Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 2
2 slb MÓÐVILJINN Föstudagur 22. maí 1964 Tekjuafgangur Seðlabankans var 1,3 miljón krónur á síðasta ári Ársfundur Seðlabankans var haldinn í síðustu viku og þar var lögð fram ársskýrsla bankans með margrvíslegum tölulegum upplýsingum um starfsemj Seðlabankans og þá þætti efnahagsþró- unarinnar, einkum peninga- og gjaldeyrismál, er hann varða sérstaklega. I raeðu sem formaður banka- stjómar Seðlabankans, Jó- hannes Nordal, bankastjóri, flutti í tilefni ársfundarins rakti hann nokkuð höfuðatr ði fyrrnefndrar skýrslu og verður hér getið þess hluta ræðu hans er snerti rekstur Seðlabankans og almenna starfsemi hans. Svipuð rekstrarafkoma Rekstrarafkoma Seðlabank- ans á árinu 1963 var mjög svipuð og árið áður. Tekjuaf- gangur reyndist 1,3 milj. kr. á móti 1,1 milj. kr. árið 1962. Er þá búið að reikna með 5 milj. kr. arðgreiðslu af stofn- fé bankans í sérstakan sjóð, en helmingi tekna hans árlega er varið til starfsemi Vísinda- sjóðs. Einnig hafa þá verið reiknaðir 6% vextir af öðru eigin fé bankans, samtals 7,9 milj. kr. Þessi afkoma er þó að verulegu leyti því að þakka. að bankinn hafði á árinu 4,3 milj. kr. hagnað af innleystum erlendum verðbréfum, en án þeirra tekna hefði lögum sam- kvæmt ekki verið hægt að greiða fullan arð af stofnfé bankans. Eftirlitssíörf bankans Eitt af meginverkefnum Seðlabankans hlýtur ætið að vera að fylgjast með banka- starfsemi í landinu og vinna að því, að hún sé sem heilbrigð- ust og innlánsstofnanir þjóni sem bezt hagsmunum við- skiptamanna sinna. sagði Jó- hannes Nordal ennfremur. ís- lenzk bankastarfsemi hefur vaxið hröðum skrefum undan- farin ár og er sizt að furða, þó þar þurfi margt endurbóta við. Sumt af því verður vafa- laust ekki bætt til fulls, nema með nýrri löggjöf, annað getur færzt til betri vegar fyrir at- beina Seðlabankans og sam- vinnu hans við innlánsstofnan- ir, en drýgst hlýtur ávallt að vera viðleitni hverrar stofnun- ar fyrir sig um að bæta rekst- ur sinn og starfsaðferðir. Síð- an Seðlabankinn tók til starfa í núverandi mynd fyrir þrem- ur árum. hefur bankaeftirlit hans. auk almennra eftirlits- Jóhannes Nordal starfa, unnið mikið starf, eink- um meðal hinna smærri stofn- ana, í því skyni að leiðbeina um bókhald og færa rekstur og bókhald i betra og nýtízku- legra form. Hefur reynslan ó- tvírætt sýnt. að mikil þörf var orðin fyrir slíka starfsemi. Annað mál, sem vert er að minnast á hér, er sú viðleitni Seðlabankans að koma á strangari reglum um meðferð bankaávísana. Hefur því ver- ið fylgt eftir með almennum á- vísanauppgjörum, en auk þess hefur Seðlabankinn tekið að sér innheimtu innstæðulausra ávísana í umboði innláns- stofnana. Með lagabreytingu, sem Alþingi hefur nú nýlega samþykkt, hefur aðstaða Seðlabankans til aðhalds í þessum efnum verið styrkt verulega frá því sem áður var. I þessu máli hefur Seðlabank- <$> inn haft hið ákjósanlegasta samstarf við aðra banka og innlánsstofnanir enda er það forsenda þess, að takast megi að koma á heilbrigðu aðhaldi í þessum efnum. 1 framhaldi af þessu hefur Seðlabankinn hug á því að koma á samstarfi milli banka og innlánsstofn- ana innbyrðis á fleiri sviðum, t.d. í því skyni að samræma betur útlánareglur bankanna og vanvirða samninga sína við þá. Sú fjölgun banka og bankaútibúa, sem átt hefur sér stað að undanfömu hefur vafalaust að verulegu leyti átt rétt á sér og leitt til bættr- ar þjónustu við viðskipta- menn bankanna og allan al- menning. Hins vegar krefst þessi þróun nánari samvinnu og samræmingar á milli starf- semi einstakra banka og ann- arra innlánsstofnana en áður var, ef koma á í veg fyrir mis- notkun bankanna. óheilbrigðar samkeppnisaðferðir og óeðli- legt misræmi í bankaþjón- ustu. Fyrirgreiðsla og þjónusta Þá vil ég einnig geta fyrir- greiðslu Seðlabankans og margvíslegrar þjónustu hans við ríkissjóð, hélt Jóhannes Nordal enn áfram. Hefur þetta verið vaxandi þáttur í starfi bankans að undanförnu. Umfangsmest í þessu efni hef- ur verið starfræksla Ríkisá- byrgðarsjóðs, en við henni tók Seðlabankinn á árinu 1962 með sérstöku samkomulagi við fjármálaráðuneytið. Greiðslur sjóðsins vegna vanskila urðu enn mjög miklar á árinu 1963, eða 107 milj. kr., en veruleg- ur hluti af þeim stafaði af erfiðleikum togaraútgerðarinn- ar og hallarekstri Rafmagns- veitna ríkisins. Er allt kapp lagt á að lækka þessar greiðsl- ur með ötullegri innheimtu og samningum við þá skuldu- nauta. sem við sérstaka erfið- leika eiga að etja. Auk inn- heimtu ríkisábyrgðaskulda. fjallaði Ríkisábyrgðasjóður bæði um veitingu nýrra ríkis- ábyrgða og endurlán lánsfjár á vegum fjármálaráðuneytisins. Var þar fyrst og fremst um að ræða enska framkvæmdalánið, sem tekið var seint á árinu 1962. en mikill hluti þess kom til nota á árinu 1963. Seðlabankinn tók einnig að sér ýmiss konar fyrirgreiðslu vegna framkvæmdaáætlunar- innar 1963. Samdi ríkisstjóm- in um það við viðskiptabanka og stærstu sparisjóði, að þeir legðu 15% af aukningu innlána á árinu 1963 til framkvæmda innan áætlunai'innar. Tók Seðlabankinn að sér að ann- ast innheimtu þessa fjár og endurlána það til hinna ýmsu þarfa í samráði við fjármála- ráðuneytið. 1 heild námu þessi framlög af innlánsaukningu ársins 1963 80.9 milj. kr„ en í árslok var búið að ráðstafa samtals 58,7 milj. kr. af þessu fé til framkvæmda og fjár- festingasjóða. Framhald á 9 síðu. I sveitina Drengjajakkar Kuldaúlpur Drengjabuxur Gallabuxur Drengjapeysur Skyrtur Telpupeysur frá 10—16 ára Orlon, tækifærisverð kr. 150.— 250,— Drengjajakkaföt frá 6—14 ára. ■ Ávallt fyrirliggjandi: Æðardúnssængur Vöggusængur Koddar Damask - sængur- ver - lök Koddafóður Hálfdúnn Drælon barna- og Nýtt íslenzkt umíerðarspil Ekko er nafn á nýju umferðarspili sem ný- komið er á markaðinn. Spil þetta er ekki að- eins hugsað sem ieik- fang til dægrastytting- ar, — heldur og gagn- legt kennslutæki, jafnt fyrir unga sem gamla. Það er íslenzkur maður, Jón Sigurjónsson að nafni, sem samið hefur þetta nýja spil og ekki haft neinar útlendar fyr- ii-myndir við að styðjast. Spil- ið sjálft, borðið og umbúðirnar, er teiknað í Kassagerð Reykja- víkur og unnið að öllu leyti öðru þar. Sem fyrr var sagt er EKKO umferðarspilið hugsað, auk dægrastyttingar. sem þarfleg kynning á hinum margvíslegu umferðarmerkjum. Hefur spil- ið verið unnið í samráði við unferðarnefnd Reykjavíkur og lögregluna, en Slysavarnafé- lag Islands og tryggingafélög- in hafa veitt nokkurn styrk til að gefa spilið út. Söluumboð hefur heildverzlun Davíðs S Jónssonar. Hjúkrunarkonur óskast Hjúkrunarkonur vantar í Flókadeildina, Flókagötu 29. — Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í síma 16630. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. SIM4R .13171 - 1114» Leymdardómur PERSONNA cr s6, aB mcS S»ö8- ugum tíIrDimum hefur rannsóknarlíSi PERSONNA fekizt aS gora 4 fiugbtiHar eggjar á hverju bloBi. BiSjiS um PERSONNA blöSin. unglingasængur. PÖSTSENDUM ■ Patonis-ullargarnið fræga, til í öllum Iit- um og grófleikum. Prjónar og hringprjónar. PÓSTSENDUM i Vesturgötu 12. Sími 13570. AUCL ÝSING um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Kópavogs. Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hérmeð, að aðal- skqðun bifreiða fer fram 25. maí til 12. júní n.k., að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Mánudaginn 25. maí Y-1 til Y-100 Þriðjudaginn 26. maí Y-101 — Y-200 Miðvikudaginn 27. maí Y-201 — Y-300 Fimmtudaginn 28. maí Y-301 — Y-400 Föstudaginn 29. maí Y-401 — Y-500 Mánudaginn 1. júní Y-501 — Y-600 Þriðjudaginn 2. júní Y-601 — Y-700 Miðvikudaginn 3. júní Y-701 — Y-800 Fimmtudaginn 4. júní Y-801 — Y-900 Föstudaginn 5. júní Y-901 — Y-1000 Mánudaginn 8. júni Y-1001 — Y-1100 Þriðjudaginn 9. júní Y-1101 — Y-1200 Miðvikudaginn 10. júní Y-1201 — Y-1300 Fimmtudaginn 11. júní Y-1301 — Y-1400 Föstudaginn 12. júní Y-1400 og öll hærri nr. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar að Félagsheimili Kópavogs, og verður skoðun framkvæmd þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—17.30. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- gild ökuskirteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vá- tryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1964 séu greidd, og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Gjöld af viðtækjum í bifreiðum skulu greidd fyrir skoðun. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 19. maí 1964. \ Sigrurgeir Jónsson. Frá Kópavogskaupstað Unglingavinna Kópavogs hefst um mánaðamót maí — júní og starfar til mánaðamóta ágúst — september. í vinnuna verða teknir 13 ára drengir. Einnig geta sótt um vinnu drengir sem verða 13 ára fyrir n.k. áramót, svo og 14 ára drengir, en þeir verða þó því aðeins teknir að ástæður leyfi. Innritun fer fram að Skjólbraut 10 mánudaginn 25. maí kl. 5—8 e.h. og þriðjudaginn 26. maí kl. 5—7 e.h. Bæjarstjóri. Afgreiðslufólk Afgreiðslumenn og afgreiðslustúlkur ósk- ast til starfa í nokkrar verzlanir okkar. — Æskilegt, að umsækjendur hafi einhverja reynslu við slík störf. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Starfsstúlkur óskast Starfsstúlkur vantar nú þegar í Flókadeildina, Flókagötu 29, einnig stúlku til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan í síma 16630 SKRIFSTOFA RÍKIS SPÍTALANNA.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.