Þjóðviljinn - 12.05.1964, Síða 8
StÐA
ÞlðÐVTLIUfK
Þriðjudagur 12. ínal 1964
hádegishitinn
★ Kl. 12 í gær var vestlæg
átt á Suðurlandi, sumstaðar
smáskúrir vestan til en létt-
skýjað á Suð-Austurlandi.
Norðanlands var norðaustan
átt og víða þoka til hafsins.
Á Vestfjörðum var rigning en
snjókoma úti fyrir. Lægð fyr-
ir austan land á hreyfingu
norðaustur. Lægðardrag yfir
sunnanverðu Grælandshafi.
til minnis
■ir t dag er þriðjudagur 12.
maí Pankratiumessa. Árdegis-
háflæði klukkan 6.26.
★ Næturvörzlu í Reykjavík
vikuna 9.—16 maí annast
Laugavegs Apótek. Sími
24048.
★ Næturvörzlii í Hafnarfirði
f nótt annast Ölafur Einars-
son læknir. sími 50952.
★ Slysavarðstofan I Heilsu-
vemdarstððinni eT opin ailan
eólarhringinn Næturlæknir *
sama «tað idukkan 18 tíl 8
Sími 2 12 30.
★ Lðereglan efml 11166
★ Holtsapötek oe Oarðsapðfek
eru opJr alla virka daga kl
9-12 (aueardaga kl 9-16
oe sunnudasa klukkan 13-16
★ SlökkvtHðlfl oa siúkrabif-
reiðin sími 11100
★ Neyðarlæknlr vakl ylla
daga nema laueardaga klukk-
an 13-IT — Sfmi 11510.
★ Kflpavogsapétek er ooifl
alla vlrka daga klukkan *-16-
20 laueardqra rlukkar 15-
16 08 tunnudaga U. lt-16.
útvarpid
13.00 Við vinnuna.
15.00 Síðdegisútvarp.
20.00 tJtvarp frá Alþingi: —
Almennar stjómmála-
umræður (eldhúsdags-
umræður): síðara kvöld.
Þrjár umferðir. 20-25
minútur. 15—20 og 10
mínútur samtals 50
mínútur til handa hverj-
um þingflokki. — Röð
flokkanna:
Frams ókn arflokkur,
S j álf s tæðisflokku r,
Alþýðuflokkur,
Alþýðubandalag.
23.30 Dagskrárlok.
skipin
★ Eimskipafélag Islands.
Bakkafoss fór frá Akureyri
í gærkvöld til Húsavíkur,
Raufarhafnar, Þórshafnar og
Norðfjarðar. Brúarfoss fór frá
N. Y. 9. maí til Reykjavíkur.
Dettifoss fór frá Vestmanna-
eyjum 7. mai til Gloucester
og N. Y. Fjallfoss fór frá
Reykjavík 7. maí til Kaup-
mannahafnar, Gautaborgar og
Kristiansand. Goðafoss fór frá
Helsingfors i gær til Reykja-
víkur. Gullfoss fór frá Thors-
havn í gær til Kaupmanna-
hafnar og Leith. Lagarfoss fer
frá Gravama f dag til Ro-
stock og Riga. Mánafoss fór
frá Homafirði 10. maí. var
væntanlegur til Reykjavíkurí
nótt. Reykjafoss er f Reykja-
vík. Selfoss fer frá Rotter-
dam á morgun til Hamborgar
og Reykjavíkur. Tröllafoss fór
frá Reykjavík i norgun til
Gufuness. Tungufoss fer frá
Hull í gærkvöld til Leith og
Reykjavíkur.
★ Skipaútgerð ríkisins. Hekla
fer frá Reykjavík klukkan
20.00 vestur um land til ísa-
fjarðar. Esja er á Austfjörð-
um á norðurleið. Herjólfur er
í Reykjavík. Þyrill er í olíu-
flutningum á Norðurlands-
höfnum. Skjaldbreið er á
Vestfjörðum á suðurleið.
Herðubreið fer frá Reykjavík
klukkan 12 i dag austur um
land i hringferð.
★ Skipadeild SlS. Amarfell
fór 9. maí frá Grundarfirði
til Lysekil og Leningrad.
Jökulfell fór frá Keflavík 8.
maí til Norrköping og Pieters-
ary. Dísarfell er á Homa-
firði; fer þaðan í dag til
Djúpavogs, Cork, London og
Gdynia. Litlafell er væntan-
legt til Reykjavíkur í kvöld.
Helgafell er i Rendsburg.
Hamrafell fór 8. maí frá Ar-
uba til Reykjavíkur. Stapa-
fell fór i gær frá Fredrikstad
til Vestmannaeyja. Mælifell
fór 9. maí frá Chatham til
Saint Louis de Rhone.
★ Eimskipafélag Reykjavíkur.
Katla er á leið til Cagliari frá
Canada. Askja er á leið til
íslands frá Cagliari.
flugið
★ Loftleiðir. Flugvél Loftleiða
er væntanleg frá N.Y. klukk-
an 7.30. Fer til Lúxemborgar
klukkan 9. Kemur til baka
frá Lúxemborg klukkan 24.00.
Fer tll N.Y. klukkan 1.30.
önnur vél væntanleg frá
London og Glasgow klukkan
23.00. Fer til N.Y. klukkan
00.30.
★ Pan American þota er
væntanleg frá N.Y. í fyrra-
málið klukkan 7.30. Fer til
Glasgow og London klukkan
8.15.
gerlar í mjólk
★ Fyrsta mjólkin úr spenum.
Fyrstu boga (bunar) úr spen-
um skal hvorki mjólka saman
við sölumjólkina né niður í
básinn og skal ekki heldur
nota þá til að væta hendur
eða spena, því að í fyrstu
mjólkinni, sem úr spenanum
kemur, er oft mikið af gerl-
um. Nota skal sérílát undir
mjólk þessa.
Mjólkureftirlit ríkisins.
ferðalög
★ Farfuglar — Ferðafólk!
Hvítasunnuferð. Skemmti og
skógræktarierð í Þórsmörk
um Hvítasunnuna. Farmiða-
sala er að Lindargötu 50 4
kvöldin klukkan 8.30 til 10
og í verzluninni Húsið
Klapparstíg 27. —
Farfuglar.
★ Ferðafélag Islands fer
þrjár 2l/2 dags ferðir um
hvítasunnuna.
1. Ferð um Snæfellsnes,
gengið á jökulinn, farið
fyrir Ólafsvíkurenni og
Búlandshöfða.
2. Ferð i Þórsmörk.
3. Ferð i Landmannalaugar,
gist verður í sæluhúsum
félagsins á þessum tveim
stöðum.
Lagt af stað í allar ferðimar
klukkan tvö á laugardag. —
Farmiða sala er hafin á skrif-
stofu félagsins Túngötu 5.
Annan hvítasunnudag verður
gengið á Vífilfell. Lagt af
stað klukkan tvö frá Austur-
velli. Farmiðar við bflinn.
brúðkaup
★ Gefin voru saman í hjóna-
band 10. maí af séra Gunnari
Benediktssyni. ungfrú Elín
Hjaltadóttir Njálsgötu 7 og
Jón Ásgeir Sigurðsson Ás-
vallagötu 24. Heimili þeirra
er að Bólstaðarhlíð 66.
félagslíf
★ Frá Styrktarfél. vangefinna.
Konur í Styrktarfélagi van-
gefinna halda fund að Lyng-
ási fimmtudaginn 14. maí kl.
8.30. Fundarefni: Kvikmynda-
sýning. önnur mál. —
Stjórnin.
QBD Gs'vSDdl
Blasco skipstjóri þekkir Þystileyju. Hér bjó fólk um
langan aldur og á eynni stendur hið myndarlegasta hús,
vel við haldið. Fiskimenn ganga hér oft á land og Theo-
dor Kirschaw, frændi Evu, leyfði það fúslega að þeir
gerðu við net sín á eynni. Þeir Blasco og Hóras ganga
á land og Blasco sýnir Hórasi leiðina sem liggur inn
á eyna. Og hér birtist þeim húsið, það er heldur eyðilegt
til að sjá en bersýnilega vel íbúðarhæft. Hóras horfir
góða stund á húsið, allt er kyrrt og hljótt og svo leitar
hann inngöngu.
*
!
I
i
i
I
!
I
fc
I
I
I
I
h
í
I
*
*
*
Á lokadaginn
Framhald af 12. siðu.
magn þeirra eftir vertíðina
28400 tonn. Þessir eru fimm
hæstu bátar í Keflavík. Jón
Finnsson með 1145 tonn, Hilmir
II með 1114 tonn, Lómur meö
906 tonn, Gísli lóðs með 935
tonn og Jón Guðmundsson með
874 tonn. Meðalafli á bát er
naerri 500 tonn og er háseta-
hlutur kr. 80.00 á tonn miðað
við 11 manna skipshöfn.
Akranes
Iflestir Akranesbáta eru hætt-
ir veiðum. Afli Akranesbáta sjö-
unda maí var 12500. tonn og
aok þess hefur verið landað
hér 16400 tunnum af síld.
Þá hafa aðkomubátar lagt upp
650 tonn.
Vertíðin núna er mun betri
en í fyrra og er það að þakka
fjörkippnum i apríl og bárust
þá á land 6150 tonn.
Afli Akranesbáta í fyrra var
um tíu þúsund tonn.
Aflahæstu Akranesbátar sjö-
unda maí eru þessir: Anna með
1014 tonn, Sólfari með 980
tonn, Höfrungur III. með 884
tonn.
Ólafsvík
Heildarafli Ólafsvíkurbáta er
í dag 8124 tonn og hætta þeir
um helgina. Þrettán bátar réru
frá Ólafsvík í vetur. Sjö hæztu
bátarnir hafa eftirtalinn afla:
Stapafellið með 1339 tonn, Stein.
unn með 1099 tonn, Jón Jóns-
son með 1057 tonn, Valafellið
með 925 tonn, Jökull með 788
tonn, Sveinbjörn Jakobsson með
753 tonn, Hrönn með 712 tonn.
Hásetahlutur á Stapafellinu er
kr. 111.800,00 og er það miðað
við kr. 86.00 pr. tonn til há-
seta.
Mestan afla hafði Sveinbjörn
Jakobsson í róðri þ. 26. marz
og fékk þá 58,5 tonn.
Rifshöfn
Afli Rifshafnarbáta er þessi
eftir vertíðina. Skarðsvik með
1126 tonn. Arnkell með 822
tonn. Hamar með 788 tonn,
Tjaldur með 623 tonn, Sæborg
með 450 tonn, Dröfn með 259
tonn. Heildaraflinn er þannig
um 4072 tonn.
Allir þessir bátar voru fram-
an af með línu og síðan net
Rifshafnarbátar hætta um
næstu helgi.
P atreksf jörður
Afli Patreksfjarðarbáta var
með eindæmum góður á vértíð-
inni og eru með aflhæstu bát-
um á landinu. Þannig hefur
Loftur Baldvinsson í dag 1473
tonn. Dofri með 1420 tonn og
Sæborgin með 1140 tonn.
Þessir bátar hafa róið alla
vertíðina. Þrír bátar réru hér
með línu í janúar og hættu á
fyrstu dögum febrúar. Það vóru
Hannes Hafstein frá Dalvík,
Oddgeir frá Grenivík og Sæþór
frá Ólafsfirði. Þá réri Tálkn-
firðingur héðan með lfnu frá
því í marz og hætti núna um
mánaðamótin. Tálkfirðingur afl-
aði um 360 tonn.
Helgi Helgason réri héðan i
fyrra og fékk þá 1452 tonn. Þá
var Finnbogi skipstjóri og var
hann með Loft í vetur. Hann
hætti í apríl og hafði þá feng-
ið 1194 tonn. Hefur Gunnar
Árnason frá Dalvík verið með
Loft síðan. Loftur Baldvinssðn
er aflahæsti vélbáturinn á land-
inu á net og línu.
Þróttur vann Víking
Framhald af 5. síðu.
1 heild féll liðið ekki nógu
vel saman þegar tekið er til-
lit til þess hve samleiknir þess-
ir menn ættu að vera, ef þeir
eru að öðru leyti undir leikinn
búnir.
Lið Víkings er allt að kalia
nýliðar, og því ekki sanngjarnt
að krefjast eins mikils af þeim
og liðum sem leika 1 fyrstu
deild. Þó gerðist það furðu-
lega, að lið Þróttar með leik-
menn sem hafa leikið saman
gegnum marga flokka og eru
í fyrstu deild, átti fullt í fangi
með nýliðana í Víking. Vitna
má einnig í leik KR um dag-
inn. er það tók Islandsmeist-
arana 60 mínútur að skora
mark hjá þeim! Og munurinn,
þegar leik lauk var sá sami
og í leiknum við Þrótt — að-
eins 2 mörk. Hvernig ber að
skilja þetta? Hvaða orsakir
Þetta er í rauninni mjög al-
varlegt fyrir knattspyrnuna í
heild, og það getur ekki verið
að nokkrum dyljist, að ein-
hverstaðar er veikur hlekkur
í þessu öllu saman. Þetta er
rannsóknarefni útaf fyrir sig,
og margir munu þeir sem telja
að svörin séu ekki sérlega flók-
in, eða torvelt að finna þau,
ef menn annars eru á þeirri
skoðun að þetta þurfi rann-
sóknar við yfirleitt.
Miðað við það, að næstum
allir í Víkingsliðinu eru menn.
sem lítið hafa leikíð í eldri
flokkunum, nema Bergsteinn
Pálsson. verður ekki annað
sagt en að þama séu ungir
og frískir menn, sem þrátt
fyrir stutta samæfingu falla
furðu vel saman. Þeir reyna
sýnilega að ná saman, þótt
leikni skorti til muna, og ef
þeir halda saman og æfa, ekki
sízt leikni og aftur leikni, en án
hennar er ekki hægt að fram-
kvæma leikandi samleik, og
,,stúderi“ hvaða þýðingu stað-
setningar hafa þegar þeir eru
ekki með knöttinn. ætti ekki
að líða langt þangað til að
þeir geta ógnað þeim „stóru“.
Leikmenn eru nokkuð jafnir,
þó veitti maður miðfrámverð-
inum Frank Hall mesta at-
hygli, fyrir flýti og öryggi með
knött. Rósmundur í markinu
gerði ýmislegt vel. Bergsteinn
Pálsson var líka góður.
Dómari var Steinn Guð-
mundsson og hefði mátt vera
strangari í dómum sínum.
Frímann.
„STUDENTERORKESTERET"
OSLO
Sinfóníuhljómsveit 60 manna
T Ö N L E I K A R
í Háskólabíói n.k. föstudagskvöld kl. 9.
Stjórnandi: HARALD BRAGER NIELSEN
Einsöngvari: EVE PRYTZ, óperusöngkona við
Stokkhólmsóperuna
Einleikari: IVAR JOHNSEN píanóleikari, Oslo.
Viðfangsefni eftir: Groven, 'Johan Svendsen, Geirr
Tveitt, Harald Sæverud og óperuaríur eftir Mozart.
Tónleikarnir verða ekki endurteknir.
Aðgöngumiðar hjá Eymundson, Lárusi Blöndal
og í Háskólabíói.