Þjóðviljinn - 17.04.1964, Page 4
4 SÍÐA
ÞIÓÐVILJINN
NN
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýdu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja. Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Aðþrengdur Alþýðuflokkur
að er segin saga þegar ráðherrum Alþýðuflokks- ,
ins finnst þeir orðnir aðþrengdir í íhaldsnetinu
að Alþýðublaðið er látið bera fram 'tvær blekk-'
ingahistoríur, sem eiga að sanna að fleiri séu,
breyskir en ráðherrar Alþýðuflokksins í því að
fara illa með verkamenn. í þeirra hópi séu bæði
Hannibal Valdimarsson og Lúðvík Jósepsson og
hafi það sannazt á vinstristjórnarárunum. í gær
segir Alþýðublaðið þannig í leiðara að eitt fyrsta
verk Hannibals Valdimarssonar sem ráðherra
(því ekki vinstri stjórnarinnar allrar?) hafi verið
að gefa út bráðabirgðalög um festingu kaupgjalds
og verðlags. Þetta er tómt slúður. Kaupgjaldið var
ekki „fest“ með þeim lögum sem hér er sennilega
átt við. Það sem gerðist var þe’tta:
i^ert var samkomulag við verkalýðshreyfinguna
^ umað falla frá kauphækkun sem nam sex vísi-
tölustigum gegn því að tiltekin verðhækkun sem
var að skella á, yrði einnig látin niður falla. Þau
skipti virðast hafa verið talin hagstæð af verka-
lýðsfélögununi, því samkomulagið var samþykkt
af Alþýðusambandinu og af fjórðungssamböndum
þess, öllum stærstu verkalýðsfélögum í landinu
og á fundi stjórna allra verkalýðsfélaganna í
Reykjavík.
Seinni áróðurshistoría hins aðþrengda Alþýðu-
blaðs er sú, að haustið 1958 hafi Lúðvík Jós-
epsson „gert baksamning við atvinnurekendur“
um að mæt’ti velta kauphækkun út í verðlagið.
Hér er farið með rakalaus ósannindi. Lúðvík Jós-
epsson gerði enga „samninga“ um verðhækkanir.
Þvert á móti lýstu fulltrúar Alþýðubandalagsins
og Framsóknar í Innflutningsskrifstofunni, sem
verðlaginu réði, yfir eftir verkfallið að þeir væru
reiðubúnir að standa gegn hækkuðu verðlagi. En
'fulltrúi Alþýðuflokksins lét sig hafa að samþvkkja
þær ásamt íhaldinu. Og rétt á eftir myndaði Al-
þýðuflokkurinn ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokkn-
um, og lét það verða eitt si’tt fyrsta verk að lækka
kaup verkamanna með lögum um 13,2%, og lýsti
því yfir að kaupmátturinn hefði verið of mikill!
Og kaupmáttur launanna ’frá vinstristjórnarárun-
um var svo mikill, að Alþýðuflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn s'tofnuðu til stórfelldrar gengis-
lækkunar til þess að rýra enn kaupmátt laun-
anna sem samið var um haustið 1958. Það er von
að málgagn þessa flokks þurfi að búa sér til sögu
um að aðrir hafi verið að semja af verkamönnum
og rýra kjör þeirra um þetía leyti.
En Alþýðuflokkurinn á bágí um þessar mundir.
Gerðardómsráðherrann Emil og gengislækk-
unarráðherrann Gylfi og hernámsmálaráðherrann
Guðmundur eru ekki beinlínis hátt skrifaðir hjá
alþýðufólki. heldur ekki Alþýðuflokksmönnum
eða öðrum fylgjendum flokksins. Og þá eru fisk-
aðar upp þjóðsögurnar um Hannibal og Lúðvík.
ekki til að sýna að ráðherrar Alþvðuflokksins
séu góðir, heldur til þess ef verða mætti að fá ein-
hvern til að trúa því að aðrir séu slæmir líka! |
En bnp"- ^róðurshistoríur eru orðnar allt of brúk-;
aðar til þess að nokkur taki mark á þeim. — s. |
Fösfcudagur 17. apri. 1964
Myndin er írá Ngajim vatnsorkustöðinni sem reist hcfur verið við Lhasa-
fljót, og hefur ekki einungis orðið til þess að sjá höfuðborginni fyrir raf-
magni heldur hefur bygging hennar og rekstur orðið skóli fyrir verkamenn
og iðnaðarmenn Tíbctbúa.
I»essir tveir skólanemendur í Lhasa eru börn
manns, sem var ánauðugur fyrir fimm árum.
Kornframleiðsla í
Tíbet eykst um
50% á 5 árum
Hér er fjölskylda í Lhasa í heimsókn til vinafólks á há-
tíðardegi. Bræður tveir sem myndin er af, voru ánauðugir
þrælar á stórbúi. Með þeim er kona eldri bróðurins. Þau
koma ekki tómhent í heimsóknina!
□ Miklar breytingar ha’fa orðið í þ'jóðlífi
og efnahagslífi Tíbet undanfarin fimm ár. Mik-
ill hluti þjóðarinnar var fram til þess tíma
ánauðugur og lifði í sárustu fátækt og van-
þekkingu.
□ Bændaánauðinni var a’f létt og vinnandi
mönnum fengið land til eignar og ræktunar.
Nýjum aðferðum hefur verið beitt við land-
búnaðarstörf, og fimm undanfarin sumur ha’fa
Tíbetbúar fengið góða uppskeru, kornfram-
leiðslan hefur á þessu skamma tímabili auk-
izt um 50%.
□ í menntunarmálum og heilbrigðismál-
um hafa einnig orðið miklar breytingar í
framfaraátt þessi fimm ár frá því bænda-
ánauðinni var aflétt.
Verður varið 100 milj. meira til
vega á jiessu ári en árið sem ieið?
Nokkrar umræður urðu á kvöldfundi í sam-
einuðu Alþingi í fyrradag um hina nýju vega-
áætlun fyrir yfirstandandi ár, en samkvæmt
henni er áætláð, að verja til vega- og brúarfram-
kvæmda 242 miljónum króna en það er um 100
miljónum hærra en áætlað var á fjárlögum fyrir
gömlum skuldum en ekki til
framkvæmda á þessu ári munu
margir vérða fyrir vonbrigð-
um. Þeir sem treyst hafa á að
nú yrði miklu meira unnið að
þessum málum en áður var.
Samgöngumálaráðherra hélt
því hinsvegar fram, að hið
aukna fé yrði notað til vega-
mála og jafnt þó að það gangi
til greiðslu á skuldum og því
ekki um nein svik að ræða.
En Lúðvík undirstrikaði að
lokum að aðalatriði í þessu
máli væri: aukast fram-
kvæmdir?
1963 til þessara framkvæmda.
Urðu orðaskipti milli Lúð-
víks Jósepssonar og Ingólfs
Jónssonar samgöngumálaráð-
herra um greinargerð þá sem
fylgir vegaáaetluninni.
Benti Lúðvík á, að samkv.
henni, væri við það miðað að
verulegur hluti þessarar fjár-
hæðar yrði á þessu ári notað-
ur til að greiða gamlar skuld-
ir vegagerðarinnar við Ríkis-
sjóð og við einstök héruð. sem
lánað hafa fé til að flýta fyrir
framkvæmdum og til afborg-
ana og greiðslu vaxta af
'ánum vegna Keflavíkurvegar.
Skipta greiðslur þessar nokkr-
um tugum miljóna.
Loforð um auknar fram
kvæmdir.
Taldi Lúðvík, að þegar sam-
þykkt var um síðast liðin ára-
mót að hækka bezínskatt og
þungagjald af bifreiðum um
100 miljónir króna á ári hafi
því beinlínis verið Iofað að
þessi aukna gjaldheimta skyldi
renna til aukinna vegafram-
kvæmda og mörg orð höfð um
það að nú skvldi miklu stærri
átök gerð en áður í vega- og
bi'úarframkvæmdum.
Sagði Lúðvík, að ef sú yrð'
nú framkvæmd bessara mála að
stór hluti þessa nýja fjármagn?
verði notað til greiðslu «■
Afgreiðslumenn
Duglegir menn óskast til afgreiðslustarfa í heild-
söludeild okkar að Skú'lagötu 20. Nánari upplýs-
ingar í skrifstofunni.
SLÁTURFÉLAG
SUflURLANDS