Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 4. ágúst 1964 ÞJÖÐVILJINN SIÐA J Margvíslegar vatna- fræðil. athuganir ■ Til viðbótar kaflanum um dýptarmælingar stöðu- vatna, sem birtur var í sunnudagsblaðinu úr skýrslu Jakobs Björnssonar verkfræðings um starfsemi orku- deildar raforkumálastjóra árið 1963 fara fleiri atriði skýrslunnar hér á eftir. Skýrslan er að öðru leyti birt í síðasta hefti ORKUMÁLA. Taka aurburðarsýnishom Flest vatnsföll flytja með sér meira eða minna af óupp- leystum steinefnum, aur, sem svo er nefndur eftir auri þeim er jökulvötn hlaða í fsírvegi sína og alkunnur er. enda bera jökulárnar allra straumvatna mestan aur. Fyrir vatnsafls- virkjanir er oftast mikið óhag- ræði að þessum aurburði sök- um þess að aurinn sezt fyrir í inntakslónum og miðlunar- uppistöðum rafstöðva og rýrir þar með nothæfni þeirra eða jafnvel ónýtir lónin með öllu. Til aurburðarins verður því að taka tillit við áætlanir um vatnsaflsvirkjanir, en til þess að það sé unnt þarf vitneskja að vera fyrir héndi um magn aursins, sem vatnið flytut með sér, um komastærð hans o.fl. Þeirra vitneskju er aflað með því að taka sýnisþom af ár- vatninu og rannsaka aurinn í því. Þessar sýnishomatökur hafa verið fastur liður í starfsemi vatnamælinga raforkumála- stjóra um langt skeið. Nýlega hafa fullkomnari áhöld verið keypt til sýnishomatökunnar en áður voru notuð. og fjöldi sýnishornanna jafnframt auk- inn. Á árinu 1963 var lögð aðaláherzla á að taka sýnis- horn úr Hvítá við Iðubrú, Þjórsá hjá Urriðafossi og Jök- 'ulsá á Fjöllum móts við Grímsstaði. Vom tekin 132 aðalsýnishorn til ýtarlegrar rannsóknar á rannsóknarstofu. þar af 116 með sérstöku sýnis- homatökutæki, en 16 voru tekin á flöskur sem dyfið er í vatn. Auk þess voru tekin 168 aukasýnishom, þar sem ein- ungis magn aursins var ó- kvarðað með síu á staðnum, en‘ komastærðardreifingin ekki mæld. Alls voru þannig tekin 300 aurburðarsýnishom á ár- inu. Aðrar vainafræðilegar ranneóknir Af öðrum vatnafræðirann- sóknum. sem starfað var að á árinu og raunar eru fastur liður í vatnamælingum raf- orkumálastjómarinnar, má nefna athuganir á vatnaísum. ís í straumvötnum veldur vatnsorkuverum oft verulegum óþægindum eins og t.d. raf- orkunotendur á orkuveitusvæði Laxárvirkjunarinnar hafa oft á undanförnum árum íundið óþyrmilega fyrir. Við gerð virkjunaráætlana þarf því að taka tillit til íssins svo að unnt sé að • gera mannvirkin þannig úr garði að hættan á truflun- um af hans völdum verði sem minnst. Til þess þarf að afla vitneskju um hátterni vatna- ísanna á hverjum virkjunar- stað. Mikið verk er enn fyrir höndum á þessu sviði, og er áformað að auka þessar rann- sóknir á næstunni. Sarnt hef- ur á undanförnum árum safn- azt mikilvæg vitneskja um ísa- lög á einstökum vatnasvæðum. t.d. á Þjórsársvæðinu, Hvítár- svæðinu og víðar. Á síðasta ári samdi Sigurjón Rist. vatna- mælingamaður, yfirlitsgrein um vatnaísa á Þjórsársvæðinu, þar sem hann dregur ' saman ár- angurinn af athugunum undan- farinna ára á ísum í Þjórsá og þverám hennar. Grein þe^si, sem nefnist „Þjórsárísar". birt- ist í 12. árgangi ,,Jökuls“, riti Jöklarannsóknarfélags íslands. Þessar ísaathuganir ganga nokkuð jafnt fyrir sig frá ári til árs og eru einkum fram- kvæmdar í eftjrlitsferðum vantamælinganna til vatna- mæHstöðvanna að vetrinum og af ísgæzlumönnum vatnamæl- inga, sem búsettir eru í ná- grenni ánna. Jafnframt ísaat- hugunum er mældur vatnshit- inri í ám og lindum. Á síðasta ári var í fyrsta sinn gerður út sérstakur ís- athuganaleiðangur. til viðbót- ar hinum almennu ísaathugun- um, sem -að framan er lýst. Leiðangur þessi dvaldi við Framhald á 9. síðu Kapparnir utan við Hótel ísland Myndin hér fyrir ofan var tckin fyrir réttum 40 árum. Þeir standa þarna við aðaldyr Hótel íslands í Austurstræti banda- rísku kapparnir sem fyrstir flugu flugvélum yfir hafið til íslands. Þetta gerðlst snemma í ágústmánuði 1924, eins og getið hefur verið hér í blaðinu, e* þeir fjórmenningarnir voru flugstjórar og vélamenn tveggja af fjórum bandarískum flug- vélum sem luku hnattfluginu fræga sumarið 1924. — Eric • Nelson flugmaður er annar maður frá vinstri. Til viðbótar því, sem áður hpfur verið getið hér í blaðinu um þennan merka atburð í flugsögu Islands. verður þessa getið nú: Eric N(ýson, ásamt Smith, Wade og Martin majór, er var foringi fararinnar, lögðu upp frá Bandaríkjunum hinn 8. apríl 1924 í hnattflugið, sem stjórn Bandaríkjanna stóð að. Lögðu þeir félagar af stað frá Seaftle í Washingtonfylki, á eins hreyfils flugvélum, og var höfuð áherzla lögð á, að hafa eldsneytisforðann sem mestan, enda áttu þeir að geta verið 20 tíma í einu á lofti. Tveir menn voru í hverri flugvél, flugstjóri og vélamaður. í Alaska heltist fyrsta flug- vélin' úr lestinni, en það var flugvél Martins, en hinar flugu áfram yfir Japan, Miðasíu- lönd, Suðurevrópu og síðan í norður til Orkneyja. en þaðan skyldi haldið til íslands. Við Færeyjar fór flugvél Wade í sjóinn, en honum og véla- Framhald á 9. síðu. Sigríður E. Sæland: Hugleiðingar konu um Kefla- víkurherstöiina Morgunblaðið birti 24. júli 1964 grein er,! bar yfirskriftina „Keflavíkurbúrið" Ungur mað- ur kemur þar fram á ritvöllinn og er honum mikið niðri fyrir. Segist hann vinna á Keflavík- urflugvelli, og er það nú gott og blessað svo langt sem það nær. í grein sinni átelur hann Is- lendinga fyrir að sýna ekki hermönnum þeim sem hér dvelja nægilega kurteisi, eða eins og maður segir: hlýlegt viðmót. Hvað er greinarhöfundur að fara? Hvað eigum við eftir að afhenda hermönnunum? Eitt- hvað virðist vera eftir af ls- lendingunum, sem greinarhöf- undur hefur augastað á og vill fá handa vinum sínum. Auðheyrt er að maðurinn kafar ekki djúpt í sálarlíf ís- lendinga þegar hann heimtar það litla sem eftir er af sjálfs- virðingu okkar. Greinarhöfundur segir búrið á Keflavíkurflugvelli vera þjóðarskömm. 1 því efni er ég honum sammála. Hvers vegna erum við Islendingar að leyfa þessa herstöð? Það mættum við lítilsvirða okkur fyrir. Vill ekki greinarhöfundur vera mér sammála um að við ættum að senda þessa ágaetu menn með sitt hafurtask heim til föðurhúsanna, þar sem alt- ént er frjálsræði að hafa og mannkærleikurinn er settur í öndvegi. Bróðurkærleikurinn í orðsins fyllstu merkingu er þar iðkaður daglega í verki. Ég kenni í brjósti um þessa vesalings menn, sem þurfa að eyða beztu árum ævi sinnar í að læra aðferðir til að kála næsta nágranna. Þeim vil ég unna betra hlutskiptis og að þeir fái heldur notið heima- veru hjá ættingjum og í fé- lagsskap sinnar eigin þjóðar. Mig langar til að greinarhöf- undur taki nú til athugunar búrið sitt svokallaða. Streyma þroskandi áhrif út frá þessum Sigríður E. Sæland stað? Drengurinn er ákaflega hneykslaður á því hve mörg börn fæðast óskilgetin hér á landi. Finnst honum það benda til þess að hersetan hér þroski ungdóminn? Nei, blessaðar ungu stúlkumar ginnast af öllu glysinu, og fjöldi þeirra hefur einmitt tekið sitt fyrsta staup þama í herstöðinni. Hvað skyldu föðurlausu bömin vera orðin mörg sem hermenn hafa getið hér á landi? Einu sinni fannst lík af ungri stúlku frosið um hávetur innan við hliðið á herstöðinni. Hvernig stóð á dvöl hennar þar? Það var mjög lítið talað um þetta í blöðunum. þar hef- ur einhverjum þótt þessi sorg- arsaga varpa skugga, — en á hvem? Sem betur fer þá líta margir Islendingar öðrum augum á þessi mál en Þorgrimur Hall- dórsson. Og ég veit að meiri hluti íslendinga tekur heils hugar undir með mér, er ég legg til að hermennimir verði sendir heim til föðurhúsanna til að hafa fataskipti. Þegar þeir svo af eigin hvötum ferð- ast til lslands eins og aðrir ferðamenn, þá tökum við á móti þeim af þeirri alkunnu kurteisi sem við höfum fengið lof fyrir. Sigrxður E. Sæland. 29. DAGUR Magnús konungur og Haraldur konungur héldu her þeim suður til Danmerkur. En er Sveinn spurði það, þá flýði hann undan austur á Skáni Þeir Magnús konungur og Haráldur kónungur dvöldust lengi um sumarið í Danmörku, lögðu þá land allt undir sig. Þeir voru á Jótlandi um haustið. Það var eina nótt, þá er Magnús konungur lá í hvílu sinni, að hann dreymdi og þót.tist staddur þar sem var faðir hans, inn helgi Ólafur konungur, og þótti hann mæla við sig: ,,Hvorn kost viltu, sonur minn, að fara nú með mér eða verða allra konunga rikastur og lifa lengi og gera þann glæp, að þú fáir annað hvort þætt trautt eða eigi?“ En hann þóttist svara: „Ég vil, að þú kjósir fyrir mina hönd“. Þá þótti honum kon- ungurinn svara: ,,Þá skaltu ineð mér fara“. Magnús konungur segir draum þenna mönnum sínum. En litlu síðar fékk hann sótt og lá þar sem heitir Súðaþorp. En er hann var nær kominn bana, þá sendi hann Þóri, bróður sinn, til Sveins Úlfssonar, að hann skyldi veita hjálp Þóri, þá sem hann þyrfti. Það fylgdi orðsendingunni, að Magn- ús konungur gaf Sveini Danaveldi eftir sinn dag, segir, að það var maklegt, að Haraldur réði fyrir Noregi, en Sveinn fyrir Danmörku. Síðan andaðist Magnús konungur góði, og var hann allmjög harmdauði 'allri alþýðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.