Þjóðviljinn - 22.08.1964, Síða 3
Laugardagur 22, ágúst 1964 1 • - ■ ■' ........ ■' i. ' ——; ■• • . ------- ÞJÓÐVILJINN
SlÐA 3
MANNFALL í MIKILLI
ORUSTUÍS-VÍETNAM
SAIGON 21/8 — Samtals voru
116 hermenn ríkisstjornarinnar
í Suður-Víetnam og fjórir banda-
rískir hernaðarráðunautar drepn-
ir í orustu í gær.
Heil herdeild stjómarhersins
barðist við skæruliða, sem höfðu
legið í launsátri í óshólmum
Mekongfljótsins um 70 km suð-
vestur af Saigon. 60 stjómar-
hermenn særðust og niu er
saknað. Samkvæmt upplýsingum
frá Saigon var einnig mikið
mannfall í liði Víetkong og gert
er ráð fyrir að um 200 hermenn
þeirra hafi látið lífið.
Á föstudagsmorgun var enn
einn Bandaríkjamaður drepinn í
Suður-Víetnam. Hann var skot-
inn á varðgöngu í grennd við
herstöð í Danang í Mið-Víetnam.
f Saigon fóru 400 stúdentar í
kröfugöngu í dag til skrifstofu
Nguyen Khanh forseta og mót-
mæltu hernaðareinræði í iand-
inu, sem þeir kváðu ennþá verra
en stjórn Diem. Ráðherra sá sem
tók á móti þeim iofaði að
koma mótmælum þeirra til for-
setans.
Seinna fóru mörg hundruð
stúdentar í kröfugöngu um göt-
ur borgarinnar og skrifuðu slag-
orð gegn ríkisstjórninni á veggi,
bíia og tré. Lögreglan lét ekki
til sín taka.
Varað við
reykingum
WASHINGTON 21/8 — 1. júli
nassta ár gengur ný samþykkt
í gildi, sem skyldar bandaríska
sígarettuframleiðendur til þess
að birta aðvörun utan á sígar-
ettupökkum um það, að heilsu-
tjón hljótist af reykingum.
Upphaflega átti þessi sam-
þykkt að ganga í gildi frá og
með 1. janúar næstkomandi.
Þingmaður Demokrata Oren
Harris frá Arkansas fór fram
á 6 mánaða frest.
Samþykktin er gerð i sam-
bandi við skýrslu, sem var
birt opinberlega fyrr í ár en
hún fjallar um sambandið milli
sígarettureykinga og ýmissa
hjartabilana svo og hættunnar
af krabbameini.
Fréttir frá Hanoi
Fréttastofa Norður-Víetnam
skýrði frá því í dag, að banda-
ríski flugmaðurinn Everett Aver-
ez, sem var handtekinn í árás
Bandaríkjanna á Norður-Víet-
nam á dögunum sé vel haldinn
og hafi hann fengið leyfi til að
skrifa heim.
Utanríkisráðherra Norður-Ví-
etnam hefur skrifað formanni
Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna og sakar hann Bandaríkin
um að árásirnar á Norður-Ví-
etnam 5. ágúst síðastliðinn hafi
NIGOSIA 21/8 — í gærkvöld
staðfesti talsmaður SÞ. að tvær
óþekkar flugvélar hefðu flogið
yfir Mansoura og Kokkinahéruð
á Kýpur, þau svæði sem Tyrk-
neskar flugvélar gerðu loftárás-
ir á fyrir 10 dögum. Á Kýpur
var þvi haldið fram í gær að
þetta hefðu verið tyrkneskar
flugvélar og fyrr um daginn
hafði Grikkjastjóm ísent Tyrkj-
um mótmælaorðsendingu svo ag
SÞ og Nató, vega flugs tyrkn-
eskra véla yfir grísku eyjunum
Samos og Rhodos.
Tyrkir lýstu því yfir að öllu
könnunarflugi þeirra hefði verið
hætt 12. ágúst.
f gær var skipzt á skotum
á Kýpur, sérstaklega á suðvest-
urströndinni, en ekki hefur
frétzt um mannskaða.
Grfs'ki utanríkisráðherrann
Stavros Kostopoulus lýsti því
yfir í gærkvöld að bæði Grikk-
land og Kýpur hefðu faUizt á
útnefningu Galo Plaza sem sátta-
semjara SÞ í Kýpurdeilunni.
Griski landvamaráðherrann
Petros Garoufalias átti langar
viðræður við Makarios forseta í
Nncosíu í gærkvöld. Hann átti
að halda til Aþenu í dag en
hefur frestað för sinni um sólar-
hring. Óstaðfestar fregnir herma
að hann hafi reynt að fá Makar-
ios af því að biðja um hjálp
verið liður í áætlun þeirra að
færa stríðið yfir til Norður-Ví-
etnam.
Landvarnaráðuneyti Banda-
ríkjanna tilkynnti í dag, að
sendiherra Bandarikjanna í Suð-
ur-Víetnam, Maxvell Taylor,
hershöfðingi komi til Washing-
ton 30. ágúst og muni dvelja þar
í fjóra daga.
Lodge á ferðinni
Henry Cabot Lodge kom til
Kaupmannahafnar í dag. John-
son forseti héfur sent hann til
Sovétríkjanna. 1 dag var einnig
skýrt frá því að utanríkisráð-
herra Kýpur Spyros Kyprianou
hefði frestað för sinni til
Moskvu. en áður var ákveðið að
hann færi i dag.
Ferðafrelsi
Makarios forseti lýsti því yf-
ir, að Tyrkir gætu notað veginn
Goldwater
gegn
sjúkrahjáip
ana sagði í dag, að hann vildi
gjama sjá tryggingar auknar í
Bandaríkjunum og mundi hann
greiða atkvœði með frumvarpi,
sem gerir ráð fyrir 5% hækkun
trygginga.
En hann lýsti því yfip að
hann styddi ekki tillögur rik-
isstjórnarinnar um sjúkrahjálp
fyrir gamalmenni í ramma nú-
verandi tryggingakerfis.
Við getum ekki staðið undir
almannatryggingum, ef við hlöð-
um nýjum og ónauðsynlegum
byrðum á það, sagði hann í
ræðú í öldungadeildinni.
Við svíkjum borgarana
skammarlega ef við eyðileggj-
um kerfi, sem komið var á
þeim til aðstoðar. sagði hann.
Fjárhagsnefnd öldungadeildar-
innar samþykkti fimm prósent
hækkun tryggingabóta en öld-
ungadeildin fjallar ekki um
frumvarpið fyrr en 1. septem-
ber. Þá verður Goldwater í or-
lofi og hefur hann því afhent
handritið að ræðu sinni.
Indónesar
drepnir í
Malasíu
KUALA LUMPUR 21/8 — Ör-
yggissveitir Malasíu drápu fjóra
indónesiska skæruliða og særðu
marga fleiri í bardaga, sem varð
í Pantion héraði í suðvestur
Malasíu snemma í dag.
Landvarnaráðuneytið i Kuala
Lumpur skýrði frá þessu og því,
að nú hefðu 7 Indónesar verið
drepnir og minnsta kosti 16
teknir höndum siðan öryggis-
sveitimar hófu aðgerðir sínar í
héraðinu. Aðgerðir þessar hóf-
ust efiSr að 40 vopnaðir Indó-
nesar gengu þar á land á mánu-
dagsmorgun.
Öryggissveitimar hafa misst
tvo hermewn og tveir eru særðir.
rikisstjóma bandalagsríkja
Bandaríkjanná til þess að leita
stuðnings þeirra við ríkisstjóm
Suður-Víetnams jafnframt því
sem hann á að skýra fyrir þeim
viðhorf Bandaríkjanna til
vandamálanna þar í landi.
Við komuna til Danmerkur
sagðist Lodge vera undrandi á
þeim árangri sem ferð hans
hefði þegar borið í fyrstu Evr-
Úpulöndunum, sem hann hefði
heimsótt, Belgíu og Hollandi.
Eftir fund' hans með Jens Otto
Kragh forsætisráðherra og
Hækkerup utanríkisráðherra
Dana var því lýst yfir, að Dan-
mörk gæti hvorki veitt Suður-
Víetnam tæknilega hjálp né aðra
aðstoð.
Á nýjum blaðamannafundi
eftir fund sinrl með ráðherrunum
sagði Lodge að bein aðstoð væri
ekki aðalatriðið, en Bandaríkin
teldu það afar mikils virði að
bandamenn þeirra veiti ibúum
Suður-Víetnam siðferðilegan
stuðning.
til Nicosia með því skilyrði, að
Kýpurtyrkir veiti ferðafrelsi á
öllum vegum, sem þeir ráða yfir
á eyjunni.
Talið er að Makarios hafi
einkum haft í huga hinn mikil-
væga þjóðveg, sem liggur milli
Nicosiu og Kyrenía. en mestur
huti hans hefur verið á valdi
Tyrkja síðan i fyrra.
Makarios lagði þessa tillögu
fram á fundi. sem hann átti með
sérlegum fulltrúa U Þants, Galo
Plaza og Thimayja hershöfð-
ingja sem er yfirmaður herliðs
SÞ á Kýpur. Þeir þrír ræddu um
mögulelka til að lina efnahags-
legar þvinganir stjómarinnar
gegn Tyrkjytm.
Nýjar Ieiðir
Makarios lýsti því yfir, að
stjómin mundi leyfa flutning
nægra nauðsynjavara til bæjar-
hluta Tyrkja, en sagði að stjóm-
in mundi einnig fylgiast vand-
lega með því, að hergögnum yrði
ekki safnað saman hjá þeim.
f dag skýrði Kýpurstjóm Al-
bjóða Rauða krossinum og SÞ
frá þvi, að hún hefði áætlað
hvaða kaloríumagn kortur, börn
og karlmenn á ýmsum aldri
þyrftu og gert tillögur um mat-
vælaflutninga til Tyrkja á
grundvelli þessara útreikninga.
1 tillögum stjómarinnar er
sagt að þessi skömmtunaráætlun
gangi í gildi ef Tyrkir vísi til-
lögu Makariosar um fullt ferða-
frelsi á öllum bjóðvegum á bug.
Talsmenn SÞ taka fram, að
SÞ hafi ekki á nokkum hátt
stutt tillögumar um matar-
skömmtun.
Frá Genf
Fulltrúi Grikkja við samninga-
umleitanir um Kýpur f Genf
Dimitri Nicolareisis sagði í dag
að hann hefði miklar áhyggjur
af flugi óþekktra flugvéla yfir
Kýpur.
Hann sagði að ekki kæmi til
mála að byggja samningavið-
ræðumar f Genf á Zúrich-sátt-
málanum frá 1959. og kvað hann
gjörsamlega úr gildi genginn. f
þessum sáttmála eru skilyrðin
fyrir sjálfstæði Kýpur sett fram.
Tyrkneski fulltrúinn f Genf
Nihat Erirn sagði fyrr f vikunni.
að tyrkneska stjómin teldi Zúr-
ich-sáttmálann bindandi bæði
fvrir Grikkland og Tvrkland.
Fundur í París
Framhald af 1. síðu.
ar ráðstefnu. Það er undir okk-
ur Laosbúum sjálfum komið að
leggja málin þannig fyrir að
öll þessj lönd styðji hugmynd-
ina um nýja ráðstefnu. sagöi
hann.
Forsætisráðherra skýrci 1 rá
því, að hann mundi að sínu
leyti skírskota til föðurlands-
ástarinnar til að reyna að draga
úr viðsjám í Laos.
FERDIZT
MEÐ
LANDSÝN
9 Seljuni farseðla með flugvélum og
skipum
Greiðsluskilmálar LofHeiða:
• FLOGIÐ STRAX - FARGJALD
GREITT SÍÐAR
9 Skipuleggjum hópferðir og ein-
staklingsferðir
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
FERÐASKRIFSTOFAN
LAN □ S V N Tr
TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — EEYKJAVÍK,
UMBOÐ LOFTLEIÐA.
Kýpurstjórn vill samninga
við Tyrki um ferðafrelsi
WASHINGTON 21/8 — öld-
ungadeiidarþmgmaðurinn Barry
Goldwater forsetaefni Repúblik-
Palmiro Togliatti
Palmiro Togliatti, for-
maður ítalskra komm-
únista. Iézt í gær. Hann
hafði fengið heilablæð-
ingu fyrir átta dögum,
og síðan hafði honum
hrakað. Hann hafði þó
haft meðvitund um
stundarsakir fyrripart-
inn í gær.
npogliatti féll frá þegar hin
i alþióðlega verklýðshreyf-
ing mátti sízt án hans vera,
reynslu hans og þekkingar,
dómgreindar og skarpskyggni,
æðruleysi og íhugunar. Eng-
um var betur treystandi en
honum að leggja tii efnivið
i þá brú sem leggja verður
yfir sprungurnar sem á síð-
ustu árum hafa verið að
myndast í undirstöðu hinnar
albióðlegu breyfingar. Hann
var staddur í Sovétríkjunum
þegar andlát hans bar að og
ætlaði að dveljast bar sér til
hressingar Lítill vafi er þó
á því að hann átti þaneað
lika annað erindi. Hann hafði
látið deilur kommúnista-
flokka Sovétríkianna og Kína
miög til sin taka, og vissi
sem var, að til bess var ætl-
azt af honum. Fáir menn, ef
þá nokkrir, voru líklegri að
geta lagt það til málanna sem
þurfti til að sætta hin and-
stæðu siónarmið. Og kann þð
að vera að það hefði einnig
orðið honum ofviða. Hann
hafði af rökfestu, sem hon-
um var eiginleg, vísað á bug
meginkenningum Kínverja, en
jafnframt varað hina sov-
ézku leiðtoga við því að
láta skerast í odda. Hinum
baulæfða dialektiker. sem átti
að baki hálfrar aldar skól-
un í glímu við vandamál
eins viðburðaríkasta tíma
mannkynssögunnar, var bað
fyllilega Ijóst, að deilur
kommúnistaflokkanna eiga
sér hlutlægar orsakir og
Iausn þeirra fæst ekki með
meirihlutaSamþykkt Það er
mikill skaði að ekki verður
nú lengur notið hollra ráða
Togliattis.
Allir þeir sem unna málstað
sósíalismans hafa ástæðu
til að harma andlát Togliatt-
is, en auðvitað er harmur
Ianda hans mestur Það nrnn
óhætt að segja að enginn
ítalskur stiórnmálamaður
hafi notið meiri lýðhylii og
virðingar með þjóð sinni en
Togliatti. Andstæðingar hans
viðurkenndn skilyrðislaust af-
burða hæfileika hans. sam-
herjar hans kunnu að meta
öruggci leiðsögn sem gerði þá
að öflngasta kommúnista-
flokki á vesturlöndum, flokki
sem stóð af sér allar hryðjur
kalda stríðsins og getur nú
horft fram til þess tíma að
hann taki við ríkiserfðum. f
landi óratoranna var ræðu-
mennsku hans við brugðið,
ritað mál hans var henni ekki
síðri, Ijóst og gagnsætt með
djúpar rætur í árþúsunda
hefð þess fóiks sem kunnað
hefur betur en flestir aðrir
að segja hlutina skýrt og
skilmerkilega. Sú hefð var
tvíefld af marxistísku inn-
sæi hans og dæmafárri þekk-
ingu á sögu og aðstæðum
ítalskrar þjóðar.
Togliatti var fæddur í Gen-
ova á Norður-ítalíu 1893
og var því á 72. aldursári
þegar hann lézt. Hann var,
eins og margir aðrir braut-
ryðiendur sósíalismans, úr
millistétt. Faðir hans sem var
bókhaldari gat komið honum
í skóla og fyrir framúrskar-
andi gáfur fékk hann styrk
til framhaldsnáms við háskól-
ann í Torino. Þar lauk hann
prófi í lögum árið 1915' og
þar kynntist hann Antonio
Gramici. Þá hafa örlög hans
sennilega verið ráðin. Sex
árum síðar á hinu sögufræga
þingi ítalskra sósíalista í
Livomo 1921 stendur Togli-
atti við hlið Gramscis, segir
ásamt honum skilið við for-
ystu flokksins og stofnar
kommúnistaflokkinn. LítiTl
vafi er á því að flokki þeirra
hefði á skömmum tíma tek-
izt að fá í lið með sér megn-
ið af ítölskum verkalýð, en
ári síðar dundi fasisminn yf-
ir. Gramsci var fangelsaður.
TogTiatti tókst að komast úr
landi, fékk hæli í Sovétrfkj-
unum, varð þar brátt eirm
helzti forystumaður Komin-
tern, en hafði bó ’jafnart ná-
ið samband við andspyrnu-
menn beima á ítaliu, var bar
svo að segja með annan fót-
inn Þá gekk hann undir því
nafni sem ýmsir munu minn-
ast, Ercoli /Herkúlesj', og
mun ekki hafa kafnað undir
því. Hann var manna siálf-
sagðastur að leggja á ráðin
begar ítalska lýðveldið reis
úr rústum fasismans og bótt
hann fengi ekki öllu ráðið
um stjórnarskrá þess, ber
hún samt þess merki hver
um hana Fiallaði. Önnur
saga er bv°—V1-g hana hef-
ur verið staðið.
Tígliatti er öllum sósialist-
um harmdauði. sott er
til þess að vita að a-' hans
er í traustra manna hö"'tum.