Þjóðviljinn - 16.08.1964, Qupperneq 2
2 SlÐA
ÞJÖÐVILJINN
Sunnudagur 16. ágúst 1964
heimiliö
Húsráð
■ Hvað er hægt að gera, þeg-
ar maður verður fyrir því ó-
happi að stór hluti af form-
kökunni situr eftir í forminu,
þegar henni er hvolft úr? Týn-
ið brotin úr forminu, penslið
þau með eggjahvítu og þrýstið
þeim laglega á þeirra stað i
kökunni. Að því lokpu látið
kökuna bíða i um það bil hálf-
tíma.
B Það er engin ástæða að
vera hræddur um pottaplönt-
umar sínar. ef lagt er af stað
í ferðalag út á land. Grafið
aðeins pottana niður á skugg-
saélum og skjólgóðum stað og
gefið þá á vald regni og dögg.
■ Sendið húsráðið til Þjóð-
viljans, Skólavörðustíg
19 og merkið umslag.
ið „Heimilið og við”.
Sænskur kvenrithöíundur skrifur um
Konur—og annað fólk
Eva Moberg er 32 ára sænsk-
ur rithöfundur. sem varð fræg
um alla Sviþjóð fyrir grein
sína „Hin skilyrðisbundna
lausn konunnar“ er birtist í
bókinni „Ungt frjálslynt fólk“
vorið 1961. Grein þessi vakti
mikið umtal og fjöldi fólks
greip penna í hönd og mót-
maelti þeim skoðunum er þar
komu fram. Frk. Moberg, sem
er ritstjóri tímaritsins ,.Hertha“
reis upp til varnar í blaði
sínu og spunnust af þessu hin-
ar skemmtilegustu rideilur.
Nú er komin út í Svíþjóð
bók, sem nefnist „Konur og
annað fólk“, og hefur að geyma
þann hluta er Eva lagði til
ritdeilnanna, svo og nokkrar
aðrár greinar um ýmiss kven-
réttindamál
1 ofannefndri grein er helsta
viðfangsefnið staða konunnar
í nútímaþjóðfélagi. telur frk
Moberg að það sé aðeins i
orði kveðnu að konur hafi fullt
jafnrétti á við karlmenn. Máli
sínu til sönnunar bendir hún
á að því sé haldið fram að
þær hafi fullt frelsi til þess
að þroska hæfileika sína, og
velja hvaða starf og hvaða
menntavegi, sem hugir þeirra
girnast. En því sé alls ekki
svo varið pví það hvíli óneit-
anlega mest á herðum konunn-
ar að fá þjóðféláginu í hend-
ur nýjar. hraustar og siðmennt-
aðar kynslóðir og þar af leið-
andi hafi þe'm konum er óska
að þroska aðra hæfileika sína
verið gefin tvö hlutverk í líf-
inu; en karlmaðurinn hafi nær
alltaf aðeins einu hlutverki að
gegna. „Auk þess, segir h.ún,
er alltaf litið á karlmann, sem
vitsmunaveru, en á konuna
fyrst og frernst sem kynveru
og í öðru lagi sem vitsmuna-
veru.
Hún er vanin við frá blautu
barnsbeini af almenningsálit-
inu, kvikmyndum. vikublöðum
og auglýsingum að sjá tak-
mark lífsins í karlmanninum
-<S>
UPPÞVOTTAVEL
Á SÉRHVER GÓÐ HÚSMÓÐIR SRILIÐ..AU..EIGA.
SÖLUUMBOU: DRÁTTARVÉLAR H.F. OG
KAUPFÉLÖGIN
VELADEILD
og álíta að að aðalverkefni sitt
sé að finna í hjónabandinu,
að halda saman heimilinu og
ala upp bömin".
Því sé það að flestar konur
séu nú annaðhvort bugaðar af
breytu eða af slæmri sam-
vizku eða hvorttveggja. Ann-
aðhvort finni þær til nagandi
óánægju yfir að hafa uppfyllt
hið margumtalaða verkefni
konunnar eða yfir því að hafa
algerlega fórnað sér, fyrir það.
Slíkt s.é hið mikla frelsi, sem
konunni á að hafa hlotnast
á síðustu árum og jafnréttið
milli kynjanna.
Og frk. Moberg heldur á-
fram og ræðst á þrælkun kon-
unnar á heimilinu og telur
það alveg fráleitt að konan
eigi að bera aðalábyrgð á upp-
elci bamsins. því: ..Ekkert líf-
fræðilegt samband er milli
þess verknaðar að ala bam
og gefa því brjóst og þess
verknaðar að þvo föt þess,
elda mat ofan í það, og reyna
að gera það að góðum og heið-
virðum manni. Vernd og upp-
eldi bamsins er siðferðileg á-
byrgð, sem á ekert skylt við
kynhlutverk konunnar, en á
að hvíla á þjóðfélaginu í
heild“.
Eva Moberg beinir ekki að-
Eva Moberg
eins skeytum sínum að karl-
þjóðinni heldur leggur hún og
töluverða áherzlu á það, að
misrétti það ér konur búav við,
sé að vérulegu leyti þeim sjálf-
um að kenna, þeim hafi ekki
tekizt að skoða sitt eigið' hlufe-
verk og hlutverk karlmanns-
ins 1 sama ljósi, — þær geri
sjálfar ráð fyrir því að starf
mannsins sé þýðingarmeira en
þeirra eigið.
i4 JT
MEÐ KAFFINU
Snúnir kransar
300 gr. smjörl., 150 gr syk-
ur, 1 egg, 465 gr. hveitl.
Hrærið smjörl. og sykurinn
saman þar til það er hvítt og
gljúpt, setjið eggið og hveitið
út í og hnoðið deigið vel.
Geymið deigið á köldum stað
nokkurn tima og rúllið þvi
síðan í lengjur er hafa álíka
þykkt og litlifingur, skiptið
lengjunum í ca. 15 cm. löng
stykki og snúið þau saman
tvö og tvö. Myndið kransa úr
snúnu lengjunum. Lagðir á
smurðar plötur og bakaðir í
ca. 10 mínútur við 225 gr.
hita.
Úr þessu magni verða ca. 65
kökur.
Heimabakað franskbrauð
14 kg. hveiti.
30 gr. perluger.
60 gr. brætt smjörl.
ca. 14 Itr. mjólk.
sléttfull tsk. salt.
1 matsk. sykur
1 eggjarauða (til þess að
pensla með).
Hveitið er sigtað. Gerið er
leyst upp í nokkrum hluta
mjólkurinnar. Syigui;,
smjörlíki og ger sett saman
við hveitið og öllu síðan bnoð_
að létt saman. Bakað í 20 mín-
útur. Deigið er einnig hægt að
nota í rúnstykki.
Sykurkaka
3 egg, 214 dl. sykur, T dl
rjómi (gjarnan súr), V2 dl.
bráðið smjörl. 314 fll. hveiti,
1. tsk. gerpúlver, rifinn sítrónu-
börkur.
, Eggin þeytt vel, sykurinn
settur út í og haldið áfram að
þeyta unz blandan er orðin
hvít og létt. Brædda smjörlík-
inu og rjómanum blandað út í
og rifna sítrónuberkinum. Að
lokum er hveitið og gerið sett
saman við. Deiginu hellt i vel
smurt, breitt form og þakáð
við ca. 175 gr. hita.
Henríettu-kökur
100 gr. smjörl., 1O0 ér. sykur,
1 egg, 210 gr. hvéiti, 1 tsk.
gerpúlver. 1 matsk. kakó, 1 tsk
kanell, 50 gr. hakkaðar möndl-
ur.
Smjörl. brætt og kælt síð-
an nokkra stund. Sykur og egg
hrært í og hveitið, sem er
blandað gerpúlverinu, kakóinu
Og kanelnum. Hrærið aefgið
vel áður en möndlurnar eru
settar út í. Látið kólna í ca.
klukkutíma, flatt út og; fer-
hyrndar kökur skornar út úr
því. Bakaðar við 225 gr. hita
í ca. 10 mín.
Úr þessu magni verða ca
75 kökur.
H
íií
Kannizt þér við þennan kartöflurétt? Kartöflurn-
ar eru afhýddar, bakaðar í ofni, teknar ýt, hól-
aðar að innan, fylltar með kjötfarsi og settar
aftur inn í ofninn og bakaðar nokkurn tíma í
viðbót.
i
é