Þjóðviljinn - 25.06.1964, Síða 12
Loftleiðakvikmynd
og Ijósmyndasýning
frá ísiandi í NY
Sýningargestir í KODAK-sýningarhöIIinni í New York á dög-
unum að skoðr Ijósmyndirnar frá ÍSLANDI.
Hér á landi er staddur
þessa daga bandarískur verk-
fræðingur, William A. Keith,
ásamt konu sinni Venny
Keith, en hún er íslenzk að
uppruna, fædd og uppalin
hér í Reykjavík og er systir
Vals Fannars, gullsmiðs. Þau
eru búsett í New York og
starfar W. A. Keith sem verk-
fræðingur hjá Pepsi-Cola-
verksmiðjunum þar í borg.
W. A. Keith er áhugaljós-
myndari og kvikmyndfitöku-
maður og á merkilegt safn
W. A. Keith
kvikmynda af fuglalífi. Hann
kemur nú færandi hendi með
kvikmynd í fórum sínum,
sem hann tók hér á þriggja
vikna ferðalagi í fyrrasumar.
2 íslendingar, Valur Fannar
og Ásgeir Long eiga þó
nokkur skot í þessari kvik-
mynd meðal annars af Surts-
eyjargosi og 17. júní hátíða-
höldum í Reykjavík í fyrra.
Efnisþráður myndarinnar
er byggður upp sem land-
kynningarmynd fyrir erlenda
ferðamenn og bregður upp
skyndimyndum víða að af
landinu, meðal annars frá
Þingvöllum, Geysi, Hvera-
gerði,, Gullfossi, Snæfells-
nesi, þar á meðal Ólafsvík,
Akureyri, Mývatnssveit og
Dettifossi. Þá eru skyndi-
myndir úr götulífi Reykja-
víkur, frá söfnum Qg hótelum
borgarinnar og frá höfninni.
Þessi kvikmynd er að
nokkru tekin á vegum Loft-
leiða og hefur hún verið gef-
in út í tuttugu og fimm ein-
tökum og er ættluð til dreif-
ingar í Evrópu og Ameríku
og víðar um heim.
Sýningartími myndarinnar
er tuttugu og átta mínútur
og er þrjátíu og fimm mm.
litfilma og er ætlunin að
endurnj’ja hana frá ári til
árs í þessum ramma.
W. A. Keith lét í ljós von
um að geta betrumbætt
myndina og ætlar að hefjast
þegar handa næstu vikur á
ferðalagi um landið. Fara
þau hjón til dæmis á hesta-
mannamót í Skagafirði um
næstu helgi.
Þá skýrði W. A. Keith frá
sýningu á litljósmyndum frá
íslandi er haldin var í Grand
Central Exhibition Hall í New
York og var hún opnuð 8.
þessa mánaðar og verður
eitthvað opin í sambandi við
heimssýninguna í sumar.
Þessar ljósmyndir tók W.
A. Keith á ferðalagi sínu í
fyrrasumar. Áttatíu þúsund
gestir hafa þegar skoðað sýn-
inguna og er þetta mikil land-
kynning fyrir ísland. Kodak
fyrirtækið á þessa sýningar-
höll og er ætlunin að láta
þessa sýningu inn á farand-
sýningar Kodak fyrirtækisins
um Bandaríkin.
Þessi viðamikla litljós-
myn'dasýning telur áttatíu
litljósmyndir hvaðanæva af
íslandi. Tveir íslendingar
eiga þarna tvær myndir og
eru báðar af Surtseyjargos-
inu. Þær eru eftir Hjörleif
Gunnarsson og Ásgeir Long.
Loftleiðir hafa kostað þessa
sýningu að nokkru og er
henni ætlað að auglýsa fs-
land sem ferðamannaland.
FeriLandsýnarum
Reykjanesskaga
Ein af myndskreytingum NOSKOFS.
fslandsklukkan á rússnesku í
eitt hundrað þúsund eintökum
Ferðaskrifstofan Landsýn efn-
ir til skemmtilegrar einsdags
fer'ðar næsta sunnudag. Farið
verður á bílum um Keykjanes-
skaga en þann hluta leiðarinnar
sem ekki er akfær verður geng-
ið, um tveggja tíma gangur.
Fararstjóri verður Björn Þor-
Piltur í Þorláks-
höfn drukknar
Aðfaranótt þriðjudags varð
það slys í Þorlákshöfn að ung-
ur piltur, Gunnar Gunnarsson
að nafni drukknaði í höfninni
er bát sem hann var í hvolfdi.
Gunnar heitinn hafði ætlað á-
samt öðrum pilti, Pálma Jóns-
syni, að fara á bátnum úr landi
í mfb Klæng er lá úti á höfn-
inni. Á leiðinni hvolfdi bátnum
undir þeim með einhverjum
hætti. Um það bil hálftíma síðar
sást maður hangandi á legufær-
Um Þorláks II. Var það Pálmi
og var hann orðinn aðframkom-
inn og rænulaus. Liggur hann i
sjúkrahúsi á Selfossi með lungna-
bólgu. Lík Gunnars hefur ekki
fundizt þrátt fyrir mikla leit,
Aðvörun í
öllum síga-
reHupökkum
WASHINGTON 24/6 Banda-
ríska stjórnin tilkynnti það
í dag að héðan í frá sé öll-
um sígarettuframleiðendum
skylt að háfa í pökkunum
aðvörun, þar sem skýrt sé
tekið fram, að sigarettureyk-
ingar séu hættulegar og
geti orsakað banvænan
lungnakrabba.
steinsson, sagnfræðingur, og
kynnir hann helztu sögustaði á
leiðinni. Lagt verðnr af stað
frá Týsgötu 3 kl. 9,30 og komið
aftur um kvöldið, fargjald er
250 krónur.
Á leið þeirri sem farin verður
er margt skemmtilegra og sér-
kennilegra staða að sjá. Ekið
verður eftir steinsteypta vegin-
um suður að Kúagerði, þaðan
liggur dágóður bílvegur upp
hraunið í átt að Trölladyngju,
það er gamall heybandsvegur §
bænda á Vatnsleysu. Eftir þeim
vegi verður ekið svo langt sem
komizt verður, en síðan hægan
tveggja tíma gang á veginn
milli Krýsuvíkur og Grindavík-
ur.
Þótt Reykjanesskagi sé ekki
svo rómaður fyrir náttúrufegurð
sem margir aðrir staðir á land-
inu, eru þar margir unaðslegir
staðir, þar sem lækir falla og
hafa breytt hraunflákum í vali-
lendisvinjar undir grænum hlíð-
um, sem skera sig úr auðninni,
þar er mikill jarðhiti og eld-
stöðvar fjölbreyttar, djúpir
hraunkatlar, gígvötn. eldborgir
og marglitir leirhverir. Menn
eru nú sem óðast að vakna til
skilnings á þeim unaðssemdum
sem Reykjanesskagi hefur upp á
að bjóða, og munu þátttakendur
í ferð Landsýnar bezt sannfær-
ast um það á þessum hluta leið-
arinnar, sem farinn verður gang-
andi. Er kemur á veginn til
Grindavíkur verða bílarnir þar
fyrir og aka fólkinu sem leið
liggur til Grindavíkur og þaðan
á Reykjanes. Þar verður vitinn
skoðaður og margt fleira sem
þar er að sjá. Á leiðinni það-
an í Hafnir verður komið við á
Hafnarbergi, þar er mikill fugl
í berginu, og er flestum vafa-
laust nýstárlegt að sjá það. Síð-
an verður ekið yfir á Keflavík-
urveginn og komið til Reykja-
víkur um kvöldið.
Óhætt er að hvetja fólk t'l að
nota betta ágæta tækifæri að
ferðast um bessar slóðir undir
leiðsögn hihs ágæta fararstjóra,
Björns Þorsteinssonar.
Skáldsaga Halldórs Laxness,
íslandsklukkan. Hið Ijósa man
og eldur í Kaupinhafn er ný-
lega komin út í rússneskri þýð-
ingu í einu bindi, og er upp-
lagið 100 þús. eintök.
Þýðendur eru N. Krimova og
A. Emsína, en þær hafa þýtt
fleiri sögur Halldórs á rússn-
esku. Þýddu þær báðar fyrsta
hlutann, Islandsklukkuna, Ems-
ina þýddi Hið Ijósa man og
Krimova Eld í Kaupinhafn.
Rithöfundurinn A. Pogodín ritar
alllangan formála um söguna.
Rússneskur listamaður, V. Nos-
koff, hefur myndskreytt þessa
ú.tgáfu, og er ein mynda hans
birt hér með.
Ymsar helztu bækur Halldórs
hafa áður komið út á rússnesku.
þeirra á meðal Sjálfstætt fóllt,
Salka Valka. Atómstöðin,
Brekkukotsannáll, SilfurtungliS
og smásögur.
Bókaverzlunin ístorg, Hall-
veigarstíg 10, sendi blaðinu ein-
tak af bókinni.
„Islandskíj kolkol” fæst þar
og kostar 80 krónur.
Ekið á mannlais-
an bíl á Vitatorgi
I fyrradag var ekið á bifreið
er stóð á bílastæðinu á Vita-
torgi og varð hún fyrir veruleg-
um skemmdum. Þetta var
Taunusbifreið, árgerð 1963, grá
að lit. Stóð bifreiðin þarna frá
þvf kl. 8 um morguninn til kl.
19.15 um kvöld'ð og hefur þetta
gerzt á þessum tíma.
Norræna fiskimálaráðstefnan:
Erindi um fækniþróun i
síldveiéum Islendinga
I dag er næstsíðasti dagur nor-
rænu fiskimálaráðstefnunnar, er
staðið hefur yfir þessa viku.
Fyrsta atriði á dagskrá í dag
er fyrirlestur Per Rogstad, ráðu-
neytisstjóra, frá Noregi.
Fyrirlesturinn fjallar um sölu
á ferskfiski í Noregi. hann hefst
klukkan 10.00 í Háskólanum.
Samtök fiskframleiðenda og fisk-
útflj’tjenda bjóða þáttakendum
ráðstefnunnar til hádegisverðar
að Hótel Borg. Klukkan 14.30
flytur Jakob Jakobsson, fiski-
fræðingur, fyrirlestur um tækni-
þróun í síldveiðum Islendinga.
Á morgun fara þátttakendur
ráðstefnunnar í ferðalag að Geysi
og Gullfossi og síðan til Þing-
valla. Þar lýkur svo ráðstefn-
unni um kvöldið.
Færeyjaferðir Leikfélagsins:
Leikfiokkurínn fékk
frábærar méttökur
Eins og sagt hefur verið frá
í fréttum fór Leikfélag Reykja-
víkur i leikför til Færeyja og
sýndi þar Ieikrit Jökuls Jakobs-
sonar, Hart í bak. Var Ieikurinn
sýndur fímm sinnum í Sjónleik-
arhúsinu í Þórshöfn, ávallt við
húsfylli og afburða góðar undir-
tektir. Leikflokkurinn kom heim
úr sýningarförinni í gær og lét
vel af dvölinni I Færeyjum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Is-
lendingar sýna leikrit í Færeyj-
um. og var frumsýning þann 17.
júni. I byrjun var ráðgert að
hafa þrjár sýningar í Færeyjum,
en vegna geysimikillar aðsóknar
var sýningum fjölgað.
Mótttökumar í Færeyjum
kváðu leikararnir eins góðar og
bezt varð á kosið. Þeir bjuggu á
einkaheimilum á meðan á dvöl-
inni stóð og riutu mikillar gest-
risni. Þeim til heiðurs voru
haldnar veizlur hvert kvöld og
skipzt var á gjöfum. Leikfélag
Reykjavíkur færði starfsbræðrum
sínum í Þórshöfn málverk eftir
leiktjaldamálarann Steinþór Sig-
urðsson. Félagið Færeyjar ísland
gáfu L. R. fallega pastelmynd
eftir færeyska listamanninnl Willi-
am Heinesen og var hún afhent
í hófi sem haldið var síðasta
kvöldið á heimili listamannsins.
Auk þess færði listamaðurinn
Sigmund Petersen öllum leikur-
unum myndir eftir sig.
Nokkuð bar á því í byrjun að
óttast væri að frændur okkar
Færeyingar myndu ekki skilja ís-
lenzkuna vel, en sá ótti rejmdist
ástæðulaus. • Bar ekki - á öðru en
að leikhúsgestir fylgdust fullkom-
lega með því sem sagt var á
leiksviðinu. Hið færeyska leik-
ritaskáld Olavur Mikkelsen rakti
efni leiksins í útvarpinu fyrsta
kvöldið og hefur það eflaust auð-
veldað fólki að skilja leikinn.
Færeysk blöð eru á einu máli
um ágæti leikritsins og góða
frammistöðu leikenda. Og komu
fram margar óskir um áfram-
haldandi heimsóknir L. R. til
Færeyja. Einnig mun Leikfélagið
hafa mikinn hug á að bjóða
færeýskum starfsbræðrum sín-
um hingað, <?n ekki hefur verið
tekin endanleg ákvörðun um
hvenær það geti orðið.
Vísir heldur fast viB irétt-
ina um úthiutun 1000íbúða!
Vísir varð fyrir því óláni að
hlegið var að „fréttamennsku“
hans í fyrradag um alla Reykja-
vík, og sennilega víðar.
Engin leiðrétting á furðufrétt-
inni um hina stórkostlegu út-
hlutun á íbúðum og lieilum ein-
býlishúsum er þó finnanleg í
blaðinu í gær. Samkvæmt því
er ekki annað að sjá en rit-
stjóri Vísis og fréttastjóramir
tveir ætli lesendum blaðsins að
trúa því (til lofs og dýrðar í-
haldinu) að í fyrradag hafi
borgarráð Reykjavíkurborgar út-
hlutað eitt húsund íbúðum! —
(Rosafyrirsögnin, fimm dálka á
forsíílunni var á þessa leið:
„1000 íbúðum úthlutað til Reyk-
víkinga í dag“.
Vísir virðist ætlast til að les-
endur trúi fréttaflutningi á borð*
við þetta: „í n^estu viku mun
borgarráð ganga frá úthlutun
144 einbýlishiisa á sama svæði.
en með þessum og öðrum nýleg.
um útlilutunum eru þær íbúðir
rúmlega orðnar eitt húsund, sem
borgin hefur ráðstafað á þessu
iri,“ Os síðar í furðufréttinni
segir: „Eins og fyrr segir geng-
Jir borgarráð frá úthlutun 60?
íbúða í fíöibýlishúsum i Árbæj-
arliverfi í dag“.
•k Nýr fréttaflokkur?
Þessu er lesendum Vísis ætl-
að að trúa, a.m.k. í tvo sólar-
'hringa; hver veit nema skýring
fáist á furðufréttihni í dag! Fá-
ist hins vegar engin skýring á
henni eða leiðrétting, væri ekki
óeðlilegt að Vísir tæki það sér-
staklega fram við fréttir sínar
eftirleiðis hverjar þeirra væru
af þessum fréttaflokki.
Það er að visu ekki gott fyr-
ir blað, að öll Reykjavík skop-
ist að „frétt“ sem flennt er yf-
ir alla forsiðu þess. En miklu
hraustlegra væri að játa mis-
tökin en ætla að halda fast við
„fréttina".
Taupaéstyrkir
bílsffórar
Reykjavík 24 júní. Bílstjórar
bæjarins hafa verið í ,meira
lagi taugaóstyrkir þennan dag.
i ýmsum hverfum borgarinnar
urðu hvorki meira né minna
en fjórtán árekstrar frá þvi kl.
6 í morgun, til kl. 20. Þó voru
betta flest meinlausir árekstrar
og ekki talið að verulegt tjón
hafi af þeim hlotizt.
•i