Þjóðviljinn - 03.01.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.01.1964, Blaðsíða 6
w W SlÐA Frá aðalfundi Skreiðarsamlagsins: SKREIÐARMARKAÐURINN Á ÍTALÍU ER í HÆTTU HÚBVIUINN Föstudagur 3. janúar 1964 Hinum örugga og vaxandi markaði fyrir íslenzka skreið á ftalíu virðist nú stefnt í bráða hættu vegna skipulags- leysis í útflutningi og af hatrammri samkeppni milli S. S.F. annarsvegar og einkaútflytjanda hinsvegar. Var þessi markaður nú í haust yfirfylltur með handahófs- legu og fyrirhyggjulausu framboði íslenzkra útflytjenda og ekki séð fyrir endann á afleiðingunum. Þess má geta, að íslendingar hafa smám saman verið að síga á Norð- menn með útflutning skreiðar til Ítalíu: 1960 keyptu ítal- ir 7.794 tonn af Norðmönnum en aðeins 253 frá íslandi en árið 1962 voru þessar tölur 6.832 tonn á móti 1.092. Þessar upplýsingar og margar fleiri koma fram í skýrslu frá aðalfundi Samlags skreiðarframleiðenda, sem haldinn var í Reynjavík 22. nóvember síðastliðinn. Heildarframleiðslan á skreið árið 1962 varð 36077 blaut tonn eða um 6493 tonn þurrar skreið- ar. Samsvarandi tölur fyrir árið 1961 voru 47583 (8.565). Heildarútflutningur á skreið frá íslandi undanfarin ár hef- ur verið sem hér segir (hlutur S. S. F. innan sviga) Ár: 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 Tonn: 11.505 (6.702) 10.155 (7.146) 5.240 (3.240) 7.673 (5.053) 7.434 (4.899) 10.674 (6.253) 10.653 (6.305) ! * ! Samvinnufélagið Hreyfill 20 ára 10. nóvember síðastliðinn, minntist samvinnnfél. Hreyfill 20 ára afmælis sins með hófi í Sigtúni. I>að var 11. nóv. 1943, sem sjálfseignar-bifreið- arstjórar í Reykjavík stofn- nðu samvinnufélag um rekst-^. ur bifreiðastöðvar. Fyrsta desember sama ár opnuðu þeir svo bifreiðastöð- ina Hreyfil, með 70 bifreiðar í afgreiðslu. — I dag eru á stöðmni 320 bifreiðar. Bifreiðasföðin Hreyfill, hef- ur haft forustu í ýmsum mál- um um bætta þjónustu við borgarana. M. a. beitti hún sér fyrir uppsetningu fyrstu bílasimanna í úthverf- um borgarinnar, og eru bif- reiðar stöðvarinnar nú stað- settar á 14 stöðum, í Reykja- vík og Kópavogi. auk þess sem á annað hundrað tal- stöðvabílar eru víðsvegar um borgina og nágrenni. Árið 1950 tók Hreyfill upp þjónustu allan sólarhringinn og hefur haft síðan. Árið 1960 hóf félagið bygg- ingaframkvæmdir við Grens- ásveg, og á þessu hausti var langþráðum áfanga náð, þar sem bifreiðastjórunum var sköpuð aðstaða til þvotta og hreinsunar á bifreiðum sín- mn, í hluta af þvi húsi, sem ldkið er við. Með þessu er stór bættur aðbúnaður bifreiða- stjóranna til að þrífa bifreið- arnar. 1 núverandi stjórn félagsins eru: Formaður Ingjaldur Isaksson, sem verið hefur í stjóm frá upphafi og formað- nr í 19 ár. Aðrir eru: Vil- hjálmur Þórðarson, Þórður Elíasson, Grimur Runólfsson og Ingimundur Ingimundar- son. Framkvæmdastjóri félags- ins er Stefán O. Magnússon. Nígeria kaupir lang mest Afrika (þ.e. Nigería) er enn sem fyrr stærsti innflytjandi skreiðar frá íslandi með 2.940 tonn árið 1962, en næst koma Italía, þá Grikkland og Svi- þjóð. Er hér aðeins rætt um útflutning S. S. F. í stjóm S. S. F. voru þessir menn kosnir: Ingvar Vil- hjálmsson, formaður, Ólafur T. Einarsson, varaform., Svein- bjöm Ámason Garði, Ólafur H. Jónsson, Sigurður Ágústs- son Stykkíshólmi. Lúðvík Jós- efsson, Neskaupstað, Gísli Kon- ráðsson, Akureyri og Baldur Jónsson Isafirði. „Undir Garðskagavita " ný bók eftir Gunnar M.Magnúss. J I, Jean Daniel er einn kunnasti blaðamaður í Frakklandi og er nú ritstjóri erlendra tíðinda í hinu útbreidda vikublaði „L’Express“. í nóvember ræddí hann við Kennedy Banda- ríkjaforseta, en hélt frá Washington til Kúbu, þar sem hann hitti Fidel Castro. Viðtöl hans við þá hafa verið birt í blöð- um víða um heim og hafa vakið mikla athygli, ekki sízt frá- sögn Castros af aðdraganda Kúbudeilunnar í fyrrahaust. Þjóðviljanum er sérstök ánægja að birta þá frásögn, svo mjög sem hún kemur heim við það mat sem blaðið lagði á hina örlagaþrungnu atburði á Karíbahafi fyrir rúmu ári. Komin er út ný bók eítir Gunnar M. Magnúss, er nefn- ist Undir Garðskagavita. Það er héraðssaga og skiptist í tvo meginhluta. Heitir hinn fyrrú Liðnar aldir líða hjá. Þar er rakin saga einnar elztu og jafn- framt frægustu veiðistöðvar að fornu og nýju. Segir þar frá baráttu fólksins á hinum yzta skaga við hamfarir náttúrunn- ar í þúsund ár, — frá ílóð- inu mikla, þegar Bátsenda- kaupstaður sópaðist á einni nóttu, frá vermannalífinu, kunnáttumönnum, ýmsum stór- brotamönnum, og 35 Útskála- prestar eiga þar sína sögu. Þar er einnig greint frá Bessastaða- mönnum, er riðu um héruð, en kóngurinn átti þá því nær all-^ ar jarðir í héraðinu, en al- menningur var í rauninni ,,kóngsþrælar“. Seinni hlutinn nefnist: Með- al samtíðarmanna. Þar er lýst mörgum þjóðkunnum mönnum, sjósóknuram og aflamönnum. Meðal þeirra má nefna afla- kónginn Eggert á Sigurpáli og Guðmund á Rafnkelsstöðum. Nokkrar fyrirsagnir úr bók- inni benda til efnisins: Örlög blinda klerksins. — Kveðið á skaga. — Hreppatjórasögur. — Dæmdur eftir 35 ára þjómustu. — Kóngsþrælar íslenzkir. — Kennimaður, læknir og rokka- smiður. — Hafmeyjan í Garð- inum. _ Draummaður. _ Kvöld stund hjá Árna Boga. — Völva Suðurnesja. — Afreksmenn. — örlaganóttin í Melbæ. — Að- för að veiðiþjófum. — Þjár háskólaminningar Guðmundar á Rafnkelsstöðum. Undir Garðskagavita er 360 blaðsíður í stóru broti, prýdd 70 myndum. Kápumynd hefur Atli Már gert. Útgefandi er Ægisútgáfan, — Guðmundur Jakobsson. Kvikmyndasýning Germaníu á morgun Á morgun, laugardag. verður næsta kvikmyndasýning félags- ins Germanía, og verður að þessu sinni aðeins sýnd ein mynd, ævintýramynd, er nefn- ist „Aufruhr im Schlaraffen- land“ eða „Uppreisn í alls- nægtanna landi“. Er hún eink- um ætluð bömum, en fullorðn- ir ættu einnig að geta dregið af henni nokkurn lærdóm, að ailsnægtirar. sem falla mönn- um fyrirhaínarlaust í skaut, séu ekki lokatakmark allra lífsins gæða. enda kemur af þeim sökum til uppreisnar í landi allsnægtanna. Myndin er í litum. Sýningin verður í Nýja bíói og hefst klukkan 2 e. h. öllum er heim- ill aðgangur, börnum þó ein- ungis í fylgd fullorðinna. (Frá Germaníu). Fundur ráS- herranefndar j Cvrópuráðsins J Ráðherranefnd Evrópuráðs- k ins hélt fund í París um miðj- J an desember. Af hálfu Islands I sat Pétur Thorsteinsson sendi- J herra fundinn. Rætt var um 8 viðhorfin á alþjóðavettvangi w og um pólitísk vandamál. sem q samfara eru nánari samvinnu k Evrópuríkja. Var sérstaklega \ fjallað um samstarf ríkjanna í k Evrópu og Norður-Ameríku, 8 um pólitískar afleiðingar auk- fe inna tengsla á efnahagssviðinu J og um væntanlegar viðræður ■ um tollamál á vegum GATT. J Ráðherranefndin ræddi einnig I um samstarf Evrópuríkja á J sviði löggjafarmálefna og sam- 1 bykkti að koma á fót nefnd k til að stuðla að samræmingu g lagareglna. Verður hún skipuð k fulltrúum allra þeirra 17 ríkja. ” sem aðild eiga að Evrópuráð- | inu. ohn Fitzgerald Kennedy tók á móti mér i Hvita húsinu fimmtudaginn 24. október kl. 17.45. Við höfðum mælt okk- ur mót kl. 17.30. Ég hafði beð- ið stundarfjórðung í fundar- sal ráðuneytisins, sem liggur næst skrifstofu foxsetans. Að stundarfjórðungnum liðnum kom íorsetinn sjálfur að sækja mig inn í skrifstofu sína. Hann bað mig afsökunar á biðinni, ekki í kurteisisskyni né held- ur til að gera meira úr mér en ástæða var til, heldur til að gera mér ljóst hve tíma- bundinn han-n væri. Þegar við gengum um lítið herbergi rit- ara hans, sáum við frú Jacque- line Kennedy á leiðinni út um gluggadyr í áttina að einka- garði þeirra hjónanna. Forset- inn kallaði á hana til að kynna okkur. í Washington var ennþá mjög hlýtt í veðri og forseta- hjónin voru mjög léttklædd og klæðnaður þeirra jók enn á þau áhrif af æsku, yndis- þokka og látleysi sem maður hafði sízt átt von á að verða fyrir á þessum virðulega stað. Forsetinn bauð mér sæti á hálfhringlaga sófa sem stend- ur á miðju gólfi, en settist á móti mér í ruggustól. Viðtalið átti að vara í tuttugu til tutt- ugu og fimm mínútur. Það var óslitið nema hvað síminn hringdi einu sinni. Kennedy forseti spurði mig strax hvemig mér litist á á- standið í Frakklandi. Þegar ég hafði svarað þeirri spurn- ingu hans, hóf hann ræðu um de Gaulle. Af orðum hans var ljóst að de Gaulle hafði bæði gert honum gramt í geði Qg honum þó fundizt mikíð til hans koma. En nú gat hann talað um hann af yfirlögðu kæruleysi. John Kennedy var einn þeirra manna sem vildi skilja hlutina umsvifalaust og leysa málin á enn skemmri tíma. Það var ekki unnt þegar de Gaulle var annars vegar. Hann var enn erfiðari við- fangs en Krústjoff. Hann minntist þess að eitt sinn þeg-- ar hann var orðinn óþolinmóð- ur að reyna að fá einhvern botn í viðhorf de Gaulle og staðráðinn í að fá hann á sítt band hefði hann hringt persónulega til hans. Það kom að engu gagni. Hitt vakti furðu mína, að Kennedy hafði látlð sis minna varða sam- skipti Frakklands og Banda- ríkjanna eftir heimsókn Couve de Murville utanríkisráðherra til Was'hinston tveimur vikum áður Hann hafði ákveðið að láta þau mál ligsja rnilli hluta Hann taldi það sóun á tíma að skipta sér af þeim. „Við urðum báðir að viður- kenna, við COuve de Mur- ville,“ sagði forsetinn við mig, „að við vorum ekki sammála um neitt. Og okkur kom sam- an um að þetta ósamlyndi ætti ekki að spilla vináttu tveggja mikilla vestrænna þjóða. Niðurstaða mín var sú, að stefna de Gaulle, sem ég á bágt með að átta mig á, væri slík að hann hefði þörf fyrir ákveðna spennu í sam- skiptunum við Bandaríkin. Svo virðist sem hann telji að slík spenna sé nauðsynleg ef Evrópumönnum eigi að lærast að hugsa sjálfir í stað þess að reiða sig í makindum á bandaríska dqllara og póli- tiska forystu Bandarikjanna“. Kennedy forseti tók síðan saman í stuttu máli helztu á- greiningsmálin milli Frakk- lands og Bandaríkjanna. Hann nefndi Þýzkaland, kjarnavíg- búnaðinn, Evrópu, „sjálfstæð- is“-hugmyndir de Gaulle. Hann bætti við að Frakkland virtist túlka það sjálfstæði á harla einkennilegan hátt, einkum varðandi Vietnam og Kúbu. Hann hæddist að de Gaulle fyrir að vera jafnan reiðubú- inn að gefa góð ráð án þess að hætta neinu sjálfur. Eng- inn kynni betur en hann sjálf- ur að meta góð ráð og jafn- vel gagnrýni, en því betur kynni hann að meta hana að þau kæmu frá vinum sem sjálfir vildu leggja eitthvað í sölurnar. Ég spurði þá Kennedy for- af fyrirhugaðri heimsókn de seta hvers menn mættu vænta Gaulle til Bandaríkjanna í febrúar. Hann svaraði: „Alls einskis”. En hann bætti við brosandi út að eyrum, eins og hann væri þegar farinn að hlakka til heimsóknarinn- ar: „Þetta verður nú samt skemmtileg heimsókn, de Gaulle íorseti er söguleg pers- óna og enginn vafi á því að hann er furðulegasti maður sem uppi er á okkar tímurn." Ég vakti nú aftur máls á Vietnam og Kúbu og lét orð falla á þá leið að gaullistar væru ekki einir um það í Frakklandi að harma pólitísk mistök Bandaríkjanna. Þenn- an kafla samtalsins tó-k ég sjálfur niður af meiri ná- kvæmni en áður og gef forseta Bandaríkjanna orðið: ..Víð höfum ekki tíma til að ræða um Vietnam og ég ætla bví að tala við yður um Kúbu, Ég hef rekizt á greinar í evrópskum blöðum, þar sem bví hefur verið haldið fram að við Bandaríkjamenn höfum verið blindir gagnvart þróun- ínni á Kúbu. Ég hef nýlega haft spurnir af þvi að jafnvel de Gaulle telji að kommúnism- inn á Kúbu sé tilviljunarkennd og tímabundin afleiðing þess að Kúbumenn vilja vera sjálf- stæðir gagnvart Bandaríkjun- um. Það er ofurskiljanlegt að de Gaulle og þeir sem harin umgengst hafi ekkert út á slíkan „sjálfstæðisvilja“ að setja.“ Forsetanum var greinilega mikið niðri fyrir: „Þetta get ég sagt yður: Við gerum okkur fulla grein fyrir hörmulegri fortíð Kúbu sem öllum var til bölvunar. Ég kynnti mér sjálf- ur ástandið þar frá upphafi. Það eru fá mál sem ég hef reynt að kynnast jafn gaum- gæfilega. Sú niðurstaða sem ég komst að nær miklu lengra og dýpra en skýringar þær sem gefnar eru í Evrópu. Þetta er mín skoðun: Ég tel að hvergi í lieimin- um, að allri Afríku meðtalinni, að meðtöldu hverju einasta Iandi sem hefur verið undir nýlenduokinu, að hvergi nokk- urs slaðar hafi arðránið og auðmýking landsmanna verið verri en á Kúbu og að þetta hafi verið sök lands míns og þeirrar stefnu sem það hafði í stjórnartíð Batista. Ég tel að við höfum óafvitandi átt upptökin að hreyfingu Cast- ros og byggt hana upp. Ég tel að öll þcssi mistök hafi nú stofnað gervallri rómönsku Amcríku í hættu. Framfarabandalagið (Alli- ance for Progress) hefur eng- an annan tilgang en binda endi á þessa óheillastefnu. Þetta er eitt mikilvægasta vandamálið, ef ekki það allra- mikilvægasta, sem Bandarík- in hafa við að striða. Ég get sagt yður að ég gat vel sett mig í spor Kúbu- manna. Ég tók undir yfirlýs- ingar Fidels Castro í Sierra Maestra, þegar hann krafðist réttlætis og umfram allt heið- arlegs stjórnarfars. Ég get ennfremur sagt yður að Bat- ista var á vissan hátt syndir Bandaríkjanna holdi klæddar. Nú verðum við að bæta fyrir þessar syndir. Ég var algerlega sammála byltinaarmönnunum á Kúbu meðan hið gamla stjórn- arfar ríkti þar. Á því má ekki leika minnsti vafi“. Forsetinn þagnaði stundar- korn og tók eftir undrunar- svip mínum. Hann hélt áfram: ,,En það er einnig augljóst, að vandamálið er okki lengur bundið við Kúbu, það er orðið alþjóðlegt, eða öllu heldur sov- ézkt Ég er forseti Bandaríkj- anna, ég er ekki þjóðfélags. fræðingur; ég er forseti friáls ríkis sem ber ábyrgð á velferð

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.