Þjóðviljinn - 18.01.1964, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 18.01.1964, Blaðsíða 8
g SlÐA ÞIÖÐVILIINN Laugardagur 18. ianúar 1964 ! i i ! Viðsltiptareikningur 6079. Innkaupsverð og flutnings- kcstnaður olíuvara, sem flutt- ar vora inn samkvæmt samn- um við varnariiðið, var skuldfært í fyrstu á re:kn- ing 6076, sem áður getur. 1 júní 1955 var breytt til þannig, að innkaupsverð og flutningskostnaður var færl til skuldar hjá Esso Export Corporation á reikning Olíu- félagsins h.f., sem merktur var 6079. Td tekna á þenn- an reikning var fært inn- kaupsverð. flutningskostnað- ur, svo og vátryggingarkostn- aður olíuvara, sem seldar voru varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli, jafnóðum og andvirði þeirra innheimtist. Var innheitan framkvæmd þannig að söluverð olíuvara, sem seldar voru vamarliðinu, var fært á tvo reikninga. Á annan var færð fjárhæð, sem svaraði til innkaupsverðs, flutningskcstnaðar og vá- tryggingar, en brúttó-álagn- ingin var færð á hinn reikn- inginn. Keikn. voru send- ir til Esso Export Corpora- tíon, sem sameinaði þá og innheimti hjá aðalstöðvum varnarliðsins í Bandaríkjun- um. Fyrri reikningurinn var færður til tekna á reikningi nr. 6079, en seinni, álagningin, var færður til tekna hjá Esso Export Corporation á reikning nr. 4137, sem áður er minnzt á. Ákærður Haukur Hvann- berg taldi ástæðuna til stofn- unar reiknings þessa vera þá, að fyrri hluta árs 1955 hafi Olíufélaginu h.f. og Hinu ís- lenzka steinolíuhlutafélagi boðizt 3ja ára samningur um sölu á olíuvörum til varnar- liðsins, ef félögin gætu af- greitt olíuvörumar við nægj- anlega hagstæðu verði fyrír varnarliðið. I samningavið- ræðum milli Esso Export Corporation og ákærðs Hauks annars vegar og innkaupa- stofnunar hersins hins vegar kom það fram, að einn kostn- aðarliðurinn væri veltuútsvar af olíuvörunni, sem Hið ís- lenzka steinolíuhlutafélag kæmi til að afgreiða sam- kvæmt væntanlegum samn- ingi. Forráðamenn vamar- liðsins héldu því fram, að samkvæmt ákvæðum varnar- samningsins væri vamarliðið undanþegið greiðslu opin- berra gjalda, og því ætti veltuútsvarið ekki að hafa á- hrif á verð olíuvörunnar til varnarliðsins. Til að missa ekki af samningum var á- kveðið að ski'lja að vöruverð og afgreiðslukostnað, með þvf að afgreiðsluþóknunin rymni til Hins íslenzka steinolíu- hlutafélags. en vöruverðið, þ.e. cif— verðið, rynni til Esso Export Corporation, eft- ir því sem afgreiðslur færu fram. Ekki minntist ákærður Haukur þess, að hann hafi látið einstaka stjómarmenn Olíufélagsins h.f. eða Hins íslenzka steinolíuhlutafélags vita um þetta fyrirkomulag. Samkvæmt framburði fram- viunufélaga í New York. Ár- ið 1952 voru færðir t'l tekna á reikningi þessum $ 67.141- 17. sem komu af geymaleigu- reikningnum 6078. í desem- ber 1954 voru endurgreiddir $7.898.38 inn á reikning 6078. Afgangurinn var greidd- ur Sambandi íslenzkra sam- vinnufélaga 11. nóvember 1956. Voru dollarar þessir notaðir til greiðslu á geyma- stáli og samþykktir þann:g af I ágúst 1954 voru greiddir inn á reikning'nn $ 200.000.00 frá Esso Export Corporation og voru skuldfærðir á reikn- ing 6076. Fjárhæð þessari var skilað Landsbanka Islands í september 1954. 1. október 1954 greiddi Esso Export Corporation $ 145.000.00 inn á reikninginn og skuldfærði Viðskiptareikningar Olínfélagsins h.f. og Hins íslenzka steinolíuhlutafélags eru margir og þá er víða að finna. Enn er haldið áfram að gera grein fyrir nokkrum reikninganna. kvæmdastjóra Olíufélagsins h.f., ákærðs Jóharms Gunn- ars,, var sá háttur hafður á um söluna til varnarliðsins, að Esso Export Corporation lánaði Olíufélaginu h.f. and- virði olíuvörunnar, sem flutt var inn vegna vamarliðsins. Olíufélagið h.f. greiddi Esso Export Corporation með því að senda fyrirtækinu reikn- inga yfir sölumar til vamar- liðsins. Olíuvaran, ætluð varnarliðinu. var flutt inn á ábyrgð Olíufélagsins h.f. Hvorki reiknings 6079 né færslna, sem færðar voru á hann, var getið í bókum Olíu- félagsins h.f. Ákærður Hauk- ur hélt því fram, að Olíu- félagið h.f. ætti ekki birgð- irnar. Hann taldi reikninginn 6079 ekkert launungamál, enda vissu starfsmenn fé- laganna um hann. Keikningn- um var, að undirlagi núver- andi aðalframkvæmdastjóra Olíufélagsins h.f. og Hins ís- lenzka steinolíuhlutafélags, lokað um mitt ár 1959 og frá sama tíma tekið til að bóka birgðirnar, ætlaðar varnarliðinu, sem eign Olíu- félagsins h.f. Gja'Ideyriseftir- litinu var ekki gerð skila- grein um reikninginn né færslur á hínn. Reikningur Olíufélagsins h.f. hjá skrifstofu Sambands íslenzkra samvinnufélaga í New York. Olíufélagið h.f. átti við- skiptareikning hjá skrifstofu Sambands fslenzkra sam- þá á reikningi 6078. Þessi fjárhæð var endurgreidd til Esso Export Corporation i þrennu lagi: 3. apríl 1956 $ 40.000.00, 24. ágúst 1956 $ 40.000.00 og 21. desember 1956 $ 65.000.00. 13. nóvember 1956 greiddi Esso Export Corporation $ 18.657.72 inn á reikninginn, sem skuldfært er í október 1956 á reikningi 6078, ásamt greiðslu inn á reikning Hins íslenzka steinolíuhlutafélags hjá skrifstofu Sambands is- lenzkra samvinnufélaga í New York, samtals $ 37.461,- 54, sbr. nánar síðar. Hinn 10. júní 1955 greiddi skrifstofa Sambands íslenzkra samvinnufélaga i New York $ 15.000.00 til fyrirtækisins General American and Dom- inion Export Corporation í N. York, sbr. nánar síðar, og skuldfærði reikninginn um þessa fjárhæð. Ennfremur greiddi skrifstofan ti'l Sam- bands islenzkra samvinnufé- laga $ 3.657.72 og skuldfærði á reikningnum. Var framan- greind innborgun Esso Export Corporation, að fjárhæð $ 18.657.72, til greiðslu á þessum fjárhæðum. I bókum Olíufélagsins h.f. er reikningur á nafni skrif- stofu Sambands islenzkra samvinnufélaga í New York og eru færðar á hann nokkr- ar færslur árin 1953 og 1958. Engar af þeim færslum, sem færðar eru hjá skrifstofu * Sambands islenzkra sam- | vinnufélaga í New York á C rekning Olíufélagsins h.f. H eru á þeim reikningi. ^ Reikningur Ii.l.S hjá skrif- stofu S.f.S. í New York. Hið íslenzka steinclíuhlutafélag hefur átt reikning hjá skrif- stofu Sambands íslenzkra samvinnufélaga í New York. Reikningur þessi var athug- aður og náði athugunin yfir tímabilið 1949 til 1958. Ekki tókst að fá fylgiskjöl með öllum færslum, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Þannig fengust engin fylgi- skjöl með færslum ársins 1953. Xnnborganir á reikning þenna voru ávísanir, sem Hið íslenzka steinolíuhlutafé- lag sendi skrifstofu Sambands íslenzkra samvinnufélaga í New York og innborganir frá Esso Export Corporation, sem ekki var hægt að sjá, að skuldfærðar hefðu verið á viðskiptareikning Hins is- lenzka steinolíuhlutafélags hjá Esso Export Corporation hvorki nr. 4137 né 4138. Þá runnu inn á reikninginn f jár- hæðir af reikningi nr. 4137 og nr. 6078. Loks greiddi á- kærður Haukur Hvannberg í einu lagi $ 28.345.00 (2. júní 1953). f bókum Hins íslenzka steinolíuhlutafélags er við- skiptareikningur á nafni skrifstofu Sambands íslenzkra Samvinnufélaga i New York. Reikningur þessi var opnaður 1949 og byrjar á sömu færslu og viðskiptareikningur Hins íslenzka steinolíuhlutafélags hjá skrifstofu Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga í New York. Á reikninginn eru færðar nokkrar sömu færsl- ur, sem færðar eru á reikn- ingi Hins íslenzka steinoliu- hlutafélags hjá skrifstoíu Sambands íslenzkra sam- vinnufélaga í New York. Verður síðar gerð nánari grein fyrir þessu. Til glöggvunar skal tdcið fram, að samkvæmt skýrslu endurskoðandans var aMs greitt inn á reikninginn: a) '2'msar innborg- anir $ 41.680.67 b) Innb. af Hauki Hvann- berg $ 28.345.00 c) Frá reikn 4137 hjá Esso $ 73.588.62 d) Frá reikn. 6078 hjá Esso $ 18.803.82 Samtals $ 162.418.11 Ýmsar innborganir voru að- allega ávísanir, sem H.Í.S. hafði sent skrifstofu S.f.S. í New York. Gjaldeyriseftirlitið fékk ekki yfirlit yfir reikning þennan. Oflug starfsemi Æskulýðs- ráðs Akureyrar árið 1963 Æskulýðsráð Akureyrar skipa: Formaður Pétur Sigurgeirsson, Bjöm Baldursson, Einar Helga- son, Eiríkur Sigurðsson, Har- aldur M. Sigurðsson, Sigurður Óli Brynjólfsson, Tryggvi Þor- steinsson. Fundir Æskulýðsráðs á árinu voru 32 og þar tekin fyrir þau málefni sem undir það heyra. Aðalverkefni ráðsins var að standa fyrir námskeiðum, tóm- stundastarfi og skemmtunum fyrir ur.glinga. Á árinu voru alls 8 námskeið: Dansnámskeið: Kennari frú Margrét Rögnvaldsdóttir. Nem- endur 160. Hjjilp í viðlögum: Kennarar Tryggvi Þorsteinsson og Guð- mundur Þorsteinsson, nemendur 40. Námskeið i teikningu og með- ferð lita: Kennari Einar Helga- son, nemendur 37. Sjóvinnunámskeið: Kennarar Bjöm Baldvinsson, Helgi Hálf- dánarson og Þorsteinn Stefáns- son, nemendur 30. Námskeið í hjúkrun: Kennari frk. Ingibjörg Magnúsdóttir, nemendur 47. Námskeið er vera átti í bú- vinnu í maí féll niður sökum þátttökuleysis. Radionámskeið: Kennari Arn- grímur Jóhannsson, nemendur 52. Námskeið í smábátasm.: Kenn- ari Dúi Eðvaldssop o.fl., nem- endur um 50. Námskeið í meðferð og við- gerð reiðhjóla m. v.él: Kennari Stefán Snæbjömsson. Kvikmyndir Tiafa verið sýnd- ar i sambandi við öll nám- skeiðin og sjóferð var teria pseð m.s. Drang fyrir nemendur sjó- vinnunámskeiðsins. Æskulýðsráð hefur staðið fyr- ir stofnun nokkurra klúbba og nefndaj og nokkur félög hafa fengið aðstöðu til fundahalds í húsnæði Æskulýðsráðs í Iþrótta- vallarhúsinu. Æskulýðsráð fékk á árinu um- ráð yfir gamla flugskýlinu við Hafnarstræti og þar hefur verið komið upp aðstöðu fyrir vél- hjólaeigendur til viðgerða á hjól- um sínum og ögn hefur verið byrjað þama á undirbúningi að smíði smábátaverkstæðis og bátageymslu. Á s.l. sumri voru athugaðir möguleikar á skemmtanahaldi um verzlunarmannahelgina fyrir ungt fólk f Vaglaskógi en ekki fengust nauðsynleg leyfi yfir- valda til þess. Reynt verður aft- ur næsta sumar. Skemmtiklúbburinn Sjöstjarn- an hefur haldið uppi dans- skemmtunum hálfsmánaðarlega með aðstoð og eftirliti Æsku- lýðsráðs. Fara skemmtanir fram í Lóni. Á árinu hélt framkvæmda- stjóri Æskulýðsráðs erindi um æskulýðsmál hjá 6 félögum og félagssamtökur«i auk ýmissa fé- lagsfunda er hann sat vegna ráðsins. ’ Yfirlýsing Að marggefnu tilefni vil ég hér með lýsa því yfir að ég er ekki höfundur að greininni: Vinnulýðræði, sem birtist í Úrvali í desember s. I. Grein þessi fjallar um leið, sem talin er að hafi verið reynd til þess að draga úr and- ctæðum „vinnu” og „fjár- magns” og er x því fólgin, að starfsmenn fái h'lutdeild í stjórn fyrirtækja og jafnframt arð, sem grundvallast á af- komu fyrirtækjanna hverju sinni. Vil ég alls ekki vera bendl- aður við þann þvætting, sem fellst í nefndri grein. Haukur Helgason, bankafulltrúi. i song Hjá Ríkisútgáfu námsbóka er komið út nýtt kennsluhefti í söng, Keðjusöngvar, 1 heíti, eft- ir Jón Ásgeirsson söngkennara. Sönghefti þetta er það fyrsta af þrem heftum af keðjusöng- um, sem í ráði er að gefa út. Mikil vöntun hefur verið á lögum hentugum til kennslu í margrödduðum söng, og er með útgáfu á Keðjusöngheftum þess- um reynt að bæta að nokkru úr þessum skorti. í þessu fyrsta hefti Keðju- söngva eru tólf tveggja til þriggja tóna lög á tveim nótna- strengjum og 4 — 5 4 til 5 tóna lög á þrem nótnastrengjum. Lög þessi eru samin af Jóni Ásgeirs- syni, söngkennara, utan tveggja laga. Klukkur á bls. 21 og Upn með söng, á bls. 24. Við niðurröðun laganna hefur vex’ið farið eftir svonefndu „Ton- ica-do” söngkennslukerfi, sem er mjög gamalt kerfi og hefur á síðari árum rutt sér til rúms við söngkennslu í skólum með góðum árangri. Prentun Keðjusöngvanna ann- aðist I-itbrá h.f kápupi’entun Alþýðuprentsmiðjan h.f. - Framhald af 4. síðu. Enn nefndi Alfreð sem dæmi f.jármáladeild Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þar unnu árið 1961 alls 65 manns, en í raf- magnsveitunni í borginni Vest- erás, scm er álíka stór og Reykjavík, væru starfsmenn 23 taisins. Þá rakti ræðumaður enn- fremur dæmi um eftirlitsleysi og stjórnleysi í birgðastöð fyrirtækisins og við benzín- og eldsneytisafhendingu. Lofsvcrð viðleitni síð- ustu árin Alfreð Gíslason minnti á að á árinu 1960 hefðu fulltrúar Alþýðubandalagsins og Fram- sóknarflokksins í borgarstjórn borið fram tillögu um athugun á rekstri Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þeim tillögum var vísað frá. Ári síðar fluttu fulltrúar Alþýðubandalagsins enn tillögu um athugun á reksti’i borgarfyrirtækja, þar með Rafmagnsveitunnar, og var þeirri tillögu einnig visað frá. í júlí 1962 . kom enn fram< tillaga um athugun á öllum rekstri Reykjavíkur og í des- ember sama ár flutti Alfreð enn tillögu svipaðs efnis. En allt kom fyrir ekki — og væri engu líkara en fyrirtækið væri yfir gagnrýni hafið. Ræðumaður tók það íram, að á síðustu árum hefði verið sýnd lofsverð viðleitni að bæta reksturinn og kippa í lag því sem mest fór aftaga, en til- löguna flytti hann nú vegna þess að hann teldi það ofvax- ið borgarráði að hafa eftirlit með rekstri slíks fyrirtækis sem Rafmagnsveita Reykjavík- ur er. ★ Geir Hallgrímsson borgar- stjóri kvað borgarráð hafa um- rætt málefni til meðferðar Qg þessvegna teldi hann óeðlilegt að skipa nefnd í málið. Yrði slík nefndarskipun að sínu á- liti sízt fallin til að flýta með- ferð málsins. Mótmælti borgar- stjóri því livernig málið hefði verið lagt fyrir borgarstjórn- ina nú og svaraði síðan ýms- um atriðum í ræðu flutnings- manns. Að loknum nokkrum um- ræðum var tillaga borgarstjóra um að vísa tillögu Alfreðs Gíslasonar frá samþykkt með atkvæðum meirihlutafulltrú- anna. >--------------------------- Fréttatilkynning frá orðuritara Forseti íslands sæmdi í gær Alexander M. Alexandrov, am'b- assador Sovétríkjanna, stórkrossi hinnar íslenzku fálkaorðu. FDRUSTUMENN FÉLAGA — ÁTHUGIÐ! Félagsstörf og mælska eftir Hannes Jónsson félagsfræðing er úrvals handbók fyrir alla þá, sem taka .vilja. ábyrgan þátt í félagsstarfi og ná ár- angri í fundarstörfum og mælsku. Bók þessi er algjörlega hlutlaus og fjallar um mælsku og allar tegundir félags- og fundarstarfa. í henni er líka rökfræðiágrip, fróðlegur kafli um áróður og margar teikningar af fyrirkomulagi í fundarsal. Ætla má, að bók þessi geti orðið félagsstjórnum, fastanefndum og áhugasömum félagsmönnum að miklu gagni. Ef keypt eru minnst 5 eintök gegn staðgreiðslu fá félög bókina , með afslætti. Munið, að leikni í félagsstörfum og mælsku ge'tur ráðið miklu um þjóðfélagslegan frama einsták- lingsins og framvindu þjóðfélagsmála. Einstaklingar, sem eignast vilia þessa hagnýtu ók, geta pantað hana beint , frá útgefanda eða fengið hana hjá flestum bóksölum. YOTIÐ ÞETTA TÆKIFÆRI. FÉL AGSMÁL AST OFNUNIN Pósthólf 31 — Reykjavík — Sími 40624.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.