Þjóðviljinn - 09.08.1964, Blaðsíða 6
X
6 SlDA
ÞIÓÐVILJINN
Sunnudagur 9. ágúst 1964
Þessir vlnna við mjölmóttökuna í verksmiðjunni og kalla þctta galeiðuna. Þeir hcita talið frá
vinstri: Kristinn Ragnarsson Reykjavík og Valgarður Sigurðsson Hafnarfirði, annar fimmtubekk-
ingur í M. R, og hinn fimmtubekkingur í M. A. Þórhallur Sigurðsson Hafnarf. og Halldór Bjarna-
son, Reykjavík. Sá síðastnefndi, var í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar í vetur.
[RALLTÍ
SKRALLI?
Nú er síldveiðiflQtinn búinn
að ausa upp síldinni í rúma
fjörutíu sólarhringa á Seyðis-
fjarðardýpinu og ekkert lát
virðist vera á síldarmagninu
á þessum slóðum.
Þetta er gullkista sumarsins
og merkilega óþrjótandi fram
á þennan dag; það er eins og
síldin þjappist saman á þenn-
an eina púnkt dögum saman.
Þetta er fyrir utan bæjar-
dymar á Seyðisfirði.
Þrýstingur flotans hefur
beinzt með ofurþunga inn á
þennan lognsæla fjörð í kapp-
hlaupinu um að losna við afl-
ann.
Allra augu hafa beinzt að
þessu gamla höfðingjaplássi á
Austfjörðum og sérstaklega að
fimm þúsund mála verksmiðju
á staðnum.
Enginn blettur á landinu
hefur verið sveipaður öðrum
eins tilfinningaofea og reiði-
öldum þessa fjörutíu daga
enda eru allir með hiksta í
síldarverksmiðjunni á Seyðis-
firði.
Hver minnsta töf í rekstrin-
um kostar sjómennina tugi
þúsunda króna í töpuðum afla-
verðmætum, og verksmiðjan
bræddi aðeins þúsund mál
fyrstu dagana á vertíðinni.
--------------------------------3>
Nýtt hefti of
„Vinnunni"
Vinnan, tímarit Alþýðusam-
bands íslands 5—8. hefti, er
nýlega komin út. Af efni hennar
má nefna afmælisgrein um Her-
mann Guðmundsson formann
Hlífar í Hafnarfirði 'fimmtugan,
greinar um uppgjör launamála
6.1. vor, reynslu af hóplíftrygg-
ingum, sjómannakjörin. ráð-
stefnu um vinnuhagræðingu í
íslenzku atvinnulífi, verkakonur
á Bretlandseyjum, starfsgreina-
samböndin þrjú, sem stofnuð
voru hér s.l. vor. Hannibal
Valdimarsson ritar um Davíð
Stefánsson látinn, grein er um'
listasögu Bjöms Th. Björnssonar
og hin nýju orlofsheimili verka-
lýðs"amtakanna. sem eru að risa
austan fjalls. Ritstjómargreinin
nefnist „Allir vildu Lilju kveðið
hafa“ og fjallar um samkomu-
lagið í launamálunum. og loks
eru í heftinu nýjustu kaupgja'lds-
tíðindi.
( _________ ■
5 milj. í bæfur
fyrir meiðyrði
LONDON 6/8 — Boothy lávarður
sem var atkvæðamikill þingmað-
ur Ihaldsflokksins áður en hann
tók við aðalstign hefur fengið
greiddar um 5 miljónir króna í
miskabæt.ur frá blöðunum „Daily
Mirror“ og Sunday Mirror“ sein
höfðu gefið í skyn að hann væri
kynvilltur og hefði verið í tygj-
um við glæpaforingja í London
og klerka úti á landsbyggðirmi.
Síðan hefur verksmiðjan
verið undir smásjánni hjá blöð-
•unum og þau endurspegla á
vissan hátt ofsa sjómannanna
og þegar lítið hjól hættir að
snúast um stundarsakir ér
rekið upp skaðræðisvein um
allt land og allir vita að þjóð-
Þess vegna verður maður
hissa að rekast á rólegan
pípumann, sem situr á göml-
um trékassa fyrir utan einar
verksmiðjudytnar og sleikir
sólskinið eins og köttur,
— Hér er allt í skralli, eða
hvað?
Hann tekur út úr sér píp-
una, er seinn til svars og hann
spýtir fyrst firnalangt:
— Þeir segja það.
— Mikið er nú ausið upp af
síldinni.
— Það er sagt svo.
Fæ mér sæti á öðrum tré-
kassa og tek upp pípu mína
og við sitjum þegjandi dágóða
stund. Svo lítur hann rannsak-
andi á mig og segir svo:
— Við erum búnir að bræða
hundrað og þrjátíu þúsund
mál. Það trúir því bara eng-
inn. Mikið er lítill sannfæring-
arkraftur í röddinni.
— Hér er fólk alltaf að koma
og skoða fyrirbærið. Það er
um gættina og virðir fyrir sér
vélamar í rökkrinu. Hér er
víst allt í skralli, segir það.
Héma komu tvær fínar frúr
á dögunum. Mér heyrðist þær
vera reykvískar, — minnsta
kosti var bíllinn þelrra merfct-
ur errinu.
Þær snussuðu hérna inn um
gættina og önnur segir sem
svo:
— Þama snýst nú eitthvað.
Það getur ekki verið, segir hin.
Hér er allt í skralli. Þær
fóru með það.
— * —
Einn maður er uppi á háa
c-inu inni í verksmiðjunni, og
er það verksmiðj ust j órinn
sjálfur. Hann heitir Einar
Magnússon og vann lemgi í
Véismiðjunni Héðni í Reykja-
vik.
Þetta er landsfrægt jötun-
menni að burðum og hressi-
legur til munnsins, — hefur
hann ekki látið standa upp í
bólið sitt í laglegum orðaskipt-
um við menn um ævina. En
spjótin hafa verið mörg á lofti
í sumar og beinzt að þessari
gömlu kempu.
Hann er kominn með hæsi.
Ég kom að honum á eins-
konar verkstjórnarskrifstofu;
var hann að hella sér yfir einn
kranamanninn og hressilegra
orðskrúð h’ef ég ekki heyrt á
ævinni. Ég fölna ennþá yfir
lýsingarorðunum og fingumir
fara í ávíl á ritvélinni.
En hann er ekki alltaf svona
málgefinn.
Rukkari kom einu sinni í
heimsókn tíl hans í höfuðborg-
inni og var hann þá á vist
hjá Héðni. Hann vaf skuldum
vafinn eins og mörgum hætt-
ir til í þessari borg.
■ Rukkarinn snaraðist inn úr
dyrunum með fulla skjalatösku
af reikningum, skellti hermi á
borðið og sagðist vilja fá borg-
að.
Einar sat á legubekk og
mælti ekki^orð af vörum.
Rukkarinn opnaði töskuna
með þessum einbeitta hörku-
svip sem fylgir stéttinni og
tók að tína upp reikningana.
Hann var búinn að leita
marga daga að Einari og ævin-
lega hafði íbúðin hans verið
lokuð.
Ekki hraut Einari orð af vör-
um að heldur.
En allt { einu beygði Einar
sig undir bekkinn og tók fram
sveðju eina mikla og fór að
brýna.
Nú hægði rukkarinn á sér
og tók svona upp einn og einn
reikning á stangli.
Einar hélt hinsvegar áfram
að brýna og var alvaran upp-
máluð.
Þetta var víst áhrifamikil
stund.
Allt í einu fóru reikningarn-
ir að hverfa aftur upp í tösk-
una, — fyrst hægt og hægt
og síðan með sívaxandi hraða<S>
og að lokum sást i iljarnar á
rukkaranum.
Einar er mikið karlmenni að
burðum.
Það er 'sagt að hann hafi
stundum stungið gashytkjunum
undir sinn hvom handlegg og
haldið á þeim niður að höfn.
Iiann er ekki hrifinn af
fréttamönnum. Allir mega þeir
fara til andskotans.
— Það hefur enginn neitt
eftir mér.
Minn timi er ekki kominn
ennþá. En ég lúri á ýmsum at-
hugasemdum.
Einhverntíma kemur að því,
að ég opna mig.
Svo var hann rokinn i burtu.
g.m.
Myndir og texti eftir G.M.
arbúið tapar á þessum mínút- mikill ferðamannastraumur um
um. Seyðisfjörð núna.
— ★ — Það rekur hérna nefið inn
Þessir vinna i skilvinduhúsinu I verksmiðjunni og heita talið frá vinstri: Sigmar Friðriksson frá
Seyðisfirði, Sævar Gunnarsson og Barði Þórhalisson, báðir frá Reykjavfk.
Hérna situr Einar Magnússon við símann’ og er nýbúinn að helia
sér yfir einn kranamanninn, Fyrir aftan hann er Baldur Guð-
mundsson, útgerðarmaður og síldarsaltandi á Seyðisfirði, með
Baldur son sinn. Hann gerir út v.b. Guðmund Þórðarson og geng-
ur stundum undir nafninu Baldur blanki.
Fyrstu tíu dagana bræddi síldarverksmiðjan á Seyðisfirði þúsund
mál á sólarhring og stafaði það ekki sízt af óvönum mönnum á
pressunum. Svo komu færir mcnn á vettvang og hefur verksmiðj-
an brætt með eðlilegum afköstum síðan. Hér er mynd af öðrum
pressumanninum við vinnu sína og heitir hann Gautur Stefáns-
son og er búsettur á Hörpugötunni í Reykjavík. Pressurnar e>ru
tvær og afkasta þær tvö þúsund og fimm hundruð málum hvor
á sólarhring. Það var Gautur, sem fékk þær til þess að skila
eðlilegum afköstum.
Froskmenn leita
fornra minja í
Færeyjum
1 Færeyjum hafa froskkaf-
arar meö sér félagsskap og
blaðið 14. september segir frá
því sl. laugardag. að hinn 25.
júlí sl. hafi Torshavnar
Froskmannafélag efnt til
keppni í „spjótfiskiskapi" f
Sandagerði, þ. e. veiðum með
Spakmæ/i
frá fímm
löndum
★ „Þvi hærra sem bambus-
reyrinn vex. þeim mun dýpra
er hægt að beygja hann’’
(Filippseyjar).
★t „Mjög fáir menn trúa þvl
nokkum tíma, að þeir kunni
að hafá á röngu að standa”
(Nýja Sjáland).
★ „Hatur verður ekki flæmt
burt með hatri, heldur með
góðvild.. Það er hið eilífa lög-
mál” (Ceylon).
★ ..Alveg á sama hátt og blek
og pappír. er einn maður
ekki til neins gagns án ann-
ars” (Malajsía).
★I ,Það er betra að varðveita
frið en koma 4 friði” (Holland)
stunguspjótum, en slíkar veið-.
ar eru vinsælt sport víða í suð-
lægari höfum. Keppendur voru
fjórir og veiddu samtals 12,25
pund. þar af einn 5 punda
steinbít.
Tórshavnar Froskmannafé-
lag virðist starfa vél. því að
félagið gefur út sérstakt blað.
Froskmannatíðindi. 1 viðtali
við 14. september segir félags-
formaðurinn, Arnbjörn Thom-
sen, að félagamir ráðgeri að
fara til Kirkjubæjar og kánna
hvort nokkuð leynist sögulegra
og fornra minja á hafsbotnin-
um þar í grennd. 1 aprílmánuði
síðastliðnum köfuðu frosk-
mennimir utan við Skansinn i
Tórshavn og fundu þá nokkr-
ar gamlar fallbyssukúiur, en
Skansinn var um aldaraðir
virkisstaður bæjarins og þar
hafa löngum verið fallbyssu-
stæði. Síðustu sjö árin hafa
froskmennimir reyr.t að finna
fallstykki sem vitað er að eru
sokkin einhversstaðar þama
framan við Skansinn en sú leit
hefur ekki borið árangur.
SkólavorSustíg 36
5íml 23970.
INNHEtWA*""""""1
Í.ÖÖFWEQiaTðlZV