Þjóðviljinn - 28.02.1964, Blaðsíða 3
Föstudagur 28. febrúar 1964
Fiskveiðaráðstefnan í London
• Landhelgissáltmálinn mun
verða lagður fram í dag
LONDON 27/2 — Það dróst að sú nefnd fiskveiðiráðstefn-
unnar í London sem átti að leggja síðustu hönd á sátt-
málann um landhelgina lyki starfi og varð hann því ekki
lagður fyrir ráðstefnuna í dag, en verður það væntanlega
fyrir hádegi á morgun, föstudag.
ÞIÓÐVILJINN
SlÐA 3
Margir áheyrendur fylgjast með réttarhöldunum i ráðhúsinu í
Frankfurt yfir böðlunum frá Auschwitz, meðal þeirra bandaríska
lcikritaskáldið Arthur Millcr, sem er á myndinni til vinstri. Á
hægri myndinni er dr. Fritz Wollken sem bar vitni í gær.
Auschwitzfangi ber
vitni í Frankfurt
Réttarhöldum í máli
Helanders að ljúka
STOKKHÓLMI 27/2 — Réttar,-
hðldum í máli Helanders bisk-
ups er nú loksins að ljúka. Verj-
andi Helanders hélt níu klukku-
stunda lokaræðu sína í dag.
Saksóknarinn mun flytja sína
lokaræðu 6. marz.
25. Kosmos á loft
MOSKVU 27/2 — Nýju gervi-
tungli af gerðinni Kosmos, því
25. í röðinni, var skotið frá Sov-
étríkjunum í dag. Jarðfirð er
526 km og jarðnánd 272 km.
I geimnum og heima
COLUMBUS 27/2 — Fyrsti
bandariski geimfarinn, John
Glenn, sem kom til jarðar heilu
og höldnu úr geimferð sinni var
lagður hér inn á spítala í gær.
Hann hafði stigið á sápustykki
í baðherbergi sínu og steypzt á
höfuðið.
Rúmenar til Peking
PEKING 27/2 — Sendinefnd
frá kommúnistaflokki Rúmeníu
kemur í næsta mánuði til Pek-
ing að ræða við kínverska leið-
toga um sambúð landanna og á-
greininginn innan hinnar komm-
únistisku hreyfingar.
Pathet Lao sækir á
VIENTIANE 27/2 — Sveitir
Pathet Lao hafa sótt fram að
undanförnu á Krukkusléttu og
munar nú minnstu að þær hafi
hana alla á valdi sínu.
Lögreglan beitti bæði barefl-
um og vatnsdælum gegn stúd-
entunum og sigaði á þá hund-
um, sem bitu marga þeirra svo
illa, að fara varð með þá í
öll sextán ríki ráðstefnunnar
nema Island og Noregur eiga
fulltrúa í þessari nefnd, en
norsku og íslenzku fulltrúamir
hafa lýst yfir að þeir geti ekki
sætt sig við meginatriði þess
landhelgissáttmála sem hin fjór-
tán ríkin hafa komið sér saman
um.
I mótsögn við alþjóðalög
Fulltrúar Svíþjóðar og Portú-
gals í nefndinni munu hafa bent
á að ýms ákvæði sáttmálaupp-
kastsins stangist á við reglur
alþjóðalaga og þurfi sérstakrar
Forvextir hækka
í Bretlandi
LONDON 27/2 — Vegna stöð-
ugt versnandi greiðslujafnaðar
hefur brezka stjómin gripið til
þess ráðs að hækka forvexti
Englandsbanka um eitt prósent
upp í fimm. Þessi ráðstöfun
hefur verið umdeild innan rík-
isstjómarinnar, þar sem þessi
hækkun er líkleg til að draga
úr hagvextinum, en slík þróun
er ekki líkleg til að bæta sigur-
horfur Ihaldsflokksins í kosning-
unum á þessu ári.
sjúkrahús, þar sem gert var að
sárum þeirra. Meira en sextíu
stúdentar særðust o-g um tuttugu
þeirra voru teknir höndum.
Uppþotin hófust eftir að
athugunar við og mun töfin
stafa af því. Það er þó talið víst
að fullt samkomulag takist um
þessi atriði sáttmálans sem verði
endanlega samþykktur af rikjun-
um fjórtán.
TH tuttugu áxa
Bretar hafa lagt mikið kapp
á að sáttmálinn verði afgreidd-
ur á ráðstefnunni, svo að aðild-
arríkin geti fullgilt hann á næst-
MOSKVU 27/2 — Krústjoff for-
sætisráðherra sagði í dag við
móttöku í Kreml, sem haldin
var i lok níu daga heimsóknar
Krags, forsætisráðherra Dana, í
Sovétríkjunum, að sambúð land-
anna hefði batnað verulega síð-
ustu árin.
Enda þótt þau greindi á um
nokkrum stúdentum hafði ver-
ið neitað um afgreiðslu í veit-
ingahúsi í Princess Anne.
Allt hafði farið friðsamlega
fram í fyrstu, en þegar lögreglu-
menn komu á vettvang og réð-
ust gegn stúdentunum með kylf-
ur sínar á lofti og börðu einn
þeirra í rot, snerust þeir til
varnar oc köstuðu sn'ót.i og
tómum glerflöskum í lögreglu-
mennina.
unni. Talið er að sum ákvæði
hans verði höfð heldur lauslega
orðuð að þessu sinni til að auð-
velda samkomulag um þau. Þeg-
ar hefur verið ákveðið að sátt-
málinn skuli gilda i tuttugu ár,
með tveggja ára uppsagnarfresti
að þeim loknum.
Markaðsmál í dag
Þegar landhelgissáttmálinn hef-
ur verið afgreiddur, mun ráð-
stefnan taka fyrir markaðsmál-
in, en ekki er búizt við miklum
umræðum um þau og þykir lík-
legt að ráðstefnunni verði lokið
á föstudag. Sennilega verður ein-
hver samþykkt almenns eðlis
gerð um markaðsmálin.
ýmislegt, gætu þau búið saman
í friði og vinsemd, sagði Krúst-
joff, sem bætti við, að góðar
horfur væru á auknum viðskipt-
um þeirra. I svarræðu sinni
sagði Krag m.a. að hann hlakk-
aði til að taka á móti Krústjoff
þegar hann heimsækti Norður-
lönd í sumar.
I tilkynningu sem gefin var út
að loknum viðræðum forsætis-
ráðherranna var sagt að rædd
hefðu verið sameiginleg áhuga-
mál af vinsemd og einlægni og
viðræðumar hefðu aukið skiln-
ing milli ríkjanna. Lögð var á-
herzla á gildi SÞ fyrir þá við-
leitni að draga úr viðsjám og
bæta sambúð ríkja.
Þess er ekki getið í tilkynn-
ingunni hvort rætt hafi verið
um staðsetningu kjarnavopna á
Norðurlöndum, en í viðtali við
danska blaðamenn sagði Krúst-
joff, að gera ætti sáttmála sem
bannaði kjamavopn í Norður-
Evrópu.
Samið hefur verið um kaup
Sovétríkjanna á þremur kaeli-
skipum frá Danmörku og við-
ræður hafnar um kaup sextán
slíkra skipa til viðbótar.
Krag heldur heimleiðis til
Kaupmannahafnar á föstudags-
morgun.
; i
FRANKFURT 27/2 — A ný-
ársdag gyðinga, 19. septemfcer
1944, voru meirx en 300 gyð-
ingafangar drepnir f gasklefun-
um í Auschwitz. Þannig héldu
nazistar upp á daginn, sagði
fyrrverandi Ausc’ witzfangi, þeg-
ar hann bar vitni fyrir réttinum
í Frankfurt dag.
Vitnið var dr. Fritz Wollken,
sem nú er læknir í Vínarborg,
en var í fangabúðunum í Ausch-
witz frá árinu 1943 fram í janú-
ar 1945, þegar rauði herinn
leysti þá fanga sem eftiv ,:íðu.
Wollken er eitt helzta vitnið
í málinu gegn 22 böðlum naz-
ista sem frömdu glæpi sína í
Auschwitz. Hann sagði einnig
frá því þegar níutíu börn voru
leidd í gasklefana og fjórtán ára
drengur sem gekk fyrir þeim
bað þau að gráta ekki. — Við
höfum séð foreldra okkar, afa
og ömmur vera drepin, en við
hittumst aftur á himnum, sagði
drengurinn, en sneri sér síðan
að fangavörðunum ’og sagði: —
Þið skuluð ekki halda að þið
sleppið við refsingu.
Woliken mundi eftir ýmsum
hinna ákærðu. Hann var leidd-
ur fram hjá sakborningabekkn-
um og stanzaði þá m.a. við Stef-
an Baretzki, sem hann hafði
oft séð misþyrma föngum og
drepa þá.
Formsatriii stöiva
A-Berlínarferiir
Marylandfylki í Bandaríkjunum:
Margir særiir í átökum milli
lögreglu og blökkustúdenta
PRINCESS ANNE, Maryland 27/2 — Tugir blökkustúd-
enta særðust í viðureign við lögregluna í háskólabænum
Princess Anne í Marylandfylkj í Bandaríkjunum í gær
og margir voru teknir höndum.
Viðræður Krústjoffs og Krags
Bætt sambúð og
aukin viiskipti
UTSALA
UTSALA
Höfum opnað útsölu á peysum, vinnubuxum og úlpum í Sýningar-
skálanum Kirkjustræti 10.
Ath: Útsölunni lýkur á laugardag
Stórlækkað verð
6EFJUN ÍÐUNN
BERLIN 27/2 — Viðræður milll
austurþýzku stjórnarinnar og
stjórnarvalda Vestur-Berlínar
um frekari heimsóknir íbúa
borgarhlutanna til ættingja og
vina í Austur-Berlín strönduðu
á formsatriðum.
Um jólin heimsóttu hundruð
þúsunda Vestur-Berlínarbúa ætt-
ingja sína og vini í Austur-
Berlín og austurþýzka stjómin
gaf kost á slíkum heimsóknum
með sama fyrirkomulagi um
páskana og hvítasunnu.
Þessu boði höfnuðu fulltrúar
borgarstjómarinnar í V-Berlín
að fyrirmælum vesturþýzku
stjómarinnar í Bonn. 3á háttur
hafði verið hafður á um jólin
að austurþýzkir embættismenn
gáfu út vegabréf í Vestur-Ber-
lín þeim sem austur vildu halda.
1 samkomulaginu sem gert var
um jólin var Austur-Berlín
einnig kölluð höfuðborg Austur-
þýzka alþýðulýðveldisins. Vest-
urþýzka stjómin vildi alls ekki
fallast á að sama fyrirkomulag
yrði haft aftur og hafði að fyrir-
slætti að í þessu væri fólgin við-
urkenning á lögmæti austur-
býzku stjórnarinnar.
KENNEDYHÖFÐA 27/2 — Ný
’-ilraun með eldflaug af gerðinni
Titian II heppnaðist vel í gær.