Þjóðviljinn - 03.01.1964, Side 12
ÞrumuveðriB
otti óttu /-
búu í Eyjum
FYRRIHLUTA VETRAR er oft
hætt við þrumuveðri hér sunn-
aalands og heilsaði fyrsti dag-
ttr ársins með þrumum og
eldingum og meðal annars
f höfuðstaðnum í fyrrakvöld.
Þegar bregður til suðvestan-
áttar upp úr hlýindakafla er
hættast við þrumuveðri. Varð
aðallega vart við þrumuveður
á svæðinu frá Hornafirði til
Faxaflóa og með einna mest-
um fyrirgangi i Vestmanna-
eyjum.
ÞAR VARÐ fólk skelfíngu lost-
ið og setti þetta í fyrstu í
samband við eldgosið, enda
lýstu eldingaleiftrin svo upp
um kvöldið að bjart varð um í
húsum og setti þannig óhug að
fólki. Voru dæmi til þess að
menn hugðu að börnum sínum
með undankomu i huga.
GOSIÐ HEFUR staðið af fullum
krafti í Surtsey og er ckkert
lát á eldgosinu. en austanátt
hefur vikið mekkinum frá
eyjaklasanum. þangað til eftir
klukkan fimm í gærdag, að
vindáttin snerist til norð-
austurs og var öskufall í Eyj-
um í gær.
ÞÁ HEFUR lítið orðið vart við
gos á nýja gossvæðinu.
FJÖLMARGAR áramótabrenn-
ur voru á Heimaey á gamlárs-
kvöld og hafði meðal annars
verið hlaðinn upp bálköstur í
gömlu gígopi uppi á Helgafelli
og þótti þá sumum fjandanum
storkað.
Föstudagur 3. janúar 1964 — 29. árgangur — 1. tölublafi.
íbúðarhús brennur
á Seltjarnarnesi
Skömmu fyrir hádegi á nýársdag kom upp eldur í
húsinu Teigi á Seltjamarnesi sem er gamalt timburhús.
Brann húsið mjög mikið og innbú allt eyðilagðist en
fólkið komst naumlega út á nærklæðunum einum saman.
Nina Gaprindasvili krýnd heimsmeist ari kvenna í skák
ari.
AlþjöBlegt skákmót hefst
í Reykjavík 12. jan. n.k.
12. janúar n.k. hefst hér í R-
vík alþjóðlegt skákmót og er
það fyrsta alþjóðlega skákmótið
sem haldið er hér á Iandi.
Skáksamband Islands hafði
Yfirnefnd ákveður
verð á bolfiski
Eins og sagt er frá i frétt hér
á öðrum stað í blaðinu náðist
fyrir áramótin samkomulag í
verðlagsráði sjávarútvegsins um
lágmarksverð á fersksíld. Sam-
komulag náðist hinsvegar ekki
/ r
Arekstur ó
Reykjavíkur-
vegi
í gærkvöld varð árekstur
milli tveggja fólksbifreiða um
átta leytið á Reykjanesvegi á
móts við Frost s.f.
Var ekið aftan á Ckoda bif-
reiðina G-1677 og skemmdist
hún nok'kuð. Bifreiðastjórinn,
sem olli árekstrinum hvarf hins-
vegar á brott án þess að láta
vita af sér og eru það vinsam-
leg tilmæli lögreglunnar i I-Iafn-
arfirði, að þessi bifreiðarstjóri
gefi sig fram við hana sem fyrst.
um verð á bolfiski og fer það
þvi till ákvörðunar í yfimefnd.
Fréttatilkynning verðlagsráðs um
betta er svohljóðandi:
„Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur í desember unnið að verð-
ákvörðun bolfisks fyrir árið
1964.
Samkomulag náðist ekki um
verðið og hefur endanlegri verð-
ákvörðun því verið vísað til yf-
imefndar samkvæmt ákvæðum
laga um Verðlagsráð sjávarút-
vegsins.
Yfirnefnd hefur verið skipuð
og eiga eftirtaldir menn sæti í
henni:
Hákon Guðmundsson, hæsta-
réttarritari, sem er formaður
nefndarinnar, skipaður af hæsta-
rétti.
Aðrir nefndarmenn eru kosn-
ir af Verðlagsráði, en þeir eru
þessir: Helgi G. Þórðarson,
framkvæmdastjóri, Hafnarfirði,
Kristján Ragnarsson, fulltrúi,
Reykjavík. Tyggvi Helgason, sjó-
maður, Akureyri. Valgarð J. Öl-
afsson, framkvæmdastjóri Rvík.“
Naumleg björgun
í Keflavíkurhöfn
Skömmu fyrir miðnætti i
fyrrakvöld ætlaði skipverji á
Smára GK að stíga upp á
bryggju í Keflavkurhöfn og
lenti þá milli báts og bryggju
i sjóinn og varð að dúsa þar
alllangan tíma áður cn að var
komið og lionum bjargað á
þurrt.
Aðvífandi maður varð þó
mannsins var og hélt hinum
þrekaða manni uppi meðan náð
var i lögreglu og laokni
Lögreglan fór með manninn
á lögregluvarðstofuna og vafði
hann inn í teppi og nuddaði
hann og skömmu síðar kom
læknir.
Læknirinn fyrirskipaði þegar
að fara með manninn á sjúkra-
hús og þar leið honum eftir at-
vikum sæmilega í gærdag.
Engu mátti muna, að þessi
sjómaður týndi lífi sínu af
kuldanum i sjónum og varð
þetía mikil manndómsraun.
frumkvæðið að því að mótið er
haldið en síðan gerðist Taflfélag
Reykjavíkur aðili að mótinu að
hálfu á móti Skáksambandinu.
Þátttakendur í mótinu verða
14, þar af 5 erlendir gestir. Eru
það þau Tal, fyrrverandi heims-
meistari, Nina Gaprindasvilli
heimsmeistari kvenna. bæði frá
Sovétríkjunum, Robert Wade frá
Bretlandi, Svein Jóhannessen
frá Noregi og Gligoric frá Júgó-
slaviu. Islendingamir verða svo
9 að tölu og eru það Friðrik
Ölafsson, Ingi R. Jóhannsson,
Ingvar Ásmundsson, Guðmundur
Pálmason, Freysteinn Þorbergs-
son, Jón Kristinsson, Magnús
Sólmundarson Arinbjöm Guð-
mundsson og Trausti Bjömsson.
Slökkviliðið var kvatt á vett-
vang um kl. 11 um morguninn
og stóð eldur þá út um alla
glugga á rishæð er það kom á
vettvang. Hvasst var og erfitt
að fást við eldinn og tók það
slökkviliðið nær þrjár klukku-
stundir að ráða niðurlögum hans.
Eyðilagðist húsiö að mestu en
stendur þó uppi.
1 Teigi bjó Ingimundur Stein-
þórsson ásamt konu sinni og 5
bömum og aldraðri móður. Odd-
nýju Kjartansdóttur, en hún er
eigandi hússins. Maður að nafni
Ólafur Ámason, sem var gest-
komandi i Teigi um nóttina varð
fyrst eldsins var og vakti hann
heimilisfólkið. Svaf Ólafur uppi
í risinu svo og eldri bomiru
Eldurinn magnaðist mjög fljótt
og komst fólkið út á nærklæð-
unum einum saman og gat engu
bjargað af eigum sínum. Var
einn af sonum hjónanna orðiltn
hálfmeðvitundarlaus af reyk og
varð að bjarga honum út. Mátti
því ekki tæpara standa að stór-
siys yrði.
Ekki er vitað um eldsupptök.
Allt innbú var óvátryggt og er
það gerónýtt. Hefur fólkið því
orðið fyrir mikflu fjárhagslegu
tjóni. Skutu nágrannamir skjóls-
húsi yfir fólkið til bráðabirgða.
Samið um lágmarks-
verð á fersksíld
TAL, fyrrverandi heimsmeistari
Aldraður maður í
Kópavogi hverfur
Sl. mánudag hvarf aldraður maður í Kópavogi að heim-
an frá sér og hefur ekkert til hans spurzt síðan þrátt fyr-
ir mikla leit skáta úr Reykjavík og Hafnarfirði.
Maðurinn sem hvarf heitir
Bárður Jónsson. til heimilis að
Borgarholtsbraut 37A. Er hann
68 ára að aldri. Síðast sást til
ferða Bárðar að hann var á
gangi á Nýbýlavegi á mánudag-
inn. Lýst var eftir Bárði í út-
varpinu á gamlárskvöld og á
nýársdag hófu skátar úr Hafn-
arfirði og Reykjavík leit að
honum og var henni haldið á-
fram i gær. Tóku um 70 manns
þátt í leitinni í gær og auk
þess var leitað úr þyrlu af
Keflavikurflugvelli. Enn frem-
Fimm mín. fundur
í borgarstjórn
I gær var haldinn fyrsti fund-
ur á þessu ári í borgarstjóm
Reykjavíkur og var hann örstutt-
ur. Stóð aðeins í 5 mínútur.
Samþykkt var ein fundargerð
borgarráðs og síðan var kjörið í
umferðanefnd er situr til loka
kjörtímabils borgarstjórnar.
Kjömir voru Gísli Halldórsson
arkitekt, Þór Sandholt arkitekt
og Guðmundur Magnússon verk-
íræðingur.
ur var kafari fenginn til þess
að leita við bryggjuna í Kópa-
vogi í gær. Bar leitin engan
árangur.
Þjöðviljanum hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
verðlagsráði sjávarútvegsins:
,,Með tilvísun til laga nr.
97/1961 hefur Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins ákveðið eftirfarandi
lágmarksverð á fersksíld
veiddri við Suður- og Vestur-
land. þ. e. frá Homafirði vest-
ur um Rit. Verðin gilda fyrir
tímabilið 1. janúar til febrúar-
loka 1964.
Sild til flökunar:
1 súr, frystingu, salt eða
aðrar verkunaraðferðir pr. kg.
kr. 1.12.
Verð þetta miðast við innveg-
ið magn, þ. e. síldina upp til
hópa.
Sfld, ísvarin til útflutnings
í skip pr. kg........kr 1.50.
Verð þetta miðast við innveg-
ið magn, þ. e. sildina upp til
hópa.
Síld til vínnslu í verksmiðjur
pr. kg........kr. 0.87.
Síld til skepnufóðurs, pr.
kg.......... kr. 1.00.
Verðin eru öll miðuð við. að
seljendur skili síldinni á flutn-
ingstæki við hlið veiðiskips.
Seljandi skal skila bræðslusfld
í verksmiðjuþró og greiði kaup-
andi kr. 0.03 í fiutningsgjald
frá skipshlið.”
ÁRÍÐANDI
Þjóðviljinn óskar að ráða
fólk til blaðburðar í þessi
hverfí.
MELAR,
FRAMNESVEGUR,
SÓLVALLAGATA,
LAUFÁSVEGUR,
MEHALHOLT,
HATEIGSVEGUR,
BCSTAÐAHVERFI, ag
viðar.
Afgreiðsla ÞJÓÐVILJANS
Sími 17-500,—
NEW YORK 2/1 — Borgar-
læknir New York-borgar upp-
lýsir það í dag, að hjá 70%
þeirra karlmanna, sem dóu af
völdum krabbameins á árinu,
hafi sjúkdómurinn stafað af
reykingum.
SLYS VIÐ BÆGISARBRU
Bifreiðarslys varð við Bægisárbrú í Öxnadal skömmu
fyrir áramótin, og steyptist vöruflutningabifreið of-
an í árgil og slösuðust tveir menn, sem voru í bif-
reiðinni. Þeir heita Gunnar Krist'jánsson og Axel Þór-
arinsson. Báðir frá Borgarnesi. Bifreiðin gjörónýttist.
Stór vöruflutningabifreið
eign' Kaupfélags Borgfirðinga
lenti út af veginum hjá Bæg-
isárbrú í Öxnadal, er hún
var á leiðinni suður frá Ak-
ureyri máudaginn 30. desem-
ber.
Náði bifreiðin ekki beygj-
unni á brúna og féll niður i
árgilið. Slösuðust tveir menn,
sem voru í bifreiðinni, og
eyðilagðist bíllinn gjörsam-
lega. Fallið niður í gilið mun
vera sex metrar. Lenti bif-
reiðin þversum í gilinu og
lagðist á vinstri hlið milli
stórra steina. Skómmu eftir
slysið um kl. 5 að deginum
kom þarna að jeppi úr Þing-
eyjarsýslu á slysstaðinn og
tóku jeppafarar þegar
eftir brotnum staurum við
brúna og hjólförum eftir
bifreið út af veginum. Þeir
urðu varir við bílinn niðri í
gilinu og hina tvo menn í
bílnum. Fór maður úr jepp-
anum að Syðri Bægisá og
hringdi á aðstoð. Kom lög-
regla frá Akureyri og læknir
þegar á vettvang.
Hinir tveir menn sátu fast-
ir i bílflakinu og voru not-
aðar vökvalyftur til þess að
losa bílflakið í sundur og
náðust þannig báðir mennirn-
ir talsvert slasaðir. Báðir
voru fótbrotnir og annar
handleggsbrotinn. Þá höfðu
þeir fengig slæm höfuðhögg.
Voru báðir mennirnir fluttir
á sjúkrabús Þeir eru frá
Borgarnesi og heitir bifreið-
arstjórinn Gunnar Kristjáns'
son, en með honum var Axel
Þórarinsson.
/