Þjóðviljinn - 03.07.1964, Síða 3
Föstudagur 3. júlí 1964
ÞIÓÐVILJINN
Dagsbrúnarsamningarnir
-•%*' 4^' <v; í " % ■' '
Framhald af 1. síðu.
eru tvímælalaust með allra
stærstu þjóðfélagsvandamálum
okkar.
Ég vildi segja að þrátt fyrir
þann mikla árangur sem nú náð-
dst í þeim efnum séu þau mál
þó enn ekki viðunandi, en vil þó
undirstrika að um er að ræða
mjög mikla bót frá því sem
verið hefur.
Almennar
þjóðfélagsumbætur
Þetta var um hina jákvæðu
hlið samningsmálanna. En þar
kemur líka annað til, sem öðru
vísi er.
Þar vildi ég fyrst nefna að
verkalýðssamtökin hafa orðið að
leggja sig fram og verja orku
sinni í umbætur á almennum
þjóðfélagsl. vandamálum. sem í
eðli sínu ættu að leysast á öðrum
vettvangi.
Lausn þeirra mála, þó ég vilji
engan veginn vanmeta þýðingu
þeirra, takmarka síðan mögu-
leika okkar á sviði hinna beinu
kjaramála.
Óviðunandi
kaupmáttur
Það er t.d. ekki nokkur efi
á að fjáröflun eins og launa-
skatturinn, sem atvinnurekend-
um ber að greiða, takmarkar að
sama skapi möguleikana til kaup-
hækkunar.
Kaupmáttur tímakaupsins er
nú ekki fjarri því að vera í lág-
marki þess sem hann hefur orð-
ið eftir stríð. Slíkt er að sjálf-
sögðu aigerlega óviðunandi á
sama tíma og vitað er að þjóð-
arframleiðslan og þjóðartekj-
urnar hafa stóraukizt.
Stytting raunverulegs
vinnudags markmið
Um hina svokölluðu styttingu
vinnutímans sem nú var samið
um vildi ég segja, að hugsunin
sjálf sem að baki liggur er að
mínum dómi rétt, en það var
ailtof skammt farið, og er því
allt undir þvf komið hvernig
framhaldið verður. En í þessu
sambandi vil ég mjög eindregið
vara við þeirri tilhneygingu. sem
víða kemur fram, að stytta dag-
vinnutímabilið til þess að hægt
sé að lengia yfirvinnuna.
Mark okkar hlýtur að vera
að stytta hinn raunverulega
vinnudag og hækka dagvinnu-
kaupið, svo við náum því að
hægt sé að lifa af 8 stunda
vinnudegi.
Þetta er í stuttu máli það sem
ég vildi segja um galla sam-
komulagsins, og er í stórum
dráttum það sama og ég sagði
á Dagsbrúnarfundinum.
Tákn um vopnahlé
— En hvað er þá helzt að
segja um viðhorfin og það sem
koma skal?
— Það hefur mikið verið tal-
að á þessu sumri um friðar-
samninga, og það einnig af ó-
líklegustu mönnum. t.d. í út-
varpsmessum og hinum og þess-
um útvarpsþáttum!
Ég vildi hins vegar miklu
frekar telja þcnnan samning
tákn um vopnahlé. Vinnufriður
Síldaraflinn
ramhald af 1. síðu.
um síldar, og auk þess bíða
bátar hér í höfninni með um
13 þúsund mál. Um miðnætíi
tæmist ein þró og önnur upp
úr hádegi á morgun.
DlSARFELU sótti hingað 400
lestir af mjöli. og verið er
að skipa upp 15 þús. tómum
tunnum.
Hertoginn
Framhald af 12. síðu.
mestan áhuga að skoða fugla-
líf, með i förinni voru þeir
Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur og Finnur Guðmundsson
fuglafræðingur. Er komið var að
Skútustöðum var lagt út á vatn-
ið á litlum trillubát með Jóni
bónda Sigtryggssyni á Syðri-
Neslöndum. Trillubát þennan
hefur Jón átt síðan 1930 og er
hann enn með sömu vél og þá
Þeir tóku land í Höfða og þar
var borðað nesti sem haft var
með í ferðinni, þaðan var farið
í Dimmuborgir og átti að skoða
þar fálkahreiður; ungamir voru
famir úr hreiðrinu en samt
komu menn auga á þá og hafði
Filip af því mikla ánægju að
skoða þá.
Margt manna var við Mývatn
og fylgdist með ferðum her-
togans, þar voru lögreglumenn
margir og blaðamenn og varð
þar talsverður reipdráttur á milli
eins og verða vill. blaðamenn
sóttu á en lögreglumenn vörð-
ust. Kl. 4.15 var svo flogið til
Reykjavíkur að loknum ánægjj-
legum degi við Mývatn og var
haft eftir Ásgeiri Asgeirssyni for-
seta að þessi dagur hefði verið
hinn bezti í ferðinni.
I gærkvöld hélt svo hertoginn
kvöldverðarboð fyrir forseeta Is-
lands og fléira stórmenni um
borð í snekkju sinni í Reygjavík-
urhöfn. 1 dag kl. 10 verður boð
inni hjá brezka sendiherranum,
kl. 10.35 verður ekið um bæinn
í fylgd borgarstjóra, kl. 11.15
skoðar hertoginn Þjóðminja-
safnið. Á hádegi lýkur svo heim-
sókn hertogans hér á landi og
heldur hann brott með föruneyti
sínu kl. 12.
á að vera tryggður í eitt ár, og
er gott eitt um það að segja.
Af okkar hálfu eru þessir
samningar tilraun, tilraun sem
við óskum af heilum hug að
takist. En hún tekst því aðeins
að atvinnurekendur og stjórnar-
völd noti vel þennan dýrmæta
frest til að búa í haginn hjá
sér svo þeir geti orðið við kröf-
um okkar að ári liðnu.
Enginn þarf að Iáta sér til
hugar koma að verkalýðshreyf-
ingin geri aftur slíka samninga
án kauphækkunar.
Sameinað afl verka-
lýðshreyfingarinnar
Við í verkalýðshreyfingunni
á hinn bóginn verðum að nota
þennan tíma vel til að sameina
afl verkalýðshreyfingarinnar svo
hún verði fær um að leysa þau
verkefni sem bíða okkar í næsta
áfanga.
Eins og nú horfir teldi ég
kröfur okkar í næstu samningum
aðallega verða þessar: I fyrsta
lagi kauphækkun. 1 öðru lagi
stytting vinnutímans. 1 þriðja
lagi aukin hlunnindi.
Varðandi síðasta atriðið ber að
hafa það í huga að fólkið í hin-
um almennu verkalýðsfélögum,
verkamenn og verkakonur, er
ekki einungis það fólkið sem
lægst er launað og vinnur í flest-
um tilvikum erfiðustu störfin,
heldur er þetta einnig sú stétt
í landinu sem minnst hlunnindi
hefur.
Mannréttindafrum-
varpfö tekur gildi
WASHINGTON 2/7 — Fulltrúa-
deild bandaríska þingsins sam-
þykkti að lokum á fimmtudag
mannréttindafrumvarpið, sem
mestar deilurnar hafa staðið um
undanfarið.
Þegar er mannréttindafrum-
varpið hafði verið samþykkt. til-
kynnti Johnson, Bandaríkjafor-
seti, að hann myndi undirskrifa
lögin við hátíðlega athöfn síðar
um daginn. Þegar forsetinn hef-
ur undirskrifað lögin öðlast þau
gildi.
Mannréttindalögin voru sam-
þykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða, Áður höfðu full-
trúar Suðurríkjanna reynt að
tefja framgang þess með málþófi.
Hafa þrír mánuðir liðið áður
en bandaríska þingið gat afgreitt
lögin.
Blökkumenn í Bandaríkjunum
hafa sem kunnugt er undanfarið
ýmislegt gert til þess að skoða
það, hver hugur fylgir máli hjá
stjómarvöldum Bandarikjanna
þegar talað er um aukin mánn-
réttindi blökkumanna. f
Atkvæði féllu þannig í Full-
trúadeildinni, að 289 greiddvi at-
kvæði með frumvarpinu, en 126
voru á móti.
Stjórnmálamorð í Kongó
Ekki alls fyrir löngu var Jean Sendwe, sem er þekktur stjórn-
málamadur í Kongó, myrtur, og fer ýmsum sögum af því, hver
sé valdur að dauða hans. Sendwe sést til hægri á mindinni, til
vinstri er Tsjombe, „Koparkvislingurinn“ frægi.
Enn aukast mögu-
leikar Tsjombes
----------- . - -. SfiEkA 3
Dragnétaveiði
fyrir norðan
SAUÐÁRKRÓKI í gær - í vw
var opnað nýtt dragnótaveiði-
svæði á Skagafirði og Húnaflóa,
:g hafa tveir bátar héðan og
inn frá Hofsós stundað veiðar
með dragnót að undanförnu.
Afli hefur verið allsæmilegur 5
til 7 tonn í róðri, mestmegnis
koli og ýsa, af þessu hefur skap-
azt talsverð vinna hér í frysti-
húsinu. Þetta er í fyrsta sinn
í tuttugu ár sem ve'ðar með
dragnót. eru leyfðar hér úti fyr-
ir, víðast hvar er dragnótin eit-
ur í beinum triilubátaeigenda,
en þeir segja hér, að afli hafi
verið svo rýr undanfarin ár að
bað geti ekki versnað þótt drag-
nótin sé leyfð.
Tók bilsm
traustat&ki
15 ára stráklingur tók Volks-
wagenbíl traustataki í Reykjavík
í gær. Um hálftíuleytið í gær-
kvöld fann Hafnarfjarðarlög-
reglan strákinn og veitti honum
eftirför inn eftir Hafnarfjarðar-
vegi. Hann ók þá eins og vit-
leysingur og lét að sjálfsögðu
allar umferðarreglur lönd og
leið. Lögreglunni í Kópavogi
tókst að komast fyrir hann og
króa af. — Ekki urðu neinar
skemmdir á bxlnum, og var
strákur afhentur Reykjavíkurlög-
reglunni.
LEOPOLDVILLE 2/7 — Moise
Tsjombe, sem áður var forseti
Katangahéraðs í Kongó, hélt í
dag áfram viðræðum sínum við
stjórnmálamenn í Leopoldville
til að rannsaka möguleika á
stjórnarmyndun. Fréttamenn í
Leopoldville telja að Tsjombe
hafi góða mþguleika . á ,, þvý að,
verða næsti forsætisráðherrann
í Kongó.
Það fylgir fréttinni, að
Tsjombe muni innan tveggja.
sólarhringa láta Kasavúbú for-
seta í té skýrslu um viðræður
Skipulagsmál rædd í borgarstjérn
Hernámsand-
stæéingar
Framhald af 12. síðu.
il og kostnaðarsöm. I sai,.-
bandi við Keflavíkurgönguna
safnaðist að vísu töluvert fé,
en þar sem kostnaður við all-
ar framkvæmdir er mjög
mikill, eru Samtökin sífellt
í fjárþröng. Þau sjá sér þvi
ekki annað fært en efna til
happdrættis til að standa
straum af framkvæmdum a.
m.k. næsta árið. Samtökin
þurfa að halda opinni skrif-
stofu allt árið um kring, gefa
út dreifiblöð og bæklinga og
væri mjög æskilegt að geta
efnt til nýrrar menningar-
viku. Því er óhjákvæmilegt.
segja þeir félagar, að safna
núna í sumar nokkrum
hundruðum þúsunda. Þessi
langvinna og erfiða barátta
verður kák eitt nema við
hemámsands+æðingar getum
staðið fvrir fiölhreyttri starf-
semi og séum þess megnugir
að halda merkjnu hátt á lofti,
Framhald af 1. síðu.
lagsstjóri yrði að hafa sérþekk-
ingu á skipulagsmálum. Lagði
flutningsmaður áherzlu á nauð-
syn þess að frá Samþykkt um
skipulagsnefnd Reykjavíkur yrði
þannig gengið í upphafi að reynt
yrði að tryggja sem beztan á-
rangur af starfi nefndarinnar
með því að fela sérfróðum mönn-
um nefndarstörfin þar eð að
öðru jöfnu væru líkur til að þeir
sem aflað hafa sér sérþekkingar
á þessu sviði reyndust hæfari til
að kveða upp úrskurði um þessi
mál.
Alfreð Gíslason, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, tók
undir ummæli og tillögu Guð-
mundar og undirstrikaði nauð-
syn skilnings stjómarvalda og
í’étts mats á sérfræðiþekkingu á
hvaða sviði sem væri.
Nokkrar umræður urðu um
þessi mál á fundinum en að
þeim loknum vom breytingar-
tillögur Guðfundar Vigfússonar
felldar af borgarstjómaríhaldinu,
greiddu 10 íhaldsmenn (í þeim
hópi Óskar krati Hallgrímssonl
atkvæði gegn tillögunum en
samþykkir þeim vom borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins 3
og annar Framsóknarmaðurinn.
Þó var varatillaga Guðmundar
um að skipulagsstjóri verði að
vera arkitekt samþykkt með 14
samhljóða atkvæðum (Auður
Auðuns forseti borgarstjómar
greiddi ekki atkvæði).
Með því að hafna aðalbreyt-
ingartillögum Guðmundar Vig-
fússonar sló bargarstjómaríhald-
ið enn skjaldborg sína um fúsk-
ið en hafnaði sérfræðiþekking-
unni.
sínar. Þó eru ekki allir aðilar
í höfuðborginni jafn hrifnir af
þessum væntanlegu stjórnar-
skiptum. AFP-fréttastofan skýr-
ir svo frá í dag, að í Leopold-
ville hafi verið dreift dreifi-
miðum þar sem því sé lýst, að
það muni þýða algera byltingu
í Kongó. ef Tsjoombe,. verði ..nú
forsætisráðherra. Ekkert er um
það vitað, hver að þessum
dreifibréfum stendur. Eins og
kunnugt er, er Tsj.ombe . nýlega
snúinn heim úr útlegð og hafa
stjórnmálamenn í Leopoldville
mjög fagnað komu hans.
Tsjqmbe hefur undanfarið dval-
izt í Madríd.
Helander
dœmdur í dag
STOKKHÓLMI 2/7 — Það var
tilkynnt í dag, að á morgun, 3.
júlí, verði upp kveðinn dómur
í máli Helanders biskups. Eins
og kunnugt er var Helander
dæmdur frá biskupstign fyrir
meint níðskrif um hugsanlega
keppinauta sína að embættinu.
Þessu vildi Helander ekki una
og krafðist þess ,að málið væri
tekið upp að nýju. Varð Hæsti-
réttur Svíþjóðar endanlega við
þeirri kröfu, og nú er loks að
vænta niðurstöðu þessa máls,
sem verið hefur eitt mesta hita-
mál lengi í Svíþjóð.
11 skip með um
8 þús. mál síldar
RAUFARHÖFN i gærkvöld —
Síðan kl. 7 í morgun hafa 11
skip tilkynnt síldarleitinni hér
um afla sinn. flest halda þau
vestur um með aflann. Skipin
eru þessi: Jörundur III. 1100
mál, Náttfari 1000, Hannes Haf-
stein 1150. Baldur 300, Súlan
750, Friðbert Guðmundsson 400,
Steinunn 450, Jón Jónsson 350,
Sigurður SI 900, Heimaskagi 150,
og Sigurður Bjamason 1400.
Sildin veiddist í Norðfjarðar-
dýpi og á Tangaflaki.
Tíu fulltrúar á verkalýðs-
ráðstefnu I AÞýzkalandl
Lýst eftir
sjónarvottum
1 fyrrakvöld varð kona fyrir
svörtum fólksbíl á móts við apó-
tekið á Álfhólsvegi í Kópavogi.
Ökumaðurinn talaði við hana og
taldi hún þá ekkert að. Skömmu
seinna kom þó í Ijós að hún
haͧL marizt svo illa áð Kún
verðúr að liggja í rúminu nokkra
daga. Lögreglan í Kópavogi bið-
ur því ökumanninn að hafa
samband við sig, einnig þá
sjónarvotta sem voru nærstadd-
ir er þetta gerðist.
Framhald af 1. síðu.
Umboðsmenn happdrættisins
eru beðnir að póstleggja skil
til okkar eigi síðar en á
sunnudagskvöld. — Notum
þessa 3 daga vel. Vinnum að
bættum hag Þjóðviljans.
f morgun lögðu af stað héðan
til Austur-Þýzkalands tíu félag-
ar verklýðsfélaga víða af land-
inu, Þeir taka þátt í 7. verk-
lýðsráðstefnu Iandanna við
Eystrasalt, Noregs og íslands.
Það er austurþýzka verklýðssam-
bandið sem gengst fyrir ráð-
stefnu þessari og vcrður hún
haldin í Rostock dagana 5.—12.
júlí.
Kjörorð ráðstefnunnar er
„friður við Eystrasalt" og meg-
intilgangur hennar er að ræða
friðar- og afvopnunarmál, sér-
staklega verða ræddar þær til-
lögur, sem utanríkisráðherra
Póllands, Rapecki, og síðar
Kekkonen forseti Finnlands og
Unden utanríkisráðherra Sví-
þjóðar hafa sett fram um kjarn-
orkuvopnalaus svæði í Mið- og
Norður-Evrópu. Annar megin-
tilgangur ráðstefnunnar er að
að þátttakendur auki kynni sín
á milli og ræði vandamál verk-
lýðshreyfingarinnar í þeim lönd-
um sem senda fulltrúa á ráð-
stefnuna, og einnig að þeir
kynnist af eigin raun kjörum og
lifsháttum verkalýðsins í Aust-
ur-Þýzkalandi.
Hinir íslenzku þátttakendur á
ráðstefnunni eru: Alfreð Guðna-
son, Anney Jónsdóttir, Gísli Þ.
Sigurðsson, Hallvarður !Guð-
laugsson, Helgi Hóseasson, Jón
Ásgeirsson, Margrét Guðmunds-
dóttir, Óskar Garíbaldason, Stef-
án Ögmundsson og Vilborg Sig-
urðardóttir,
Röð deildanna og lands-
hlutanna er nú þannig;
1. 4a d. Þingholt 50%
2. 13 d. Herskólahv. 50%
3. 1 d. Vesturbær 45%
4. lOb d. Vogar 41%
5. 5 d. Norðurmýri 40%
6. 15 d. Smálönd 39%
7. 2 d. Skjólin 37%
8. 4b d. Skuggahv. 34%
9. 6 d. Hlíðar 33%
10. 3 d. Skerjafj. 32%
11. 7 d. Túnin 32%
12. 12 d. Sogamýri 30%
13. 8a d, Teigar 29%
14. 9 d. Kleppsholt 27%
15. Hafnarfj. 26%
16. 11 d. Háaleiti 25%
16. Kópavogur 25%
18. Reykjanes 21%
19. 8d d. Lækir 20%
20. lOa d. Heimar 14%
21, Suðurland 14%
22. Vestfirðir 14%
22. Vesturland 14%
24. 14 d. Blesugróf 13%
25. Austurland 11%
26. Norðurl. v. 10%
27. Norðurl. ey 6%
28. Vestm.eyjar 4%
(