Þjóðviljinn - 19.01.1964, Blaðsíða 12
Aukatónleikar
Musica nova
n.k. sunnudag
Mus'ca nova efnir til fyrstu
aukatónleika sinna á þessu
starfsári sunnudaginn 19. þ.m.
kl. 3.30 í Þjóðleikhússkjallaran-
um. Einar Sveinbjörnsson fiðlu-
leikari op Þorkell S gurbjörnsson
tónskáld flytja á þessum tónle'k-
um rómönzu eftir dr. Hallgrím
Helgason. sónötu í G-dúr eftir
Beethoven, sónötu eftir Jón S.
Jónsson. Síðan koma tvö ný
verk, Bagatellur eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og Mosaik eftir
Leif Þórarinsson. Þeir félagar
eru nýkomnir úr ferðalagi' til
höfuðborga allra Norðurlanda þar
sem þeir hafa get upptökur á
ofangreindum íslenzkum verkum
fyrir útvarpsstöðvar þessara
landa. Þessi ferð var mjög á-
angursrík til kynningar is-
íenzkrar tónlistar og hvarvetna
ríkjandi mikill áhugi fyrir nýrri
íslenzkri tónlist meðal frænd-
þjóða okkar. Styrktarfélagar
Musica nova fá helmings afslátt
af aðgöngumiðum að aukatón-
leikum félagsins.
Skúli Magnússon
formaður Alþýðu-
bandal.fél. V-Hún.
Aðalfundur Alþýðubandalags-
félags Vestur-Húnavatnssýslu
var haldinn á Hvammstanga 10.
janúar síðast liðinn. Ragnar
Amalds, alþmgismaður, sagði
fréttir af Alþingi og rætt var
um atvinnumál og önnur hags-
munamál kjördæmisins.
1 stjóm félagsins voru kjöra-
ir: Formaður Skúli Magnússon,
verkstjóri á Hvammstanga, rit-
ari Ragnar Þorsteinsson, kenn-
ari á Reykjaskóla. gjaldkeri Eyj-
ólfur Eyjólfsson, bóndi á Geita-
felli og meðstjómendur Valgeir
Agústsson, bílstjóri á Hvamms-
tanga og Bjami Jónsson frá
Svertingjastöðum í Miðfirði.
Bíll veltur í
Mosfellssveit
1 gærmorgun varð árekstur á
mótum Kaplaskjólsvegar og Nes-
vegar og skemmdust bílamir
mikið. Þrír menn meiddust
nokkuð við áreksturinn.
Þá var ekið á lítinn dreng
á móts við Rauðarárstíg 1
skömmu fyrir hádegi í gær og
meiddist hann nokkuð. Litli
drengurinn heitir Júlíus Jóns-
son til heimilis að Otrateig 16.
Tvö umferðaslys
urðu í gærmorgun
1 fyrrinótt valt bíll með fjór-
um mönnum út af þjóðveginum
við Hlégarð og skemmdist
nokkuð.
Hér votu á ferðinni Banda-
ríkjamenn og að minnsta kosti
ein íslenzk stúlka og meiddist
hún nokkuð.
Lézt í fyrrinótt
Ekið var á gamlan mann i
fyrradag á Suðurgötunni er
hann var að vinna við að sópa
götuna. Hann hét Magnús Ja-
kobsson. Magnús var fluttur á
Landakot og þar lézt hann af
meiðslum sínum í fyrrióntt.
Magnús var 68 ára gamall.
Þá varð Karl Laxdal fyrir bíl
við Miklatorg sama dag.
Hann var líka fluttur á
Landakot og var mjög þungt
haldinn í gærdag.
Kópavogur
Rabbfundur í Þinghól mánu-
dagskvöld kl. 8.30. Félag óháðra
kjósenda.
I
I
I
í
t
I
5
I
I
I
í
k
U
I
.
m®
'ýý.yyýý
•• « ■
fí
□ Eitt stærstsi rerkefni, sem Reykjavíkurborg hefur boðio
út er gerð Fossvogsræsisins. Kópavogskaupstaður tekur raun-
ar líka þátt í verkinu að rúmlega sextán hundraðshlutum.
□ Véltækni h.f. hlaut þetta verkefni; reyndist tilboð fyrir-
tækisins þrjátíu og átta milljónir og á verkið að taka tvö ár.
□ Þeir hófu framkvæmdir fimmtánda október síðastliðið
haust og töfðust nokkuð í verkfallinu. — En nú er unnið af
kappi dag hvern.
□ Ræsið mun ná frá Neðri Elliðaárstíflu og allt vestur fyrir
Shellbryggju í Skerjafirði. Þetta er sjö kílómetra spotti.
15. tolublaö.
Sunnudagur 19. janúar 1964 — 29. árgangur
Miklar framkvæmd-
ir í Fossvogi
Hvaða íbúðarhverfi eiga
að njóta þessa mikla mann-
virkis ?
Fyrst er að telja væntan-
legt íbúðarhverfi á Foss-
vogssvæðinu.
Það er verið að skipu-
leggja það svæði núna, og
kannski viðkvæmt mál að
drepa á væntanlegt íbúðar-
hverfi á Reykjavíkurflug-
velli, en íbúðarhverfi þar
myndi njóta góðs af ræsinu.
Þá er Borgarsjúkrahúsið
og núverandi Bústaðahverfi
og Réttarholtshverfi og Ár-
bæjarblettir og jafnvel Sel-
ás.
Þekkir Parkinson-
lögmálið
Við heimsóttum þetta at-
hafnasvæði á dögunum, en
verkið er stærra í snið-
um en við eigum að venjast
hér á landi.
Þama vinna þó aðeins
tuttugu menn með stórvirk-
um véium.
Við ætluðum fyrst að leita
uppi skrifstofubákn þessa
stórtæka verktakafélags og
fundum eftir mikla leit lit-
inn timburskúr við Reykja-
nesbraut með einum skrif-
stofumanni.
Þar ekki langt frá hittum
við framkvæmdastjóra Vél-
tækni h.f., en hann heitir
Pétur Jónsson og spurðum
hann að þvi, hvort fyri'rtæk-
ið hefði ekki ráð á veglegra
skrifstofubákni.
Hann hló og sagðist hafa
lesið um Parkinson-lögmál-
ið. Sagðst hann kunna bet-
ur við að hafa mannskap-
inn í skurðinum.
Þarna er fyrirtækið að
reisa steypustöð til þess að
steypa pípur í ræsin. og tek-
ur stöðin senn til starfa.
Ætlunin er að leggja veg
meðfram skurðinum og
verður uppgröfturinn notað-
ur í vegarlagninguna.
Hin skelíilegu
verkfæri
Pétur ók með okkur að
gamla filugvallarhótelinu og
sýndi okkur skruðgröftinn á
því svæði. Við komum sára-
Ljósmyndir:
Ari Kárason
saklausir fram á skurðbakk-
en, litum niður og hopuðum
eiginlega til baka við fyrstu
sýn. Þverhníptur hamra-
veggur blasti við sjónum
eina átta metra niður, og
hafa þeir þurft að grafa um
sex metra niður klöppina.
Þei'r notuðu fyrstu vikurnar
loftpressubora af gömlu
gerðinni, tóku fyrir þrjár
borholur með tveggja metra
millibili og boruðu sex
metra niður klöppina, og
þurftu þá að sprengja á
botninum fyrir nægilega
stórri holu til þess að koma
fyrir aðalsprengibirgðum. 1
aðalsprengingum hefur þeim
tekizt að iosa allt að þrjú
hundruð teningsmetra. Er
það tólf metra spölur af
slkurðinum. Siðan hafa þeir
gengið á grjótið með stór-
virkum jarðýtum og skurð-
gröfum og mokað upp á
bakkana.
Loftpressuborar eru skelfi-
leg verkfæri og eru ma'rgir
landar búnir að skakast á
þessum borum undanfarna
áuatugi. Hávaðinn og hrist-
ingurinn eyðileggur tauga-
kerfið með tímanum og end-
ast menn heldur statt á
þessum borum. Magavöðvar
bormannsins verða illa
leiknir og ryk gengur niður
í lungun. Það hefur verið
erfiðleikum bundið að vinna
með svona borum í þessum
skurði og hafa tveir menn
verið settir á hvern bor og
skakast þeir hálftíma í senn.
Þá taka við óþreyttir menn
annan hálftíma.
Er þetta algengt veridag
hér á landi.
Sofandi umboð og
tækninýjung
Pétur Jónsson sá fyrir
þessa erfiðleika og fór hann
utan í sumar ásamt Hauki
Guðjónssyni verkstjóra sín-
um, og heimsóttu þeir
hverja vélasýninguna á fæt-
ur annarri. Þeir hlutu umb-
un erfiðis síns á vélasýn-
ingu í London og duttu þar
niður á hagkvæman bor.
Þama sáu þeir svokallað-
an Holman loftpressubor og
borar hann með þreföldum
afköstum, borið saman við
hina algengu tegund af bor-
um hér á landi. Enginn
maður kemur nálægt bom-
um og þarf aðeins einn
mann til að vakta hann og
stendur hann í mátulegri
fjarlægð frá honum.
Svona bor hafa þeir svo
keypt til landsins og er
hann þegar kominn í gagnið
hjá þeim félögum. Hefur
Ræsir h.f. umboð fyrir Hol-
mann fyrirtækið hér á landi.
Hér er svo Holmanborinn. Er það fyrsti loftþrýstibor súmar! gcrð-
ar hér á Iandí. Hann útheimtir aðdns ehm maan tfl gæzln og
er Guðmnndur Oddsson starfandi yið þenaan boc. |
Framhald á 9. síðu.
I þessari vél vcrða rörin steypt í Fossvogsræsið. Þvermál þeirra verða a'It að 1.40 metra að
innanmáli. Steypustöðin verður skammt frá Reyk.ianesbraut og tekur nú senn til starfa.
I Fossvogsræsinu rís þverhníptur bergveggurinn átta metra upp
séð frá botní. Víðast þarf að sprengja klöppina sex metra nlður, |
en laus jarðvegur er um tvo mctra af hæðinni. ^
*
»