Þjóðviljinn - 14.01.1964, Page 3
Þriðjudagur 14. janúar 1964
MðÐVILIINN
SlÐA 3
Stjórnarbylting á
Zanzibar í gær
NAIROBI 13/1 — Allt virðist með kyrrum kjörum í Zanzi-
bar í dag, en í gær var gerð þar stjórnarbylting —
soldáninum steypt af stóli og ný stjórn tók við. Hefur
þessi nýja stjórn lýst því yfir, að hún muni starfa í
USA hyggjast hræða
skæruliða / Víetnam
WASHINGTON 13/1 — Mjög bráðlega mun bandarískt
flaggskip sigla til Saigon í kurteisisheimsókn. Er talið
að Bandaríkjamenn vilji með þessu skjóta suður-víet-
nömskum skæruliðum skelk í bringu og sýna þeim, að
Bandaríkin styðji stjómina í Suður-Víetnam enn á sama
hátt og fyrr.
Bifreiðasmiðir
eða menn vanir boddýviðgerðum óskast.
Upplýsingar ekki í síma.
Bílaskálinn h.f.
Suðurlandsbraut 6.
þágu vinnandi fólks í landinu.
Fréttir frá Zanzibar eru frem-
ur óljósar, þar sem ekkert síma-
samband er við eyna. Þó virðist
allt með kyrrum kjörum í dag.
í gær var soldáni landsins, Ab-
dullah bin Khalifa, steypt af
stóli og settist ný stjóm að völd-
um. I nýju stjóminni eru bæði
arabar, blökumenn og sjíraz-
menn (frá Iran). Hefur stjómin
lýst því yfir að hún muni vinna
í þágu vinnandi stétta.
Zanzibar liggur suðaustur af
Kenya, skammt út frá strönd
Tanganyika, við austurströnd
Afrfku. Kenya varð fyrst til
þess að viðurkenna byltingar-
stjómina á Zanzibar. Óstaðfest-
ar fregnir herma, að Bretar
muni neita að viðurkenna stjóm-
ina á Zanzibar.
Skákmótið
Framhald af 12. síðu.
eða dóttir. Sumir hafa lagt
það út sem dóttir flugsins
eða eitthvað á þá leið.
Tal
Við spurðum Tal hvort
það væri rétt að skákferill
hans hefði hafizt á þá leið,
að hann hefði stráklingur
komið i heimsókn til Bot-
vinniks, sem þá hvíldi sig i
Ríga. með tafl undir hend-
inni og skorað á heimsmeist-
arann til einvígis.
Nei, svaraði Tal, það er
ekki rétt að því leyti, að ég
var orðinn éllefu ára og
hafði teflt töluvert áður. Ég
var hrokafullur og ósvífinn
patti og hafði ákveðið með
sjálfum mér, að þó Botvinn-
ik væri nýorðinn heims-
meistari (þetta var 1948) þá
skyldi hann samt ekki telj-
ast fullgildur sem slíkur fyrr
en hann hefði teflt við mig.
— Og hittust þið Botvinn-
ik þá?
— Nei, því miður, hann
svaf.
Abdullah bin Khalifa, fyrr-
verandi soldán á Zanzibar kom
í dag með skipi til Mombasa,
hafnabæjar Kenya, og baðst þar
landgönguleyfis. Ríkisstjóm
Kenya synjaði honum um land-
gönguleyfi og varð hann frá að
snúa.
Hin vegar hefur nýja stjórnin
á Zanzibar gert soldáninum orð
að koma og heitir honum grið-
um.
Flestir fréttamenn túlka heim-
sólcn bandaríska flaggskipsins til
Saigon í Suður-Víetnam á líkan
hátt. Er talið, að Bandarfkja-
mönnum hafi þótt nauðsynlegt
að stappa stálinu í suður-víet-
önsku afturhaldsstjómina og
skjóta skæruliðum skelk í
bringu. Undanfarið hefur her-
inn í Suður-Víetnam verið lin-
ur í sókninni gegn skærulið-
unum og hefur það vakið ugg
ráðamanna, hve lítill sannfær-
ingarkraftur er ríkjandi í hem-
um.
Skrifstofustúlka
óskast, bókhaldsþekking æskileg.
Gott kaup.
Mars Trading Company h.h
Klapparstíg 20. — Sími 17373.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur
Kennsla í nýjum námsskeiðum hefst í kvöld í
Breiðfirðingabúð. Fyrir byrjendur í gömludöns-
unum kl. 8, framhaldsflokkur í gömludönsunum
og léttum þjóðdönsum kl. 9,30.
Innritun á staðnum. Upplýsingar í síma 12507.
Unglingur óskast
til innheimtu og sendiferða, hálfan eða allan
daginn.
Með því að senda flaggskipið
í heimsókn til Saigon vill banda-
ríska stjómin benda á að hún
sé staðráðin í að veita stjóm-
inni i Suður-Víetnam hemaðar-
styrk,
Mjög athyglisverð
afrekaskrá Gylfa
Eins og alþjóð er kimnugt ætl-
ar Gylfi Þ. Gíslason að bregða
sér utan á næstunni — aldrei
þessu vant — og er ferðinni í
þetta sinn heitið til Noregs,
hvers sem frændur vorir eiga
nú að gjalda. í fréttaskeyti frá
norsku fréttastofunni NTB í gær
er afrekaskrá dr. Gylfa, og er
hún væntanlega runnin undan
rifjum ráðherrans sjálfs. Segir
þar, að ráðherrann hafi mikinn
áhuga á listum, sé fær (habil)
tónlistarmaður og kompóneri
sjálfur, sem sízt skal í efa dreg-
ið. Islendingum mun þó einkum
þykja mikilsverð þau tíðindi
fréttastofunnar, að dr. Gylfi hafi
.einkum litið á það sem hlut-
verk sitt að koma á traustu
fjármálakerfi (ökonomisk stabili-
sering)‘. Þá er heldur ekki dóna-
legt að fá að vita það, að hann
hafi ,borið hitann og þungann
(hovedbyrden) af að leysa þau
verkefni sem markaðsmyndun
Evrópu skapar fyrir ísland*. Aft-
ur á móti vitum við það hér
heima, og þykir ekki tíðindum
sæta, að ráðherrann hafi ,heim-
sótt öll lönd Efnahagsbandalags-
ins‘. Ef einhver skýldi spyrja,
hvert erindi ráðherrann hafi
haft var það að sögn fréttastof-
unnar að ,fræða þessi lönd um
íslenzk vandamál Qg fræðast
sjálfur, í von um að finnast
kunni lausn, sem Island geti
sætt sig við‘.
Vinna—Prjónastofa
Dugleg kona, vön vélprjónaskap, óskast til vinnu
strax á prjónastofu okkar, Frakkastíg 8. Nánari
upplýsingar á staðnum.
Ullarverksmiðjan FRAMTÍÐIN.
IÐNNÁM
Viljum ráða nema í bifreiðasmíði. Upplýsingar
ekki í síma.
Bílaskálinn h.f.
Suðurlandsbraut 6.
Námskeið
til undirbúnings ATVINNUPRÓFS
/
hefst þriðjudaginn 21. þ.m. í kennslustofu Flug-
skólans Þyts á Reykjavíkurflugvelli.
I framhaldi af þessu námskeiði verður haldið sigl-
ingafræðinámskeið á hausti komanda.
Innritun daglega kl. 9 til 5. Sími 10880.
Skrifstofustarf
Stórt fyrirtæki vill ráða skrifstofumann eða stúlku. — Góð laufí.
Umsóknir, er greini menntun og starfsreynslu, sendist afgr. blaðs-
— Já, ég er glaður að vera
kominn hingað til Islands
aftur í þessa þægilega, rólegu
borg, og í þetta góða veður,
sem við bjuggumst satt að
segja ekki við. Og hitta
gamla kunningja.
Nei, ég man nú ekki al-
mennilega hvemig okkur
Friðrik Ölafssyni hefur teflzt,
þó held ég að ég hafi fleiri
vinninga, En við höfum að-
eins teflt einu sinni á Is-
landi áður, og þá gerðum við
jafntefli.
Mótið
Skákmótið hefst í dag í
Lidó og eru þátttakendur 14
— auk þeirra Tals og Gapr-
indasjvíli keppa þrír erlend-
:r meistarar — sá höfðinglegi
■itórmeistari Gligoritsj frá
Júgóslavíu. Nýsjálendingur-
inn Wade og Norðmaðurinn
Svein Johannsen.
Stjóm Skáksambandsins
hefur ákveðið að mót þetta
skuli gert til að heiðra minn-
ingu Péturs Zophoníassonar
en í ár eru liðin 85 ár frá
fæðingu hans. Hann var mik-
ill hvatamaður að stofnun
Taflfélags Reykjavikur og
formaður þess um tíma. Og
það er skemmtileg tilviljun
að skákstjóri verður sonur
hans, Ákl Pétursson. A. B.
Bókabúð Máls og menningar.
Laugavegi 18.
ins eða í pósthólf 458 fyrir 18. þ.m. merkt: „Framtíðarstarf“.
2DAGAR SKYNDISALA 2DAGAR
ÞRIÐJUDAG — MIÐVIKUDAG
★ FÖT FRÁ KR. 1000,00
★ STAKAR BUXUR KR 400,00.
★ FRAKKAR FRÁ KR. 500,00.
★ SKYRTUR FRÁ KR. 150,00.
★ PEYSUR — HÁLFVIRÐI.
★ SOKKAR — GJAFVERÐ.
★ MARGT FLEIRA.
ALLTAD 50% AFSLÁTTUR
H E PPAD E I L D
LAUGAVEGI 95
<