Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 12
SJÓN ER SÖGU RÍKARI í RAMMA GERÐINNI Undanfarna dag hefur staðið yfir sýning á íslenzk- um iðnaði og minjagripum í Rammagerðinni Hafnarstræti 5. Miðar sýning þessi einkum að því að vekja athygli ís- lendinga á hinum fjölmörgu skemmtilegu raunum sem i verzluninni fást, en hingað til virðist það hafa verið álit Blaðamaður og ljósmyndari Þjóðviljans brugðu sér I gær í forvitnisferð niður í Rammagerð til að skoða sýn- inguna — og komu aftur all- miklu fróðari en áður. Þeir hittu fyrir í verzluninni af- greiðslustúlkurnar, Betzy EI- íasdóttur og Magneu Sigurð- ardóttur, sem veittu greið- Hér sjáum við hinn skemmtilega vefnað Geirlaugar Jónsdóttur. Karólína Guðmundsdóttir hefur líka sitt til málanna að leggja hvað vefnað snertir. Hér sjáum við muni er hún hefur ofið. flestra að minjagripaverzlan- ir væru eingöngu fyrir út- lendinga og ættu Islendingar ekkert erindi í þær. Má segja að sýning þessi sé vel heppn- uð, enda hefur hún verið mjög vel sótt. lega allar upplýsingar um sýningarmuni. Þær voru sammála um að ekki væri vanþörf á að kynna íslenzka minjagripi og iðnað einmitt fyrir Islendingum og að það væri skemmtilegt að sjá hve sýningargestir væru yfirleitt undrandi á fjölbreyttu og vönduðu vöruvali verzlunar- innar. Mesta eftirspurn kváðu þær vera eftir gærum, skinn- um, lopapeysum og vefnaði, allskonar. Sem dæmi tóku þær skínandi fallegan vefnað frú Geirlaugar Jónsdóttur og sögðu að hann rynni út eins og heitar lummur. Keramik- munir virðast einnig eiga sí- auknum vinsældum að fagna. A sýningunni eru fallegir útskornir munir. gerðir af Guðvaldi Jónssyni, þar á mcðal eru ýmsar stærðir af hinum fornu matarílátum ls- lendinga — öskum. Sögðust stúlkurnar kunna því hálf- illa þegar Iandar þeirra bentu á askana og spyrðu hvað þessar DÓSIR kostuðu. Á einni hillunni tróna upp- stoppaðir fuglar Kristjáns Geirmundssonar og á annarri má sjá litlar brúður á ís- Ienzkum búningum. Þannig mætti lengi telja. Við viljum aðeins segja að sjón er sögu ríkari. Á sýningunni eru gripir frá fyrirtækjum og fjölmörg- um einstaklingum. Sýningar- tími er frá 9 — 22 virka daga og 14 — 22 á helgidögum, og lýkur henni næstkomandi sunnudagskvöld. Eigandi rammagerðarinnar er Jó- hanncs Bjarnason. Fræðslumálin rædd í borgarstjórn Rannsakaðar verði f jar- vistir barna úr skólum Eins og kunnugt er af fréttum hefur Barna- verndarnefnd Reykjavíkur lýst því í ársskýrslu sinni, að mörg böm á fræðsluskyldualdri hætti að sækja skóla án lögmætra ástæðna og án þess að rönd verði við reist við núverandi aðstæður. Séu sum þessara barna mjög fákunnandi og jafn- vel ólæs. Mál þetta var rætt á fundi borgarstjórn- ar í síðustu viku. Var þar samþykkt að fela Barna- vemdarnefnd að gera skýrslu um mál þetta, hve mikil brögð séu að slíku. Sú er orsök til þess, að í árs- skýrslu Barnaverndarnefndar Skákkeppni bankamanna og Hreyfils Miðvikudaginn 20. þ.m. fór fram skákkeppni milli banka- manna í Reykjavík og Taflfé- lags Hreyfils og var teflt á 30 borðum. Keppnin fór fram í húsakynnum Landsbankans. Bankamenn unnu með 19 vinn- ingum gegn 11. Þetta var 9. skákkeppnin milli þessara aðila og er keppt um veglegan bik- ar sem Landsbankinn gaf f þessu skyni. Bikar þessi vinnst til eignar 3svar í röð eða 5 sinn- um alls. segir, orðrétt á bls. 3. „Samfara brotunum eru oft ýms önnur vandræði, sem ekki er að jafn- aði getið í skýrslum nefndarinn- ar. Má hér t.d. nefna fjarvistir barna úr skólum. Mörg börn á fræðsluskyldualdri hætta að sækja skóla, án lögmætra á- stæðna, og án þess að rönd verði við reist við núverandi aðstæður Flest eru börn þessi á tveim síðustu árum fræðslu- skyldunnar, en önnur hafa ekki lokið barnaprófi, ér skólavist þeirra lýkur. F.ru sum þeirra mjög fákunnar.di. jafnvel ólæs. Er hér um vanda að ræða, sem nauðsyn ber til að taka föstum tökum“. Barnavemdarnefnd Á fundi borgarstjórnar bar fulltrúi Alþýðubandalagsins. Al- freð Gíslason, fram tvær til- lögur Er hin fyrri svo hljóð- andi; „Borgarstjórnin viðurkennir nauðsyn þess að efla starfsemi Barnaverndarnefndar Reykja- víkur, svo sem á er bent í árs- skýrslu nefndarinnar 1963, og æskir tillagna hennar um aukn- ingu starfsliðs og annað, er þurfa þykir til bættra starfsskilyrða“. Hin síðari tillaga Alfreðs var svohljóðandi: „I tilefni þeirra ummæla í skýrslu Barnaverndamefndar Reykjavíkur 1963, að „mörg börn á fræðsluskyldualdri hætta að sækja skóia án lögmætra á- stæðna og án þess að rönd verði við reist við núverandi aðstæð- ur“, og að sum þessara barna séu „mjög fákunnandi, jafnvel ólæs“, óskar borgarstjórnin nánari upplýsinga um tilgreind atriði og fclur fræðsluráði ná- kvæma rannsókn þessa vanda- máls. Skal fræðsluráð að athug- un lokinni. senda borgarstjórn skýrslu um málið ásamt tillög- um sínum til úrbóta". Nokkrar umræður urðu um þessar tillögur Hvað hinni fyrri viðvíkur lagði Birgir Isl. Gunn- arsson (f) á það áherzlu, að Reykjavíkurborg vantaði nú mjög hæfa starfskrafta í þess- um málum, og bæri nauðsyn til að nýta betur það starfslið, sem fyrir væri. Lagði hann fram breytingartillögu og var hún á þá leið að skipuð skuli fimm manna nefnd til þess að eera t.illögur um það. hversu megi betur búa að Barnavernd- arnefnd og starfsemi hennar. Var tillaga Alfreðs samþykkt með þeirri breytingu. Fjarvistir úr skólum Enn urðu nokkrar umræður um hina síðari tillögu Alfreðs. Reyndu frú Auður Auðuns og Úlfar Þórðarson að hengja hatt sinn á það, sem segir í skýrslu Barnaverndarnefndar um ólæsi barna, og töldu mjög vafasamt, að brögð gætu verið að slíku. Minntust þau minna á hitt, sern þó er aðalatriðið í skýrslu nefndarinnar, nefnilega það að börn hætti að sækja skóla án Framhald á 9. siðu. Föstudagur 22. maí 1964 — 29. árgangur — 112. tölublað. MæStablémið selt á sunnudaginn kemur N.k. sunnudag verður mæðra- blómið selt hér í Reykjavik til ágóða fyrir hvíldarheimili handa mæðrum með börn sem Mæðra- styrksnefnd rekur að Hlaðgerð- arkoti í Mosfellssveit. f fyrra kom inn fyrir sölu mæðrablómsins 126 þúsund kr. og rann það fé allt til hvíldar- heimilisins. Sumardvalirnar að Hlaðgerðarkoti hefjast upp úr 17. júní og voru dvalardagar í fyrrasumar um 2270. Dvöldust þar alls 45 mæður með 115 börn og skiptust þau niður í 4 hópa er hver dvald'st 15 daga á heimilinu. Síðustu 8 dagana var svonefnd sæluvika fyrir aldraðar konur. Mæðrastyrksnefnd hefur nú rekið þessa starfsemi i 30 ár og hafa frá upphafi dvalizt 1130 konur með 4000 börn á vegum nefndarinnar og auk þess 1400 til 1500 gamlar konur. Heimilið að Hlaðgerðarkoti er nú orðið of lítið og er ætlunin að byggja við það þegar efni leyfa. Er búið að teikna viðbygg- ingu með 6—8 herbergjum og stórri stofu. Einu tekjumar sem Mæðra- styrksnefnd hefur til þessarar starfsemi er ágóði af sölu mæðra- blómsins svo og gjafir. S.l. vetur var þó húsnæðið að Hlað- gerðarkoti leigt til skólahalds og er það í fyrsta skipti sem það er nýtt að vetrinum. Mæðrablómið í ár er rós og verður það selt á götum bæjar- ins á sunnudaginn, ennfremur í öllum barnaskólum, fsaksskóla og Stýrimannaskólanum gamla, Vesturbæjarskóla. svo og á skrifstofu Mæðrastyrksnefndar að Njálsgötu 3. Eru foreldrar hvattir til að leyfa bömum sín- um að selja mæðrablómið og Reykvíkingar að taka sölubörn- unum vel og styrkja þessa starfsemi með því að kaupa blómið. Kostar það 10 krónur. Átta Hrevfilsbílstjórar sækja skákmót í Malmö 25. þ.m. hefst í Malmö í Sví- þjóð eínmenningskeppní NSU í skák en NSU er skammstöfunin á heiti skáksambands norrænna sporvagnast.ióra. Heldur sam- bandið skákmót árlcga, annað árið fer fram sveitarkeppni en hitt árið einmenningskeppni. Taflfélag Hreyfils er aðili að NSU og hafa skákmenn Hreyfils jafnan reynzt sigursælir á mót- um sambandsins. Síðasta ein- menningskeppni var haldin hér í Reykjavík árið 1962 og varð Þórður Þórðarson þá sigurveg- ari f 1. flokki og hlaut titilinn skákmeistari NSU. Að þessu sinni fara 8 skák- menn frá Taflfélagi Hreyfils ut- an til keppninnar. Þar af munu þrír keppa í 1. flokki, þeir Ant- on Sigurðsson, Guðlaugur Guð- mundsson og Þorvaldur Magnús- son, en Þórður Þórðarson verð- ur ekki með að þessu sinni til þess að verja titilinn. Þá munu 3 skákmenn keppa í 2. flokki og 2 í 3. flokki. Skákmótið hefst eins og áður segir 25. þ.m. og þvi lýkur 30. þ.m. Síðasta flokkakeppni NSU var háð í Helsinki í fyrrasumar og var þá í fyrsta sinn keppt um Loftleiðabikarinn og vann sveit sporvagnastjóra frá Stokkhólmi gripinn f það sinn. Islenzku keppendumir fara utan á sunnudaginn. Sjú Enlæ heimsækir arabaríki í haust BAGDAD 20/5 — Haft er eft- ir góðum heimildum í Bagdad, höfuðborg Iraks, að Sjú Enlæ, forsætisráðherra Kína, muni koma þangað í opinþera heim- sókn i haust og heimsækja þá í leiðinni höfuðþorgir fleiri araba- ríkja. Einar Olgeirsson rifjar upp „hin gömlu kynni" af Davíð Jr 1 nýju hefti af tímaritinu Rétti, 1. hefti 1964, ritar Einar Olgeirsson grein er hann nefn- ir „Hin gömlu kynni.” ir Hann segir þar frá kynn- um sínum og Davíðs Stefáns- sonar á Akureyri svo ljóst og fallega, að greinin má teljast eitt það bezta sem skrifað hef- ur verið um Davíð nú við and- lát hans. Flestum mun fara svo að þykja mynd Davíðs sem manns og skálds skýrast við lestur þessarar greinar. ir Það er t.d. ekki hætt við að myndin af þeim vinunum, Einari og Davíð. gleymist, sem Einar lýsir þannig: ★ „Við Davíð áttum margar stundir saman. Hann þýddi fyr- ir mig vísu Tarquato Tasscs í „Rousseau” ... Og þegar ég fékk blóðspýting einn morgun- inn, líklega í febrúar—marz 1926, dæmdur berklaveikur til Vífilstaða, þá hafði ég ekki lok- ið niðurlaginu í „Rousseau” þótt mestallt væri prentað. Þá var það Davíð, sem sat hjá mér uppi á kvistinum. þar sem ég bjó í húsi Böðvars Bjarkan. — og síðustu fjórar setningarnar í „Rousseau” eru mótaðar f hans fagra stíl, skrifaðar af honum, þó hugsun þeirra sé mín. Davíð þekkti það sjálfur hvað berkla- veikin var. Hann hafði leng; átt við hana að stríða. Hann reyndist sami góði félaginn í stríðu sem blíðu“,- ir Grein sinni lýkur Einar með því, að minna á. að nú vilji all- ir eigna sér Davíð, líka þeir sem sízt skyldi. og breiða yfir ádeiluna í kvæðum hans. ir „Sú íslenzk alþýða sem Davíð unni, á að varðveita hann frá því hlutskipti. Hann á skilið að geymast í hjarta hennar ekki aðeins vegna listarinnar heldur vegna þess boðskapar, er hann flutti. Ég óska gömlum vini þess hlutskiptis, sem hann sjálfur mótaði nokkurn veginn með þessum orðum í niðurlagi ..Rousseaus” forðum: ir Meðan eymd og undirokun ríkja. meðan réttur lítilmagnans er einskis virtur en auðurinn f hávegum hafður. megi andi hans og ljóð kveða kjark í hina hrjáðu og smáu, en dauðadóm yfir hverju því þjóðfélagi, sem ójöfnuður og ofbeldi hafa mynd- að og varðveitt.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.