Þjóðviljinn - 18.01.1964, Page 2
ÞJðÐVILJINN
2 SlÐA
SD
Laugardagur 18. janúar 1964
0
PIOHOSÍIN
LAUGAVF™ SfMI 19113
T I L S ö L U
2ja herb. íbúð á jarðhæð
við Lyngbrekku, fokheld.
2ja herb. góð kjallaraíbúð
við Flókagöbu. sér inn-
gangur, hitaveita.
2ja herb. nýleg íbúð við
Ásbraut.
Uítið hús við Fálkagötu —
2ja herb. íbúð, góð kjör,
3ja herb. góð risíbúð við
Laiugaveg, sér hitaveita.
3ja herb. íbúð á jarðhæð
í Smáíbúðahverfi, sér inn-
gangur, sér hitalögn.
3ja herb. góðrisíbúð við
Hlíðarveg, svalir, harð-
viðarhurðir, tvöfalt gler.
Glæsilegt einbýlishús við
Melgerði. fokhelt með bíl-
skúr.
Timburhús við Suðurlands-
braut — 5 herb. íbúð.
Timburhús — lítil íbúð við
Kársnesbraut. Bílskúr,
stór og verðmaet lóð.
Glæsilegar efri hæðir með
allt sér í Kópavogi, fok-
heldar og tilbúnar undlr
tréverk.
Byggingarlóð í Kópavogi,
byrjunarframkvæmdir og
teikning.
Parhús við Digranesveg,
stórt og vandað.
Vinnuveitendakííkan grípur
Hafnarslysið
Framhald af 1. síðu.
náði honum og' hélt honum uppi
unz fleiri lögregiuþjónar komu
á vettvang og drógu þá upp.
Varð manninum ekki meint af
sjóvolkinu.
Þá kom hinpvegar í Ijós, að
um leið og pilturinn féll í sjó-
inn hafði hann gripið í félaga
sinn sér til stuðnings og varð
það til þess að hann féll einn-
ig út af garðinum. Lenti hann
á borðstokki á báti er þar lá
og fann lögreglan hann þar
hryggbrotinn. Var hann fiuttur
á slysavarðstofuna og siðan í
sjúkrahús. Kom í ljós við rann-
sókn að þrír hryggjarliðir höfðu
brákazt i honum við faliið.
tíl
örþrífaráða
■ Vinnuveitendasambandið svonefnda hefur gert enn
eina tilraun að þvinga trésmiði til að samþykkja gerðar-
dóm í kaup- og kjaramálum. Tilkynnti stjórn sambands-
ins Trésmiðafélagi Reykjavíkur í fyrradag að frá og með
25. janúar væri öllum meðlimum sambandsins bannað að
taka meðlimi Trésmiðafélagsins í nokkurs konar vinnu!
Virðist Ijóst af þessum ósvífnu tiltektum, að Vinnuveitendasam-
bandið ætlar einskis að láta ófreistað til að koma gerðardóms-
fjötrunum á trésmiðina. Hafa atvinnurekendur verið eins og út-
spýtt hundskinn undanfarið og krafizt þess að trésmiðimir skrif-
uðu undir skjal þar sem þeir skuldbinda sig til að vinna upp á
sömu kjör og áður en verkfall hófst í desember. Mun þeim hafa
orðið lítið ágengt og þvf sé nú gripið til örþrifaráða.
Þjóðvlljanum er kunnugt um að víða í Reykjavík er unnið að
byggingum af fullum krafti þrátt fyrir tilraunir atvinnurekenda
að stöðva alla trésmiðavinnu. Þannig hefur verið unnið stanzlaust
að innréttingu á stórhýsi Vcrzlunarsambandsins við Skipholt, cn
reynt var að stöðva vlnnu þar með lögbanni í gær. Krafðist Mcist-
arafélagið í gær lögbanns við vinnu smiðanna sem þar voru að
Keflavíkurflugvöllur
Framhald af 12. síðu.
675.000 Htra af flugvélabenzíni.
Þannig afgreiddi Esso um eina
milljón lítra á dag árið 1955,
er, þá var umferðin einna mest
um völlinn.
Tvennsko;Vir röksemdir hafa
risið hátt gegn Keflavfkurflug-
velli borið saman við Reykja-
víkurflugvöll.
Annarsvegar er veðurfarið og
hins vegar fjarlægðin. Pétur
sagði að nýlega hefur verið gef-
in út bók í Bandaríkjunum um
veðurathuganir á Keflavíkur-
flugvelli og eru þar birtar at-
huganir, sem gerðar voru á
klukkutíma fresti hvern dag frá
1. jan. 1946 til 31. des. 1960. Af
Dátar
og ráðherrar
Það er nýtt sem sjaldan
skeður. Gylfi Þ. Gíslason,
ráðherra mennta og viðskipta,
hefur dvalizt erlendis að und-
anförnu, aldrei þessu vant.
M. a. fór hann til Noregs
og hélt þar fyrirlestur við
háskólann um hin sérstæðu
afrek íslenzkra sósíaldemó-
krata í átökunum við verð-
bólguna, og var það ekki
vonum fyrr að norskir flokks-
bræður hans fengju að vita
hvernig þeir ættu að haga
sér í stað þer# að vera að
streitast við að halda stöðugu
verðlagi { landi sínu. Einn-
ig átti Gyjfi viðræður við
blöð og fréttastofnanir, og
birti Morgunblaðið í fyrra-
dag ýtarlega frásögn af um-
mælum hans, hafða eftir
fréttastofunni NTB. Ráðherr-
ann fer þar mjög fögrum orð-
um um norræna samvinnu
eins og vera ber og heldur
síðan áfram: .,Sem ráðherra
viidi hann segja það, að hann
hefði ekki haft svo náið og
gott samstarf í mörg ár við
nokkra erlenda ráðherra sem
hina norsku, Sambúð Islend-
inga við hið fámenna banda-
ríska l:ð í Keflavík er einn-
ig ágæt.”
Eflaust hefur það vakið
nokkra athygli í Noregi
að Gylfi Þ. Gíslason
skyldi leggja norska
ráðherra og dátana á Kefla-
víkurflugvelli að jöfnu, ekki
sízt þar sem frændum vor-
um munu vel kunn þau
fleygu orð Halldórs Lexness
að engir umgangist hemáms-
liðið rvema stjórnmálamenn
og skyndikonur. Enginn
skyldi þó ætla að Gylfi hafi
með þessu viljað ó-
virða norska kollega sina;
hann er auðvitað að bera þá
ssman við það sem hann tel-
ur sjálfur eftírsóknarverðast
og háleitast f veröldinni.
Leið-
araefni
Morgunblaðið skýrir frá
því í gær að atvinnurekend-
ur hafi sett verkbann á tré-
smiði frá og með 25. jan.
n.k. hafi samningar ekki tek-
izt fyrír þann tíma. Nú bíða
menn aðeins eftir því að
blaðið skrifi um þessa boð-
uðu vinnustöðvun á venjuleg-
an hátt, lýsi upphafsmönn-
um hennar sem illvirkjum og
skaðræðismönnum sem vilji
viðreisnina feiga samkvæmt
fyrirmælum heimskommún-
Sifc#ians og Rússa. — Austri.
einhverjum ástæðum féllú þess-
ar athuganir niður árið 1948.
Samkvæmt þessum athugunum
er Keflavíkurflugvöllur lokaður
fyrir flugumferð vegna veðurs
í 6,5 klst. á mánuði að meðal-
tali.
Fjarlægðir milli miðhluta
heimsborga og flugvalla eru
taldar frá 8 til 22,5 kílómetra og
það notað sem röksemd gegn
þessum 47 kílómetrum. Flestir
þessara flugvalla eru við aldur
og ekki einhlítt að gera saman-
burð þar.
Þá eru fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á byggingum á Kefla-
vfkurflugvelli.
Ætlunin er að byggja nýja
slökkvlstöð með tólf slökkvibíl-
um norðaustan við Flugvallar-
hótelið. Uppsetning á nýju Ijóea-
kerfi er fyrirhuguð á braut nr.
21 (Visuel glide slope)
Nýr flugturn er fyrirhugaður
hjá flugskýli beint á móti hót-
elinu. Verður þar staðsett nýtt
radarkerfi. Skipuð hefur verið
nefnd til þess að fjalla um end-
urreisn eða byggingu á nýrri
flugstöðvarbyggingu.
Leiðrétting
1 frétt í blaðinu í gær var
það skakkt hermt að kjaradóm-
ur hefði ákveðið kaup strætis-
vagnabílstjóranna. Þau voru á-
kveðin með beinum samningum
Starfsmannafélags Reykjavíkur
og borgarstjómar. Starfsmanna-
félag Reykjavíkur á ekki aðild
að kjaradómi og hefur ekki ósk-
að eftir því.
Hinn 21. des. s.l. var Elíasi
Elíassyni. stud.polyt., veittur
styrkur úr Minningarsjóði Þor-
valds Finnbogasonar.
Styrkur þessi er veittur ár
hvert efnilegum verkfræðinema
og án umsóknar. Elías Elías-
son er stúdent á 3. námsári.
(Frá Háskóla íslands)
verki. Lögbanninu var þó frestað og lögfræðingi smiðanna gefinn
frestur til kl. 4 i dag, Iaugardag, til að skila greinargerð. Var frest-
urinn gefinn gegn því að smiðirnir ynnu ekki þangað til, en þeir
áttu ekki eftir nema sem svarar stundarfjórðung af vinnutíma sín-
um í vikulokin þegar um þetta var gert, og næsti vinnudagur
þcirra cr mánudagurinn.
I stórhýsi Dagsbrúnar og Sjómannafél. Rvíkur viö Lindargötu hef-
ur cinnig vcrið unnið og sömu sögu cr að segja víða um bæinn.
1 baráttu sinni gegn því að gerðardómsákvæði verði smeygt inn
í kaup- og kjarasamninga. stendur Trésmiðafélagið ekki eitt. Til-
raunum atvinnurekenda að koma gerðardómi yfir trésmiðina er
einnig beint gegn öllum öðrum iðnsveinafélögum í byggingariðnað-
inum. Hafa þau öll sömu eindregnu afstöðuna gegn gerðardóms-
ákvæðum um kaup og kjör.
Eimskip minnist
50 ára afmælisins
Á 50 ára afmæli Eimskipafé-
lagsins í gær bárust félaginu
margar góðar gjafir og mikill
földi heillaskeyta, og verður
nánar skýrt frá því síðar.
Ríkisútvarpið sýndi félaginu
þá miklu'vinsemd að helga þvi
hluta af dagskrá sinni í gær-
kvöld. Blöðin fluttu rækilegar
greinar um félagið. með mörg-
um myndum, þar sem þau
minntust með hlýhug stofnsn-
ar félagsins og starfsemi á
liðnum 50 árum. Fánar blöktu
við hún um alian bæinn.
Dagskráin i Ríkisútvarpinu
hófst með því að forseti ís-
lands flutti ávarp Síðan var
ávarp s:glingamálaráðherra,
Emils Jónssonar. Þá flutti for-
stjóri félagsins Óttar Möller
ávarp. og dómkirkjukórinn
söng kvæði er Tómas Guð-
mundsson skáld. hafði ort f
tilefni afmælisinc., og hafði dr.
Páll ísólfsson samið lag við
kvæðið og stjórnaði bann einn-
ig kórsöngnum. Að þvi búnu
flutti Grettir Eggertsson frá
Winnipeg ávarp frá Vestur-
íslendingum.
Að lokum flutti formaður
stjórnar félagsins, Einar Bald-
vin Guðmundsson hæstaréttar-
lögmaður, þakkarorð til allra
þeirra er gert höfðu þennan
dag hátíölegan og eftirminni-
legan, m.a. póststjórninni fyrir
að minnast dagsins með útgáfu
nýs frímerkis, með mynd af
„flaggskipi“ félagsins, m.s.
„Gullfoss",
Jafnframt skýrði formaður
félagsstjórnarinnar frá því,
að stjórnin hefði samþykkt að
minnast afmælisins á þennan
hátt:
☆ Ákveðið liefur verið að
félagið freri Slysavarnafélagi
íslands að gjöf citthundrað og
fimmtíu þúsund krónur.
☆ Ennfremur að Eimskipa-
félagið gefi silfurbikar til verð-
launa fyrir bezta námsafrek
i farmannadeild Stýrimanna-
skólans í Reykjavík. Verður
þetta farandbikar, en honum
fylgir silfurpeningur, sem
verður eign þess er bikarinn
hlýtur hverju sinni.
☆ Þá hefur vcrið ákveðin
stofnun minjasafns. er geyma
muni myndir, skjöl og annað,
cr snertir sögu Eimskipafélags-
ins og siglingar yfirlcitt. Enn-
fremur hefir félagið ákveðið
útgáfu sögulegs rits, er sé
framhald rits þcss, er sefið
var út á 25 ára afmæli fé-
Iagsins.
☆ Mcrki Eimsl:ii)afcjagiiins
hefur verið mótað i gull. Gull-
merkið hljóta þeir. sotn starf-
að hafa í þjónustu fclagsins í
25 ár eða lengur.
(Fréttatilkynning frá
Eimskipafélagi íslands).
★
ÆFR
Stjórnmálaklúbbur Æ F R
byrjar starf sitt kl. 4 1 dag
að Tjarnargöbu 20. I
stjórnmálaklúbbnum verða rædd
þau mál, sem eru efst á baugi
hverju sinni jafnt þau sem sígild
eru og þau sem geta kallazt
dægurmál. Hugmyndin er að
ldúbburinn mæti á hálfsmánað-
ar fresti. Umræðuefni fyrsta
fundarins verður alþjóðlcg við-
horf í da~. Verður þar einkum
rætt um afstöðu Islands og
íslenzkra sósíalista sérstaklega
til sósíalistisku landanna og auð-
valdslandanna í Ijósi þróunar
síðustu ára. Jafnframt verður
á þessum fyrsta fundi kosin
stjóm klúbbsins, ákveðið um-
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar í eldhús Kleppsspítalans
hálfan eða allan daginn eða á kvöldvakt. Upplýs-
ingar gefur matráðskonan í síma 38164.
Reykjavík, 17. janúar 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
ræðuefni á næstu fundum og
rætt um frekari tilhögun á starfi
klúbbsins.
Kjörorð stjórnmálaklúbbs Æ.
F.R. eru Engin vandamál eru
svo viðkvæm að ckki megi ræða
þau!
öllum félögum Æskulýð0-
fylkingarinnar er heimil þátt-
taka í starfi klúbbsins.
Skrifstofa Æ.F.R. er opin alla
virka daga kl. 5—7 nema laug-
ardaga kl. 2—7. Félagar eru
hvattir til að hafa samband við
skrifstofuna. Símanúmer Æsku-
lýðsfylkingarinnar er 17513. Fé-
lagsheimilið er opið á hverju
kvöldi.
Vinnuferð: Farið verður í
skálann kl. 8 í kvöld frá Tjarn-
argötu 20. Skálastjórn.
Ásvallagötu 69.
sími 33687. kvöldsimi 23608
T I L S ö L U :
3 herb. íbúð á 2. hæð í
sambýlishúsi í Stóragerði.
Frágengin lóð. Utsýni,
góðar svalir.
3—4 herb. íbúð í sambýlis-
húsi við Hjarðarhaga.
Teppalögð. Uppþvottavél
fylgir eldhúsi. Þvottavélar
í sameign. Á efstu hæð
fylgir herb. með aðgangi
að eldhúsi og baði. Laus
strax. Bílskúrsréttur.
2 ja herb. 1. hæð á kyrrlát-
um stað. Tvær íbúðir á
gangi.
4 herb. íbúð í Laugames-
hverfi. Bílskúr. Hitaveita.
Mjög góð íbúð.
4 hcrb. risíbúö i Hlíðahv.
Ekki mikil súð. Övenju
skemmtileg íbúð með stór-
um svölum mót suðri.
í S M 1 Ð U M :
Lúxushæðir í tvíbýlishúsi á
hitaveitusvæðinu. Selj-
ast uppsteyptar með bíl-
skúr. Sér inngangur.
Hverfigluggar. Glæsileg
teikning.
4 og 5 herb. íbúðir í sam-
býlishúsum í Háaleitis-
hverfi. Seljast tilbúnar
undir tréverk og málun
til afhendingar í vor. Sér
hitaveita.
6 herb. glæsileg hæð i sam-
býlishúsi í Háaleitishverfi.
lbúðin er 139 ferm. Selst
tilbúin undir tréverk og
málningu til afhendingar
14. maí, næstkomandi. Bíl-
skúrsréttindi. Endaíbúð.
Sameign fullgerð — verk-
smiðjugler — hitaveita.
HÖFUM KATJPENDTJR:
Ibúðarhæð 5—6 herb. ( tví-
býlishúsi. Aðeins ný og
glæsileg íbúð kemur til
greina. Utborgun ca.
700.000,00 kr., eða eftir
samkomulagi.
Verzlunarhúsnæði. Eitt
þekkt^sta innflutnings fyr—
irtæki landsins vill festa
kaup á nokkur hundruð
fermetra verzlunar- og
geymsluhúsnæði. Aðeins
viðurkenndur staður kem-
ur til greina.
4 herb. íbúð i húsi með
lyftu óskast.
3 herb. fbúð í vesturbæn-
um óskast. Aðeins góð í-
búð kemur til greina. Út-
borgun 500.000.00 kr.
2 herb. íbúð í háhýsi. Út-
borgun 300.000.00. Þarf
ekki að vera laus strax.
5—6 herb. íbúð í smíðum
í tvíbýlishúsi óskast. Að-
eins íbúð sem selst undir
tréverk kemur til greina.
Mikil útborgun í boði.
I SKIPTUM :
4 herb. íbúð í Reykjavík
óskast fyrir stórt einbýl-
ishús á einni hæð í Kópa-
vogi, Húsið er í smíðum,
tilbúið undir tréverk. Ca
200 ferm.
MUNIÐ AÐ EIGNASKIPTI
ERU OFT MÖGULEG
HJÁ OKKUR. — NÆG
BÍLASTÆÐI — BlLA-
ÞJÓNUSTA.
Þakka öllum þeim mörgu
tugsafmælinu 7. janúar
gjöfum og skeytum.
Benoný Friðriksson.
sem glöddu mig á sex-
s.l., með heimsóknum,
f