Þjóðviljinn - 17.04.1964, Side 3
Föstudagur 17. apríl 1961
ÞIÓÐVIUINN
SÍDA 3
DPA REK/N FRA MOSKVU
vegna fréttarinnar um lát Krústjoffs
Notuðu hunda í
Auschwitz
FRANKFURTH 16/4 — Við
réttarhöldin í Frankfurth kom
í dag í ljós, að fangaverðirnir
í Auschwitz notuðu hunda á
fangana. Það var pólskur fangi,
sem skýrði frá þessu og lagði
hann einnig fyrir réttinn mynda-
safn, sem hann hafði komizt yf-
ir úr fangabúðunum í Ausch-
witz.
Söbye fyrir ráðherra
KAUPMANNAHÖFN 16/ —
Harald Söbye, dans.ki presturinn,
sem kallaður var fyrir kirkju-
málaráðherra • fyrir skömmu
fyrir einum um of hressilegt
orðbragð, hefur Viðurkennt að
allt sem borið er upp á hann
sé sannleikanum samkvæmt.
Kveðst hann bæði hafa kallað
biskup sinn óþokka og hvatt
menn til dáða gegn auðvalds-
þjóðfélaginu og konungsvaldinu.
Einnig hefur hann viðurkennt
að hafa látið sér um munn fara
að fnykinn legði af hinni svo-
nefndu Siðvæðingu.
Brúðkaup önnnrMar-
íu drukk’ð í Aþenu í
haust
KAUPMANNAHÖFN 16/ —
Danska hirðin gerði heyrinkunn-
ugt í dag, að brúðkaup Önnu-
Maríu og Konstantins Grikkja-
konungs verði drukkið í Aþenu
18. september.
Hærri uonhæð til
hernaðar í Svíb’óð en
nokkru sinni fyrr
STOKKHÖLMI 1674. í nótt gekk
sænska þingið endanlega frá
f járhagsáætlun ríkisins um
vamir landsins. Er þetta hæsta
upphæð. sem nokkurn tíma hef-
ur verið veitt til varnamála —
4.105 miljónir sænskra króna.
Sænskir læknar segja
upp stöðum sínum
STOKKHÓLMI 1674 310 læknar
sögðu upp stöðum sínum í Sví-
þjóð í dag. Með þessu eru þeir
að undirstrika hversu alvarlegt
ástandið sé eftir að samninga-
umleitunum lauk milli lækna-
samtakanna og þeirra stofnana,
sem reka almenningssjúkrahús-
in i Svíþjóð.
Dómur fallinn
AYLESBURY 1674 Dómur féll
i dag i lestarránsmálinu mikla
í Aylesbury. Tveir hinna á-
kærðu voru dæmdir í 30 ára
fangelsi, tveir í 25 ára fangelsi,
einn í 24 ára fangelsi, einn í
20 ára og loks einn í 3 ár.
Ekki fengu þó allir dóm fyrir
glæpinn.
Unglingaföt
frá kr. 298,00.
PÓSTSENDUM
Kjarakaup
Njálsgötu 112.
MOSKVU 16/4. V estur-þýzku
fréttastofunni DPA, sem bar á-
byrgð á fréttinni um lát Krúst-
joffs, hefur verið skipað að
leggja niður skrifstofu sína í
Moskvu, og starfsmönnum
fréttastofunnar í Moskvu sagt
að yfirgefa höfuðborgina innan
eins sólarhrings.
DPA setti heiminn á annan
endann fyrir nokkrum dögum
með því að birta frétt um and-
lát Krústjoffs, sem skömmu
síðar var borin til baka. Strax
, eftir atburðinn sendi fréttastof-
I an sovézka utanríkisráðuneyt-
inu orðsendingu, þar sem þessi
atburður er harmaður og sagt,
að hann hafi orðið fyrir m;s-
tök og mannlega yfirsjón. Sagði
í orðsendingunni. að fréttarit-
arinn í Moskvu væri ekki sek-
ur um þessi mistök. TASS-
fréttastofan segir, að þetta sé
ekki í fyrsta sinn, sem vestur-
þýzka fréttastofan reyni að þera
út uppspunnar fréttir frá Sov-
étríkjunum.
Brottrekstur DPA kom ekki
á óvart og var búizt við þessu
bæði í Moskvu og erlendis.
Hins vegar kom mönnum á ó-
vart hve fresturinn var stutt-
ur og sýnir það glögglega hve
alvarlegum augum er litið á
atburðinn í Sovétríkjunum.
Sjóstangaveiði
Framhald af 12. síðu.
Á fundi með fréttamönnum í
gær skýrði stjórn SR frá því
að félagið hefði i hyggju að
leigja 18 tonna bát í sumar til
sjóstangaveiða. Nefnist hann
Rán og mun fara í veiðiferðar
um helgar. Ennfremur ráðgeri’-
félagið veiðiferðir til Breiða-
fjarðar eins og gert var í fyrra-
sumar.
Að lokum þökkuðu forráða-
menn SR hafnar- og borgaryfir-
völdum ágæta fyrirgreiðslu í
sambandi við undirbúning
mótsins.
Þessi minnisvarði um fórnarlömb
sen. hvíia bein margra Frakka,
nazista var reistnr i Pcre-La<.haise kirkjugarðinum í París, þar
sem létu lífið í Buchcnwaldfangabúðunum.
Heillaskeyti frá Mao
PEKING og MOSKVU 16/4 — Krústjoff fékk í dag heilla-
skeyti í tilefni af sjötugsafmælinu frá Mao Tsetung og
fleiri leiðtogum kínverska kommúnistaflokksins þar sem
lögð er áherzla á, að misklíðin sem ríkir milli flokkanna
tveggja megi ekki skyggja á þá samstöðu, sem þeir hljóta
að hafa þegar á ríður.
Þjóðhöfðingjar ýmissa landa
eru komnir til Moskvu til þess
að heiðra Krústjoff á sjötugs-
afmælinu, og einnig hefur hon-
um borizt mi'kill fjöldi afmælis-
skeyta. Meðal þeirra, sem komn-
ir eru til Moskvu eru Kekkonen
Finnlandsforseti, Novotny for-
seti Tékkóslóvakíu, Gomulka
formaður pólska kommúnista-
flokksins, Kadar forsætisráðherra
Ungverjalands og Todor Zjiv-
koff, formaður búlgarska komm-
únistaflokksins. Hins vegar hef-
ur enginn komið frá Rúmeníu,
Kína og Albaníu og vekur fjar-
vera Rúmena nokkra athygli.
kæmi til alls vasru Sovétríkin
og Kínverska alþýðulýðveldið
samherjar, sem á hættustund
muni snúa bökum saman gegn
sameiginlegum fjandmanni.
Skeytinu lauk með þessum
orðum: Lifi einingin og vinátt-
an milli sovézku og kínversku
þjóðanna og byltingarkenningar
Marx og Leníns! Skeytið var
undirritað af Mao Tsetung, Liu
Sjá Sji forseta, Sjú Enlæ þing-
leiðtoga og forsætisráðherra.
Einnig barst Krústjoff skeyti
frá Lyndon B. Johnson Banda-
ríkjaforseta, en efni þess hefur
enn ekki verið birt.
Skipulag
Skeyti frá Mao
1 skeytinu var lögð á það rík
áherzla, að hugsjónaágreiningur
kínverska og sovézka flokksins
myndi taka enda og þegar allt
CHAPLIN
75 ára -
Aldrei
hressari
LrKNF 1674. Kvikmynda-
leikarinn Charlie Chaplin
átti i dag 75 ára afmæli.
Þau hjónin voru að heim-
an í dag og vissi enginn
hvert þau fóru. Hamingju-
óskimar streymdu heim til
hans í villuna við Genfar-
vatn.
Chaplin er nýkominn
frá írlandi þar sem hann
dvaldi við að skrifa end-
urminningar gínar.
Fjáreigendur
Framhald af 1. síðu.
söguerindi á fundinum og
deildu hart á frumvarpið en
síðan töluðu bæði Auður og
Alfreð, gerðu grein fyrir frum-
varpinu og tilgangi þess. Einn-
ig talaði Hafliði Jónsson og
bentu þeir Alfi-eð og hann á
það mikla tjón er garðeigend-
ur í Reykjavík yrðu fyrir af
völdum sauðfjár.
Miklar umræður urðu á fund-
inum og deildu fjáreigendur
hart á frumvarpið og flytj-
endur þess svo og á Hafliða
en þeir Alfreð og Hafliði svör-
uðu aftur ádeilunum. Stóð fund
urinn fram á nótt. í fundarlok
var samþykkt einróma tillaga
þar sem skorað er á Alþingi
að endurskoða afstöðu síha til
frumvarpsins og fella það.
Andstæðingar sauðfjárhaldg
í Reykjavík, landleigjendur og
eigendur garða hyggja nú á
gagnsókn á hendur sauðfjár-
eigendum og hafa þeir boðað
til annars fundar í Skátaheim-
ilinu í kvöld. Virðist mikil
harka vera að færast í þetta
mál.
Framhald af 1. síðu.
Ilailgrímssonar, héldu þeir Gísli
Halldórsson, arkitekt, og Þór
Sandholt, skólastjóri, uppi vörn-
um fyrir þessa ákvörðun. Töldu
þeir ekki eðlilegt að setja frek-
ari hömlur en fyrir eru um
uppbyggingu miðbæjarins, enda
sé þessi nýtingaraukning „að-
eins“ 28% eins og Gísli komst
að orði.
Tillaga Guðmundar var sem '
fyrr segir felld með 11 atkvæð- j
um. Þá var og visað frá tillögu
hans þess efnis að boðið skuli
til samkeppni með íslenzkum
arkitektum um sem flesta þætti
skipulagsins, en þó einkum mið-
bæinn og væntanlegt íbúðar-
hverfi í Breiðholti.
Ben Bella á flokksþingi:
Burt með borg-
aralegan hugsun-
arhátt
ALSÍR 16/4. Ben Bella forseti
Alsír setti í dag fyrsta flokks-
þing FLN-flokksins. Gekk ræða
hans út á að nauðsynlegt sé
að losna við síðustu leifamar
af auðvaldsþjóðfélaginu, sem
enn séu alltof áberandi í Alsír.
Réðst hann harkalega á borg-
aralegan hugsunarhátt, sem
þyrfti að upræta f flokknum.
stjómin væri með áætlanir
prjónunum varðandi hámarks-
laun og einnig ætti að hafa mun
strangara eftirlit með utai
isverzluninni. en hins vega
nauðsynlegt að fá erlenda
fræðinga til þess að aðstoða
við uppbyggingu efnahagsins.
Kjörorð sitt kvað hann vera:
Allt af fólkinu — allt
fólkið.
f kvöld leika Víkingur og
norska liðið Fredensborg á
Hálogalandi. Þetta er fyrsta
keppni þessa ágæta norska
handknattleiksliðs hér á landi,
og mun marga eflaust langa
til að sjá þá leika listir sín-
ar.
Á sunnudag keppir Fredens-
borg svo við landsliðið í í-
þróttahúsinu é Keflavíkur-
flugvelli.
Á myndinni sést einn af leik-
mönnum Fredensborg í keppni
Það er Finn Arne Johannsen,
en hann hefur 26 sinnum
keppt með norska landsliðinu. |
Eftírlitsmaður
óskast nú þegar til að hafa ums’jón með bygging-
arframkvæmdum Raunvísindastofnunar Háskólans.
Umsóknir með upplýsingum um reynslu og kaup-
kröfur sendist Háskóla íslands fyrir 23. þ.m.
Frekari upplýsingar veitir Skarphéðinn Jóhanns-
son arkitekt.
Byggingarnefnd Raunvísindastofnunar
Háskólans.
STÚLKA
óskast í bóka- og rit'fangaverzlun í miðbæn-
um. Tilboð með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, sendist afgr. Þjóðviljans
merkt: „Áhugasöm ’64“.
ÚTB0Ð
Tilboð óskast í að byggja viðbyggingu við Vara-
stöðina við Elliðaár.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Von-
. arstræti 8, gegn 4000 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Auglýsing um áburðarverð
Heildsöluverð á eftirtöldum áburðartegundum er
ákveðið þannig fyrir árið 1964: Hver smálest
Nitrofosfat 20% N. 20% P205 .. Kr. 3.120,—
Þrífosfat 45% P205 .... — 2.960,—
Kalí, klórsúrt, 50% K20 — 2.040,—
Kalí, brennisteinssúrt 50% K20 ... .... — 2.720,—
Blandaður garðáburður 9-14-14 ... .... — 3.300,—
Kalkammon 26% N
Kalksaltpétur 15,5% N — 2.180,—
Tröllamjöl 20,5% N — 4.480,—
Verðið miðast við áburðinn kominn á hafnir, án uppskipunar- og afhendingarkostnaðar. sem
bætist við ofangreind verð, eins og verið hefur.
Verð á Kjarnaáburði 33.5% N. hefur verið ákveð-
ið kr. 3.240,— hver smálest. Að eefnn tilefni skal tekið fram, að áburðarkalk
verður til sölu í Gufunesi eins og á undanförnum
árum.
ÁBURÐARVERKSMIDJAN H.F. ÁBURÐARSALA RÍKISINS