Þjóðviljinn - 22.08.1964, Blaðsíða 10
10 SlÐA , — —- -i .... - ... _ j-.. ■ ■ —------------ HÓÐVILIINN
ég tfl lögreglunnar. Hann starði
ögrandi á Jack og beið eftir
svari.
— Þér þurfið ekki að fara til
lögreglunnar, sagði Jack. Ég er
búinn að frétta af henni.
— Hvenær?
— Hvar er hún? Bresach
horfði rannsakandi og tortryggn-
islega á hann.
— 1 Zurich.
— Ég trúi yður ekki, sagði
Bresach.
Jack tók upp símskeytið og
rétti Bresach. Hann las það og
munnurinn á honum ■ varð
hörkulegur, varimar eins og
strik. Svo vöðlaði hann það
saman og stakk þvi i vasann.
Eslkan, sagði hann
— Hafið þér nokkra hugmynd
hvar í Zurjch hún getur verið?
spurði Jack
Bresach hristi höfuðið hrygg-
ur á svip. Ég hef enga hugmynd
um hvort nokkur getur verið
nokkurs staðar. Hann tók sam-
anvöðlaða símskeytið uppúr vas-
anum og sléttaði það á hnénu
með natni og horfði á það með
athygli. Jæja, hún er þó að
minnsta kosti lifandi. sagði
hann. Eruð þér ánægður?
— Já auðvitað, sagði Jack.
Eruð þér það ekki lfka?
— Það er ég ekki viss um,
sagði Bresach og einblíndi á
pappírinn. Ég varð ástfanginn
einu sinni á ævinni og þá þurfti
það endilega að verða f svona
kvenmanni. Hann sló hendinni
á skeytið. Ég átti með henni
þrjá hamingjumánuði. Hvað
finnst yður — er það hámark?
Er það skammturinn? Og síðan
takmarkalaus örvflnun? Segið
mér, hvemig líður yður? Ef þér
heyrið nú aldrei frá henni
framar? Ef þetta ' símskeyti er
það síðasta sem þér heyrið frá
henni á ævinni — Ziirich, flúin
til Ziirich — hvað þá? Hvað ger-
ið þér — farið þér bara heim tfl
Parísar og haldið áfram að lifa
yðar snurðulausa. borgaralega
lífi með konu og bömum og
gleymið henni?
— Ég gleymi henni ekki, sagði
Jack.
— Andrus, sagði Bresach. Vit-
ið þér nokkum skapaðan hlut
um ást?
— Ég veit dálítið, sagði Jack.
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðsiu og
snyrtistofu STETNU og DÓDÓ
Laugavegi 18. III. h. (lyfta) —
SlMI 23 616.
P E R M A Garðsenda 21. —
SÍMI: 33 9 68 Hárgreiðslu og
snyrtistofa. )
D ö M U R !
Hárgreiðsla við allra hæfi —
TJARNARSTOFAN. — Tlamar-
götu 10 — Vonarstrætismegin —
SÍMI: 14 6 62.
HARGREIÐSLUSTOFA
AUSTURBÆJAR — (Maria
Guðmundsdóttir) Laugavegi 13
— StMI' 14 6 56. — Nuddstofa á
sama stað.
Ég veit að mmnsta kosti að
símskeyti bindur ekki endi á
hana.
— Hvað bindur þá endi á.
hana? Ég vildi að ég vissi það.
Þekkið þér söguna um spart-
verska drenginn og refinn?
— Já.
— Það felst meira í henni en
maður heldur í fljótu bragði,
sagði Bresach. Hún er dæmi-
saga, uppfull af líkingum, hún
er alls ekki það sem hún lítur
út fyrir að vera. Refurinn er
ástin og henni verður maður að
leyna, vegna þess að það er ekki
hægt að sýna hana — hún er
innilokuð f sjálfum manni —
og fyrst sleikir hún aðeins ögn
til gamans, svo tekur hún smá-
bita til reynslu, svo líkar henni
bragðið — og loks fer hún að
éta fyrir alvöru.
— Verið ekki sVona uppfullur
af s.iálfsmeðaumkvun, sagði
Jack. Það er einn versti gallinn
á kynslóð yðar.
— Fjandinn hirði mína kyn-
slóð, sagði Bresach. Ég tilheyri
henni ekki og hún ekki mér. Ég
og refurinn. við erum eitt. Hann
braut símskeytið vandlega sam-
an, svo fleygði hann þvi útum
gluggann. Það opnaðist og fauk
eins og laufblað eftir sólbökuðu
strætinu.
— Hafðu engar áhyggjur,
sagði Róbert. Elskan. Það er
hinn mikli boðskapur ársins.
Hafið þér nokkum tíma verið í
Ziirich?
— Já.
— Til hvers? spurði Bresach.
— Ég var á leið á stað tfl að
vera á skíðum, sagðí Jack.
— Skíðum, sagði Bresach og
yggldi sig. Þér eruð alltof
hraustur fyrir minn smekk. Það
eru ytri merki rotnunar. Ég
þoli ekki þess konar fólk.
— Æ, þegið þér.
— Hefur nokkur sagt yður að
þér væruð eins og rómverskur
keisari? spurði Bresach. Ég á
við kvenfólk sem var að skjalla
yður eða fullir listamenn í veizl-
um? /
— Nei, sagði Jack.
— Jæja, en þannig eruð þér
nú samt. Það eru til ótal styttur
úr steini og þronsi um alla
Rómaþorg sem gætu verið f ætt
við yður. Þetta stóra sterklega
nef, sveri. ruddalegi hnakkinn.
holdugir kjálkamir, nautnaleg-
ur, sjálfumglaður munnurinn.
tómt augnaráð harðstjórans.
Allir voru þeir vel þjálfaðir í
trúarlegum aga, sérfræðingar í
herkænskulist. miskunnarlausir
og auðugir. Bresach varð rang-
eygður af áreynslunni við að
rifja rétt upp. Þetta er úr Flau-
bert. sagði hann. Hann var að
lýsa stjómendum Karþagðborg-
ar. en það á við um keisarana í
Rómaborg og sömuleiðis um yð-
ur. Með andlit eins og þér, sagði
hann, vildi ég sízt af öllu vera
foringi í herdeild eða forstjóri
í stálbræðslu.
— En það er ég ekki, sagði
Jack. Ég er undirritari í undir-
skrifstofu. I
— Kannski eruð þér að bíða
yðar vitjunartíma, sagði Bresach
ögrandi. Næsta- ár takið þér
kanftski viðbragð og takið við
stióm fiörutíu búsund manna.
Það ylli mér vonbrigðum ef svo
yrðl ekki Jack. Sérfræðingur í
herkænskulist, miskunnarlaus,
ríkur . . . endurtók hann. Hald-
ið þér að bandaríska andlitið sé
að þróast í þessa átt, Jack?
— Þér eruð alveg eins banda-
rískur og ég, sagði Jack. Haldið
þér að bandaríska andlitið þró-
ist í yðar átt?
— Nei. sagði Bresaeh. Ég er
misheppnaður. Ég er utangarðs-
maður. Ef lögin heimiluðu það,
væri búið að svipta mig borg-
ararétti. Ég er þjakaður. skamm-
sýnn og vantrúaður. Ég er sá
efniviður sem flóttamenn eru
gerðir úr.
— Gott er þetta!
Bresach glotti aftur. Það er
nokkuð til í því sem þér segið.
Jack, sagði hann. Bíllinn beygði
snögglega til að forða sér frá
vespu sem kom þjótandi úr hlið-
argötu með ungan mann og
unga stúlku sem beygðu sig
bæði langt til hliðar til að ná
beygiunni. Bresach hrópaði eitt-
hvað reiðilega til þeirra á
ítölsku.
— Hvað sögðuð þér við þau?
spurði Jaek.
— Ég sagði: Af hverju eruð
bið ekki í kirkju? sagði Bresach.
Hann var reiður ennþá. Hann
tók upp krypplaðan sígarettu-
pakka og kveikti í einni. í fyrsta
skrpti tók Jack eftir því að lang-
ir fingumir á Bresach voru gul-
ir af nikótíni.
— Hafið þér nokkuð hugsað
51
um hvað þér ætlið að segja við
Delaney? Spurði Jack. Honum
fannst hann bera ábyrgð á sam-
talinu og vildi gjarnan að það
gengi vel eða að minnsta kosti
sómasamlega og hugarástand
Bresach lofaði ekki sérlega góðu.
Daginn áður hafði hann tekið
Bresach með sér til að sjá það
sem búið var að taka af kvik-
myndinni. Hann hafði setið og
fylgzt með Bresach meðan verið
var að sýna myndina, en aldrei
slíku vant hafði Bresach setið
rólegur og svipbrigðalaus í næst-
um hálfa aðra klukkustund og
hafði farið burtu án þess að láta
í ljós neitt álit á því sem hann
hafði séð.
— Eruð þér hræddur við það
sem ég kann að segja við stór-
mennið? sagði Bresach.
— Nei. sagði Jack. Ég kysi
bara heldur að þar yrði við-
höfð almenn kurteisi.
— Hafið engar áhyggjur, ég
skal vera stilltur, sagði Bresach.
Jafnvel þótt hann dræpi mig.
Þrátt fyrir allt hef ég nefnilega
áhuga á að fá jobb.
— Hvað hafið þér hugsað yð-
ur að segja við hann um kvik-
myndina? spurði Jack forvitnis-
lega.
— Það veit ég ekki ,sagði
Bresach. Það hef ég ekki ákveð-
ið enn. Hann fleygði frá sér
sígarettunni. Hvað er Ziirich stór
borg? spurði hann.
— Þrjú til fjögur hundruð
þúsund, sagði Jack. Svona hér-
umbfl.
— Allir segja að svissneska
lögreglan sé sérstaklega leikin
í að hafa upp á fólki. sagði
Bresach. Hún veit í hvaða rúmi
hver einasti maður í Sviss sef-
ur á hverri nóttu. Er það satt?
— Næstum því.
— Ég er að hugsa um að
fljúga til Ziirich í kvöld, sagði
Bresach. Og koma að henni þar
sem hún stendur við vatnið og
jóðlar. Viljið þér lána mér pen-
inga fyrir flugfarinu?
— Nei, sagði Jack.
— Þér talið alveg eins og
pabbi minn, sagði Bresach. Og
að lokinni þessari móðgun seig
hann aftur niður í homið sitt
og sneri andltinu undan og hann
sagði ekki meira, fyrr en þeir
komu að reiðskólanum.
Delaney var að taka tveggja
feta stökk á stórum, taugaó-
styrkum, litföróttum hesti.
Hrossið hafði ekki verið óstyrkt
í upphafi. en eftir fárra mín-
útna samvistir við Delaney, tog-
aði það í beizlið, froðufelldi og
prjónaði og hljóp útundan sér
fyrir hvert stökk.
Hann heíur sams konar áhrif
á leikara, hugsaði Jack. Eftir
kortérs umgengni við einhverja
lifandi veru fyllist hún upp-
reisnarhug og þrjózku.
Jaek og Bresach stóðu og höll-
uðu sér upp að garðinum um-
hverfis skeiðvöllinn. Háðsbros
lék um varir Bresach meðan
hann virti fyrir sér aðfarir
Delaneys á hrossinu. Gagnstætt
öðru reiðfólki, sem var snyrti-
lega klætt í reiðbuxur og stíg-
vél og enska tvídjakka, var
Delaney í gömlum, slitnum blá-
um buxum, í rauðri flúnels-
skyrtu og öklaháufta rúskinns-
skóm. Reiðkennarinn sem var
lítill, sextugur ítali í gljáburst-
uðum stígvélum, nýpressuðum
jakka og með vandlega bundinn
klút um hálsinn, stóð í miðjum
hringnum og hrópaði óþólinmóð-
lega á ensku: Niður með hæl-
ana, Signor Delaney, niður með
hælana! og Haldið slakar um
tauminn, Signor, slakara tak.
Gerið svo vel að toga ekki.
Taumhaldið á að vera þétt og
iafnt. Berjið ekki fótastokkinn.
Gerið dýrið ekki ringlað.
Bresach hló lágt við hliðina á
Jack. Gerið dýrið ekki ringlað,
hv'riaðí hann,
Delaney stðkk aftur, skrapp úr
ístaði og togaði ofsalega í taum-
inn og hrossið hljóp útundan
sér til vinstri. Delaney var að
bví kominn að detta af baki og
Bresach fór aftur að hlæja.
— Jæja. Signor Delaney, sagði
reiðkennarinn. nú væri sjálf-
sagt gott að taka smáhvíld
Leyfum skepnunni að kasta
mæðinni.
Hestastrákur tók í beizlið og
Delaney fór stirðlega af baki
Næst skal bað takast, sagði
hann við reiðkennarann. Haun
benti á hindrun, sem var þrjú
og hálft fet á hæð.
Reiðkennarinn hristi höfuðið:
Ég held það sé ekki . . . sagði
hann.
— Það skal takast. Delaney
klappaði á öxlina á honum og
tók af sér hanzkana og gekk
í áttina til Jacks og Bresach.
Hann brosti, glaður og ánægður.
og hann var rjóður og hress eft-
ir hreyfinguna. Hann var sveitt-
ur og það stóð gufa uppaf enni
hans í köldu morgunloftinu.
Jack kynnti hann fyrjr Bresach,
og Delaney tók í höndina á
Bresach og sagði: Það gleður
mig að hitta yður. Ég er ekki
enn búinn að lesa handritið yð-
ar, en Jack segir að þér séuð
gáfaður piltur.
— Maurice, sagði Jack. Af
hverju í ósköpunum ertu að
læra að stökkva á hesti á þess-
um aldri?
— Einmitt þess vegna, sagði
Delaney. Vegna þess að ég er á
þessum aldri. Á hverju ári reyni
ég að læra eitthvað nýtt. Sem
uppbót fyrir það sem ég gleymi
og það sem ég get ekki lengur
gert jafnvel og áður. Ég ímynda
mér að ég geti haldið áfram að
fullkomna mig sem reiðmann,
■þangað til ég verð sextíu og
fimm ára. Galdurinn við það
að halda sér ungum er að manni
finnst maður gera allt betur og
betur. Er þetta ekki rétt hjá
mér? Hann leit á Bresach.
— Ég geri allt verr og verr,
sagði Bresach.
Delaney hló góðlátlega. A yð-
KRYDDRASPIÐ
FÆST f NÆSTU
BÚÐ
*
/
Laugardagur 22. ágúst 1964
SKOTTA
,,Ef þetta er ekki MJÖG ÁRÍÐANDI slúður, þá myndi mig langa
til þess að fá lánaðan símann andartak.”
Kynning á háskólanámi
Haldin verður kynning á háskólanámi heima og
erlendis sunnudaginn 23. ágúst kl. 20.00 —• 20.30 í
íþöku, félagsheimili Menntaskólans í Reykjavík.
S.H.Í. og S.Í.S.E.
Jarð vinnsluvélar \
Jarðýta og ámokstursvél til leigu.
Vélsmiðjan Bjarg h.f.
Höfðatúni 8 — Sími 17184.
Starfsstálkur óskast
Starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Klepps-
spítalans. Upplýsingar gefur matráðsko-nan í síma
38164.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
NÝKOMID
í fjölbreyttu úrvali.
GANGADREGLAR
margar breiddir
TEPPAMOTTUR
GÓLFMOTTUR
GEYSIR hJ.
Teppadeildin.
Auglýsið i Þjóðvilianum
1
(