Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.05.1964, Blaðsíða 3
Föstudagur 22. maí 1964 ÞIÖÐVILIHíN — SlÐA 3 Bandarískar herþotur sendar yfír Krukkusléttuna / Laos Viðurkennt í Washington að Bandaríkiamenn íhugi að fœra stríðið í S-Vietnam út fyrir landamœri þess WASHINGTON 21/5 — Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna skýrði frá því í dag að bandarískar herþotur hefðu hafið könnunarflug yfir Krukku- sléttu í Laos og væri það gert að tilmælum Súvanna Fúma, forsætisráð- herra stjórnarinnar í yientiane. Jafnframt er haft eftir öðrum heimildum í Washington að Bandaríkjastjórn íhugi að sýna Pathet Lao í tvo heim- ana, ef til vill með beinum hernaðaraðgerðum í Laos og Fulbright, for- maður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, viðurkenndi að íhugað hefði verið að færa stríðið í Suður-Vietnam út fyrir landamæri þess. Vitað er að Bandaríkjastjórn hefur ýmsar ráðagerðir á prjón- unum um hvernig hún geti ógn- að Pathet Lao fyrir utan beina hernaðaríhlutun í Laos. Meðal þeirra ráðstafana sem koma til greina eru sending bandarísks herliðs til Thailands eins og gert var þegar uggvænlega horfði í Laos 1962, aukið framlag Banda- ríkjanna til stríðsins í Suður- Vietnam eða að senda sjöunda bandaríska flotann upp að ströndum Indókína. Sagt er að enn hafi engin ákvörðun verið tekin um hvað gert skuli. Ekki vonlaus Rusk utanríkisráðherra gaf ut- anríkismálanefnd öldungadeildar- innar skýrslu í dag um ástand- ið í löndum Indókína og kvað það vera alvarlegt. en þó ekki með öllu vonlaust ennþá. Ráð- herrann hafði verið kvaddur á fund nefndarinnar vegna ákaeru Kambodja í Öryggisráðinu á hendur Bandaríkjunum og vegna síðustu atburða í Laos og Suð- ur-Vietnam. „Heræfingar“ Rusk ræddi stutta stund við blaðamenn eftir nefndarfundinn og sagði að enn hefði engin á- kvörðun verið tekin um breytta stefnu Bandaríkjanna f Suðaust- ur-Asíu. Fulbright, formaður ut- anríkismálanefndarinnar, sagði aðspurður að íhugað hefði verið að færa stríðið í Suður-Vietnam út fyrir landamæri þess, og átti þar sjálfsagt fyrst og fremst við fyrirætlanir um árásir á Norður- Vietnam, en hann flýtti sér að bæta við, að allt væri athugað sem orðið gæti til að koma mál- um í betra horf. Haft er eftir stjómarerindrek- um í Washington að Bandaríkin og nokkrir bandamenn þeirra í SEATO undirbúi nú sameigin- legar heræfingar í Thailandi, sem myndi verða úr ef ástandið í Laos versnaði enn. Rusk og að- stoðarmaður hans Bundy ræddu f gær við fulltrúa SEATO-ríkja. Óvopnaðar þotur Sagt er að herþotur sem send- ar hafa verið til njósna yfir Krukkusléttu séu óvopnaðar. en formælandi utanríkisráðuneytis- Loftárásir / Suður-Arabíu ADEN 21'/5 — Brezkar orustu- þotur af gerðinni Hunter héldu í dag áfram eldflaugaskothríð sinni á virki uppreisnarmanna sem búið hafa um sig í fjöllun- um í Radfan-héraði. Þá voru aðrar flugvélar af gerðinni Shackleton sendar með vélbyssuskothríð gegn uppreisn- armönnum, og skotið var á þá úr fallbyssum og sprengjuvörp- um. Uppreisnarmenn svöruðu skothríðinni. Enn i dag barst brezka her- liðinu i Suður-Arabíu liðsauki frá Bretlandi og meira lið er væntanlegt þangað. ins vildi ekkert um það segja af hvaða gerð þær væru. Þær myndu taka myndir af hersveit- um Pathet Laos á Krukkuslétt.u. birgðastöðvum þeirra og sam- bandsleiðum við N-Vietnam. Þær upplýsingar sem njósnaþot- umar öfluðu myndu strax látn- ar hinni alþjóðlegu eftirlitsnefnd í té, sagði formælandinn. Stevenson í ÖR Stevenson. aðalfulltrúi Banda- ríkjanna hjá SÞ, sem kvaddur var heim úr ferðalagi í Evrópu sérstaklega til þess að verja mál- stað Bandarikjanna í Öryggisráð- inu, þar sem þau liggja undir kæru stjómar Kambodja fyrir ofbeldisáráslr yfir landamæri S- Vietnams, hélt varnarræðu sína í ráðinu í dag. Mikið veður hafði verið gert út af þeirri ræðu og hafði hennar því verið beðið með talsverðri eftirvætingu. Þeir sem búizt höfðu við stór- tíðindum urðu þó fyrir vonbrigð- um. Stevenson hafði ekkert markvert til málanna að leggja. Kýpur-Tyrkir skutuáFinna NIKOSÍU 21/5 — Tyrkir á Kýpur skutu í gærkvöld mörg hundruð skotum á finnska sveit í gæzlu- liði SÞ. Þetta gerðist skammt frá þorpinu Jerolakkos og hæfði eitt skotið finnska hermanninn Mati- kainen og lét hann lífið. Finnar svöruðu skothríðinni eftir nokkra stund, en skutu aðeins fáum skotum. Leiðtogi Tyrkja á Kýp- ur, Kutchuk varaforseti, hefur lofað að rannsaka málið. Mao að semja við Sjang? HONGKONG 21/5 — Blöð í Hongkong skýrðu frá því í dag að einn af framámönnum Kín- verja, prófessor Sjang Sjisjao, væri staddur í borginni, senni- lega í því skyni að reyna að Ieita sátta við Sjang Kajsék ok menn hans. Brezka blaðið „China Mail” og hið íhaldssama kínverska blað „Mingnao“ kunna bæði að segja frá því að prófessor Sjang hafi komið til Hongkong fyrir hálfum mánuði. Hann hafi verið þar á ferð fyrir einu ári eða svo og hafi þá reynt að Koma á sáttafundum milli full- trúa Sjang Kajséks ög ráða- manna í Peking. Blöðin segja að hann sé í sömu erindum í Hongkong nú. Á það er bent að skömmu áð- ur en prófessor Sjang kom til Hongkong hafi Sjú Enlæ for- sætisráðherra sagt í viðtali við iapanskan blaðamann að fylg- ismenn Sjang Kajséks og kommúnistar gætu ef til vill tekið upp samvinnu sín á milli í þriðja sinn. Hann taldi að bezt myndi hægt að komast hjá erjum á landa- mærum Suður-Vietnams og Kambodja, ef stjórnir beggja landa kæmu sér saman um að merkja þau vel og hafa varð- lið beggja vegna þeirra, en til mála gæti einnig komið að SÞ sendu gæzlulið þangað. Hann fjallaði um stríðið í Suður-Viet- nam og lét sem Bandaríkjamenn væru þar sárnauðugir og einung- is fyrir þrábeiðni stjórnarvalda landsins, en forðaðist vitaskuld að nefna á nafn þann mann sem kallaði á hernaðaraðstoð Banda- ríkjanna, Ngo Dinh Diem. Hann taldi að lausn Laosmáls- ins væri harla einföld: Allt er- lent herlið skyldi halda úr land- ir.u, en hugkvæmdist að sjálfsögðu ekki sú lausn varð- andi Suður-Vietnam. Kambodja hafnar Fulltrúi Kambodja hafnaði algerlega tillögum Stevensons og ítrekaði tilmæli stjómar sinpar um að kvödd yrði saman al- þjóðaráðstefna, sem ætti að hafa það höfuðverkefni að tryggja hlutleysi og sjálfstæði landsins. Hin alþjóðlega eftirlitsnefnd með Genfarsamningnum um Indókína frá 1954 ætti að hafa eftirlit með landamærum Kambodja og Suð- ur-Vietnams. Alltaf annað slagið berast fréttir frá Caracas, höfuðborg Venezúela, um að meiriháttar skemmdarverk hafi verið unnin þar eða annars staðar og oftast nær verða fyrirtæki í eign Bandaríkjamanna fyrir þcim, og cr þcss vegna talið að þar hafi verið að verki menn úr þjóðfrelsishernum svonefnda, FALN, sem hefur búið um sig í fjöll- um Iandsins, en lætur þó jafnan til sín taka í þéttbýlinu. Myndin er af geysimiklu eldhafi í Caracas eftir sprengingu sem varð þar í verksmiðju einni. agnby'tingarmennuröu að iáta í minni pokann á Kúbu MIAMI 21/5 — Digurbarkalegar hótanir kúbanskra flótta- manna um stórfelldar aðgerðir gegn stjórn Castros i til- efni af fullveldisdegi Kúbu 20. maí reyndust innantóm glamuryrði og hafa foringjar þeirra m.a.s. sjálfir viður- kennt að þessar hótanir hafi verið í áróðusskyni. -----—------------------------<*> Lausn de GauEle í Laos og Viefnam: Öll ríkin í Suðaustur- Asíu verði hlu tlaus PARÍS 21/5 — De Gaulle forseti lagði á það höfuðáherzlu þegar haldinn var ráðuneytisfundur í París í dag til að ræða ástandið í löndum Indókína að finna yrði leið út úr ógöngunum sem miðaði að því að tryggja hlutleysi allra nkja í Suðaustur-Asíu. Það væri eina trygging fyrir friði, öryggi og sjálfstæði iandanna þar. De Gaulle hafði lagt svo mikla á'herzlu á þessi mál að hann hafði skundað til Parísar úr hvítasunnuorlofi sínu til að vera í forsæti á ráðuneytisfund- inum. Peyrefitte upplýsingamálaráð- herra skýrði blaðamönnum frá sjónarmiðum forsetans eftir fundinn. De Gaulle sagði ráð- herrum sinum að engin önnur lausn væri á Laosmálinu né reyndar öðrum vandamálum í Suðaustur-Asíu heldur en full- komið hlutlevsi rikjanna þar sem stórveldin vrðu öll að á- byreiast Þau vrðu öll að skuld- binda sig til að forðast hvers ko.nar íhlutun um innanlands- mál þessara ríkja. Alþjóðaráðstefna Tillögur frönsku stjórnarinn- ar um nýja alþjóðaráðstefnu til að fjalla um Laosmálið voru birtar í dag. Samkvæmt þeim skulu öll aðildarriki Laossátt- málans frá 1962 eiga fulltrúa á ráðstefnunni og henni hagað á sama hátt og bá. þ.e. með bátttöku utanrikisráðherra. Stjórn Súvanna Fúma í Vi- entiane er hins vegar andvíg slíkri alþjóðaráðstefnu. vil! að- eins óformlegar viðræður sem fari fram í Vientiane milli stór- Fréttaritari Reuters í Miami segir að greinilegt sé að ekkert hafi orðið úr hinum boðuðu að- gerðum gegn stjóm Kúbu. Frétt- ir sem borizt hafi til Miami um útvarp og á annan hátt bendi til þess að í stað hinna miklu að- gerða sem foringjar flóttamanna höfðu tönnlazt á lengi fyrir full- veldisdaginn hafi ekki annað gerzt en smámunir sem varla sé orð á gerandi. Otvarpið á Kúbu skýrði frá því að kúbanskt varðskip hefði orðið vart tveggja sprengjuflug- véla af gerðinni B-26 undan strönd Kúbu, en engar fréttir hafa borizt af skot- eða sprengju- árásum. í annarri frétt sem talið er að hafi komið frá kúbanskri útvarpsstöð var sagt að skotið hafði verið úr tveimur bátum á vita einn við ströndina. Einn af formælendum samtaka gagnbyltingarmanna sem höfðu boðað hinar miklu aðgerðir skýrði þá einnig frá því í Miami í morgun að samtökin hefðu náð markmiði sínu, sem hefði aðeins verið það að gera stjóm Castros erfitt fyrir, einkum með því sem heitir „sálrænn hemaður“, þ.e. áróðri og blekkingum. MADRID 21/5 — Einn kunn- asti nautabani Spánar, hinn 27 ára gamli Manuel Benitez. særð- ist hættulega i nautaati í Madr- id í gær. veldafulltrúa. Þeir ræði aðeins um hvað gera skuli eftir síð- ustu atburði í Laos, en haggi annars ekki við sáttmálanum frá 1962. Það er hins vegar greinilega vilji de Gaulle að allar hliðar Laosmálsins verði teknar til athugunar á nýjan leik og þá í sambandi við til- lögur hans um allsherjarhlut- leysi landanna í Indókína. Bretar andvígir Brezka stjórnin sem skipaði ásamt sovétstjórninni forsæti ráðstefnunnar 1962 er andvíg tillögum de Gaulle um nýja ráð- stefnu, en líklegt má telja, að sovétstjórnin taki betur í þær. Gromiko utanríkisráðherra sendi annars í dag Súvanna Fúma bréf og lofaði honum að hún myndi halda áfram að leggja sig fram við að koma á nýjum viðræðum til lausnar Laosdeilunni. Ný sending AF HOLLENZKUM sumarkápum í fjölbreyttu úrvali. — Nýir hattar um helgina — BERNHARD LAXDAL Kjörgarði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.