Þjóðviljinn - 14.08.1964, Page 2
SlDA
ÞJÓÐVILIINN
FSstudagur 14. ágúst 1964
Félagsráðgjafi
(social worker) óskast til starfa við sjúkrastofn-
anir borgarinnar frá 1. íjan. 1965.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Heilsu-
verndarstöðinni fyrir 1. sept. n.k.
Reykjavík, 13. ágúst 1964
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Aðstoðarlæknir
Vantar að sjúkrahúsinu á Selfossi 1. október næst-
komandi. Upplýsingar um starfið gefa yfirlækn-
irinn og ráðsmaður sjúkrahússins.
Umsóknir sendist stjórn sjúkrahússins fyrir 1.
september næstkomandi.
Sjúkrahúsið á Selfossi.
Aövörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti 1964.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og
heimild í lögum nr- 10, 22. marz 1960, verður at-
vinnurekstur þeirra fyrirtækja hér.í umdæminu,
sem enn skulda söluskatt 2- ársfjórðungs 1964, svo
og söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa
gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt
áföllnura dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem
vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil
nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 13. ágúst 1964.
Sigurjón Sigurðsson.
Nessókn Reykjavík
Safnaðarfélög Nessóknar efna til kirkju- og
skemmtiferðar fyrir safnaðarfólk n.k. sunnudag
16- ágúst rrteð m.s- Akraborg til Akraness. Messað
þar, séra Frank M. HalLdórsson prédikar en séra
Jón Thorarensen þjónar fyrir altari, síðan ekið um
Borgarfjarðarhérað.
Þátttaka tilkynnist, og nánari upplýsingar í síma
16783, föstudag kl. 1—5, laugardag. kl. 10—12, á
öðrum tíma í síma 17736. Farseðlar seldir í Nes-
kirkju á sama tíma.
Safnaðarfélög Nessóknar.
FERÐABÍLAR
9 til 17 farþega Hlercedes-Benz hópferðabílar af nýjustn
grerð, til leigu 1 lengrri og skemmri ferðir — Afgrreiðsla
alla virka daga. kvöld og um helgar i síma 20969
HARALDUR
EGGERTSSON,
Grettisgötu 52.
Sýningar LR á liðnu
ieikárí 150 í iðnó,
sætanýtingin 82%
■ Á síðasta leikári hafði L-eikfélag Reykjavíkur
alls 150 sýningar í gömlu Iðnó eða fleiri en nokkru
sinni áður á einu leikári. Aðsókn að leiksýning-
unum var mjög mikil eða 82% sætanýting.
Þetta kom fram á nýafstöðn-
um aðalfundi Leikfélags Reyk.ia-
víkur, en svofellda fréttatilkynn-
ingu hefur félagið sent Þjóðvilj-
anum;
„Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Leikfélags Revkjavíkur. For-
maður, Helgi Skúlason, setti
fundinn, en Sveinn Einarsson
leikhússtiórj flutti síðan skýrslu
um starfsemi leikhússins í vetur.
Það var góðæri hiá Leikfélagi
Reyk.iavíkur í vetur eins og leik-
árið áður Sýnd voru samtals 6
leikrit. tvö þeirra íslenz'k og
leikið samtals 150 sinnum í
Iðnó. en iafn margar hafa sýn-
ingar félagsins aldrei« verið á
einu leikári I fyrra voru þær
120.
Það bar við á úmánuðum að
f.iögur leikrit voru • í sýningu
samtímis, en það mun ekki hafa
gerzt í Iðnó áður. Höfuðástæð-
an var sú. að i vetur voru bætt
nokkuð skilyrði til leiktjalda-
geymslu. Auk sýninganna í
Reykiavík voru þriár sýningar
-utanbæiar og í vor var efnt til
leikfarar tii Eæreyia með Hart í
bak Sú ferð var bin mesta sig-
urför og var leikið 5 sinnum
í Havnar Siónleikarhúsi.
Um 30 leikarar komu fram
í sýningum félagsins í vetur. en
alls um 40 manns að nemendum
og aukaleikurum meðtöldum.
Leikstiórar voru fiórir, einn
þeirra erlendur, Thomas Mac
Anna, sem var fyrsti gestaleik-
stióri Leikfélagsins í fimmtán
ár.
Auk leiksýninganna stóð Leik-
félagið fyrir kvikmyndasýning-
um, umræðufundum og fyrir-
lestrahaldi á leikárinu. Það
starfrækti leiklistarskóla; kenn-
arar við skólann voru 9„en nem-
endur nálega 30 í tveimur
flokkum, byriendaflokki og fram-
haldsflokki Fiórir nemendur
luku í vor burtfararprófi eftir
þri.ggia ára nám.
Á leikárinu lét hússtiórn Iðnó
gera miklar breytingar á fata-
geymslu og aðgöngumiðasölu. 02
skrifstofa leikhússins fluttist í
ný húsakynni.
Sýningar félagsins hlutu í
heild góða dóma og undirtektir^
áhorfenda, enda var aðsókn
m.iög mikil, sætanýting 82%.
Að lokinni skýrslu leikhús-
st.ióra voru umræður um hús-
byggingarmál félagsins og mál-
inu vísað til leikhúsráðs.
Stióm félagsins skipa nú
Helgi Skúlason formaður, Stein-
dór Hiörleifsson ritari og Guð-
mundur Pálsson meðst.iómandi.
f varastiórn: Karl Sigurfisson og
Gissur Pálsson, en frestað var
kosningu varaformanns til fram-
haldsaðalfundar í haust.
íslendingur Esper-
antohöfundur ársins
Baldur Ragnarsson.
■ Heimsþing esperant-
ista, hið 49. í röðinni, var
haldið í Haag dagana 1.
til 8. ágúst. Þingið sóttu
hálft þriðja þúsUnd esper-
antistar frá fjörutiu lönd-
um. í sambandi við þing-
ið starfaði hinn árlegi
KODACHROMEII
(lSdin)
KODACHROME X
(19 din)
Þér
getið treyst
Kodak filmum
— mest seldu filmum í heimi —
LITFILMUR
KODAK litfilmur
skila réttari litum
og skarþari myndum
en nokkrar aðrar litfilmur.
wsé IPETM
Bankastræti - Sími 20313
sumarháskóli Almenna
Esperantosambandsins,
þar sem háskólaprófessor-
ar og kennarar frá ýms-
um löndum heims fluttu
fyrirlestra á esperanto.
Jafnhliða aðalþinginu voru
haldin í Haag. 34. alþjóða-
þing blindra esperantista
og 9. alþjóðamót barna og
unglinga, sem tala esper-
anto- I lok þingsins til-
kynnti dómnefnd, að ís-
lendingur, Baldur Ragn-
arsson, hefði hlotið viður-
kenninguna „Esperanto-
höfundur ársins" fyrir
þýðingar sínar á esperanto
úr íslenzkum fornbók-
menntum og á tveimur
ljóðabókum Þorsteins frá
Hamri. Eftir Baldur Ragn-
arsson hafa áður komið
út tvær frumsamdar
ljóðabækur, önnur á esp-
eranto, hin á íslenzku-
(Frá Sambandi ís-
lenzkra esperantista).
Enn auðgast
Ford
Ford Motor Company í
Detroit hefur nú tilkynnt þaö,
að nettótekjur félagsins fyrir
annan fjórðung þessa árs hafi
verið hvorki meira né minna
en 179.700.999 dalir. Er þetta
15% hærra en upphæð tilsvar-
andi ársfjórðungs í fyrra.
Sýning Lcikfélags Rcykjavíkur á leikriti Jean Paul Sartre „Fang-
amir í AItona“ vakti mikla athygli, hlaut góða dóma og var
vel sótt. Á myndinni sjást þau Sigríður Hagalín og Helgi Skúla-
son í hlutvcrkum sinum í leiknum.
Áköf herferð gegn
Jaumukomnta'
NEW YORK 12/8 — Nú er
mögnuð hörð áróðurshrífl gegn
Jakob Javits öldungardeildar-
þingmanni Republikana, «em
hefur neitað að styðja forseta-
efni flokksins Barry Goldwater.
f umfangsmikilli póst- og síma-
áróðursherferð gegn Javits er
því haldið fram að hann sé
laumukommi.
Það er skorað á almenning að
hringja í ákveðin símanúmer í
New York, Fíladelfíu og öðrum
bandarískum boirgum þar sem
hægt er að heyra segulbands-
upptöku, þar sem sagt er frá
því að Javits sé hundrað prós-
ent laumukommúnisti og standi
hann í stöðugu sambandi við
þekkta leiðtoga kommúnista.
Röddin, sem kallar sig rödd
frelsisins, skýrir frá því að
frekari upplýsingar um Javits
sé hægt að fá með því að skrifa
ákveðnu pósthólfi.
Síðustu daga hefur prentuðum
áróðri einnig verið dreift ’í New
York með samsvarandi árásum
á öldungadeildarfþingmanninn.
Á sama tíma er verið að reyna
að brúa bilin innan Repúblik-
anaflokksins eftir sundrungina,
sem varð. í flokknum, þegar
Barry Goldwater var útnefndur
forsetaefni hans. í dag kemur
saman fundur æðstu leiðtoga
flokksins sem haldinn verður í
Hershey í Pensylvaníuriki. Með-
al þeirra sem fundinn sitja
verða Eisenhower og William
Scranton, sem var einn helzti
andstæðingur Goldwaters í bar-
áttunni fyrir forsetaframböðið.
Skammt-
að frelsi
Morgunblaðið kveðst hafa
tekið upp þann hátt „að
leyfa frjálsa hugsun á síð-
um sínum”, og á þar við
pistla þá sem Sigufður A.
Magnússon fær að birta á
afviknum stað í Lesbók
Morgunblaðsins. Kveður
Morgunblaðið ekki hafa ver-
ið vanþörf á þessari ný-
hreytni því önnur skrif hafi
verið til marks um þá skoð-
un „að þroski íslenzks al-
mennings hafi ekki þokazt
lengra inn í nútímann en
gömlu fjallvegirnir, sem farn-
ir voru fyrir þúsundum ára”,
enda hafi engum verið „liðið
að stíga fæti út af öræfaslóð
þess gamla þrönglyndis, sem
allt of lengi hefur þjakað
íslenzka blaðamennsku”. Skuli
skrif Morgunblaðsins nú vera
„opinn vet'vangur en ekki
kalkaðar grafir þrönglyndra
skoðana”
Það fagnaðarríka frelsi
sem Morgunblaðið talar um
hefur birzt í því að Sigurður
A. Magnússon hefur til að
mynda barizt gegn dátasjón-
varpi, beitt sér gegn því að
hermennimir af Keflavíkur-
flugvelli fengju að flæða eft-
irlitslaust um landið og gagn-
rýnt skattpíningu stjómar-
valdanna og óheiðarleg skrif
stjórnarblaðanna í því sam-
bandi. Þannig verða hvers-
dagslegustu sannindi Þjóðvilj-
ans að háleitu frelsi um leið
og þau birtast á síðum Morg-
unblaðsins. En hvers vegna
er frelsið svona nauwit
skammtað? Hinn frjálsi dálk-
ur Sigurðar A. Magnússönar
hefur að meðaltali birzt einu-
sinni í hálfum mánuði að
undanförnu, en á sama tíma
birtast 1499 dálkar af öræfa-
slóð þrönglyndisins. Er hin-
um eina dálki Sigurðar ekki
einmitt ætlað að fá lesendur
Morgunblaðsins til að sætta
sig við að hírast áfram x
kölkuðum gröfum þröng-
lyndra skoðana, á svipaðan
hátt og öryggisloki kemur í
veg fyrir að ketill springi?
Austri.