Þjóðviljinn - 24.05.1964, Qupperneq 1
Sunnudagur 24. maí 1964 — 29. árgangur — 114. tölublað.
SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKOR
□ Aðalfundur Sósíalistafélags Reykjavíkur verðui; halíönn að
Tjarnargötu 20 næstkomandi þriðjudag kL 20.30.
□ Dagskrá: V.enjuleg aðalfundarstörf.
□ Félagar eru beðnir að 'fjölmenna og sýnsc félagsskírfeini yfð
innganginn. Stjómin.
Sunnudagur
og
Óskastundin
I SUNNUDAGUR og ÓSKA-
STUNDIN fylgja Þjóð-
viljanum í dag, og flytja
margvíslegt efni.
■ í SUNNUDEGI er m.a.
birt önnur greinin frá
starfi búnaðardeildar At-
vinnudeildar Háskólans:
Mold — Að finna hinn
gullna meðalveg, það er
viðtal við Bjarna Helga-
son. Þá er viðtal við
Unnar Benediktsson í
Hveragerði: Við vötnin
ströng — Kvöldstund með
Austur-Skaftfellingi. Ey-
firzka perlan nefnist frá-
sögn eftir Adolf J. E.
Petersen og Veiðiferðin
smásaga eftir H. E. Bat-
es. Of margt — of smátt
nefnír Árni Bergmann
sunnudagspistil sin; Ijóð
er eftir Braga Jónsson
frá Hoftúnum, ennfrem-
ur Vísur sunnudagsins,
greinarkorn með fyrir-
sögninni Vísindin vita
ekkert svar, teikningar
eftir Bidstrup, skrítlur,
verðlaunagetraun, frí-
merkjaþáttur, bridgeþátt-
ur, föndurhorn og kross-
gáta.
I ÓSKASTUNDIN flytur að
vanda hið fjölbreyttasta
lesefni við hæfi yngri
kynslóðarinnar. Meðal
annars myndir og frá-
sögn af heimsókn í Mús-
íkbarnaskólann, tcikning-
ar barna, og sitthvað
fleira.
Sumarsýning
DAGLEGIR SAMNINGAFUNDIR UM KJARAMÁLIN j
Félögin norðanlands og austan
gefa umboð til vinnustöðvunar
Ásgrímur Jónsson.
I dag, sunnudagínn 24. mai,
verður sumarsýning opnuð í
Ásgrímssafni, og er hún 12. sýn-
ing safnsins síðan það var opn-
að árið 1960.
Fyrirkomulag sýningarinnar
Framhald á 9. síðu.
■ Samkvæmt upplýs-
ing-um sem Þjóðviljinn
aflaði sér í gær, miðaði
lítið sem ekkert í sam-
komulagsátt á fundi
sáttasemjara ríkisins
með samninganefnd fé-
laganna fyrir norðan og
austan og atvinnurek-
endum í fyrrinótt. Var
það þriðji samninga-
fundur deiluaðila og stóð
hann frá kl. 9 í fyrra-
kvöld til kl. 5 um nótt-
ina. Boðað var til nýs
fundar kl. 5 síðdegis í
gær.
■ Öll, stærstu verkalýðs-
félögin á Norður- og Austur-
landi hafa nú gefið samn-
inganefnd sinni umboð til að
lýsa yfir vinnustöðvun, hve-
nær sem er með tilskildum
fyrirvara og stöðugt bætast
fleiri félög á þessu svæði í
hópinn.
■ Viðræðum Alþýðusam-
bandsins, atvinnurekenda og
ríkisstjómarinnar er stöðugt
haldið áfram. Þrjár undir-
nefndir hafa verið að störf-
um undanfarið, og hafa þær
fjallað um húsnæðismál,
kjaramál og styttingu vinnu-
tímans. Vinnutímanefndin
mun hafa skilað áliti og til-
lögum sínum um styttingu
vinnutímans, en ekkert er
enn vitað um afstöðu at-
vinnurekenda til þeirra til-
lagna.
Síðustu tvo niánuði hefur Júní farið þrjár veiðiferðir, þar af landað tvisvar
heima. Verðmæti afians upp úr skipinu úr þessum veiðiferðum mun nema
nokkurn vegánn sömu upphæá og íhaldsmenn í Hafnarfirði ætla nú að
selja skipið á. Júní er 572 lestir, smíðaður í Aberdeen árið 1951. — Myndin
er tekin um borð i Júní á Grænlandsmiðum fyrir nokkrum árum (Ljósm.
„^nas Árnason).
TOGARINN JÚNÍ
SELDUR ÚR LANDI
Á SMÁNARVEHÐI
■ Á fundi útgerðarráðs Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar í fyrrakvöld voru undirritað-
ir samningar um sölu á togaranum Júní msð þeim fyrirvara, að samþykki fáist frá
veðhöfum Bæjarútgerðarinnar, bæjarstjórn Hafnarfjarðar og öðrum opinberum aðil-
um er hlut eiga að máli. Kaupandi er gríska útgerðarfyrirtækið Joannis Stafhakis &
Sons, söluverð er 3,6 miljónir íslenskra króna.
Sölusamningui'inn var sam-
þykktur í útgerðarráði með at-
kvæðum fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, Eggerts ísakssonar og
Stefáns Jónssonar, og Alþýðu-
flokksins, Kristins Gunnarssonar
Fylkingin
Aðalfundur ÆFR
Aðalfundur Æskulýðsfylking-
arinnar í Reykjavík verður
haldinn næst komandi fimmtu-
dag kl. 8.30 í Tjamargötu 20.
Dagskrá: venjuleg aðalfundar-
störf.
Stjórnin.
og Guðlaugs Þorsteinssonar.
gegn atkvæði Kristjáns Andrés-
sonar fulltrúa Alþýðubandalags-
ins, sem vísaði til afstöðu sinnar
á fyrri fundum, er málið var til
umræðu, þar sem hann lýsti yfir,
að hann væri andvígur þeirri
stefnu, sem nú er upptekin, að
selja togara bæjarútgerðarinnar.
Kristján benti jafnframt á, að
söluverð skipsins væri alltof lÉ^t
og leysti á engan hátt þann
vanda. er fyrirtækið ætti í með
rekstur fiskiskipa sinna og
vinnslutæki í landi. Upplýst væri
að á skipinu hvíldu um 18 milj.
króna skuldir, en ekkert lægi
fyrir um, hvernig greiða skyldi
eftirstöðvar þeirra skulda.
Áður en sölusamningurinn var
undirritaður, lagði Kristján And-
Mogginn segir það dómsmál hvort sjó-
menn eigi að fá samningsbundið kaup!
■ Morgunblaðið hefur nú
loks fengið málið urn hina ó-
svífnu kröfu stjórnarklíkunnar
í LÍÚ að brotnir verði samn-
ingar á sjómönnum í sambandi
við uppgjör fyrir þorskveiðar
í nót á vetrarvertíðinni. Heldur
blaðið því fram að þetta sé
„dómsmál“ og er fullt vandlæt-
ingar vegna þess að Þjóðvilj-
inn skuli hafa túlkað málstað
sjómanna í þessu máli. Hver
veit nema íhaldsþingmaðurinn
Pétur Sigurðsson gæti upplýst
Morgunblaðið eitthvað um fram-
ferði íhaldsþingmannsins Sverr-
is Júliussonar og kumpána í
LÍÚ?
■ f opinþerri yfirlýsingu frá
Sjómannasambandinu, sem stjórn
Sjómannafél. Reykjavíkur stóð
að eins og önnur sjómannafélög,
er svo. komizt að orði að sjó-
menn séu „agndofa“ yfir fyrir-
skipun LÍÚ varðandi uppgjörið
í vor, og krefjist þess að samn-
ingar séu haldnir. Um „dóms-
málið“ sem Morgunblaðið held-
ur að allt velti á, segir í til-
kynningu Sjómannasambandsins
að sjómenn telji að „Sera beri
upp skv. þeim eina hringnóta-
samningi sem til cr, eins og gert
var í vcrtíðarlok 1963, nema á
einum bát frá Hafnarfirði, vegna
þess að útgerðarmaðurinn hélt
að ef gert væri upp samkvæmt
þeim samningi, ætti skipstjóri
allan aflann samkvæmt gamalli
hefð, en í síldarsamningnum frá
nóv. 1962 er tekið skýrt fram,
að skipta beri síld og öilum öðr-
um afla samkvæmt þeim skipta-
reglum sem þar eru greindar“.
■ Málið í Hafnarfirði er mál
skipverja sem taldi sig hafa
verið svikinn um kaup. Það er
ekki mál um skilning á kjara-
samningi, enda ekki rekið fyr-
ir Félagsdómi. Það er því slúð-
ur í Morgunblaðinu að nokkurt
tilefni sé til að draga uppgjör
vegna þess máls, og munu sjó-
rnenn ekki láta LÍÚ-klíkuna
komast upp með samningsrof-
in, hverra undanbragða sem
leitað verður.
B Sjómannafélögin á Suð-
vesturlandi, Sjómannasamband
íslands og Fiskimanna- og far-
mannasamband íslands hafa öll
krafizt þess að gert verði upp
fyrir þorskveiðar 1 nót sam-
kvæmt eina hringnótasamningn-
um sem til er. Tilraun fégráð-
ugra útgerðarmanna að liafa
ranglega tugi þúsunda króna af
liverjum skipverja af aflabát-
unum er alstaðar fordæmd.
résson til, að í stað þeirra nei-
kvæðu verka, sem unnin væru
með sölu togarans, yrði gerð
raunhæf tilraun til að leysa
mestu fjárhagsörðugleika fyrir-
tækisins. Tillaga Kristjáns var á
þessa leið: „Vegna mikils
rekstrarfjárskorts Bæjarútgerðar-
innar og hve brýn þörf er á
skjótri úrlausn þá samþykkir út-
gerðarráð að fara á lcit við Bæj-
arstjóm Hafnarfjarðar, að bæj-
arsjóður greiði hlutafjáreign
sína í Lýsl & Mjöl h.f. að nafn-
verði 500 þús. Itr. fyrir lóð þá,
er hann tók af bæjarútgerð
Hafnarfjarðar og afhenti Norður-
stjörnunni h.f. Jafnframt hcimili
Bæjarstjórn, að bæjarútgerð
Ilafnarfjarðar megi selja hluta-
bréfin ásamt eigin hlutabréfum
í Lýsi & Mjöl h.f. til hæstbjóð'
anda, ef viðunandi boð fæst“,
Með samþykki þessarar tillögu
myndi Bæjarútgerð Hafnarfjarð-
ar hafa til sölu meirihluta hluta-
bréfa í Lýsi & Mjöl hf., en meiri-
hluti hlutafjáreignar í slíku fyr-
irtæki, sem auk þess á frystihús,
er tugmiljón króna vii’ði, og má
í því sambandi minna á, að
Faxaverksmiðjan, sem er óstarf-
hæf og þarf mikilla endurbóta
við, var fyrir skömmu seld á 45
miljónir króna. Eins og málum
er háttað hefur bærinn og Bæj-
arútgerðin hinsvegar engu ráðið
um stjóm Lýsis & Mjöls hf., þrátt
fyrir meirihlutaeign í fyrirtæk-
inu og ekki fengið sem svarar
bankavöxtum af vaxtaverði
hlutahréfanna. Frekari umræð-
um um tillögu Kristjáns og af-
greiðslu á henni var frestað til
næsta fundar.
Hafnfirðingar eru almennt
furðu lostnir yfir þessari sölu á
Júní, eða öllu heldur gjöf, þar
sem skipið ásamt fullkomnasta
útbúnaði er selt á ekki meira
verði en það hefur aflað fyrir
í þrem síðustu veiðiferðum.
Menn spyrja: hver er tilgangur-
inn með þessari „sölu“? Enginn
þarf að vera í vafa um að það
er stefna Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði að leggja Bæjarút-
Framhald á 9. síðu.
HLÍF
mófmœlir
sölunni
á JÚNÍ
Fimmtudaginn 14. maí sl.
gerði stjórn Vmf. Hlífar í
Hafnarfirði einróma eftir-
farandi samþykkt:
..Fundur haldinn í stjóm
Vmf. Hlífar mótmælir
harðlega þeirri sölu, sem
fyrirhuguð er á togaran-
um Júní. Telur fundurinn
slíka ráðstöfun mjög alvar-
legan og slæman verknað
varðandi atvinnulífið í
bænum. Þá bendir fundur-
inn á, að togarinn Júní er
eitt af betri skipum tog-
araflotans. Fyrir því skor-
ar fundurinn á Bæjar-
stjóx-n Hafnarfjarðar að
selja eigi togarann“.
Forsetahjónin
í siglingu
Meðal farþega sem tóku sér
far með m.s. Gullfossi héðan
frá Reykjavík í gær áleiðis til
Leith og Kaupmannahafnar
voru forsetahjónin. Verða þau
aðeins stuttan tíma í utanför
þessari. koma heim með skipinu
að tólf dögum liðnum.
f
í
í
1
*