Þjóðviljinn - 28.02.1964, Side 4

Þjóðviljinn - 28.02.1964, Side 4
SlÐA ÞJÚÐVILIINN Föstudagur 28. febrúar 1964 Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fróttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 80 á mánuði. Niiurlægjandi ástand F'ullt'rúar stjórnarflokkanna hafa á þingi lýst andstöðu sinni við þá tillögu Alþýðubandalags- ins að Alþingi lýsi yfir því að kjarnorkuvopn skuli aldrei heimiluð á íslandi. Komst utanríkisráðherra svo að orði að íslendingar gætu ekki skuldbundið sig þannig um aldur og ævi, alltaf gætu komið upp þær aðstæður sem breyttu viðhorfunum. Þannig á að halda opnum leiðum til kjarnorkuvíg- búnaðar hér á landi, og ekki þarf að leiða neinum getum að því hverjar aðstæður ráðherrann hefur í huga; þær eru ákvarðanir bandarísku herstjórn- arinnar og Atlanzhafsbandalagsins. Þannig eru þær stofnanir æðri Alþingi íslendinga í hugum ráðamannanna; þing okkar má ekki marka neina þá stefnu sem geti bundið hendur hershöfðingjanna jafnvel þótt um örlög íslenzku þjóðarinnar sé að tefla. Raunar þarf þessi afstaða ekki að koma á óvart; haustið 1962 var Bandaríkjunum heimilað að hafa á Keflavíkurflugvelli vél.ar af, gerðinni F-102, en þeim er sérstaklega ætlað að bera flug- skeyti með kjarnorkuhleðslur. Þannig eru leiðir tff kjarnorkuvígbúnaðar á íslandi ekki aðeins opn- aðar í orði heldur og í verki. FTmræðurnar um kjarnorkuvopn hér á landi eru tengdar tillögunni um fullgildingu íslands á Moskvusátímálanum um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Stjórnarliðið kveðst fagna þeim! sáttmála og sízt skal dregið í efa að það sé af heilindum mælt, þótt ekki séu ýkjamörg ár síð- an Morgunblaðið taldi kjarnorkutilraunir Banda- ríkjanna sérstakt „fagnaðarefni". Áreiðanlega fyr- irfinnst ekki heldur sá þingmaður í stjórnarliðinu sem æski kjarnorkuvopna á íslandi. En ástæðan til þess að íslendingar mega ekki lýsa einhuga afstöðu sinni til kjarnorkuvopna er sú og sú ein að okkur er ekki heimilt að víkja hársbreidd frá ufanríkisstefnu Bandaríkjanna og Atlanzhafs- bandalagsins. Við megum fullgilda þá samninga sem Bandaríkin eru aðili að, en við megum í engu hvika frá fordæmi þeirra, hversu augljósir og óumdeilanlegir sem hagsmunir okkar eru. Við höfum verið sviptir öllu sjálfsforræði í utanríkis- málum, forustumenn okkar hegða sér ævinlega eins og fjarstýrðar vélbrúður þegar þau mál ber á góma. F^etta ástand er niðurlægjandi fyrir hverja sjálf- -*■ stæða þjóð, og slíkt frumkvæðisleysi smá- þjóða stuðlar sízt af öllu að skynsamlegri þróun alþjóðamála. Eigi friðsamleg sambúð að .styrkjast á næstunni, þurfa smáþjóðimar að beita áhrifum sínum á sjálfstæðan hátt og hafa áhrif á ste'fnu stórveldanna í stað þess að fylgja henni í blindni. Yfirlýsing íslendinga um að aldrei verði heimil- uð kjarnorkuvopn hér á landi væri ekki aðeins í samræmi við augljósustu baosnrani okkar. heldur gæti hún og orðið öðr jm ssnárikjym hio gagn- legasta fordæmi. — m. TURLANDSÞINGMENN VIUA STOFNA MENNTASKÓLA Á EIÐU Séð heim að Eiðum. Myndin er nokkurra ára gömul. Allir þingmenn Austurlandskjördæmis, þeir Eystéinn Jónsson, Jónas Pétursson, Halldór Ás- grímsson og Lúðvík Jósepsson, flytja í neðri deild frumvarp um menntaskóla Austurlands. ÞINCSJA ÞJÓDVILJANS I frumvarpinu er gert ráð .aður við stofnunina og rekst- fyrir að menntaskólinn verði ur skólans greiðist úr ríkis- stofnaður á Eiðum og að kostn- sjóði og menntamálaráðuneyt- ið hafi yfirst.iórn skólans á hendi. I greinargerð segja flutn- ingsmennimir m. a.: Það er eitt af skilyrðum þess, að byggðin í landinu þróist með eðlilegum hœtti, að ríkis- valdið styðji sem víðtaekasta starfsemi í hverjum lands- fjórðungi og beiti sér fyrir framkvæmdum i því skyni. Miklu máli skiptir, að skólar og aðrar menntastofnanir séu Virkjunaraðsta&a í Naut- eyrarhreppi sé rannsökuð Tveir þingmenn úr Vestfjarðakjördæmi, þeir Hannibal Valdimarsson og Sigurvin Einarsson, flytja í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktun- ar um að rannsökuð verði aðstaða til vatnsafls- virkjunar í Nauteyrarhreppi. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela raf- orkumálaskrifstofunni að rann- saka aðstöðu til vatnsaflsvirkj- unar fyrir byggðina í Skjald- fannardal í Norður-ísafjarðar- sýslu og Langadalsströnd, nán- ar tiltekið bæina Skjaldfönn, Laugaland, Laugarás. Ármúla I og II, svo og bæina Vona- land, Melgraseyri, Haraar, Hallsstaði, Hafnardal, Naut- eyri, Rauðamýri og Tungu. Skal rannsókn þeirri, er í tillögunni greinir. vera lokið, áður en næsta Alþingi kemur saman.” 1 greinargerð segja flutnings- menn: Byggðarlag það, sem um ræðir í tillögunni, er þannig sett, að það mun tæpast geta fengið raforku* frá samve'tu- kerfi ríkisins. Þess vegna ber að rannsaka hið fyrsta, hvort hagkvæm skilyrði séú fyrir hendi til vatnsaflsvirkjunar á þessum slóðum eða ekki. Frá leikmanns sjónar...i i virðast virkjunarskilyröi vera álitleg í utanverðum Nau'oyr- arhreppi og koma þar ýmis vatnsföll til greina. & SKIP4UTGCRÐ RIKiSINS HEKLA fer austur um land í hringferð 5. marz. Vörumóttaka árdegis á laugardag og á mánudag til Fá- skrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð- isfjarðar, Raufarhafnar og Húsa- víkur. Farseðlar seldir á mið- vikudag. SKJALDBREIÐ fer vestur um land til Akur- eyrar 3. marz. Vörumóttaka til áætlunahafna við Húnaflóa og Skagafjörð og Ólafsfjarðar og Dalvíkur á föstudag og árdegis á laugardag. BALDUR fer til Rifshafnar, Krókfjarðar- ness, Skarðsstöðvar, Hjallaness og Búðardals á þriðjudag. Vöru- móttaka á mánudag. Sérfræðiathugun virkjunar- skilyrða þarf í fyrsta lagi að þeinast að því, hvert þessara vatnsfalla hafi upp á hag- kvæmust virkjunarskilyrði að bjóða, í annan stað að skera úr, hve mörg býii á þessum slóðum geti fengið raforku frá . sameiginlegri virkjun og í þriðja lagi, hver þeirra e.t.v.<5> bezt skilyrði til sérvirkjana. i— Þá þarf sérfræðiathugun að sjálfsögðu einnig að beinast að kostnaðarhlið þessara virkjun- arframkvæmda, ef til kæmi. Þau vatnsföll, sem til greina gætu komið til virkjunar fyrir bæina í Skjaldfannardal, eru einkum Traðarlækur og Bæj- ará, e. t. v. saman þar eð á milli þeirra eru aðeins 150 — 200 metrar. Þar er fallhæð á- gæt. en vatnsmagn takmarkað. öruggt má tel.ja, að þarna sé n.æg orka fyrir bæina Skjaldfönn, Laugaland og Laugarás. Úr hinu þarf að skera með athugun, hvort sú virkjun gæti einnig séð bæjun- um Ármúla I og II, Vona- landi og Melgraseyri fyrir nægilegri raforku. Reynist vatnsmagn Traðar- lækjar og Bæjarár ekki nægi- legt, ber að rannsaka virkjun- arskilyrði Selár hjá Selfossi. Þar er orkumagnið ekki rann- sóknarefni, heldur miklu frem- ur leiðslukostnaður orkunnar. Hraundalsá kemur sennilega ekki til álita. Auk þeirra vatnsfalla, sem nú hafa verið nefnd, er það á- lit flutningsmanna, að einnig beri að athuga virkjunarskil- yrði Kaldár, sem virðist hafa góð miðlunarskilyrði í Kaldár- vatni og ágæta fallhæð, svo og virkjunarskilyrði Blævardals- ár, sem kemur úr Mávavötn- um og virðist einnig hafa upp á líkleg virkjunarskilyrði að bjóða. Sú á fellur til sjávar milli bæjanna Hamars og Hallsstaða, og kæmi til álita að virkja hana fyrir þá bæi og Hafnar- dal, eða jafnvel fyrir allan ytri hluta Nauteyrarhrepps. Æski- legt er, að einnig verði rann- sökuð virkjunarskilyrði Hafn- ardalsár, Þverár og Hvanna- dalsár. Á því svæði, sem um ræðir í tillögu þessari. eru ýmsar góðar bújarðir og sumar á- gætar. Þá er í Skjaldfannardal gnægð jarðhita, og hefur þar nú verið reist garðyrkjunýbýli, sem e.t.v. er hið nyrzta í heimi. Jarðhiti er einnig á Langa- dalsströhd. * Með tilliti til þess, er nú yar sagt, svo ,og álitlegra skilyjrða til vatnsaflsvirkjana i þessu byggðarlagi, leggja flutnings- menn áherzlu á, að rannsókn sú, er í tiilögunni greinir, verði framkvæmd. áður en næsta Alþingi kemur saman. efldar í hverjum landshluta og nýjum komið á fót. Með skólalöggjöfinni, sem í gildi er, var stefnt að því að gera aðstöðu ungmenna til framhaldsnáms hvarvetna á landinu sem jafnasta,- þannig að í kaupstöðum og hinum fjölmennari héruðum landsins gætu nemendur í skólum gagn- fræðastigsins lokið prófi er gilti sem inntökupróf í mennta- skóla. Þetta hefur greitt götu margra æskumanna á náms- braut, þótt ekki háfi tekizt alls staðar að ná settu marki, þar sem orðið hefur sökum þrengsla í héraðsskölúnum að synja um skólavist allmörgum, er sótt hafa um inntöku í þá skóla. Þannig er því faríð um hina merkiu menntastofnun Austurlands, Eiðaskóla. Skólaárið 1962—63 voru samt við nám i Eiðaskóla 126 nem- endur, I gagnfræðaskóla Nes- kaupstaðar sátu 79 nemendur. Og í unglingaskólum á ýmsúm stöðum í Austurlandskjördæmi stundaði þá nám 181 nernandi. I þessum landsfjórðungi voru þá nemendur á gagnfræðastig- ihu samtals 386. En æskumönnum á Austur- landi gefst ekki kostur á menntaskplanámi heima í fjórðungnum. Allir þeir, er sækja vilja um inntöku í menntaskóla, verða að leita þaðan burtu. Að dómi flutningsmanna þessa frv. er eðlilegt og rétt- mætt, að stofnaður verði sém fyrst menntaskóli á Austur- landi, enda mjog mikilvægt. að slík menntastofnun verði reist og starfi í landsfjórðungnum. 1 1. gr. þessa frv. er syo, fyr- ir mælt, að stofha skuli menntaskóla Austurlands á Eiðum og að kostnaður við stofnun hans og rekstur .greið- ist úr ríkissjóði. Að öðru léýti eru í frv. almenn ákvæði um starfsemi skólans, og eru þau að öllu leyti hliðstæð ákvséðum í gildandi lögum um mennta- skóla. SVEFNSÓFAR - SÓFASETT HN0TAN, húsgagnaverzlun Þórsgötu I. BÆNDUR! HHSgrind er heimilisprýSi Eigum jafnan hliðgrindur af stærðum 2x2 m og 1x4 m. Einnig gönguhlið og staura. u' Smíðum einnig eftir máli. ef óskað er. Skrifíð, hrinfirið eða komíð. ,o FJÖLIÐJAN H F. við Fífuhvammsveg. Kópavogi. Simi 40770.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.