Þjóðviljinn - 16.08.1964, Qupperneq 7
Sunnudagur 16 ágúst 1964
HðÐVIUINN
SlÐA
GENGNIN VID
STADREYNDIR
Viðbrögö Kínverja við loftárásunum á Norður-V ictnam hafa helzt verið þau, að fjöldafundir hafa
verið haldnir um allt Kína í mótmælaskyni og ermyndin tekin á þeim fyrsta sem haldinn var f
Peking og um hundrað þúsund manns voru á.
bienphu, svo þeir tóku þann
kost að yfirgefa Indó Kína,
hefur aldrei verið til. Viet-
minh, stjórnmáleforinginn Ho
Chi Minh og Giap hershöfð-
ingi eru samkvæmt frásögn
fréttastjóra Vísis helber hugar-
burður. Það sem gerðist var
þetta: . . kínverskur inn-
rásarh. (svo) hafði líkt og i
Kóreu nokkrum árum áður
iagt undir sig helminginn af
því landi sem kallast Viet-
nam. . .“
Yið þessa endileysu er svo
prjónað í sama dúr. Til-
vera Pathet Lao í Laos er
kennd rétt einum „innrásarh."
kommúnista og sú „inn-
rás“ tilfærð sem hróplegt dæmi
um hversu kommúnistar hafi
rofið Genfarsamningana sem
gerðir voi-u þegar Frakkar af-
söluðu sér yfirráðum í Indó
Kína. Hefði greinarhöfundur
Vísis gert sér það ómak að
kynna sér Genfarsamninginn
um Lacs myndi hann hafa séð
að eitt meginatriði samnings-
ins fjallar einmitt um hversu
sameina skuli yfirráðasvæði
Pathet Lao öðrum hlutum
landsins. Sameiningin var kom-
in vel á veg þegar, uppreisn
hægri manna. gerð með áeggj-
an og íulltingi bandarísku
leyniþjónustunnai; CIA, steypti
stjóm hlutieysissinnans Sou-
vana Pouma af stóli, með þeim
afleiðingum að vopnaviðskipt’
hófust á ný og hefur vart slot-
að sfðan. Sókn Pathet Lao í
sumar fyigdi á eftir nýrri
valdaránstilraun hægri manna,
Hvernig sem menn annars líta
á atburðarásina í Laos, og
margt er vissulega á huldu um
framvindu flókinnar valdabar-
áttu í þessu frumstæða ríki,
getur. ekki orkað tvímælis að
í Vísisgreininni er gengið í
berhögg við alkunnar og óum-
deilanlégar staðreyndir.
Sama verður uppi á teningn-
um þegar Þorsteinn Thor-
arensen fer að ræða Genfar-
samninginn um skiptingu Viet-
nam. Eitt aðalatriði þess
samnings var að landið skyldi
sameinað með almennum
kosningum innan ákveðins
tíma. Þetta samningsákvæði
rauf stjórn Ngo Dinh Diem i
Saigon með fulltingi Banda-
ríkjanna, þverneitaði að efna
til atkvæðágreiðslunnar sem ráð
var fyrir gert í Genfarsamn-
ingnum. Eftir þetta samnings-
rof hófst skæruhernaðurinn í
Suður-Vietnam á ný. Herseta
Bandaríkjamanna í Súður-
Vietnam, þar sem þeir hafa
nú 16.000 manna lið og hyggj-
ast fjölga því enn uppí 21.000,
er freklegt brot á 19. gr. Genf-
arsamningsins um bann við
því að hin nýju ríki gerist að-
ilar að hernaðarbandalögum.
Á þetta atriði er sérstáklega
bent í skýrsld alþjóðlegu eft-
irlitsnefndarinnar i Vietnam
sem birt var í júni 1962, Nefnd
þessi, sem á að fylgjast með
hvort Genfarsamningurinn sé
haldinn, er skipuð fulltrúum
frá Indlandi, Kanada og Pól-
landi. Þessar staðreyndir eru
virtar að vettugi í Vísisgrein-
inni, en harmað hvað Banda-
ríkjamenn hafi verið deigir að
herja á kommúnista. Sérstak-
lega er þeim hallmælt fyrir
að láta afskiptalausa „innrás"
þá í Laos sem aldrei hefur átt
sér stað nema í frjórri ímynd-
un greinarhöfundar.
Aldrei þessu vant hefur
Morgunblaðið heimskað sig
einna minnst íslenzku NATÓ-
blaðanna í skrifum um síðustu
atburði í Suðaustur-Asíu, lát-
ið sér nægja að slá því föstu
að „Johnson forseti hafi gert
rétt“ í að fyrirskipa árásirnar
á N-Vietnam og í þeim að-
gerðum njóti hann „stuðnings
hins frjálsa heims". Eins og
ritstjórnargrein úr Guardian,
sem tilfærð var i upphafi
þessa máls, ber með sér er
þetta ofmselt hjá Morgunblað-
inu, og sú grein er ekkert
eins dæmi. Til ''dæmis sagði
Verkamannaflokksblaðið New
Statesman í forustugrein sinni
7. ágúst: „Allt styöur það álit
að aðgerðir Bandaríkjanna séu
misráðnar og háskalegar. Aug-
ljóst er að stjórnmálaviðhorf
hei'mafyrir hafa ráðið ékvörð-
un Johnsons forseta að hefna
með árásum á stöðvar á landi
fyrir að því er virðist lítil-
fjörlega árekstra á Tonkinflóa”.
m.t.ó.
Prestskosning
Fyrir nokkru fór fram prests-
kosning i Kálfastaðaprestakalli
í Austur-Skaftafellssýslu. Taln-
ing atkvæða fór fram á skrif-
stofu biskups 11. þ.m. Kosninga.
þátttaka var mjög góð. Greiddu
105 atkvæði af 160 sem á kjör-
skrá voru.
Umsækjandi, séra Fjalar Sig-
urjónsson settur prestur þar,
hlaut 104 atkvæði, 1 seðill var
auður. Kosning var lögmæt.
39. DAGUR
Síðan gekk Hákon á fund Haralds konungs og segir honum
ræðu þeirra Ragnhildar, innir þá upp einkamál þeirra Finns.
Var þá og Finnur hjá og fleiri menn, þeir er við raeðu þeirra
Finns höfðu verið. Segir Hákon svo til allra þeirra vitnis,
að svo var skilið, að konungur skyldi svo Ragnhildi heiman
gera, að henni líkaði: „Nú vill hún eigi eiga ótiginn mann,
þá megið þér gefa mér tignamafn. Hefi ég til þess ætt, að
ég má heita jarl. og nokkra hluti aðra, að því er menn kalla“.
Hákon fór þá þegar úr landi og hafði langskip vel skipað.
Hann kom L-am suður í Danmörk og fór þegar á fund Sveins
konungs, mágs síns. Tók konungur feginsamlega við hon-
um og fékk honum þar veizlur miklar. Gerðist Hákon þar
landvarnarmaður Sveins konungs fyrir víkingum, er mjög herj-
uðu á Danaveldi, Vindur og aðrir Austurvegsmenn og svo
Kúrir. Lá hann úti á herskipum vetur sem sumar.
Konungur segir: „Ólafur konungur, bróðir minn, og Magn-
ús konungur, sonur hans, þá er þeir réðu ríki, létu þeir einn
jarl vera senn í landi. Hefi ég og svo gjört, síðan er ég var
konungur. Vil ég eigi taka tign af Ormi jarli, þá er ég hefi
áður gefið honum". Sá þá Hákon sitt mál, að það myndi
ekki við gangast. IÁkaði honum þá stórilla. Finnur var og
.allreiðu". Sögðu þeir, að konungur héldi ekki orð sín, og
skildust að svo búnu.
Frægasta boðorð vandaðrar
blaðamennsku er reglan
Scott ritstjóri Manchester Gu-
ardían setti starfsmönnum sín-
um: „ÍTtskýringar eru frjálsar
en staðreyndir friðhelgar".
Mönnum er frjálst að leggja út
af atburðunum eins og hver
héfur vit til, en það er afbrot
gagnvart lesendum að rangfæra
staðreyndir eða stinga undir
stól atriðum sem máli skipta.
Langt er nú síðan Scott gerði
garðinn frægan í Manchester,
blaðið sem hann aflaði heims-
frægðar er flutt til London og
heitir rétt og slétt Guardian,
að nafninu til er það enn mál-
gagn Frjálsljmdá flokksins, en
síðan hann varð áhrifalaus í
brezkum stjómmálum hefur það
í rauninni stutt hægra arm
Verkamannaflokksins. Var það
einkum áberandi í átökunum
milli Gáitskells og Bevans á
sínum tíma. Guardian hefur
alltaf verið mjög hliðhollt
Bandarikjunum og stutt At-
lanzhafsbandalagið af kappi.
Þeim mun athyglisverðari er
forustugrein þess 6. þessa mán-
aðar. Þar segir meðal annars.
undir fyrirsögninni „Johnson
forseti færir út stríðið":
Bandaríkin geta ekki vænzt
þess að loftárásum þeirra á
tundurskeytabátastöðvar og
olíugeyma í Norður-Vietnam
verði vel tekið í öðrum hlut-
um heims. 1 fyrsta lagi verða
þau að búast við að frásögn
þeirra sjálfra af hvers vegna
þær áttu sér stað mæti tölu-
verðum efasemdum. . .. Her-
stjóm Nofður-Vietnam segir að
árásin á sunnudag hafi átt sér
stað innan landhelgi sem
Maddox hafi skert og engin
árás hafi verið gerð á þriðju-
daginn. Enga nauðsyn ber til
að fallast á þessa frásögn, en
fyrri reynsia. af „fréttastjórn-
un“ frá Washington — til
dæmis meðan Kúbuátökin
stóðu og alltaf öðru hvoru síð-
an stríðið í Vietnam hófst —
gerir ráðlegt að taka hinni út-
gáfunni einnig af varfæmi.
Svb mikið er víst að margir
— og ekki eingöngu kommún-
istar — hljóta að freistast til
grunsemda um að bandarísku
árásimar, og þeir miklu flutn-
ingar herafla til Suðaustur-
Asíu sem nú fara fram, haíi
verið ráðgert fyrir löngu
,og ekki þurft annað en
hæfilegt tilefni (sem auðvelt
var að búa til) svo framkvæmd
gæti hafizt. Þegar öllu er á
botninn hvolft er ekki búið að
ræða svo sjaldan um árás
norður á bóginn i Washington
undanfarna mánuði, og nú er
búið að gera hana, . .
Yfirgnæfandi aflsmunur
Bandaríkjunum i vil næg-
ir þeim samt sem áður ekki
TSÐINDI
til sigurs í Vietnam. Stríðið
vinnst eða tapast í Suður-
Vietnam. og þar myndi það
halda áfram enda þótt sérhver
herstöð í NorðuiyVietnam væri
moluð mélinu smætra. öll út-
færsla á stríðinu er reyndar
til þess fallin að stappa stál-
inu í Vietcong; þar að auki
er ekkert líklegra en að her-
ská framkoma Bandaríkjanna
verði til þess að almenningur
fylki sér fastar um kommún-
istastjómina í Norður-Vietnam,
en á slfkri hressingu þurfti
hún sannarlega að halda, jafn
nöturleg og hún er orðin og
árangúfsfýr í efnáhh'gsíriá'lúm.
Með meiriháttar hernaðarað-
gerðum eins og loftárásinni
leikur Bandaríkjastjórn þann
háskalega leik að leggja virð-
ingu sína að. veði í uppátækj-
um sem hljóta að misheppn-
ast, og í því skyni að bjarga
henni lætur hún leiðast út i
enn verri ófærur næst þegar
á reynir. Sú hefur verið saga
stríðsins í Vietnam fram til
þessa“.
Þannig farast Guardlan orð
um ástand og horfur i
Vietnam. Fróðlegt er að bera
niðurstöður hins brezka blaðs
saman við það sem sum ís-
lenzk blöð láta sér sæma að
bera á borð fyrir lesendur sína
um sama efni. I ritstjórnar-
grein Alþýðublaðsins 8. ágúst
segir til dæmis: „Svokailaðir
skæruliðar, sem herjað hafa í
Laos og Suður-Vietnam, eru
fullþjálfaðir hermenn frá
kommúnistaríkinu Norður-Viet-
nam.“ Ekki reynir Alþýðu-
blaðsritstjórinn að styðja full-
yrðingu sína neinum rökum,
enda yrðu þau vandfundin.
Skæruherinn í Laos, Pathet
Lao, hefur verið við lýði allt
frá því um 1950 og barðist
við nýlenduher Frakka árum
saman áður en ríkið Norður-
Vietnam varð til, Svipuðu máli
.gegnir um Suður-Vietnam.
Kjarni skæruhersins Vietcong
hlaut þjálfun í frelsisstríðinu
gegn Frökkum. Víðáttumikil
svæði í óshólmum Mekongár-
innar hafa verið á valdi
skæruliða frá því þeir hófu
baróttuna gegn Japönum í
heimsstyrjöldinni síðari með
öflugum stuðningi 1 bandarísku
leyniþjónustunnar OSS. Þessir
menn hafa barizt látlaust á
föðurleifð sinni í tvo áratugi
við erlenda óvini, fyrst Jap-
ani. síðan Frakka og nú Banda-
ríkjamenn. Aftur á móti er
Nguyen Khanh, forsætisráð-
herra í Saigon. gamall foringi
úr franska nýlenduhernum.
Hafi það verið ætlun Al-
þýðublaðsritstjórans að
setja met í óvandaðri um-
gengni við staðreyndir um at-
' burðina í löndunum sem óður
nefndust einu nafni Indó-
Kína, er ekkert efamál að
starfsbróðir hans við Vísi, Þor-
steinn Thorarensen,' hefur orð-
ið honum hlutskarpari. Hann
hefur nefniléga unnið það af-
rek að umturna í einni grein
heilum kafla heimssögunnar
síðustu áratugi. í fyrsta lagi
hefur hann gert þá uppgötvun
að herinn sem Frakkar héldu
að hefði sigrað sig við Dien-
i
*
i
t