Þjóðviljinn - 22.05.1964, Síða 10

Þjóðviljinn - 22.05.1964, Síða 10
20 SlÐA HðÐVHJlNN Þið stúdentsárin æskuglöð EFTIR HANS SCHERFIG sarrunála: — Blomme lektor hefði aldrei stytt sér aldur. Rétt- látur, samvizkusamur maður. Hamingjusamur í starfi sínu. — — Þrúgaður, vonsvikinn. ó- hamingjusamur maður, — sagði Riege. — Hann hafði allar hugs- anlegar ástæður til að fremja sjálfsmorð. Það varð bókstaflega ekki umflúið. — Og Riege sann- aði að það eitt að borða malt- brjóstsykur í svo ríkum mæli sem Blomme hafði gert, hlyti ó- hjákvæmilega að leiða til sjálfs- morðs. Þessi barnalegi löstur bar vott um vanmetakennd, sem ekki gat endað nema með morði eða sjálfstortímingu. — — Mjög athyglisvert, — sagði Hemild. — Þvættingur! — sagði Thor- sen. Og svo upphófust umræður um dauða Blomme lektors, Umræður færustu manna. Lækna, lögfræð- inga, uppeldisfræðinga. sálfræð- inga. Og morðinginn tók líka þátt í umræðunum. FJÓRTANDI kafli Þeir. voru komnir að kaffinu og sátu við smáborð og töluðu U'm minningarnar. 1 smáhópum og klíkum eins og í skólanum hér áður fyrr. ■— Líkjör eða konjpk.| spurði þjónninn. — I guðs bænum ekki líkjör! — sagði lögreglustjórinn. — Konjak. Konjak er betra. — — Maður kysi heldur genever, ef hann væri til, — sagði Mogen- sen. — Hann er langheilnæmast- ur af öllum þessum brenndu drykkjum. Og ef hægt væri að fá köku með? Hélzt svo kallaða medalíu. — Riege horfði á hann með áhuga og brosti þýðingar- miklu brosi. Herrarnir voru heitir af víni og mat. Þeir voru ekki lengur ó- HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðsla oq snyrtistofa STFTNT! oq DÖDÖ Langaveart 18 171 h. ílyfta) SfMT 2461 fi. P B R !W A Garðsenda 21 SfMI 33968. Hárgreiðslu- og snyrtistofa. Dömur’ Hárgreiðsla <dð alira hæfi. TJARNARSTOFAN T.lamargötu 10 Vonarstrætis- meqin. — StMI 14fifi2 HARGRETÐSLUSTOFA AUSTCRBÆJAR fMaría Guðmundsdóttir) Laugavegi 13 — SÍMi 14G56 — Nuddstofa á sama stað - kunnugir hver öðrum. Nú vissu þeir hver var hver og notuðu skímamöfn og uppnefni. Það var galsi í þeim og sprell og þeir slógu á lærin hver á öðrum. Það voru frímínútur og sumar- leyfi og skógarferð. Kaffibollamir eru bornir út og sjússglösin koma í staðinn. Það má reykja, Ellerström dómari og Nielsen undirkennari mega líka reykja. Vindlareykurinn er þétt- ur. — Bara mamma verði nú ekki hrædd um mig, þótt ég komi seint, — hugsar dómar- inn...... 9 Það er bekkurinn sem er aftur samankominn. Það eru drengim- ir með skólatungutakið og sög- urnar. — Það er hið liðna sem ríkir, segir Haraldur Hom. með- an nútíminn hverfur óséður í móðu hins óverulega. — Oehlen- schlager, — segir Nielsen undir- kennari. 1 þessu andrúmslofti getur séra Nörregaard-Olsen ekki á sér set- ið að halda ræðu. Hann hefði viljað tala meðan á borðhaldinu stóð, en Jörgensen eyðilagði allt fyrir hontmi með því áð notá söguna um gömlu stúdentshúf- una sem fannst við stórhrein- gerningarnar. Það var einmitt þetta með stúdentshúfuna, sem mölurinn hafði grandað, sem Nörregaard-Olsen ætlaði að leggja útaf í ræðu sinni. Og það var ekki tími til að finna upp á neinu öðru. En nú talar hann af innblæstri. Frjálslega og af munni fram. Hann rís á fætur, beinn og stælt- ur og slær í whiskýglasið sitt. Og hann talar um bamshug- ann. Um hamingju og frelsi æskuáranna. Bemskuárin, þessa glötuðu paradís. Hina saklausu sælu. Hið fyrsta fagra vor. Blóm af paradísarvöllum. — — Ingemann! — segir undir- kennarinn. — Hin sólbjarta, glaða og góða bemska. Hið hreina og beina. Hið einfalda. Hið sæla. Ö, vinir! Vinir! Minnizt þið þessara daga? Getið þið manað þá fram í huganum? Getið þið fundið hugblæ þeirra? Finnið þið anda þeirra? Þegar lífið var ungt. Þegar heimurinn var bjartur og blár og tær. Þegar himinninn var á jörðinni! — — Oehlenschlager, — hvislar undirkennarinn. — Gullhomin.— — Já, bernskan. Það var himnaríki. Það var sælan. Það var hamingjan. Hin djúpa. mikla og eilífa hamingja, sem við firmum aðeins í þetta eina sinn á ævinni. Ó, vinir! Gætum við aðeins endurlifað þessa daga! Gætum við aðeins orðið böm á ný! — Rödd hans verður fagnandi. Rjótt andlit hans er forklárað. Augun eru glansandi og star- andi. Hann teygir armana eins og særingamaður út yfir við- stadda, eins og hann vilji mana eitthvað fram. Þetta er að verða dálítið óþægilegt. Dr. Thorsen er með áhyggjusvip. Robert Riege brosir ónotalega. Amsted horfir niður fyrir sig. Ellerström dóm- ari nagar á sér neglumar, þrátt fyrir bann móðurinnar. En æsingur ræðumannsins fer vaxandi. Hann hækkar röddina og hrópar á óhugnanlegan hátt. — Ö. gætum við aðeins end- urheimt þessa daga! Gætum við stöðvað rás tímans! Gætum við fært hina mikiu klukku heims- ins afturábak! Gætum við snúið við tímans straumi! Gætum við sært alheiminn: Gef oss æskuár- in aftur! Leið oss aftur til sælu- lands bamæskunnar! — fimmtAndi kafli Það hringir vekjaraklukka einhvers staðar í myrkrinu. Maður veit ekki strax hvað er á seyði. Finnur aðeins til ó- þæginda. Það er beinlínis sárt. Og svo kemur allt í einu á daginn að það er vekjaraklukk- an. Maður er kominn aftur til jarðarinnar. Var langt, langt í burtu. Dreymdi eitthvað en mgn nú ekki lengur hvað það var. Og hringingin drynur þama úti í myrkrinu og kuldanum. Það er ný dagur að renna upp fyrir böm jarðar. Þeim er næstum óglatt af syfju. Það væri svo dásamlegt að mega snúa sér á hina hliðina undir hlýrri sænginni og hverfa aftur inn í draumalandið. Láta sig sökkva niður í algleymið. Kannski væri hægt að halda á- fram með drauminn. — Flýttu þér nú á fætur! — hrópar rödd. — Klukkan er yfir hálf. Þú kemur of seint. — Og þá verður að einbeita hug- anum að nútíðinni. Setjum nú svo að það sé stærðfærði í fyrsta tima og maður verði að rifja þetta upp rétt einu sinni. Mað- ur verður að taka á allri orku sinni til að muna hvemig þessu er háttað. Það er ekki hægt að skílja það. En maður verður að muna, að Leg þeirra punkta, sem tiltekið strik sést frá undir tilteknu horni, er tveir hring- bogar, sem hafa hið tiltekna strik fyrir streng og taka hið tiltekna horn. Og einnig það að Leg þeirra punkta, sem eru jafn- langt frá tveimur tilteknum lfn- um, sem skerast, er línukross- inn, sem helmingar hornin milli línanna ...... — Það á ekki að lesa meðan verið er að borða! Þá verður ekkert gagn að matnum. Það var nógur tími í gær til að lesa lex- íumar, en þá varstu alltaf á kafi í einhverjum leik. Þú sagðist kunna þetta allt saman. Svona er þetta alltaf! — Það stendur klukka á skápn- um í borðstofunni, og vísamir snúast meðan verið er að borða hafragrautinn. Maður gleypir í sig grautinn og brennir sig, en það er enginn tími til að borða hann rólega. MSður gengur ekki í skólann. Maður hleypur. Gegnum myrkrið og regnvota þokuna. 200 litlir karlar hlaupa í áttina að sama marki. Ur öllum homum borgar- innar er stefnt að gráu bygg- ingunni við Frúartorg. Það er litið á þær klukkur sem fyrirfinnast á leiðinni. Þeir vita nákvæmlega hvað klukkan á að vera á hinum ýmsu áföngum leiðarinnar, og á hverjum morgni mæta þeir sama fólkinu á á- kveðnum stöðum. Fólki sem fer á skrifstofur. Bömum sem eru á leið í aðra skóla. Á hverjum degi er hægt að reikna út hvað tímanum líður eftir þessum veg- farendum. Eftir blautum götum þramma 200 drengir. Þeir bera með sér lærdóminnl í töskum og skjóðum og bakpokum, svo að þeir eru með slagsíðu af lærdómi. Rúm- fræði og mannkynssaga og lat- nesk málfræði og franskar les- æfingar og ensk byrjendabók og Gallastríð Gæsars og eðlisfræði Sundorphs og efnafræði Weissog lífeðlisfræði Kroghs og ritæfing- ar Kapers og kver Lúthers. Þeir stynja undir byrði menningar og menntunar og pennastokka og stílabóka og reikningshefta. Af stað, af stað eftir götunum þjóta þeir. Gegnum nóvember- þokuna og myrkrið. 1 regnslám og vatnsleðurstígvélum. Einn er með brauðsneið í hendinni. sem hann hafði ekki tíma til að borða heima. Annar er með kennslubók í stærðfræði og les á hlaupunum. — Gáðu hvar þú gengur, strákur! — Sumir eiga heima svo langt í burtu, að þeir verða að aka með sporvagni og eru með mán- aðarkort í snúru. Og þeir sitja í troðfullum morgunvagninum og lesa gallastríð og þýzku. Sum- ir þjóta á reiðhjólum gegnum umferðina. Á undan sporvögnum og bílum á fitugu malbikinu. Það skröltir í pennastokkunum í baktöskum þeirra og nestis- pakkinn flezt út milli bókanna. Af stað, af stað. Það stendur kennari úti og fylgist með þeim sem koma of seint. Á nákvæmlega réttum tíma á að loka hliðinu, svo að hinir siðbúnu neyðist til að hringja háværri bjöllunni. Hlið- vörðurinn situr í litla afkiman- um sínum og opnar hliðið með hugvitssamlegum tækniútbúnaði. Og kennarinn sem bíður, kemur þjótandi og löðrungar þá. Augu hans skjóta gneistum bakvið gleraugun. Fullorðni maðurinn er gramur og fokvondur yfir af- brotinu. Allir safnast saman á sal í morgunsöng. 1 þéttum hnapp standa drengirnir öðrum megin. Hinum megin standa kennaramir og gæta þess, að enginn laumist til að lesa lexíuna meðan á morgunsöng stendur. Inni er þefur af blautum föt- um og vatnsleðri og gömlum smjörpappír. Það stendur eimur upp frá stóra, kringlótta kola- ofninum. Rúðumar döggvast. Og svo ómar söngurinn út yfir Frúartorg og upp til Guðs. Þann signaða dag vér sjáum enn með sólunni af djúpi rísa; oss alla það veki, auma menn. að oss virðist drottinn lýsa; því lýsi vor verk, oss, ljóssins böm, að lengur ei myrkrin hýsa. Lassen, ungi undirkennarinn, syngur hárri röddu og dregur seiminn. Rödd hans yfirgnæfir ailar aðrar raddir. Rektor horfir niður í sálmabókina og hreyfir agnarlítið munninn. rétt eins og hann væri sjálfur að syngja. Hinir kennaramir horfa bara vökulum augum á drengina. Uti á tómum göngunum. þar sem votar yfirhafnir hanga og taka sig, stendur umsjónarkenn- arinn í skoti og bíður eftir bráð. Og þegar dyrabjallan hringir og opnunarútbúnaður hliðarvarðar- ins er settur af stað, kemur hann þjótandi og slær hinn síð- búna syndasel utanundir. Föstudagur 22. maí 1964 SVEFNSÓFAR - SÓFASETT HNOTAN húsgagnaverzlun FERDABILAR 17 farþega Mercedes-Benz hópferðabílar af nýjustu gerð, til leigu í lengri og skemmri ferðir. — Afgreiðsla á Sendibílastöðinni í síma 24113, á kvöldin og um helgar. Simi 20969. HARALDUR EGGERTSSON, Grettisgötu 52. Útgerðarmenn Viljum taka á leigu góðan 70—100 lesta bát, helzt með kraftblökk, í sumar eða allt árið, til útgerð- ar frá Keflavík. ATLANTOR h.f, Austurstræti lOa. Reykjavík. Símar 17250 og 17440. Frá barnaskólum Hafnarfjarðar Börn fædd 1957, mæti til innritunar í dag kl. 2—4 sem hér segir; í LÆKJARSKÓLA komi böm búsett VESTAN LÆKJAR og á HVALEYRARHOLTI. í ÖLDUTÚNSSKÓLA komi börn búsett S-UNNAN LÆKJAR. Skólastjórar. Mæðradagurinn er á sunnudaginn FORELDRAR, látið börnin ykkar selja litla fal- lega mæðrablómið, sem afhent verður á sunnu- daginn frá kl. 9.30 í eftirtöldum skólum: ísaksskóla Breiðagerðisskóla Hamrahlíðarskóla Vesturbæjarskóla (Stýri- mannaskóli, Öldugötu) Melaskóla Langholtsskóla Vogaskóla Laugarnesskóla Miðbæjarskóla Austurbæjarskóla og á skrifstofu mæðrastyrksnefndar Njálsgötu 3. — Góð sölulaun — Hjálpið öll til að gera dag móðurinnar sem ánægju- legastan. Mæðrastyrksnefnd. Askriftarsiminn er 17500 ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.