Þjóðviljinn - 08.03.1964, Page 10
1Q SÍÐA
ÞJÚÐVIUINN
Sunnudagur 8. marz 1964
ARTHUR C. CLARKE
í MÁNARYKI
áhrif á fylgismennina. Þeir
hofðu fyrir hinar himnesku ver-
ur sínar og þeir létu ekki s..pta
sig þeim.
— Þú ert ekki enn búinn að
útskýra, sagði herra Schuster,
hvers vegna Diskafólkið er að
elta þig. Hvað hefur þú gert
þeim til bölvunar?
— Ég var að verða of nákunn-
ugur sumum leyndarmálum
þeirra, svo að þeir notuðu þetta
tækifæri til að gera mig óskað-
legan.
— Ég hefði haldið að þeir
myndu beita einfaldari aðferð.
— Það er fráleitt að hugsa sér
að takmarkaður skilningur okk-
ar geti fylgt hugsanagangi
þeirra. En þetta leit út sem slys;
engum dytti í hug að þetta væri
með vilja gert.
— Skynsamlega athugað. Og
þar sem það skiptir ekki máli
lengur, myndirðu þá ekki vilja
segja okkur hvaða leyndarmál
það var sem þú varst búmn að
komast að? Ég er viss um að
okkur þætti öllum fróðlegt að
vita það.
Hansteen gaut augunum í
skyndi til Irving Schuster. Hon-
um hafði fundizt hann vera
fremur hátíðlegur og laus við
allan galsa; þetta kom honum á
óvart.
— Ég skal fúslega skýra frá
þvi, svaraði Radley. — Þetta
byrjaði í rauninni árið 1953
þegar bandarískur stjö.mufræð-
ingur að nafni O’Neill uppgötv-
aði dálítið undarlegt hér á
Tunglinu. Hann uppgötvaði dá-
litla brú á austurströnd Crisium
hafsins.
— Aðrir stjömufræðingar
hlógu auðvitað að honum — en
ýmsir sem ekki voru eins for-
dómafullir. staðfestu tilveru
brúarinnar. En innan fárra ára
var brúin horfin. Augljóst var
að áhugi okkar hafði vakið
grunsemdir Diskamannanna og
þeir fjarlægt hana.
— Augljóst, hugsaði Hansteen;
þetta var gott dæmi um sann-
anir Diskatrúarmanna — stað-
hæfingar sem ekki voru annað
en staðhæfingar. Hann hafði
HARGREIÐSLAN
Rárgreiðsln og
snyrtistofa STEIND og DÖDÖ
Langavegi 18 m. h. (lyfta)
SlMI 24616.
P E R M A Garðsenda 21
SfMI 33968. Hárgreiðslu- og
snyrtistofa.
Dðmur! Hárgreiðsla "ið
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN.
TJamargötu 10. Vonarstrætis-
megin. — SfMI 14662.
HARGREIÐSLCSTOFA
ADSTDRBÆJAR.
(Marfa Guðmundsdóttir)
Laugaveg) 13 — SlMI 14656.
— Nuddstofa á sama stað. —
aldrei heyrt talað um þessa brú
O’Neills, en til voru mörg dæmi
um rangar athuganir í skýrslum
stjömufræðinga. Skurðimir á
Mars voru sígilt dæmi; heiðar-
legir athugunarmenn höfðu
greint þá árum saman, en þeir
voru beinlínis ekki til — að
minnsta kosti í því reglulega
köngulóai-vefsformi sem Lowell
og fleiri höfðu teiknað upp. Á-
leit Radley að einhver hefði
fyllt upp f skurðina frá þvi að
Lowell var uppi og þangað til
fyrsta skýra ljósmyndin barst
frá mars? Hansteen þótti það
ekki ósennilegt.
— Lfklega hafði brúin hans
O’Neills verið leikur ljóssins eða
hið eilífa skuggaspil á Tungl-
inu — en svo einfaldar skýring-
ar voru að sjálfsögðu ekki nógu
40
góðar handa Radley. Og hvað
sem því leið. hvað var maður-
inn að vilja hér. nokkur þús-
und kílf--'ra frá Crisium-
hafi?
Einhve 1 i'Orj.m datt hið
-ama í hi’- 03 bar fram þá
spurningu. FOs og endranær
Vlafði Radl-y r.i'i-'nfærandi svar
á reiðum höncium.
— Ég gerði mér vonir um,
sagði hann, að eyða grunsemd-
um þeirra með því að haga mér
eins og venjulegur ferðamaður.
Vegna þess að sannanimar sem
ég leiðaði að voru á vesturhveli
þá“ fór ég í austur. Ég ætlaöi
mér að komast til Crisiumhafs
með því að fara yfir ytri hlið;
þar var líka sitt af hverju sem
mig langaði til að líta á. En þeir
voru of slungnir. Ég hefði átt
að vita að þeir myndu hafa upp
á mér — þeir geta tekið á sig
mannlega mynd, skiljið þið.
Sennilega hafa þeir verið á hæl-
unum á mér síðan ég lenti á
Tunglinu.
— Mér þætti gaman að vita,
sagði frú Schuster, sem virtist
taka orð Radley æ alvarlegar,
hvað þeir ætla nú að gera við
okkur?
— Ég vildi að ég gæti sagt
yður það frú, svaraði Radley.
Við vitum að þeir eiga hella
langt inni í Tunglinu og senni-
lega er ætlunin að fara með
okkur þangað. Strax og þeir sáu
að björgunannennirnir voru að
nálgast, tóku þeir aftur til sinna
ráða. Ég er hrædur um, að við
séum komnir of djúpt til þess að
þeir nái til okkar núna.
Nú er nóg komið af þessari
vitleysu, sagði Pat við sjálfan
sig. Við erum búin að fá stund-
arskemmtun, en nú ætlar þessi
vitleysingur að eyðileggja von-
ina fyrir fólki. Hvemig er hægt
að þagga niður í honum?
Geðveiki var sjaldgæf á Tungl-
inu eins og í öllum nýjum þjóð-
félögum. Pat vissi ekki hvernig
hann átti að bregðast við —
einkum þar sem um var að ræða
slíkt sjálfsöryggi og sannfæring-
arkraft. Stundum fór hann næst-
um að velta fyrir sér hvort eitt-
hvað gæti verið til i þessum
kenningum Radleys; undir
venjulegum kringumstæðum
hefði heilbrigð skynsemi hans
og gagnrýni vemdað hann, en
eftir þessa erfiðu daga andlegr-
ar áreynslu, voru hugsanir hans
ekki eins skýrar. Hann óskaði
þess að til væri einhver snyrti-
leg aðferð til að rjúfa töfrana
sem þessi mælski brjálæðingur
hafði sýnilega lagt yfir ýmsa
af farþegunum.
Með dálítilli blygðun minntist
hann hins snögga höggs :em
svæft hafði Hans Baldur með
svo góðum árangri. Án þess að
ætla sér það — óafvitandi að
minnsta kosti — mætti hann
augnaráði I-Tarrl-'n-js. Honum til
: óróa fékk hann s-'n--''-nrIis svar;
I Harding kinkaði kolli lítillega og
’-eis hægt á fætur. Nei! sagði
^at — en aðcins við sjálfan sig.
Ég átti ekki við það — láttu
•-•e-altþgs manninn vera — hvers
fyrirbæri ert þú elginlega?
Svo varð honum rórra. Hard-
ing gerði ekkerrt til að nálgast
: Rodley. Hann stóð aðeins við
sæti sitt, horfði á Nýsjálend-
inginn með óræðum svip. Ef
til vill var meðaumkvun í svipn-
um, en birtan var svo dauf að
Pat gat ekki greint það.
— Ég held það sé tími til
kominn að ég komi með mitt
framlag, sagði hann. — Að
minnsta kosti eitt sem hann vin-
ur okkar var að segja ykkur, var
alveg rétt. Honum hefur verið
veitt eftirför, en það eru engir
Diskamenn sem það hafa gert.
Heldur ég.
— Af viðvaningi að vera,
Wilfred George Radley, þá hef-
urðu ekki verið neitt lamb að
leika við. Þetta hefur verið mik-
ill eltingaleikur — frá Christ-
church til Astrograd til Clav-
ius til Tycho til Ptolemy til
Plato til Roris virkis — og loks
hingað, sem ég býst við að séu
leiðarlok að fleiri en einu leyti.
Radley virtist ekkert miður
sín. Hann kinkaði aðeins kolli
með hátíðleik, eins og hann við-
urkenndi tilveru Hardings, en
hefði ekki áhuga á að stofna til
kunningsskapar.
— Eins og þið hafið ef til vill
gizkað á, hélt Harding áfram,
þá er ég leynilögreglumaður.
Oftast nær fæst ég við fjár-
svikamál. Þetta er mjög athygl-
isverð atvinna, þótt mér gefist
sjaldan tækifæri til að tala um
störf mín. Ég er mjög þakklátur
fyrir þetta tækifæri.
— Ég hef engan áhuga — tja,
engan atvinnuáhuga — á hin-
um sérstæðu trúarbrögðum herra
Radleys. Hvort sem þau hafa við
eitthvað að styðjast eða ekki,
þreytir það engu um það. að
hann er slyngur bókhaldari á
góðum launum í Nýja Sjálandi.
Að vi'su eru iaun hans ekki nógu
há til að greiða fyrir mánaðar-
dvöl á tunglinu.
— Eln það var ekkert vanda-
mál — vegna þess að heira
Radley var yfirbókhaldari í
Christchurch deild Alheims-
ferðakorta. Kerfið á að vera
fullkomlega öruggt og tryggt í
alla enda og kanta, en með ein-
hverju móti tókst honum að
verða sér úti um kort — Q-
tegund, sem gildir fyrir ferðalög
af öUu tagi um Sólkerfið þvert
og endilangt, gistingu og fæði,
innlausn ávísana allt að fimm
hundruð doUurum hvenær sem
vera skal. Það eru ekki til mörg
Q-kort og þau eru meðhöndluð
eins og þau væru úr plutoníum.
— Auðvitað hefur fólk reynt
að bera þetta við áður; við-
skiptavinir eru alltaf að týna
kortunum sxnum og athafna-
samir einstaklingar skemmta sér
konunglega með þau f höndun-
um, þar til í þá næst. En aðeins
nokkra daga; eftirlitskerfið er
mjög nákvæmt — það verður
að vera. Ýmsar varúðarráðstaf-
anir hafa verið gerðar til að fyr-
irbyggja misnotkun af þessu tagi,
og til þessa hefur enginn kom-
izt undan lengur en viku.
— Níu daga, skaut Radley ó-
vænt inn í.
— Ég bið afsökunar. Þú ættir
að vita það. En Radley hafði
verið á ferðinni næstum þrjár
vikur áður en við fundum hann.
Hann hafði tekið hið áriega leyfi
og sagt skrifstofunni að hann
myndi dveljast á norður eynni.
Þess í stað fór hann til Astro-
grad og þaðan áfram til Tungls-
ins og ferð hans varð söguleg.
Því að hann er fyrsti maðurinn
og vonandi líka þá síðasti — sem
kemst burt af jörðinni upp á
krít.
— Enn þurfum við að fá að
vita hvemig hann fór að því.
Hvernig slapp hann framhjá
hinu vélræna eftirliti? Var ein-
hver meðsekur honum? Og ýms-
ar fleiri spumingar af þessu
tagi. Ég vona, Radley, að þú
leysir frá skjóðunni við mig,
þótt ekki væri nema til að full-
nægja forvitni minni. Mér finnst
það næstum skylda þín undir
þessum kringumstæðum.
— En við vitum af hverju þú
gerðir það — af hverju þú fórn-
aðir ágætri stöðu til að fara í
skemmtiferð, sem hlaut að enda
með fangavist. Við gizkuðum
auðvitað á ástæðuna um leið
og við komumst að þvi að þú
varst á Tunglinu. Alheimskort,
h.f. vissu allt um tómstundaiðju
þína, en hún hafði ekki dregið
úr starfshæfni þinni. Þeir tefldu
á tvær hættur og það varð
býsna dýrt spaug.
— Mér þykir þetta leitt, svar-
aði Radley með nokkrum virðu-
leik. — Fyrirtækið hefur alltaf
komið vel fram við mig, og
þetta var hálfsmánarlegt af mér.
En málstaðurinn var góður, og
ég hefði haft upp á sönnunar-
gögnum —
En þegar hér var komið
misstu allir nema Harding leyni-
iögregluþjónn allan áhuga á
Radley og Diskunum hans.
Hljóðið sem þau höfðu beðið eft-
ir í ofvæni, heyrðist nú loksins
aftur.
Teinninn hans Lawrence klór-
aði í þakið.
TUTTUGASTI OG ATTUNDI
KAFLI.
Mér finnst ég hafa verið hér
hálfa eilífð, hugsaði Maurice
Spenser — samt er sólin ennþá
lágt í vestri, þar sem hún kem-
ur upp í þessum undarlega
heimi, og ennþá eru þrfr dag-
ar til hádegis. Hve lengi enn
þarf ég að dúsa á þessu fjalli
\
Nei, sko þarna er auglýst
ný tegund af rafmagnsrakvél-
um. Það er bezt að ég kaupi
eina.
Hvemig stendur á því að þú ert alltaf með strákum sem aldrei fá
ætan bita heima hjá sér.
/
Vippu-bílskúrshurðir
v/f//^/y/////y////y///////y////v/////////////////A
Á
\é\
s
f
I ^ f
§ 1
I-karmvur
Lag’erstærðir:
Hæð x Breidd
Múrop:...... 210 x 240 cm
Múrop:...... 210 x 270 cm
ALLAR STÆRÐIR SMÍÐAÐAR
EFTIR MÁLI.
Trésmiðja
Gissurar Símonarsonar
við Miklatorg
Reykjavík — Sími 14380.
Sérverzlunin
Bókubúð Kefíuvíkur
Keflavík, er til sölu, e’f um semst við eig-
andann, Kristin Reyr.
VERZLUNIN ER í FULLUM GANGI.
SVEFNSÓFAR
- SÓFASETT
HN0TAN, húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1.