Þjóðviljinn - 14.08.1964, Qupperneq 4
4 SIÐA
HÓÐVILJINN
Fðstudagur 14. ágúst 1964
Otgefandi: Sameinmgarflokkur alþýðu — SósíaUstaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sígurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19,
Sími 17-500 (5 linur) Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði.
Synjað um rétt/æti
JJíkisstjórnin hefur nú synjað öllum meginkröf-
um stjórnarandstöðunnar um' endurmat á skött-
um og útsvörum. Eru þessi viðbrögð ríkisstjórn-
arinnar þeim mun óskiljanlegri og alvarlegri, þar
sem jafnt málgögn stjórnarinnar sem stjórnar-
andstöðunnar hafa staðfest að hækkanirnar á
sköttum og útsvörum séu langt umfram það, sem
heilbrigt geti talizt. Viðskiptamálaráðherra, Gylfi
Þ. Gíslason, játaði þessa staðreynd í Alþýðublað-
inu þann 8. ágúst sl. og segir þar m.a orðrétt, að út-
svars- og skattstigarnir hafi „ekki verið lækkaðir
eins mikið og nauðsynlegt hefði verið til þess að
einstaklingar og félög greiddu yfirleitt hlutfalls-
lega jafnmikið til opinberra þarfa, af tekjum sín-
um og t.d. ári áður“. í þessu felst bein viðurkenn-
ing þess, að skattarnir séu hærri en ríkisstjórnin
hafi til ætlazt við lagabreytingarnar á síðasta
þingi. Ekkert virtist því sjálfsagðara en að ríkis-
stjórnin yrði þegar við kröfunni um endurmat
skatta og útsvara. Synjun hennar verður því ekki
skilin á annan hátt en full brigð á loforðum stjórn-
arinnar frá því í vor um að tryggja launastéttum
landsins óskertan kaupmátt tekna á þessu ári. Hér
er þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að rýra kaup-
mátt launafólks því haldið áfram í formi skatt-!
píningar.
gin meginástæðan fyrir kröfunni um endurmat
skatta og útsvara, er það hróplega ranglæti og
misræmi í álögum, sem stafar af stórfelldari skatt-
svikum nú en nokkru sinni hafa þekkzt dæmi til.
Alþýðublaðinu fórust m.a. svo orð um það efni
í leiðara sínum, að ekki væri „hægt að hækka op-
inber gjöld um 50 — 100% á öllum þorra heiðar-
legra íslendinga á sama tíma og fjöldi þeirra auð-
manna, sem sjálfir geta ráðið framtölum sínum,
sleppa að mestu leyti“. Og í öðrum leiðara Alþýðu-
blaðsins um þessi efni segir svo: „Þegar jáfn stór-
kostleg svik eiga sér stað og nú gerast fyrir allra
augum, mótmæla fastlaunamenn og munu halda
áfram að mótmæla, þar til úr er bætt“.
/
^lger synjun ríkisstjórnarinnar á endurmati
skatta og útsvara er því hnefahögg í andlit
allra launþega, um leið og skattsvikurunum er
hossað enn hærra og því lýst óbeint yfir, að þeir
þurfi ekkert að óttast um sinn hag. Svar ríkis-
stjórnarinnar er jafnframt alger hunzun á þeim
skoðunum, sem Alþýðublaðið hefur sett fram und-
anfarið. Hvemig bregzt Benedikt Gröndal ritstjóri
þess og alþingismaður við hunzun ríkisstjórnar-
innar á þeim sjónarmiðum, sem hann hefur túlk-
að í blaði sínu og áreiðanlega eru í samræmi við
skoðanir yfirgnæfandi meirihluta Alþýðuflokks-
manna? En hver svo sem viðbrögð Alþýðublaðs-
ins verða, mun það ásannast, að Alþýðublaðið
hafði rétt fyrir sér, þegar það sagði, að fas'tlauna-
menn mótmæli skattaálagningunni og „munu
balda áfram að mótmæla þar til úr er bætt“. Og
þau mótmæli hljóta nú að beinast gegn því, að
ríkisstjórnin hefur með svari sínu synjað launa-
fólki um réttlæti í skattamálunum. — b.
Bermuda - KR 2:2
í jöfnum leik
■ Það verður ekki annað sagt en þessir dökku
gestir okkar séu geðþekkir leikmenn, og á köfl-
um sýna þeir tilþrif sem eru betri og knatt-
spyrnulegri en hjá okkar mönnum. Þeir eiga til
smáaðgerðir, sem sýna að þeir hugsa og hafa
leikni til að útfæra þær. Leikur þeirra er líka
meira leikandi en hjá okkar knattspyrnumönn-
um. Þó verður ekki sagt að þeir hafi haft yfir-
burði hvað snerti gang leiksins í heild í fyrra-
kvöld, það lá ekki minna á 'Bermúda en KR. Það
var sem sagt sótt og varizt á báða bóga. Hraði
Bermúdamanna var samt mun meiri, þeir leika
meir strax er þeir fá knöttinn og þessvegna var
samleikur þeirra oft samfelldari en KR. Samt
tókst þeim ekki að skapa sér opin tækifæri og
það sama var um KR að segja, þótt leikmenn
beggja liða gerðu nokkuð að því að skjóta í tíma
og ótíma. Þó, voru Bermúdamenn heldur nær sigr-
inum, ef allt er tekið með í reikninginn.
Heldur gerðist lítið í leikn-
um til að byrja með og fátt
sem verulega var athyglisvert.
Þó fékk hægri innherji Berm-
udamanna klapp er hann tók
strax knött úr hornspyrnu og
þrumaði á markið, en skotið
kom í varnarmann, og þar elti
lánið KR, því að skotið var í
góðri hæð.
Litlu síðar fá Bermudamenn
aftur horn, og er Daniels, mið-
vörðurinn kominn fram og
skallar mjög vel. Varð Heimir
að slá knöttinn í horn.
Þegar liðinn var rúmur
stundarfjórðungur af leik varð
Heimir að yfirgefa völlinn;
hann hafði fengið högg á auga-
brún og varð að sauma það
saman. Guttormur Ólafsson úr
Þrótti fór þá í markið.
Eitt skemmtilegasta áhlaup
sem kom í leiknum gerði Ber-
múda-liðið á 27. mínútu leiks-
ins. Var . þar bæði hraði og
leikni sem var meistaralega
sameinað. Endaði þetta með
skoti, sem þó gaf ekki mark.
A 30. mínútu eiga Bermúda-
menn gott áhlaup, sem endar
með því að miðherjinn skýtur
hörkuskoti að marki KR, Gutt-
ormur fær naumlega varið
þannig að knötturinn lendir í
þverslá og þaðan upp og út
yfir til vinstri, en þá er sami
maður þangað kominn og
skallar að markinu aftur, og
lendir knötturinn þá hjá vinstri
innherjanum. sem tekst að
koma honum innfyrir línuna.
Á 37. mín er vinstri inn-
herjinn að sleppa innfyrir
vörnina en Bjarni bjargaði þar
á síðustu stundu, og lauk fyrri
hálfleik því 1:0 fyrir Bermúda-
menn.
ELLERT JAFNAR
Síðari hálfleikur var ekki
nema 5 mín. gamall þegar KR-
ingar áttu áhlaup upp miðju
vallarins, og sendi Ellert
knöttinn út til Sigurþórs sem
sendi hann aftur i góðri
hæð fyrir Ellert sem skallaði
óverjandi í mark óg jafnaði
1:1.
Á 16. mínútu leiksins fær
Gunnar Felixson bezta tæki-
færi leiksins, er hann spymir
að mannlausu- marki frá víta-
teig, en markmaður hafði kom-
ið langt út til að reyna að
loka, en skotið fór framhjá
markinu, eða réttara sagt
knötturinn sveif framhjá, því
að þetta var ekkí skot í þeirri
merkingu.
A 22. mín. voru Bermúda-
menn í sókn, og hrökk knött-
urinn úr KR-jngi til' vinstri
innherja sem komst þá innfyr-
ir og notaði sér tækifærið
mjög vel og skoraði óverjandi
fyrir Guttorm, og þar með
hafði Bermúda tekið aftur for-
ustuna 2:1.
Leikurinn helzt stöðugt jafn
og tvísýnn, og sækja KR-ing-
ar stundum allfast og skellur
hurð nærri hælum við mark
Bermúda, en öllu er bjargað.
Á 38. mínútu fær Gunnar
Guðmannsson knöttinn og ein-
leikur með hann upp að enda-
mörkum og sendi hann þaðan
fyrir, og nær Ellert því að
skalla. Knötturinn lendir til
Jóns Sigurðssonar sem er írír
Hér á myndinni sézt Sveinn kljást við
um knöttinn, en EUert (t.v.) fylgist með.
cinn Bermudamanninn
— (Ljósm. Bjarnleifur).
á vítateig og skorar með hörku
skoti óverjandi: 2:2. Og við
það sat.
„LOK AÆFIN G“
Þessi leiþur var að sjálf-
sögðu kaerkomin „genéral-
prufa“ hjá KR fyrir leikinn
við Liverpool á mánudaginn
kemur, en svo kemur spurn-
ingin hvort leikur þessi svari
nokkru um það hvort vel hafi
tekizt eða ekki, og hvort hann
lofi góðri frammistöðu og
hreki hrakspárnar um mögu-
leika KR í þeirri eldraun.
Sennilega getur enginn sagt,
að leikur KR lofi góðu, ef
leikurinn í fyrrakvöld er lagð-
ur til grundvallar, því að at-
vinnumennirnir brezku eru
engin lömb að leika sér við.
Hitt er svo annað mál, að KR-
ingar geta öllum iþróttamönn-
um fremur selt sig dýrt og
barizt þegar heiður og sæmd
KR er annarsvegar. En þeir
verða að setja upp meiri
hraða, leitá meira hver annars,
leika styttra, því að langspyrn-
ur verða þeim brezku ekki
erfiðar.
Og þeir verða að fá leik sinn
meira leikandi en á móti
Bermúda, þó brá fyrif smá-
köflum sem voru góðir.
Jón Sigurðsson sést hér skora síðara niark KR í
eo markvörður sem sést lengst t.h. fær ekkert
leiknum við Bermuda. Bakvörður rcyolr að verja,
að gert. — (Ljósm. Bjarnleifur Bjamlc-ifsson).
Sigurdór er nú kominn aftur
í KR-liðið og styrkir það liðið
til muna. Hann var þó ekki
eins virkur og áður, enda
naumast kominn í þjálfun enn
eftir hléið, en sótti sig er á
leið. Þorgeir var nokkra stund
að átta sig, en átti góðan síð-
ari hálfleik. Bjarni átti í mikl-
um erfiðleikum með útherjann
sinn, sem var mjög leikinn og
brellinn með knöttinn. Hreiðar
var betri en í landsleiknum,
en var ekki með í síðari hálf-
leik, en í hans stað lék ungur
maður, Ársæll Kjartansson, og
slapp vel. Þórður átti einn
bezta leik sinn til þessa.
Sveinn Jónsson vann mikið.
en það er eins og manni finn-
ist hann ekki fá nóg útúr erf-
iði sínu. Ellert var bezti mað-
ur framlínunnar. Nafnarnir
Felixson og Guðmannsson áttu
einnig nokkuð sæmilegan leik.
Jón Sigurðsson var oft óhepp-
inn með sendingar sínar, eins
og hann er þó leikinn með
knöttinn.
Guttormur í markinu stóð
sig vel og fyllti skarð Heimis
ágætlega.
Sem heild ætti KR-liðið að
geta fengið meira útúr leik
sínum en það náði móti
Bermúda.
Varnarskipulagið sem mun
verða móti Liverpool tókst
nokkuð vel, og vafalaust bíða
menn í ofvæni eftir mánudeg-
inum, og þá fyrst fáum við
sönnun fyrir því hvort vel hef-
ur tekizt móti Bermúda eða
ekki.
Bermúda kom nú með nýjan
markmann, sem virtist mun ör-
uggari en hinn, annars var lið-
ið lítið breytt. Beztu menn
þeirra voru miðvörðurinn,
miðherjinn, hægri bakvörður
og hægri framvörður auk
hægri útherjans sem áður var
getið.
Þótt knattspyrna þessara
manna sé ekki sérlega stór-
brotin er einhvern veginn
gáman að horfa á þá, maður er
sannfærður um, að þeir eru að
leika sér og njóta þess.
Enginn þeirra Bermúdamanna
fékk sinadrátt að þessu sinni,
og má vera að þeir séu farir
að venjast þessum mjúka velli,
en þeirra vellir í þurrkunum
eru harðari og léttari að
hlaupa á þeim.,
Dómari var Haukur Óskars-
son og dæmdi vel.
Frimann.
I