Þjóðviljinn - 14.08.1964, Side 3
Pðstudagur 14. ágúst 1964 ■ — —— ....... ... .....» '■ i"" ■ vmrnsm
SÍÐA 3
Óhæfa að þeir njóti forréttinda þegar Tyrkir eru
ofsóttir á Kýpur, segir talsmaðu r Tyrkjastjórnar
Hótað brottfíutningi
Grikkja úr Tyrklandi
Loftárásir Tyrkja á Kýpur
ANKARA 13/8 — Talsmaður tyrknesku stjórnarinnar
sagði í dag að allir grískir þegnar sem búsettir eru í Tyrk-
landi myndu verða fluttir nauðugir úr landi heim til Grikk-
lands ef gríska stjómin hætti ekki skilyrðislausum stuðn-
ingi sínum við stjórn Makariosar á Kýpur.
Talsmaðurinn sagði að Tyrkir
gsetu ekki sætt sig við að þessir
útlendingar fengju að hafa bú-
sety í Tyrklandi og njóta þar
forréttinda á meðan þúsundir
Tyrkja væru ofsóttar á Kýpur
og bannaðar allar bjargir, m. a.
neitað um vatn.
Hann tók þó um leið fram
að tyrkneska stjórnin væri sann-
færð um að þegar til lengdar léti
myndi sambúð Grikkja og Tyrkja
batna. Þeir þörfnuðust hvorir
annarra. Inönii forsætisherra
væri sérstaklega hugað um að
viðhalda samvinnu Grikkja og
Tyrkja og forðast hvers konar
árekstra sem ekki yrði aftur fyr-
ir bætt.
Svar til Krústjoffs
Inönú hefur sent Krústjoff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
svar við boðskap þeim sem hann
sendi Tyrkjum til að vara þá
við afleiðingum af hernaðarof-
beldi þeirra gegn Kýpurbúum.
Inönú segir að Tyrkir hafi lagt
sig alla fram við að leysa Kýp-
urdeiluna með samningum, en
begar þeir hafi farið fram á það
við ö ryggisráðið að það fjallaði
um deiiuna hefðu Grikkir hafið
árásir á bæi Tyrkja á eynni.
Friðvænlegra
Eftir fréttum sem borizt hafa
til Ankara frá Kýpur að dæma
er ástandið þar nú friðvænlegra
en verið hefur undanfarna viku.
Hvergi hefur frétzt af átökum
milli Grikkja og Tyrkja, en þeir
siðarnefndu eiga í miklum erfið-
leikum að sögn talsmanna tyrk-
nesku stjórnarinnar.
1 Paphos hefur verið lokað
fyrir al'lar vatnsleiðslur til tyrk-
neska hveriisms og í Nikósíu og
víða annar staðar fá Tyrkir ekki
benzín eða annað eldsneyti. Tals-
maðurinn sagði að ef þessu yrði
haldið áfram mjmdi tyrkneska
stjómin nauðbeygð að nota sér
heimild í samningi frá 1923
til þess að reka alla gríska þegna
úr landi.
Grivas tekinn við
Skýrt var frá því í Aþenu í
dag að Grivas, sem á sínum tíma
stjómaði skæruhemaði Kýpur-
búa gegn Bretum, hefði tekið við
stjórn þjóðvarnarliðsins á Kýp-
ur. Karayannis hershöfðingi, sem
verið hefur foringi þess, hefur
sagt af sér og er ástæðan talin
sú að hann hafi verið andvigur
árásunym á þorp Tyrkja, sem
þeir notuðu sem átyllu fyrir loft-
árásimar á eyna.
Bandarísk tillaga
Dean ' Acheson, fyrrverandi ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem verður viðstaddur viðræð-
umar um Kýpur í Genf sem á-
heymarfulltrúi er sagður munu
leggja fram tillögu til lausnar
deilunni á þann veg að Kýpur
verði sambandsríki Grikklands,
en Tyrkir fái herstöð á eynni.
Skoðanakönnun í Bretiandi
Ihaldsflokkurinn er
aftur ai sækja sig
LONDON 13/8 — Verkamanna-1 ar sú að flestir hinna óráðnu
flokkurinn í Bretlandi hefur kjósa þann flokkinn sem situr
aftur misst mest af því forskoti | við völd.
sem hann hafði fcngið fram yf-
Myndirnar eru teknar þegar Tyrkir gerðu árásir s ínar á Kýpur um síðustu helgi. Efri myndin er
af einu skipi Kýpurstjómar sem varð fyrir spren gjum Tyrkja. Á þcirri ncðri sjást skipverjar bera
særðan fé laga sinn.
--------------------------------<*>
Kynjþáttaóeirðir
enn í New Jersey
PATERSON 13/8 — Aftur í gær
urðu kynþáttaóeirðir í New
Jersey ríki í Bandaríkjunum, í
þetta sinn í bænum Paterson,
en þar höfðu einnig orðið upp-
þot í fyrrakvöld.
Óeirðirnar í gær urðu sam-
tímis þvi sem *borgarstjórinn,
Frank Graves. sat á fundi með
leiðtogum blökkumanna í borg-
inni. Minnstu munaði að hann
yrði sjálfur fyrir tómri flösku
þegar hann kom á fundinn. Lög-
reglustjórinn í Paterson sagði að
það hefðu einkum verið ungling-
ar, bæði hvítir og dökkir. sem
staðið hefðu fyrir ólátunum og
hefðu þeir notað tækifærið til
að brjótast inn í verzlanir og
ræna og rupla.
Nokkrir voru handteknir í
Paterson og bænum Elisabeth í
''vrrakvöld, sakaðir um innbrot.
Engin uppþot hafa orðið síð-
ustu daga í Jersey City í New
Jersey þar sem blóðugar óeirðir
urðu í síðustu viku, en lögregl-
an þar hefur enn mikinn við-
búnað.
ir íhaldsflokkinn, ef trúa má
niðurstöðum skoðanakönnunar
sem birtar voru í London í dag.
Fyrri skoðanakannanir höfðu
sýnt að Verkamannaflokkurinn
hafði það mikið fylgi fram yfir
íhaldsflokkinn að hann gat gert
sér vonir um að fá um 100 þing-
sæta meirihluta í kosningunum
í haust, en samkvæmt þesari síð_
ustu könnun er sá meirihluti nú
ekki meiri en sem samsvarar
0,6 prósentum Það myndi ekki
nægja flokknum til meirihluta
á þingi vegna hinnar ranglátu
kjördæmaskipunar sem er í-
haldsmönnum i vil heldur myndi
íhaldsflokkurinn fá um 30 þing-
sæta meirihluta. ef atkvæði féllu
þannig.
Á það er þó bent að ekki sé
fýllilega að treysta þessum nið-
urstöðum, einkum þar serþ
tæplega fjórðungur kjösenda
(24%) heíur enn ekki skipað
sér í flokka. Venjan er hins veg-
Einn af lestarræningjunum
er sloppinn úr fangelsinu
Afplánaði 31 árs fangelsisdóm, er nú leitað um.allt
Bretland, en hefur sennilega þégar komizt úr landi
LONDON 13/8 — Scotland Yard leitar nú um allt Bret*
land að einum höfuðpaurinum 1 hinu mikla lestarráni Sem ir
framið var við London í fyrra, Charles Frederick Wilson,
en honum tókst að sleppa úr fangelsi við Birmingham
í gær, þar sem hann afplánaði 31 árs fangelsisdóm. > ,
Lögreglan leitar einnig ljós-
hærðrar konu á fertugsaldri, sem
sást í kyrrstæðum bíl skammt
frá fangelsinu rétt áður en Wil-
Uppreisnarherinn í
Kongó á undanhaldi
ELISABETHVILLE 13/8 r- Upp-
reisnarherinn sem síðan i byrj-
un júní hefur haft bæinn Al-
fcertville í Norður-Katanga á
valdi sínu virðist nú í þann veg-
inn að halda burt þaðan.
Fréttir sem borizt hafa til El-
isabethville i Suöur-Katanga
herma að uppreisnarmenn séu
mjög eirðarlausir, en ekki er
ljóst hvernig stendur á því að
þeir ætla að hörfa frá bænum.
Sagt er að þeir séu famir úr
samgöngumiðstóðinni Kabalo í
Norður-Katanga og stefni þaðan
til Kasongo og Kindu i Kívú-
fylki. Uppreisnarmenn höfðu
annars komið frá Kasongo og
tekið Kabalo fyrir nokkrum vik-
son flúði úr fangelsinu. Hún
hafði sézt í slagtogi með tveimur
karlmönnum hálftíma fyrir flótt-
ann. Sennilegt er talið að þetta
hafi verið eiginkona Wilsons,
sem fyrir mánuði sagði að það
fangelsi væri ekki til í Bretlandi
sem maður hennar myndi ekki
geta flúið úr.
)
Kominn úr landi?
Enda þótt WÚsons sé ieitað um
allt Bretland og þó einkum í
Birmingham og nágrenni, er tal-
ið sennilegt að honum hafi þeg-
ar tekizt að flýja land og hafi
flugvél beðið ferðbúin að flytja
hann burt strax eftir flóttann úr
fangelsinu.
Hættulcgir
Lögregluforinginn sem stjómar
leitinni, Gerald Baumer, segir að
Wilson og félagar hans sem að-
stouuðu hann við flótann séu
hættulegir menn og til alis vís-
Þeir séu vafalaust vopnaðir
og muni ekki hika við að beita
vopnum sínum, ef þer komast
í hann krappan.
300 miljónir
Ránsfengurinn var 2,5 milj-
ónir sterlingspunda eða um 300
miljónir króna og hefur aðeins
hafzt upp ,á óverulegum hluta
hans. Grunur leikur á að megn-
inu hafi verið komið úr landi
og nokkrir ræningjanna eru enn
lausir og áreiðanlega erlendis.
Flestir þeirra hafa þó náðst og
voiu dæmdir í óvenju þungar
fangélsisrefsingar.
Orðrómur
Fangi einn sem verið hafði i
næsta klefa við Wilson í fang-
elsinu en látinn var laus í dag
segir að orðrómur hafi verið á
kreiki um að Wilson ætlaði að
flýja, en allt hafi verið með eðli-
legum hætti í fangelsinu þegar
flóttinn átti sér stað. Hann sagði
að Wilson hefði verið kyrrlátur
og fáskiptinn. Hann vann á klaxð-
skerastofu fangelsisins og hafði
þar 20 krónur á viku í kaup.
Goldwater segir að Johnson
hafí heimilað að beitt sé
kjarnavopnum í Vietnam
WASHINGTON 13/8 — Barry Goldwater, forsetaefni Repúblik-
ana, sagði í gær á fundi með foringjum Repúblikana í bænum
Hershey í Pennsylvaníu að greinargerð Johnsons forseta um þær
fyrirskipanir sem hann hefði gefið vegna stríðsins í Vietnam bæri
með sér að forsetinn hefði heimilað herforingjum Bandaríkjanna
þar að beiita kjarnavopnum ef þeir teldu það nauðsynlegt.
Þessari túlkun Goldwaters á
ummælum Johnsons forseta var
neitað afdráttarlaust í Hvíta
húsinu í dag,.
1 gærkvöld gáfu þeir Dean
Rusk utanríkisráðherra og Ro-
bert McNamara landvarnaráð-
heiTa út sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem sagt var að túlk-
un Goldwaters á ummælum for-
setans væri bæði ástæðulaus og
ábyrgðarlaus, og í dag sagði
blaðafulltrúi Johnsons, George
Reedy, að í greinargerð forset-
ans hefði ekki verið minnzt einu
orði á notkun kjarnavopna. 1
fyrirmælum forsetans til yfir-
manna sjöunda flotans og
bandaríska hersins í Suður-Asíu
hefði heldur ekki verið minnzt á
kjarnavopn.
♦
i
i