Þjóðviljinn - 22.02.1964, Side 5
Laugardagur 22. febrúar 1964
N6ÐVIUINN
SÍÐA 5
HANDKNA TTlllK IDAC
í dr t verður fyrri landsleikurinn í handknattleik við Bandaríkjamenn og
hefst hann kl. 4 síðdegis í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli.
Eins og fyrr hefur verið frá
greint, er þetta fyrsti hand-
knattleikslandsleikurinn innan-
húss sem háður er hér á landi.
1950 var háður landsleikur v:ð
Finna utanhúss í Reykjavík og
varð jafntefli. Alla aðra lands-
leiki sína, 17 að tölu, hafa ís-
lenzkir handknattleiksmenn
leikið erlendis, þar af 9 í
heimsmeistarakeppni. Af þess-
um 18 landsleikjum hafa ís-
lendingar unnið 3 en tapað 13
en tveir urðu jafntefli.
Landslcikir karla
Ár Staður Lönd Úr*Iit Aths,
15.2 1950 Lundi ísland—Svíþjóð 7:15
19.2 1950 Kaupmannahöfn Island—Danmörk 6:20
23.5 1950 Réykjavík ísland—Finnland 3:3
27.2 1958 Magdeburg Island—Tékkósl. 17:27 H.M.
1.3 1958 Magdeburg ísland—Rúmenía 13:11 H.M.
2.3 1958 Magdeburg ísland—Ungvl. 16:19 H.M.
12.3 1958 Oslo Island—N or egu r 22:25 <
9.2 1959 Oslo Island—Noregur 20:27
12.2 1959 Slagelse Island—Danmörk 16:23
14.2 1959 Borás ísland—Svíþjóð 16:29
1.3 1961 Karlsruhe Island—Danmörk 13:24 H.M.
2.3 1961 Wiesbaden Island—Sviss 14-12 H.M.
5.3 1961 Stuttgart Island—Tckkósl. 15:15 H.M.
7.3 1961 Essen ísland—Svíþjóð 10:18 H.M.
9.3 1961 Homberg Island—Frakkl. 20:13 H.M.
13.3 1961 Essen Island—Danmörk 13:14 H.M.
16.2 1963 París Island—Frakkl. 14:24
19.2 1963 Bílbao Island—Spánn 17:20
Eftirtaldir menn hafa
leildð oftast í landsliði:
Gunnlaugur Hjálmarsson.
Í.R. 15 leiki.
Ragnar Jónsson, F.H. 15 leiki.
E'nar Sigurðsson, F.H. 14
leiki.
Karl Jóhannsson, K.R. 13
leiki.
Birgir Björnsson, F.H. 12
leiki.
Karl G. Benediktsson, Fram
11 leiki.
Hjalti Einarsson, F.H. 11
leiki.
Sólmundur Jónsson, Valur
9 leiki.
Hermann Samúelsson, l.R.
8 leiki.
Pétur Antonsson, F.H. 8
le'kir.
Alls hafa 41 leikmaður leik-
ið í landsliðinu í handknatt-
leik. 1 liðinu, sem leikur gegn
Bandaríkjamönnum í dag, eru
tveir nýliðar: Hörður Kristins-
son, Ármanni, og Sigurður
Einarsson, Fram.
Svíar unnu Rússa
Rússar unnu Svía
Svíar og Sovétmenn
háðu tvo landsleiki í
handknattleik nú í vik-
unni. Svíar unnu fyrri
leikinn — 23:16 en
Rússar þann seinni —
25:20.
Fyrri leikurinn fór fram í
Stokkhólmi á þriðjudag, og
unnu Svíar með allm klum yf-
irburðum, en sænsk blöð segja
að munurinn á liðunum hafi
þó ekki verið eins mikill og
markatalan. Bezti maðurinn á
vellinum var Svíinn Kjell
Jarlenius, sem skoraði 4 mörk.
Rolf Almkvist skoraði 5 mörk,
Gösta Karlsson 4 og Lennart
Karrström 4.
Sovézka liðið þótti harla
misjafnt í þessum leik. Bezt-
ir voru Tsertzdase, sem skor-
aði 4 mörk, Usenko 5 og
Matsezjinkas.
Síðari viðureignin
1 síðari leiknum vonj það
hinsvegar Sovétmenn sem
hlutu sigurinn — 25:20 (13:9).
Usenko skoraði 8 mörk í þess-
um ieik og Juri Rezn kov 7.
Fyrir Svía skoraði Rolf Alm-
kvist 7 mörk og L. Kárr-
ström. 5. Um 2000 áhorfendur
voru á síðari leiknum.
Samanlögð útkoma þessara
tveggja leikja verður Svíum
hagstæðari — 43:41.
Badminton
ÚRSUT ÍFIRMA-
Þessi mynd er tekin í síðasta landsleik íslendinga, sem háður var gegn Spánverjum fyrir ári.
Þá töpuðu íslendingar — 17:20. Hvernig fer í landsleiknum við Bandaríkjamenn í dag?
Handknattleikur
Unglingalands-
liðið prófaí
KTPPNI í KVÓLD
Á undan síðari lands-
leik íslendinga og
Bandaríkjamanna í
handknattleik, n. k.
sunnudag, fer fram
leikur milli unglinga-
landsliðs og liðú sem
nokkrir íþróttafrétta-
ritarar hafa valið. Leik-
urinn hefst kl. 14,30.
Unglingalandsliðið;
Jón Breiðfjörð, Val
Einar Hákonarson, Víking
Viðar Símonarson, fyrirliði
Haukum
Jón Ágústsson, Val
Stefán Sandholt, Val
Bergmann Gunnarsson, Val
Jón Carlsson, Val
Hilmar Björnsson, IC.R.
Frímann Vilhjáimsson, Fram
Gylfi Jóhannesson, Fram.
Umsjónarmaður liðsins er
Hjörleifur Þórðarson.
„Pressuliðið":
Árni Sigurjónsson, ÍR
Sigurður Karlsson, Keflavik
Gísli Blöndal, KR
Sigmundur Þórisson, KR
Gunnsteinn Skúlason, Val
Rúnar Pálsson, FH
Björn Einarsson, KR
Þórarinn Ragnarsson, FH
Ólafur Friðriksson, fyrirliði,
Víking
Gunnar Gunnarsson, Víking
Georg Árnason, Keflavík
Umsjónarmaður liðsins er
Þórarinn Eyþórsson.
Leikjum frestað
Samkvæmt leikskrá fslands-
mótsins í handknattleik áttu
að fara fram tveir leikir í 1.
deild íslandsmótsins í hand-
knattleik n.k. sunnudagskvöld.
Vegna landsleiksins við
Bandaríkjamenn verður þessu
leikkvöidi íslandsmótsins frest-
að, og fara leikirnir þess í stað
fram 30. marz. Hér er um að
ræða leikina Ármann — Fram
og Víkingur — KR.
Mikil aðsokn að
landsleikjunum
Eftirspurn eftir miðum á
landsleikina við Bandarikja-
menn á laugardag kl. 16,00 og
sunnudag ki. 15,30 hefur ver-
ið mjög mikil Má búast við að
húsfyllir verði í iuróttahúsinu
á Keflavíkurílugvelli.
I gærkvöld voru nokkrir
pentaðir miðar ósóttir, og verða
þeir seldir í Bókabúðum Lár-
usar Blöndal fyrir hádegi í
dag.
Ferðir á Keflavikurflugvöll
verða frá B.S.Í. og hefjast kl.
14,00 á laugardag og kl. 13,30
á sunnudag.
Vegna gfurlegrar umferðar
til Keflavíkur er fólki ráðlagt
að fara tímanlega af stað.
Þeir fá líka
OL-verðlaun
Verðlaunaregn vetrarolymp-
íuleikanna er ennþá ekki stytt
upp. Nú er röðin komin að hin-
um ýmsu starfsmönnum leikj-
anna að þiggja viðurkenningu
fyrir unnið erfiði.
A .fundi austurrísku rikis-
stjórnarinnar nýlega var á-
kveðið að veita olympíuverð-
laun til skipuleggjenda leik-
anna og ýmsra sem hjálpuðu
til við framkvæmd þeirra.
Tillagan var borinn fram af
hermálaráðherranum K. Schl-
einzer, sem sá um að þúsundir
hermanna voru teknir til þarf-
legra starfa, sem sé að flytja
snjó í skíðabrautirnar, en það
var mikið starf og erfitt. Sækja
varð snjóinn á bílum til Italíu
og síðan að jafna honum í
brautimar.
Firmakeppni Tennis-
og badmintonfélags
Reykjavíkur stendur
yfir um þessar mundir.
Alls taka um 110 fyrir-
tæki þátt í keppninni.
Eins og áður er keppnin út-
sláttarkeppni og falla þau fyr-
irtæki úr, sem tapa leik. Hafa
úrtökuleikir verið leiknir að
undanförnu. og eru nú eftir
16 fyrirtæki ósigruð. Fer úr-
slitamót fram í dag kl. 15.30
í íþróttahúsi Vels. Keppnin er
með forgjafarsniði og eru leik-
ir því mjög tvísýnir. Verður
spennandi að fylgjast með
keppninni í dag, en keppt er
um fagran silfurbikar, sem
sigurfyrirtækið fær nafn sitt
letrað á og hefur í vörzlu
sinni til næstu firmakeppni.
Þá fær s:gurfyrirtækið silfur-
bikar til eignar, svo og einnig
það fyrirtæki, sem nær 2. sæti
í keppn'nni. Núverandi hand-
hafi farandbikarsins er Samlag
skreiðarframleiðenda.
Þessi fyrirtæki eru nú ósigr-
uð og keppa til úrslita í dag:
Ivornelíus Jónsson, verzlun,
Völundur h.f., timburverzlun,
Herradeild P&Ó, Málning h.f..
Veitingahúsið Naust, L. H.
Möller, P. Jónsson & Co.,
Prentsmiðjan Oddi h.f., Sæl-
gætisgerðin Víkingur, Pétur O.
Nikulásson, umboðs og heild-
verzlun, S. Árnason & Co..
Byggingávörur h.f., Vinnufata-
gerð Islands h.f., O. V. Jó-
hannsson & Co., Sjóvátrygg-
ingafélag íslands h.f., Hús-
gögn Co.
Handknattleiksdómarar á fundi hjá Knudsen
Danskí handknattleiksdómarinn Knud Knudsen hefur haldið tvo umræðufundi með íslenzkum hand-
knattleiksdómurum síðustu dagana. Knudsen mun dæma landsleiki Islcndinga og Bandaríkjanna
í dag og á morgun. Hann er í hópi kunnustu a Iþjóðadómara í handknattleik, m.a. dæmdi hann
úrslitaleikinn í síðustu hcimsmeistarakeppni milli Rúmena og Tékka, cn þeim Ieik lauk mcð sigri
Rúmena. Aformað er að Knudsen haldi enn einn fund á morgun meö handknattleiksdómurum,
og vonandi hafa handknattleiksdómarar okkar g ott af Itynnum við svo reyndan og viðurkennda*
J dómara. Myndin er tekin á fyrsta fundi Knndsens ,.I. fimmtudagskvöld. (Ljósm. Bj. Bj >.