Þjóðviljinn - 16.08.1964, Side 12
DIMIINN
Sunnudagur 16. ágúst 1964 — 29. árgangur — 183. tölublað.
Reykjavíkurhöfn
fær viðurkenningu
Hér sjást niðurrifsmennirnir að starfi. Sigurjón stendur á jörðinni, Jón Gestsson utan á braggan-
um og uppi á bragganum sér í Jónatan Kristjánsson.
Reykjalundur fær nýjan svip
— jtegar braggarnir hverfa
■ Nú um þessar mundir eru liðin rétt tuttugu ár síðan
samtök berklasjúklinga SÍBS hófu framkvæmdir við bygg-
ingu Vinnuheimilisins að Reykjalundi. Starfsemin hófst
í gömlum hermannabröggum á blásnum mel þar uppi í
Mosfellssveit, en síðan hafa risið þar glæsilegar byggingar
eins og öllum er kunnugt. Gömlu braggarnir hafa þó
staðið til þessa og verið til stórlýta útliti staðarins. Nú
er verið að rífa þessa bragga og verður þá allt með öðrum
syip þar efra og hinar fallegu byggingar munu nú fyrst
njþta sín í fögru umhverfi,, _...............
I tilefni af þessu átti blaða-
maður Þjóðviljans stutt spjall
við Áma Einarsson, fram-
kvæmdastjóra á Reykjalundi.
— Hvenær byrjaði starfsem-
in hér að Reykjalundi?
— Vinnuheimilið tók til starfa
1. febrúar 1945, en byggingar-
framkvæmdir byrjuðu hér 3.
júní 1944. Okkur var mjög nauð-
synlegt að geta byrjað rekstur
heimilisins sem ailra fyrst, því
að þörfin var svo mikil fyrir
fólk sem úskrifaðist af hælun-
um að hafa einhvem sh'kan stað
FATNAÐI OG 600
KR. STOLIÐ
1 fyrrinótt var brotizt inn í
Herratízkuna að Laugavegi 27
og stolið þaðan um 6Ö0 krón-
um í peningum. hvítum herra-
frakka með spæl á ermum og
belti, skyrtu og líklega jakka
og stökum buxum.
Þá var einnig brotizt inn í
bíl við Hátún 8 í fyrrinótt og
talsverðar skemmdir unnar á
bílnum.
Unp'frú Alheimur
frá Filinsevium
V LONG BEACH 15/8 — Feg-
urðardrottning Fillipseyja var í
nótt kjörin Miss International
á hinni árlegu fegurðgarsam-
keppni. Stúlkan er sögð tala á-
gætlega ensku, spönsku, frönsku
og tagalog, sem er ein af mörg-
um tungum Fillipseyja.
Næstar henni urðu fegurðar-
drottningar Bandaríkjanna og
Brasilíu.
Stúlkan kveðst vilja verja
þeim 10 þús. dollurum, er hún
fékk í verðlaun til góðgjörðar-
starfsemi.
að svæðinu hér fyrir framan,
en nú verður strax unnið að
því.
Eins og fram kemur í viðtal-
inu við Árna Einarsson hefur
einn af vistmönnum Reykja-
lundar verið einn að starfi í
mörg ár í bröggunum sem nú
er verið að rífa. Hann heitir
Magnús Jónsson og hefur stað-
ið í sama bragganum í 17 ár
við að setja saman leikföng úr
tré. Á myndinni hér að ofan
sést hann ganga út úr bragg-
anum í síðasta sinn.,
Magnús fluttist suður á
Akranes fyrir 25 árum, en
veiktist skömmu síðar af berkl-
um og var' einn af fyrstu vist-
mönnum Reykjalundar.
Um þessar mundir á Ham-
borgarhöfn 775 ára afmæli. f
tilefni þess hefur Reykjavíkur-
höfn hlotið sérstaka viðurkenn-
ingu, og er það silfurskjöldur.
Á fundi með fréttamönnum
í gær afhenti skipstjórinn á
m.s. Tröllafossi, Guðráður Sig-
urðsson, hafnarstjóra skjöldinn.
Valgeir Björnsson lýsti þakklæti
Reykjavíkurhafnar. Kvað hann
skjöld þenna, sem er hinn veg-
legasti gripur. mundu framveg-
is hanga á skrifstofu hafnar-
stjóra.
í ræðu' kvað skipstjórinn á
m.s. Tröllafossi sér hafa verið
sérstök ánægja að veita þessari
viðurkenningu móttöku. Hann
lét þess og getið. að einungis
um fimm hundruð hafnir hefðu
hlotið þessa viðurkenningu.
Hver og einn getur gert sér í
hugarlund, hve margar hafnir
það eru í heiminum. sem hér
koma til greina, og er því sér-
stakur fengur að þessum virð-
ingarvotti,
BRÆLA Á MIÐUN-
UMFYRIR AUSTAN
Lítill síldaraDi var í fyrrinótt.
Fengu 33 skip rúmlega 10 þúsund
mál og tunnur á sömu slóðum og
undanfama daga. Er blaðið átti
tal við síldarleitina á Dalatanga
um hádegi í gær var komin
bræla á miðunum og flest skip-
in á leið til hafnar.
Hestamannamót í
S-Þingeyjarsýslu
PHNOM-PENH 14/8 — Norodom
Bihanouk, prins í Kambodja,
íiélt á föstudag frá höfuðborg
únni með fríðu föruneyti. Er
Eör hans heitið til Indónesíu.
en þar mun hann eiga viðræðúr
vlð Súkamó forseta.
til að dveljast á meðan það
var að safna kröffcum til að
fara út í lífið aftur.
— Af hverju varð þessi stað-
ur fyrir valinu?
— Hér voru fyrir hendi að-
stæður til að við gætum byrj-
að mjög fljótt og því varð það
úr, að við keypfcum hér tvær
braggasamstæður, 15 bragga
alls. í þessum bröggum voru
svo öll verkstæðin í byrjun,
einnig læknastofur, eldhús og
skrifstofur. En vistfólk hefur
aldrei búið í bröggunum, því
að strax var byrjað á byggingu
smáhúsanna hér fyrir framan.
Síðan var flutt úr bröggunum
smám saman eftir því sem aðr-
ar byggingar risu hér, síðast
var trésmíðaverkstæðið flutt.
það var árið 1954.
— Þið hafið ekki getað 3os-
að ykkur við braggana fyrr?
— Það var vitaskuld aldrei
ætlunin að bessir braggar yrðu
notaðir nema rétt til bráðabirgða
meðan við vorum að koma þessu
af stað. Jafnvel hinir bjart-
sýnustu okkar sem byrjuðum
hér fyrir 20 árum hefðu ekki
trúað að allar þessar bygging-
ar ættu eftir að rísa hér, enn
síður hefðum við trúað að bragg-
arnir ættu eftir að standa hér
í 20 ár. Segja má að sl. 5 ár
hafi staðið til á hver.iu ári að
rýma braggana og rífa þá, en
bað hefur einhvemveginn orð-
ið svo að við höfum aldrei mátt
við því að missa þá fyrr en
nú. Síðan verkstæðin voru flutt
hafa þeir aðallega verið notaðir
sem geymslur fyrir hráefni og
unnar vörur. en einn maður
hefur þó staðið þar við vinnu
allt til þessa. Nú hafa verið
bvggðar miklar geymslur bak
við verkstæðin og hafa bragg-
amir þá loks lokið sínu hlut-
verki.
— Telurðu þetta ekki merkan
áfanga f sögu staðarins?
— Jú. svo sannarlega. Þessir
eömlu braggar hafa stungið í
stúf við allt annað hér og .þeg-
ar beir hverfa verður hér allt
með öðrum svip. Við höfum
ekki getað gert heildarskipulag
Hér sést Sigurjón ræða við mann einn sem kom á staðinn og
keypti fleka úr gólfi braggans til að hafa í sumarbústað
Mestí ,niðurrífsmaður'
á íslandi
Það þarf kunnáttu og verklag til að byggja hús —
það vita allir. En hitt er ekki síður vandaverk að rífa
gömul hús — það er mikil kúnst sem fáir kunna. Sá mað-
ur sem líklega er mesti „niðurrifsmaður" á íslandi er
Sigurjón Kjartansson, sem fengist hefur við þann starfa
nú um 20 ára skeið.
Húsavík, 11/8 — Hestmanna-
mót bestamannaféiagsins Þjálfa
í Suður-Þingeyjarsýslu var háð
að Eniarsstöðum í Reykjadal sl.
sunnudag og hófst það kl. 3.30
með hópreið inn á keppnissvæð-
ið en þar setti Sigfús Jónsson
formaður Þjálfa mótið.
Fyrst voru sýndir góðhestar
en þeir höfðu verið dæmdir
kvöldið áður. Urslit þeirrar
keppni urðu þessi: Alhliða gæð-
ingar: 1. Blesi 9 vetra, eigandi
Gestur Kristjánnson, 2 Þjálfi
10 vetra, eigandi Sigfús Jóns-
son, 3. Glámur, eigandi Forni
Helgason. Hryssur: 1. Jörp 11
vetra, eigandi Ásvaldur Jónat-
ansson, 2. Gríður 6 vetra, eig-
andi Jónas Stefánsson, 3. Kol-
brún 6 vetra. eigandi Kristinn
Guðmundsson. Klárhestar með
tölti: 1. Neisti 10 vetra, eigandi
Gísli Ölafsson, 2. Blakkur 10
vetra, eigandi Árni J,akobsson,
3. G'lanni 5 vetra, eigandi
Höskuldur Þráinsson.
Þá hófust kappreiðar og urðu
úrslit þeirra þessi: 1 '300 metra
stökki kepptu 9 hestar. 1.
Blesi. eigandi Baldvin Baldvins-
son, á 22.5 sek., 2. Vængur, eig-
andi Jón Ólafsson, á 22.5 sek.,
3. Neisti, eigandi Gísli Ólafsson,
á 23.3 sek. Þessir hestar eru
hálfbræður í föðurætt.
Fréttamaður Þjóðviljans kom
þar að sem Sigurjón var með
hjálparmönnum sínum að rífa
braggana á Reykjalundi.
— Hvað hefurðu lengi fengizt
við að rífa bragga, Sigurjón?
Ég byrjaði á þessu einmitt
hér uppi 4 Mosfellssveit 1943
minnir mig. Ég var þá í vinnu
hjá þeim Guðmundi og Bjama
á Reykjaum. en byrjaði svo
sjálfur á þessu strax árig eftir.
— Og þú hefur grætt mik-
ið á þessu, er það ekki?
Ja, ég er ekkert að kvarta,
en þetta hefst ekki nema með
mikilli vinnu. Það er með þetta
eins og annað maður verður
að vera yfir þessu og vinna
við það sjálfur. Það hafa marg-
ir byrjað á þessu en allir hætt
fljótlega aftur. Þetta er ekki
fyrir fína menn með hálstau.
— Enn er nóg af bröggum
til að rífa?
Þeir sem eftir standa, a.m.k.
i Reykjavík, eru svo illa fam-
ir að ég lít ekki við að rifa
þá. Síðustu árin hef ég mest
fengizt við að rífa gömul hús
í Reykjavík. Hótel Hek-lu t.d.
og Landakotsspítalann gamla.
Það er einna erfiðasta verkefn-
ið. því að gamla húsið stóð að-
eins 50 cm frá nýju bygging-
unni.
— Hefurðu aldrei byggt hús,
Sigurjón? Nei, ég hef aldrei
Framhald á 9. síðu.
í folahlaupinu kepptu fjórir
hes,tar. 1. Stjama, eigandi Jón
A. Jónsson, á 20.9 sek.. 2. Eld-
ur. eigandi Egill Jónasson, á
21.3 sek., 3. Gustur, eigandi, Jón
A. Jónsson, á 21.4 sek. Stjama
hafði hlaupið á 20.8 sek. í und-
anrásum.
I boðreið kepptu þrjár sveitir
og sigraði sveit Aðaldæla.
Veður var hið fegursta með-
an á mótinu stóð, logn og sól-
skin, og margir áhorfendur. sem
sagt hin ákjósanlegustu skilyrði
til þess að mótið mætti fara
vel fram nema þá helzt að völl-
urinn er ekki nógu sléttur.
Því miður voru undirbúning-
ur og framkvæmd mótsins svo
slælega unnin að mótið gekk
mjög seint. Góðhestasýningin
tók alltof langan tíma og var
of dauf og undirbúningur undir
kappreiðamar var enginn og
þurfti því að bíða góða stund
á milli góðhestasýningar og
kappreiða. Er þetta ekki til þess
fallið að lífga upp á hesta-
mennsku eða örva aðsókn á slík
mót. Eki við skulum vona að
forráðamenn félagsins taki sig
á fyrir næsta mót svo þá megi
betur ganga. Að síðustu skal
tekið fram að ölvun var litil á
mótinu og hegðun manna ágæt
— KEJ.
Bandarískir stúdentar deila
við utanríkisráðuneytið
NEW YORK 15/8 — Áttatíu og
fjórir bandarískir stúdentar,
sem tóku boði Castro um að
fara í tveggja vikna ferðalag um
Kúbu, komu til New York í gær.
Þeir fengu við komuna þær
fregnir frá utanríkisráðuneytinu,
að vegabréf þeirra verði aftur-
kölluð.
Á flugvellinum biðu þeirra
bréflegar skipanir frá ráðuneyt-
inu um að afhenda vegabréfin
landamæravörðum eða senda
þau til Washington í pósti. Flest-
ir stúdentanna rifu þessi bréf
í tætlur og afhentu ekki passa
sína. Stúdentamir þrír, sem
skipulögðu ferðina, hafa þegar
verið kallaðir fyrir óamerisku
nefndina og eiga að mæta þar 3.
sepiember.
Stúdentarnir fóru frá Kúbu til
Tékkóslóvakíu Qg komu frá
París.
ftalskir leiðtogar
alvarlega veikir
RÓM 15/8 — Liðan hins 73
ára forseta Italiu, Antonio
Segni, fer versnandi, en hann
fékk heilablóðfall fyrir um það
bil viku.
Samkvæmt upplýsingum frá
miðstjóm ítalska kommúnista-
flokksins hefur foringi hans,
Palmiro Togliatti, verið meðvit-
undarlaus síðan hann fékk heila-
blóðfall á föstudag. Italskir og
sovézkir læknar leggjast nú á
eitt til að bjarga hinum 71 árs
gamla verkalýðsleiðtoga