Þjóðviljinn - 04.01.1964, Qupperneq 4
4 8ÍÐA
ÞlðÐVILJINN
Laugardagur 4. janúar 1964
Enn um vönlu
óðru munnu á
fungu og öl-
Litlu Hruuni
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundáson.
Fréttarltstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjórn. afgreiðsla. auglýsingar. orentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Simi 17-500 (5 linur). Askriftarverð kr. 80 á mánuði.
Er þettu hugsýni?
T^nn heldur ríkisstjórnin áfram að magna verð-
bólguna; til að mynda fagnaði hún nýju ári
með því að hækka benzín um meira en þriðjung.
Er þetta mjög tilfinnanleg hækkun og mun víða
draga slóða, því að bifreiðar eru meiri nauðsynja-
jtæki á íslandi en í flestum löndum öðrum. Að
nokkru leyti stafar hækkunin af því að olíufélög-
in fá meira í sinn hlut en áður, en að meginhluta
til er hækkuninni ætlað að tryggja aukið fjár-
magn til vegaframkvæmda samkvæmt nýjum lög-
um sem alþingismenn voru sammála um að væru
til verulegra bóta.
IT'n var nauðsynlegt að a’fla þessa fjár með ein-
hliða hækkun á benzíni? Eins og kunnugt er
annast ríkið öll innkaup á benzíni, en síðan er
benzínið afhent þremur olíufélögum til dreifing-
ar og ágóðasöfnunar. Þessi félög halda uppi þre-
földu dreiíingarkerfi með þreföldu skrifstofubákni;
bílar þeirra elta hver annan um landið þvert og
endilangt, tankar þeirra standa hlið við hlið hvar-
vetna. Ekki á sú iðja neitt skylt við þær kenning-
ar um framleiðni og hagsýslu sem einatt eru boð-
aðar í stjórnarblöðunum, og gefur auga leið að
hægt væri að dreifa benzíni og olíu með miklu
minni tilkostnaði. Ekki dylst gróðahlutur þessara
félaga heldur nokkrum manni þótt forsprakkarn-
ir séu vel þjálfaðir í þeirri búmannslist að berja
sér; hin ofsalega fjárfesting þeirra að undanförnu
talar sínu skýra máli.
¥Tin stórfellda hækkun á benzíni stafar þannig
m.a. af því, að ekki má taka upp aukna fram-
leiðni í benzíndreifingu á íslandi, heldur þarf að
tryggja þremur gróðafélögum drjúgan ábata. Þó
stendur þjóðfélagið sízt af öllu í þakkarskuld við
þessi félög. Nýlega var hið stærsta þeirra dæmt
í hæstarétti í stórfelldasta svikamáli sem upp hef-
ur komizt á íslandi; reyndust ráðamenn þess hafa
brotið öll þau lög sem tengd eru verzlun og við-
skiptum í því skyni að tryggja sér ótaldar milj-
ónafúlgur í viðbót við venjulegan gróða. Er þetta
í annað skipti sem Olíufélagið h.f. er dæmt fyrir
stórsvik.
p'orustumenn Olíufélagsins h.f. voru dæmdir í
fangelsi og sektir. en sumir raunar sýknað-
ir vegna þess að sönnuð afbrot þeirra voru talin
fyrnd, eins og höfuðpaurinn Vilhjálmur Þór seðla-
bankastjóri. En að sjálfsögðu hefði átt að svipta
'félagið öllum rétti til starfrækslu eftir þá ömur-
legu reynslu sem tvívegis var fengin. Hefði þá jafn-
framt gefizt mjög þægilegt tækifæri til að hætta
þeirri iðju að afhenda gróðafélögum með margföldu
skriffinnskubákni olíur og benzín sem ríkið kaup-
ir, en tryggja í staðinn fulla hagsýni við dreif-
ingu og sölu á þessum nauðsynjum. Þá hefði ver-
ið unnt að gera mikilvægar endurbætur á vega-
málum án þess að því fylgdi einhliða hækkun á
benzínverði, fargjöldum og öðrum hliðstæðum
nauðsynjum. — m.
JrióóvHjauum hefur borizt
eftiríarandi bréf frá yfirfanga-
verðinum á Litla-Hrauni:
Hr. ritstjóri.
f blaði yðar sunnud. 29/12
1963 á annarri blaðsíðu er
grein með yfirskriftinni, „Níu
fangaverðir gæta sex fanga“.
Með því að fram kemur í
greininni verulega rangfærð
frásögn, tel ég mér skylt að
leiðrétta það Qg bið yður þvi,
hr. ritstjóri, að birta þetta
greinarkorn í blaði jðar, þar
sem ég tel, að þér viljið hafa
það er sannara reynist.
f greininni segir: „En nú
hefur heyrzt að dómsmála-
ráðuneytið hafi lagt bann við
þvi, að starfsliði Litla-Hrauns
sé bakað óhóflegt erfiði vegna
næturgeymslu á ofurölva$>
mönnum".
Heimildarmaður blaðsins að
þessari setningu og þeirri hug-
mynd er í henni felst, er ann-
að tveggja mjög ófróður um
þetta mál, eða hann fer með
vísvitandi ranga frásögn.
Sannleikurinn í þessu máli
er sá, að fyrir nokkru skrif-
aði ég dómsmálaráðuneytinu
varðandi það ófremdarástand
að koma með fulla menn hing-
að til næturgeymslu.
Ég er ekki búinn að fé svar
við þeim atriðum, er ég ósk-
aði eftir í nefndu bréfi mínu
til ráðuneytisins. Þannig er
það ekki dómsmálaráðuneytið
sem stendur fyrir neinu banni
eða hefur boðað neitt bann,
og ef einhverjum þarf að álasa
fyrir væntanlegt bann á
geymslu fullra manna hér í
fangelsinu, þá ber að snúa
geiri sínum að mér en ekki
öðrum.
Undantekningarlítið er kom-
ið með þessa fullu menn að
næturlagi og fylgir þeim tíð-
um hróp, köll og barsmíðar
og veldur þetta að sjálfsögðu
ónæði og óþægindum.
En með því að banna þess-
ar gistingar vil ég firra stofn-
unina hvumleiðum árekstrum
af þeim, þar að auki tel ég
að þeir fangar, sem dæmdir
eru til vistar í fangelsinu eigi
rétt til að hafa frið fyrir
utanaðkomandi aðfluttum ó-
friði að næturlagi.
Ég held að flestir, sem eitt-
hvað fylgjast með fangelsis- og
fangamálum, skynji það og
viti, að ekki fer saman geymsla
ölvaðra manna og refsifanga.
Því tel ég mig sem for-
svarsmann þessarar stofnunar
geta iokað fangelsinu fyrir
umræddri gistingu hinna ölv-
uðu manna, þó ætlunin hafi
verið að gera það í friði við
þá aðila, sem hlut eiga að mál-
inu og án allra blaðaskrifa.
Annað í greininni er varla
eitandi ólar við. Þó tel ég
mig ekki geta skilið svo við
þessar línur án þess að gera
því örlítil skil, þar sem mest
ber á rangfærzlum.
Talað er um niu fangaverði
er gæti sex fanga. Ekki er
þetta sannleikanum samkvæmt.
Hitt er sönnu nær, að hér
við stofnunina eru og hafa
verið níu fangaverðir, en þar
sem sólarhringnum er skipt í
þrjár vaktir eru ekki nema
tveir til þrír við störf í senn
hvort sem eru sex fangar eða
tuttugu og níu. sem þeir einn-
ig geta verið.
Guðmundur Jóhannsson.
Blaðið vill fúslega verða við
beiðni fangelsisstjórans á Litla-
Hrauni, og koma á framfæri
þeim upplýsingum, að það sé
hann sjálfur sem standi fyrir
því að fangelsisrými á Litla-
Hrauni sé heldur látið standa
ónotað en að hýsa þar menn,
sem teknir hafa verið úr um-
ferð vegna ölvunar. Þjóðvilj-
inn bditvr aldrei fullyrt að
dómsmálaráðuneytið haíi
bannað hýsingu drukkinna
manna á Litla-Hrauni, en af
texta forstjórans má ráða, að
hann hafi leitað fulltingis
ráðuneytisins við „væntanlegt
bann“. Á forstjórinn heiður
skilið íyrir að draga nú fram
staðreyndirnar um þetta for-
vitnilega atriði.
Sjónarmið forstjórans varð-
andi hýsingu ölvaðra manna
á Litla-Hrauni er skiljanlegt,
en það er ákaflega þröngt, og
er hætt við að almenningur
austanfjalls sé á annarri skoð-
urx en hann Það er staðreynd,
að stundum verður að taka
ölvaða menn úr umíerð vegna
þess að þeir skapa meðborg-
urum sínum bæði leiðindi og
hættu og vinna gjarnan spjöil
á mannvirkjum, séu þeir látn-
ir ganga lausir. Nú er það
jafnkunn staðreynd, að i Ár-
nessýslu eru ekki fanga-
geymslur annarsstaðar en á
Litla-Hrauni, og virðist þvi
engin goðgá þó það rými sé
notað til að vernda öryggi al-
mennings fyrir ofurölva mönn-
um, enda 23 fangarými laus á
staðnum, að sögn forstjórans,
og fangavarðastyrkur góður.
Svo er það hitt atriðið í
grein blaðsins „þar sem mest
ber á rangfærslum“, að áliti
fangabúðastjórans, en það er
reyndar atriði, sem skýrt hef-
ur verið fró í blöðum áður,
sem sé að á Litla-Hrauni eru
6 fangar og 9 fangaverðir, að
forstjóranum ekki meðtöldum.
Nú segir forstjórinn í texta
sínum hér að framan, að við
stofnun sína séu og hafi ver-
ið níu fangaverðir, og ekki er
annað að sjá á textanum en
að fangamir séu einmitt sex.
Það fer aldrei vel fyrir þeim
mönnum, sem þykjast hafa
fundið niðurstöðuna áður en
þeir byrja að leita að for-
sendunum. — Málflutningur
þeirra verður gjarnan eins og
moldrok í logni. Forstjórinn
, tekur semsagt á sig það ó-
mak að hnekkja eigin brigzl-
yrðum, og er það vel.
Úr þessu ætti það ekki að
vera álitamál, að fangaverð-
irnir níu eru á Litla-Hrauni
til að gæta fanganna sex,
hvernig svo sem þeir skipta
vinnutíma sínum.
Frá Dansskóla Hermanns,
Reykjavík
: - v.v ;
■ Endurnýjun skírteina fyrir seinna
tímabil skólaársins fer fram í Skáta-
heimilinu í dag, laugardaginn 4. janú-
ar og á mánudag 6. jan. kl. 3—6 e.H.
báða dagana.
■ Kennsla hefst í öllum flokkum á
mánudag 6. janúar á sama stað og
tíma eins og var fyrir áramót.
■ Nýir nemendur, byrjendur og
framhald verða teknir í næstu viku
og verður innritun auglýst nánar þá.
■ Þó geta þeir sem verið hafa áður
og vilja koma með í framhalds'flokka
strax haft samband við okkur dag-
lega í síma 33222 frá kl. 10—12 f.h.
og kl. 1—3 e.h.
SÓSÍALISTAFÉLÖGIN
í REYKJAVÍK
halda JÓLATRÉSSKEMMTUN fyrir börn félagsmanna sinna í Silf-
urtunglinu sunnudaginn 5. jan n.k. kl. 3 síðdegis. — Jólasveinninn
kemur í heimsókn og skemmtir börnunum. — Veitingar, sælgæti. —
Tekið á móti miðapöntunum í símum 17510, 17512 og 17513. —
Miðar afhentir í skrifstofu félaganna, Tjarnargötu 20.
SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKUR
KVENFÉLAG SÓSÍALISTA
Æ. F. R.