
(nr. 1124 við North Beckley)
þegar á vegi hans varð Tippit
lögreglumaður, og var það ein-
mitt á skemmstu leiðinni frá
Oswald heim til Ruby (nr. 23
við South Ewing). Af þessu
gætu vaknað ýmsar grun-
semdir.
Leið Oswalds
Auðvelt er að rekja slóð Os-
walds fyrst eftir morðið. Kl.
12.29 riðu af skotin sem urðu
Kennedy að bana. Kl. 12.33
fékk Oswald að fara úr hús-
ihu sem skotin eru taHn hafa
komið úr. Aðeins tvelmur mín-
útum síðar, kl. 12.35. sendir
lögreglan út lýsingu á honum,
og fjórum mínútum eftir það.
kl. 12,39, fer Oswald upp 1
strætisvagn við biðstöð 400
metra frá „Texas School Book
Depository“. öll umferðin er í
lamasessi. Kl. 12.42 fer Oswald
úr strætisvagninum og gengur
í þrjár mínútur, þar til hann
tekur sér leigubíl kl. 12.45 og
biður vagnstjórann að aka sér
að nr. 500 viö North Beckley.
Það er nokkum spöl frá heim-
ili hans, en hins vegar alveg
við Tenth Avenue sem liggur
svo til beint heim til Ruby. Kl.
12.53 fer Oswald úr leigubíln-
um sem þá hefur eklð um 500
metra fram hjá heimili hans.
Hann gengur til baka. líklega
vegna þess að hann hefur ætl-
að að hafa fataskipti. Heim er
hann kominn nálægt fimm
mínútum síðar. um 12.58. Eig-
andi íbúðarinnar, sem hann
leigði, sér hann koma og fara
aftur skömmu síðar. Oswald
bíður nokkra stund eftir stræt-
isvagnl við biðstöð fyrir fram-
an húsið, en gefst upp á bið-
inni og fer af stað fótgang-
andi. Klukkan er þá sem næst
13.03.
Hvað gerðist?
Lengra verður slóð hans ekki
rakin með vissu. Fréttamaður
AFP hefur hins vegar reynt
að rekja hana með því að fara
fótgangandi skemmstu leið á
milli heimila Oswalds og Ruby.
og kemst hann á tólf mínútum á
gatnamótin Patton Street, Den-
ver Street og Tenth Avenue,
einmitt þar sem lík T'ppits lög-
reglumanns fannst, en að sögn
lögreglunnar sjálfrar bar and-
lát Tippits að kl. 13.15, eða
tólf mínút/um eftir að Oswald
fór að heiman. Allsterkar lík-
ur benda þvi til þess að þetta
hafi verið leiðin sem Oswaid
fór, þar eð enga aðra leið er
hægt að ganga á tólf mínút-
um til þessara vegamóta frá
þeim stað, þar sem Oswald bjó
Ýmsar spurningar
En þótt það megi heita all-
víst, er ýmsum spumingum
ósvarað.
Hvemig stóð t.d. á því að
Tippit lögreglumaður var í
vagni sínum einmitt á þessum
stað, á fáfömu götuhorn*, þeg-
ar allir lögreglubílar borgarinn-
ar höfðu verið kvaddir til ná-
erennis morðstaðarins?
Hvem'g mátti það vera að
hann var einn í vagninum
þvert ofan í skýr fyrirmæli um
að tveir lögreglumenn skuli
jafnan vera í hverjum vagni?
Hvemig stóð á því að þeii
Oswald ræddust við lengi vel
eins og gamlir kunningjar að
sögn vitnislns Helene Mark-
ham þótt þær viðræður tækju
snöggan enda?
Kona þessi segist hafa horft
á Oswald halla sér upp að
bíl Tippits meðan sá síðar-
nefndi sat við stýrið. Þeir hafi
talazt við nokkra stund. Allt
í einu hafi Tippit rokió úr
sæti sínu og út úr bílnum
Oswald hafi hörfað nokkur
skref, hinum megin við bíl-
inn, og skotið á lögreglumann-
inn yfir bílinn í um þriggia
metra fjarlægð og hæft hann
bremur skammbyssukúlum t
höfuðið.
Helene Markham segir að
Oswald hafi síðan komið auga
á sig, en hann hafi afráðið
að hlífa henni. Hún sá hann
flýta sér í áttina heim til Ruby
— þaðan var aðeins sjö míCi.
útna gangur — en hann sneri
allt í einu við og stefndi í
átt til West Jefferson Avenue.
Oswald staldraði við andar-
tak við fomsölu nokkra, gekk
síðan Inn á milli tveggja bygg-
inga og þar í húsagarði fyrir
aftan verzlun eina (,,(3rug
store“) losaði hann að sögn
sjónarvottar tóm kúluhylki úr
byssu sinni og fyllti hana nýj-
um skotum. Hann fór einnig
úr hvítum baðmullarjakka
sfnum.
Hann fór aftur f jakkann
begar hann kom af Tenth
ávenue vfir á West Jefferson
Framhald á 8. síðu.