Þjóðviljinn - 16.06.1964, Qupperneq 9
ÞriSjudagur 16. júní 1964 -
Lúivík Jósepsson
Framhald af 7. síðu.
þingflokks Alþýðubandalagsins
hefur hann verið síðustu árin.
Gefur þessi upptalning, þótt
ekkí sé tæmandi ,nokkra hug-
mynd um það traust sem Lúð-
vík Jósepssom nýtur meðal
samherja sinna og hve sjálf-
sagt 'þeim hefur þótt að velja
hann til vandasamra ábyrgðar-
starfa bæði innan samtakarina
og á opinberum vettvangi.
Þeir verða áreiðanlega marg-
ir I dag, á fimmtugsafmseli
Lúðvíks Jósepssonar, serp vilja
tjá honum þakklæti og virð-
ingu . fyrir þau margþættu
störf, sem hann hefur, þegar á
miðjum aldri, innt af hendi
bæði fyrir ættbyggð sína og
alla islenzku þjóðina. Við fé-
lagar hans og vinir þökkum
sérstaklega allt hans mikla
framlag í þágu sameiginlegs
málstaðar og sameiginlegra
hugsjóna um friálsa alþýðu á
íslandi, er byggi nýtt og rétt-
látara þjóðfélag á grundvelli
félagshyggju og sósíalisma.
Það er mikil gæfa hverjum
þeim sem stendur í storma-
samri baráttu og margvíslegri
önn að eiga skilningsríkan lífs-
förunaut og friðsælt heimili til
að hverfa að þegar færi gefst.
Þessarar gæfu hefur Lúðvik
orðið aðnjótandi. Hvort sem
það er hér í höfuðstaðnum eða
austur í Neskaupstað sem
heimilið stendur, sér hans á-
gæta kona, Fióla Steinsdóttir,
um að það sé sá hlýlegi frið-
arreitur sem veitir hvíld frá
önn og stríði dagsins; og þar
þykir vinum þeirra og félög-
um vissulega gott að koma og
dvelja við hlýjar og rausnar-
legar móttökur.
Persónulega vil ég, fyrir
mína hönd og konu minnar,
nQtar,,,þ^ffa tækifæri til að
þakka þeim hjónum vináttu og
tryggð, sem aldrei hefur borið
sku(gg3,)á,vog árna þeim allrar
blessunar á ókomnum tímum.
Þau Fjóla og Lúðvík eiga
einn son uppkominn, Steinar,
íþróttakennara í Kópavogi.
Það er ósk mín við þessi
tímamót í lífi Lúðvíks Jóseps-
sonar að íslenzk alþýðustétt,
samtök hennar og samherjar
hans í stjórnmálabaráttunni
megi sem lengst njóta ágætra
hæfileika hans, samstarfs og
forystu um lausn þeirra marg-
háttuðu verkefna og vanda-
mála sem nútíð o.g framtið
færa að höndum.
Guðmundur Vigfússon.
Flestir munu eimhverntíma
verða fyrir því, að minnast
snögglega þeirrar staðreynd-
ar, að eimhver samferðamanna
hefur náð aldursmarki, mun
hærra, en manni finnst rétt
vera miðað við kynningu alla,
er maður hefur af viðkom-
andi einstaklingi. Svo fór mér,
er ég nýlega áttaði mig á þvi
að Vinur minni og félagi, Lúð-
vík Jósepsson alþm. væri nú
í þann veginn að fylla fimmta
áratuginn. Því þrátt fyrir
okkar löngu kynningu hefur
mér ætíð fundizt hann eiga
langt að því marki.
Með þessum línum verða
ekkj rakin æviatriði Lúðvíks
Jósepssonar, heldur aðeins
minnzt lauslega á þá höfuð-
þætti í starfi hans, sem öll
þjóðin er í • þkkkarskuld fyrir.
Það virðist vera staðreynd
að einatt komi fram hæfi-
leikamenn til forustu þegar
samtíðin og nmhverfið þarf
sérstak'ega á beim oð halda.
Þeir sem muna áratuginn
1930—’40, sem jafnan er
kenndur við kreppu, munu osr
minnast þess, að ekki sízt í
uppvaxandi bæjum eins og
Neskaupst. var á þeim tíma
var mjög þörf nýrra krafta.
er kynnu að beio-s bróun at-
vinnu)iFsinq inn á 'Tkvíamav'
brautir, Flestum kunnugum
mun vera ljóst, hve ómetan-
legt það reyndist þessu unga
og vaxandi bæjarfélagi, að þá
voru einmitt til staðar nokkr-
ir ungir menn, er ákváðu að
helga krafta sína því st-arfi,
að vinna að framförum þess,
eða „vinna það unp“, eins og
oft er sagt, bæði í atvinnu-
legum og menningarlegum
efnum.
Einn þessara ungu manna
var Lúðvík Jósepsson. Og
þótt hann i reynd yrði for-
inginn, einkum í þeim efnum,
er út á við sneru, þá er það
víst, að honum mundi þykja
illa mælt ef farið væri að
þakka honum einum það
starf, er hann og félagar hans
hafa unnið í framfaramálum
Neskaupstað-ar um siðustu
þrjá áratugi, en störfum
þeirra gleymt. Enda kom að
því fyrr en varði að starfssvið
hans stækkaði langt út fyrir
bæjarfélagið, er hann tók sæti
á Alþingi að loknum haust-
kosningum 1942. Það var þó
ekki fyrr en tveim árum síð-
ar að kynning okkar hófst, er
ásamt margskonar samstarfi
hefur varað síðan.
Þegar Lúðvík settist á Al-
þingi í þingflokki Sósíalista-
flokksins, kom fljótt í ljós,
að hann var flestum betur
fær um að leggja til þau ráð,
er að haldi kæmu í málefnum
sjávarútvegsins. Kom þar
fyrst og fremst til, að hann
hafði frá barnsaldri unnið við
þennan atvinnuveg, • fylgzt
með þróun hans frá frum-
stæðum tækjum til tæknibylt-
ingar og verið driffjöðrin í að
byggja upp fiskiðnaðinn í
heimabæ sínum. Einnig tekið
beinan þátt í útgerðariækstri
sjálfur. Ég hygg að þessi
praktíska reynsla hafði orðið
honum drýgst til að skapa
yfirsýn um málefni þessa at-
vinnuvegar. Mun óhætt að
fullyrða, að vart muni finnast
sá samþingsmaður hans, ekki
aðeins í eigin flokki heldur
einnig í andstæðingaflokkun-
um, er ekki viðurkenni full-
komlega hæfileika hans og
þekkingu á þessu sviði. Enda
er einnig alkunnugt um hið
almenna traust er hann nýtur
meðal þeirra er þenr.an at-
vinnuveg stunda, bæði útgerð-
armanna og sjómanna.
Sumum mönnum er þannig
verða á Vissan hátt sérfræð-
ingar á einu sviði hættir oft
til að líta á það viðfangsefni
sem höfuðatriði er mestu máli
skipti, og vanmeta önnur mál-
efni. Þannig getur oft skapazt
viss þröngsýrti hjá hæfileika-
mönnum. Mér hefur fundizt
þessu öfugt farið með Lúð-
vík Jósepsson. Þrátt fyrir sina
miklu þekkingu á íslenzkum
sjávarútvegi og aðstæðum
hans, þá hefur hann einnig
haft fullkomlega, glöggt auga
fyrir þýðingu annarra at-
vinnuvega og þörfum þeirra,
Þessi yfirsýn ásamt hæfi-
leikanum til að umgangast
menn á þann vinsamlega hátt
sem honum er lagið, er ein-
mitt það sem stjórnmála-
mönnum er nauðsynlegt til
þess að vinna góðum málum
brautargengi.
Þegar Alþýðubandalagið,
nýstofnað, tók þátt í stjórn-
armyndun árið 1956, var
samkomulag um það að Lúð-
vík væri siálfsagður maður ;
embætti sjávarútvegsmálaráð-
herra. Það kom líka fljótt 5
ljós að svo var, því reynslar
varð sú o,ð bann tíma, er
hann hafði æðstu yfirstjór"
be’rra mála á hendi, kom ekk
fvrir einn einasti dagur, er
fiskiskipaflolinn lægi í höfn
HÖÐVILJINN
SlÐA
vegna vinnudeilna. Var slíkt
fullkomin gjörbreyting frá því
ásband'i er áður hafði ríkt,
sem flestir muna, og má raun-
ar segja, að enginn hafi betur
en Lúðvík gerði með stjórn
sinni á þeim málum afsannað
þann pólitísk-a áróður, að sósí-
alistar vildu jafnan skapa
öngþveiti í atvinnulífinu.
En höfuðmáíið sem beinlín-
is beið Lúðvíks Jósepssonar, á
ráðherraferli hans var þó
stækkun landhelginnar. Enda
er ekki of sagt, að það mál
gnæfi yfir öll önnur viðfangs-
efni þessa tímabils.
Fyrirfram var vitað að við
ramman reip var að dr-aga, og
mál'ið allt svo vandasamt að
eitt einasta víxlspor gæti
eyðilagt það í framkvæmd.
Ofurlitla reynslu höfðu ls-
lendingar þegar fengið í þessu
efni. Það var þegar landhelg-
in var stækkuð um eina mílu
árið 1951. Þá.var sett löndun-
arbann á íslenzkan fisk í
Bretlandi. Ósvifin t'ilraun hins
máttarmeiri til að knýja hinn
máttarminni til að láta af sín-
um rétt. Hins vegar var ís-
lenzka þjóðin svo ákveðin að
neyta, réttar síns, að allir
stjórnmálaflokkar höfðu séð
það vænst, að lýsa sig því
fylgjandi.
Þótt gangur landhelgismáls-
ins verði ekki ræddur hér í
einstökum atriðum er ekki
hægt að komast hjá að minna
á það, að þegar til úrslitanna
dró á fyrri hluta árs 1958.
brast flótti í lið sumra þe'irra
sem allhátt höfðu haft um
óskorað fylgi sitt við fram-
gang málsins. Og það var sá
flótti, sem stórum jók á erf-
iðleikana, og jók einnig um
allan helming vanda þann er
hvíldi á herðum sjávarútvegs-
málaráðherrans.
En það var einm'itt í þeirri
raun, að Lúðvik Jósepsson
sýndi að hann var vandanum
vaxinn. Enda var allur al-
menningur öruggur í málinu
og vissi hvað hann vildi.
Svo langt geta öfugmæli
gengið í íslenzkri pólitík, að
reynt hefur verið að túlka
sem höfuðsigur í landhelgis-
málinu þann undanslátt er
síðar var gerður, er samið
Var um að Islendingar mættu
ekki helga sér meira af land-
gnmninu, án þess að fá það
staðfest af erlendum dómstól.
Sé þetta sett upp með ein-
földu dæmi, og bent á það, að
ef við hefðum samið á sama
hátt 1951 til þess að fá lönd-
unarbanni aflétt þá, hefði ver-
ið lokað fyrir alla frekari út-
færslu um ófyrirsjáanlega
framtíð. Engin útfærsla hefði
orðið hvorki 1958 né siðan.
Og af flestum mun talið að
þau miklu aflabrögð, er síð-
ustu ár hafa staðið undir
þjóðarbúskapnum, hefðu þá
verið mun minni.
Sem betur fer er sá siður
nú ríkjandi að geyma vand-
lega ski-iflegar heimildir um
gang málanna. Þetta mun
gera sagnfræðingum framtíð-
arinnar auðveldara en oft
fyrir að skrifa söguna rétta.
Og takist Islendingum að
halda sjálfstæði sínu og þjóð-
legri reisn, mun ekki þurfa að
efa, að dómur sögunnar verði
sá, að hina spennandi maí-
daga 1958, þegar átökin voru
hörðust um landhelgismálið,
hafi þjóðin einmitt verið að
vinna einn af sínum stærstu
sigrum undir forustu Lúðvíks
Jósepssonar.
Ásmundur Sigurðsson.
TFCTYL
er ryðvörn
Tilkynning frá byggingarnefnd
Seltjarnarneshrepps
Bygginganefnd Seltjarnarneshrepps hefur ákveðið skv.
heimild í byggingarsamþykkt að taka upp löggildingu
iðnmeistara. Hér með er því auglýst eftir mnsóknum
allra þeirra, húsasmíðameistara, múrarameistara og
pípulagningameistara, er hér eftir ætla að standa fyrir
byggingum í hreppnum, um ofangreinda löggildingu.
Hverri umsókn skal fylgja: Meistarabréf, vottorð um
meistaraskóla, ef fyrir hendi er, vottorð um löggild-
ingu annarg staðar ef fýrir hendi er, og skrá um þær
byggingar er umsækjandi hefur staðið fyrir í Seltjarn-
arneshreppi.
Umsóknir skulu berast skrifstofu Seltjarnarneshrepps,
Mýrarhúsaskóla, Seltjarnarnesi, eigi síðar en 30. júní
1964.
SVEITARSTJÓRI SELTJARNARNESHREPPS.
Laus staða
Starf fulltrúa IH. stigs hjá ríkisstofnun er laust til
umsóknar.
Laun samkvæmt 14. flokki hins almenna launakerfis
starfsmanna ríkisins.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt og hafa
góða íslenzku kunnáttu,
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 24. þ.m.
auðkenndar „Opinber stofnun".
Franskur stúdent
vill taka nokkra nemendur í frönsku á timabilinu frá
júlí til september í Reykjavík. Kennslan færi fram á
ensku. Þeir sem vildu sinna þessu leggi þátttökutil-
kynningar inn á afgreiðslu Þjóðviljans merkt:
„Frönskukennsla hjá Gérard Vautey.“
Síldarstú/kur
Viljum ráða síldarstúlkur til söltunarstöðvanna Sunnu,
Siglufirði og Sunnuvers, Seyðisfirði. — Fólk verður
flutt milli stöðvanna eftir því, sem síldin veiðist. —
Kauptrygging. — Frítt húsnæði. — Fríar ferðir, —
Upplýsingar á skrifstofu Isbjarnarins, Hafnarhvoli,
sími 11574.
GLER
Fyrirliggjandi, 2, 3, 4 og 5 mm. rúðugler.
Fljót afgreiðsla. — Greiður aðgangur.
MÁLNINGARVÖRUR s.f.
Bergstaðastræti 19. — Sími 15166.
VDNDUfl
F
VÖRUR
Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó.
KRON - búðirnar.
ALMENNA
FASTEIGNASAL AN
UNDARGATA 9 SÍMI 21150
lÁmJS^ÞjJfAimMARSS^
SELJENDUR ATHUGIÐ!
Höfum kaupendur með
miklar útb. m.a. að 2, 3.
og 4 herb. íbúðum, að 3-4
herb. góðum risibúðum og
javðhæSum. að 4-5 herb.
íbúð og 2. herb. íbúð,
helzt risíbúð £ sama húsi,
má vera í Kópavogi, að
hæðum með allt sér, að
góðu raðhúsi að einbýlis-
húsum.
Höfum einnig fjár-
sterka kaunendur
að íbúðum í smíð-
um af öllum stærð-
um.
TIL SÖLU:
vandað timburhús, 3
herb. íbúð ásamt 2 herb.
í risi og fl. selst til flutn-
ings, tilvalið fyrir kaup-
anda sem á lóð í kaup-
túni i nágrenni Reykja-
víkur. Selst mjög ódýrt,
engin útborgun
3 herb nýleg kjallaraíbúð
í gamla Vesturbænum,
sólrík og vönduð, ca 100
ferm. með sér hitav.
Einnig 2, 3, 4 og 5 herb.
íbúðir, einbýlishús, rað-
hús víðsvegar um borg-
ina.
m u u
Siyurfyórjónsson &co
Jfafnansímíi 4-
íbiúSir til sölu
HÖFUM M.A. TIL SÖLU:
2ja hcrb. rishæð við Kapla-
skjól.
2ja herb íbúð við Nesveg.
3ja herb. fbúð á hæð við
Njálsgötu.
3ja herb. íbúð á hæð við
Ljósheima.
3ja herb. rishæð við Lang-
holtsveg.
3ja herb. ibúð á hæð við
Hverfisgötu.
3ja herb. íbúð i risi við
Sigtún.
3ja herb. íbúð á hæð við
Grettisgötu.
3ja herb. íbúð á jarðhæð
við Stóragerði, allt sér.
4ra hcrb, íbúð á jarðhæð
við Kleppsveg.
4ra herh. íbúð á hæð við
Leifsgötu.
4ra herb. fbúð á hæð við
Eirfksgötu.
4ra herb. fbúð á hæð við
Stóragerði.
4ra herb fbúð á hæð við
við
Hvassaleiti. 4ra hcrb. risfbúð
Kirkjuteig. 4ra herb. íbúð á hæð
Hlíðarveg. 4ra herb. fbúð á hæð
öldugötu. 4ra herb. fbúð á hseð
Freyjugötu. 5 herb. fbúð á hæð
Bárugötu. 5 hcrb. fbúð á hæð
Rauðalæk. 5 herb. ibúð á hæð
Hvassaleiti. 5 herb. fbúð á hæð
Guðrúnargötu.
5 herb. fbúð á hæð við As-
garð.
Einbýlishús, tvíbýlishús,
raðhús fullgerð og í smíðum.
fbúðir í smíðum viðs vegar
um borgina og í Kópavogi.
Tjamargötu 14
Sími: 20190 — 20625
B U Ð | u
Klapparstío 26
Sími 19800