Þjóðviljinn - 18.01.1964, Blaðsíða 12
KEFL AVIKUR FLUGVOLLUR
VILL LEGGJA NIÐUR REYKiA-
VÍKURFLUCVÖLL í ÁFÖNGUM
□ Pétur Guðmundsson, flugvallarstjóri Kefla-
víkurflugrvallar átti fund með fréttamönnum sl.
miðvikudag og skýrði þar frá sjónarmiðum sín-
um í sambandi við væntanlega flugvallagerð
við Faxaflóa.
Ök á Ijósastaur,
hús og lögreglu
I fyrrinótt var tekinn drukk-
inn ökufantur í Reykjavík. Áður
en af því yrði, að hann stigi út
úr bílnum, guði og lögreglunni á
vald, hafði hann tvívegis ekið
á Ijósastaur, einníg tvisvar utan
í lögreglubíl og á hús við Mela-
torg.
Maður þessi kynntist fjórum
Portúgölum á Röðli, og með því
hann hefur verið á Spáni gat
hann rætt við mennina. Bauð
hann þeim til gleðskapar i
heimahúsi, en um þrjú leytið ók
inn til þess bifreið kunningja
hann þeim heim. Notaði maður-
síns er tók þátt í samkvæminu,
en var ofurölfi þegar hér var
komið sögu. Voru i bílnum sex
manns, þrír Islendingar og þrír
Portúgalar, en hinn fjórði þeirra
var farinn til síns heima.
Portúgalamir búa á Hótel
Sögu, og var ætlunin að aka
þeim þangað. Lögreglubíll, sem |
var á eftirlitsferð, varð var við
ferðir bílsins, og sáu lögreglu-
i menn þegar hvers kyns var.
Héldu þeir eftir bílnum, en ekki
var þó um eltingarleik að ræða,
þar sem ökufanturinn vissi ekki
að hann væri eltur. I Suðurgötu
rennir svo lögreglubíllinn upp
að fólksbifreiðinni. Þegar öku-
fanturinn sá hver kominn var,
steig hann benzínið í botn og
reyndi að sleppa, með þeim af-
leiðingum, er fyrr greinir.
Þegar ökumaðurinn náðist
harmaði hann það helzt, að hafa
ekki verið á betri bíl, til þess
að honum hefði auðnast að kom-
ast undan. Þegar farið var með
hann í blóðrannsókn í Síðumúla
tókst manninum að slíta sig
lausan og hvarf í náttmyrkrið.
Hann náðist svo um níu-leytið
um morguninn og var tekinn til
yfirheyrslu í gærdag.
25 ára afmæli LÍÚ
1 gær voru 25 ár liðin frá stofn-
un Landsambands ísl. útvegs-
manna. Var það stofnað í Rvík
17. janúar 1939. Fyrsti formaður
þess var Kjartan Thors og var
hann formaður fyrstu 6 árin.
Síðan var Sverrir Júlíusson kos-
inn formaður sambandsins og
hefur síðan ætíð verið endur-
kjörinn
1 tilefni afmælisins hefur
stjórn L.I.Ú. móttöku í skrif-
stofum samtakanna í Hafnar-
hvoli við Tryggvagötu í dag,
laugardag ki. 5 til 7 síddegis.
Til tals hefur komið að endur-
byggja Reykjavíkurflugvöll eða
hefja gerð á nýjum flugvelli á
Álftanesi og hafa þar verið
nefndar hundruð milljónir króna
í byggingarkostnað.
Þetta þykja Pétri bollalegging-
ar út í hött með einn fullkomn-
asta flugvöll heimsins við bæj-
ardymar, þar sem sé Keflavík-
urflugvöllur.
Flugvallargerðin á Miðnesheiði
kostaði fjögur þúsund milljónir
króna og er þar aðeins átt við
flugvöllinn.
Herstöðin sjálf mun hinsvegar
hafa kostað um 1 milljarð og
þrjú hundruð milljónir.
Telur Pétur að flytja beri inn-
anlandsflugið frá Reykjavíkur-
flugvelli til Keflavíkurflugvallar
og leggja fyrrnefndan flugvöll
niður í áföngum næstu tíu til
fimmtán árin. Hinsvegar beri að
verja fyrirhuguðum milljóna-
fúlgum til flugvallagerða úti
á landsbyggðinni í staðinn fyrir
að henda þessum peningum í ó-
fullkominn flugvöll hér við
Faxaflóa.
Flugvallarstjórinn sagði að nú
muni flestir komnir að þeirri
niðurstöðu, að Reykjavíkurflug-
völlur hafi lokið hlutverki sínu
sem aðalflugvöllur landsins og
þéttbýlisins við Faxaflóa. Sam-
kvæmt umsögn heimsþekktra
sérfræðinga munu undirstöður
flugvallarins vera að gefa sig,
byggingar í nágrenni flugvallar-
ins kreppa að og er útilokað að
leyfa lendingar í minna en 400
feta skýjahæð. Þá er ekki hægt
að lengja flugbrautir svo að ný-
tízku millilandaflugvélar geti
lent og hafið sig til flugs og ó-
gerlegt að koma fyrir nauðsyn-
legum blindlendingartækjum.
Helztu kröfur um framtíðar-
mannvirki, sem taki við að R-
víkurflugvelli eru þessar:
1. Flugbrautir þurfa að vera
tvær. önnur 2100 metra löng
með lendingarmöguleika í 3600
metra. Hin 2000 metra með lend-
ingarmöguleika í 2700 metra.
2. Aðflug og brottflug þarf að
vera hindrunarlaust.
3. Við aðal- og blindlendingar-
braut skal vera blindlendingar-
kerfi t.d. ILS og aðflugsljós, sem
leyfir lendingar í allt að 200
metra skýjahæð.
4. Veðurfar þarf að vera gott
miðað við staðhætti.
5. Flugvöllurinn þarf að vera
í góðu vegarsambandi við þétt-
býlið.
Keflavíkurflugvöllur fullnæg-
ir ölkim þessum skilyrðum,
sagði Pétur. Þannig eru aðal-
flugbrautir brjár. Brautarlengd-
ir 3000 metra, 2100 metra og
2000 metra. Blindflugskerfi flug-
vallarins eru sambærileg við það
bezta sem þekkist í dag og leyf-
ir lendingar í allt að 200 feta
skýjahæð. Keflavíkurflugvöllur
er um 47 km. frá núverandi
miðborg Reykjavíkur. Verði
steyptur vegur fullgerður innan
tólf mánaða. Þá er til s.taðar
afkastamikið og fullkomið af-
greiðslukerfi fyrir flugvélaelds-
neyti. Leiðslur kerfisins erj
neðanjarðar og er bruna- og á-
rekstrahætta miklu minni en
þar sem tankbílar eru á ferðinni.
Þannig er hægt að fylla 20
flugvélar samtímis og tók það
til dæmis 20 mínútur að fylla
Pan American flugvél umrætt
kvöld. Geymar kerfisins taka
Framhald á 2. síðu.
Laugardagur 18. janúar 1964
29. árgangur
14. tölublað.
Gligoric og Tal
mætast í dag
I Reykjavíkurmótinu voru í
gær tefldar biðskákir úr um-
ferðunum sem lokið er og auk
þess skák Guðmundar og Inga
sem ckki var hægt að tefla i 1.
umferð. Þessi urðu úrslit bið-
skákanna.
Friðrik og Gaprindasjvili
sömdu um jafntefli.
Gaprindasjvili vann Trausta.
Gligoric vann Wade.
Svein vann Freystein.
Jafntefli varð mi'lli Wade og
Jóns.
Skák Jóns og Trausta fór aft-
ur í bið og á Jón peð yfir, og
skák Guðmundar og Inga einnig
í bið og héfur Ingi peð yfir.
Fjórða umferð verður tefld í
dag og hefst hún kl. 1 e.h. í
Lídó. Þá tefla þessir saman:
Gabrindasjvíli og Johannessen,
Friðrik og Ingvar, Jón og Guð-
mundur, Gligoric og Tal, Magn-
ús og Arinbjörn, Ingi og Frey-
steinn, Wade og Trausti.
ERINDAFLOKKUR UM ELD-
FJÖLL OG HVERASVÆÐI
Fyrri hluta vetrar var fluttur
i Ríkisútvarpinu erindaflokkur
um Árna Magnússon, ævi hans
og störf. Síðari flokkur sunnu-
dagseríndanna, sem hófust á
sunnudaginn var, er um hvera-
svæði og eldfjöll. Verða það 11
crindi og lýkur síðast í marz.
Dr. Sigurður Þórarinsson hefur
skipulagt flokkinn.
Erindi og flytjendur þeirra eru
þessir: :
Trausti Einarsson: Geysissvæð-
ið — 12.1 1964.
Jón Eyþórsson: Kerlingáfjöll
— 19.1 1964.
Guðmundur Kjartansson: Eld-
stöðvar á Kili — 26.1 1964.
Hallgrímur Jónasson: Hveravell-
ir — 2.2. 1964.
Ölafur Jónsson: Brennisteins-
hverasvæði í Þingeyjarcýslu
— 9.2. 1964.
Jón Jónsson: Hverasvæði á
Reykjanesi — 16.2 1964.
Kristján Sæmundsson: Hengils-
svæði — 23.2 1964.
Sigurður Þórarinsson: Gríms-
vötn — 1.3. 1964.
Magnús Jóhannsson: Kverkfjöll
— 8.3. 1964.
Jón Jónsson: Hverasvæði í
Borgarfirði — 15.3. 1964.
Sigurður Þórarinsson: Eldstöðv-
ar í sjó og Surtur — 23.3 1964.
Þessi sunnudagserindi útvarps-
ins eru orðin mjög vinsæl. Er
reynt að láta skiptast nokkuð á
verkefni úr hugvísindum og
raunvísindum 'og hefur margt
nýtt og skemmtilegt komið fram
í þeim og merk og erfið við-
fangsefni sett fram á lipran og
aðgengilegan hátt. Sum erindin
hafa eftir á verið gefin út í bók-
um, s.s. Vísindi nútímans cxg
Náttúra Islands.
(Frá Ríkisútvarpinu).
Borgin doH
í það
Mikill fjöldi borgarbúa lagði
leið sína í gærdag um borð í
GuIIfoss og var veitt þar af
mikilli rausn. Allt fór þó frið-
samlega fram á veizlustað. En
margir fóru reikulir í spori frá
borði.
Við höfðum samband við lög-
reglu borgarinnar skömmu fyrir
miðnætti í nótt og kvörtuðu
þeir yfir óvenjulega mikilli ölv-
un í bænum. Voru allar fanga-
geymslur yfirfullar og höfðu
þeir marghroðið fangelsin um
kvöldið. Margir af þessum
mönnum höfðu byrjað gleðskap-
sinn hjá Eimskip og hafði þessi
hátíðadrykkja breiðst eins og
eldur í sinu um allan bæinn. Þá
höfðu smurbrauðsstofur mikið að
gera og hefur ekki lengi verið
svona mikil sala á smurðu
brauði.
Virtist veizla vera í hverju
húsi víða um bæinn.
Borgin virðist sem sagt hafa
dottið í það.
Fundur í Sósiolistafélaginu
Sósíalistafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund á mánudags-
kvöld kl. 8.30 að Tjamargötu 20.
Rætt verður um verkalýðs-
mál og sagt frá flokksstjórnar-
fundi Sósíalistaflokksins.
DA CSBRUNA RKOSNINGA R
VERÐA UM AÐRA HELCI
■ Framboðsfrestur til stjórnarkosninga í Verkamanna-
félaginu Dagsbrún rann út í gær. Listi stjórnar og trún-
aðarmannaráðs félagsins var lagður fram í fyrradag og
eru á honum sömu menn í aðalstjórn og varastjórn og
voru sl. ár en í 120 manna trúnaðarráð félagsins hafa
bætzt nýir trúnaðarmenn á vinnustöðvum.
B-listamenn í félaginu hafa
verið á ferli undanfarna daga að
safna undirskriftum fyrir fram-
boð sitt. Er listinn mjög líkt
skipaður og undanfarin ár.
Höfuðkapp er nú lagt á það
af þeim B-listamönnum að
tvístra þeirri einingu sem skap-
azt hefur í félaginu, en þar hef-
ur sjaldan ríkt meiri einhugur
en sl. ár, samanber afstöðu fé-
lagsmanna til bráðabirgðalaga
ríkisstjómarinnar og einingu þá
er fram kom í verkfallinu í des-
ember og við samningana þá, en
hún var slík að Dagsbrún var
helzta andstöðuaflið gegn áform-
um ríkisstjórnarinnar og at-
vinnurekenda.
Ekki er að efa að kosningam-
ar verða sóttar af miklum ofsa
af þeim B-listamönnum
og að ekkert verður til sparað,
hvorki fjármagn né bflar í kosn-
ingabaráttunni.
uNánar verður sagt frá listunum
og kosningunum hér í blaðinu
*