Þjóðviljinn - 30.08.1964, Side 4
4 SIÐA
ÞJÖÐVILIINN
Sunnudagur 30. ágúst 1964
Otgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnuðags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðbjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Simi 17-500 (5 Unur) Áskriftarverð kl 90.00 á mánuði.
Herlegdáð /aug
jjað er til marks um vondan málstað að beita til-
hæfulausum ósannindum í málflutningi sínum
eins og utanríkisráðherra íslands, Guðmundi I.
Guðmundssyni virðist hafa orðið á í opinberri
heimsókn sinni til Noregs og Finnlands, þar sem
hann að sögn blaða hélt því fram að andstaða gegn
þáttöku íslands í Atlanzhafsbandalaginu og gegn
bandarískum herstöðvum á íslandi væri nánast'
hjöðnuð niður, lét á sér skilja að nú væru allir ís-
lendingar sælir og fegnir að mega vera í hernaðar-
bandalagi og hafa erlendar herstöðvar og erlendan
her í landi sínu. Alþýðublaðið reynir í gær að bera
í bætifláka fyrir ráðherrann og er það ekki nema
eðlilegt að blaðið reyni að klóra í bakkann, en
ekki kemst það frá því eða framhjá því að hér
laug Herlegdáð um íslandsmál, hér fór valdamað-
ur með vísvitandi ósannindi.
^lþýðublaðið reynir að færa orðum ráðherrans
stað með því að telja það pólitískt hrun að Al-
þýðubandalagið fékk fðerri atkv. 1963 en Sósíalista-
flokkurinn og Þjóðvamarflokkurinn samanlagt
1 1953. í ákafanum gleymir Alþýðublaðið því, að ein-
mitt í málgagni Alþýðuflokksins getur verið dá-
1 lítið varasamt að tala um að, færrþ atkvæði_svo
nokkrum prósentum nemi jafngildi pólitísku hruni.
Líka er máttlaust að bera fram þá vesælu Alþýðu-
blaðslygi að Sósíalistaflokkurinn hafi lagt niður
andstöðu gegn herstöðvum í landinu í tíð vinstri
stjórnarinnar. Ráðherrar Alþýðubandalagsins
kröfðust þess hvað eftir annað að framfylgt yrði
samþykkt Alþingis frá 1956. En Alþýðuflokkurinn,
sem flutt hafði þingsályktunartillöguna, sveik
algerlega framkvæmd ályktunar Alþingis ásamt
Framsóknarflokknum, og virðist frá upphafi ein-
ungis hafa litið á málið sem tilraun til að sýnast
heiðarlegur í herstöðvamálinu fyrir kosningarnar
1956. Ekki er burðugri sú röksemd Alþýðublaðsins
að hér sé ekki lengur andstaða gegn herstöðvum
vegna þess að Keflavíkurgangan hafi mistekizt í
vor. Keflavíkurgangan tókst á sama hátt og fyrri
göngur, hún varð til þess á sama hátt að skerpa
athygli fólks á herstöðvamálinu. Og Alþýðublaðinu
mun heldur ekki reynast haldkvæm sú röksemd,
að hin róttæka verkalýðshreyfing á íslandi sé í
upplausn. Hún hefur sízt minni áhrif nu á'þjóð-
málasviðinu en hún hefur áður haft, og láfum svo
framtíðina dæma um framhaldið.
^lþýðublaðinu væri miklu nær að hlusta eftir
þeim röddum sem telja framtíð Alþýðuflokks-
ins stefnt í algera tvísýnu með því að honum sé
klesst fast upp að svartasta afturhaldi og auðvaldi
og að flokkurinn skuli fyrir tilverknað manna eins
og Guðmundar I. vera farinn að fá orð á sig sem
sauðbspgasti hernáms- og hermanesflokkur lands-
ins. Og raunar getur meira verið í veði en framtíð
Alþýðuflokksins. framtíð verkalýðshreyfingar á ís-
landi um marcra áratubi eetur oltið á því, að þeir
menn og flokkar sem bezt =pftu að skilia gildi og
tilgang verkal-''’,ÁqVirp-'^i^crar finni leiðir til sam-
vinnu og samstöðu. — s.
HENRYK CHMIELÉWSKI,
Póllandi, teiknaði
SKÁKÞÁTTURINN
Ritstjóri: ÖLAFUR BJÖRNSSON
Verður Fischer með eða ékki?
Þótt enn séu tveir mánuðir
þangað til olympíumótið hefst
eru menn farnir að bollaléggja
ýmislegt í sambandi við það
og er það einkum ein gpurn-
ing sem liggur skákunnendum
þungt á hjarta en hún er sú,
hvort Fischer muni verða með,
en óneitanlega yrði það mikill
sjónarsviptir, ef svo yrði ekki.
í framhaldi af þessum vanga-
veltum þykir mér rétt að birta
eitt af listaverkum Fischers
við skákborðið. Skákin er að
vísu ekki ný, hún er tefld á
olympíumótinu í Leipzig 1960,
og á hann þar i höggi við
Chilemanninn Letelier.
Hvítt: Letelier.
Svart: Fischer.
KÓNGSIND VERSK-V ÖRN
1. d4
2. c4
3. Rc3
4. e4
Rf6
g6
Bg7
0—0
(Mun algengara er að leika
-----d6 en markmið Fisch-
s er að fá andstæðinginn til
i seilast of langt með peðin
; sprengja síðan upp. Sumar
rrjanir eru reyndar byggðar
:p með það fyrir augum að
andstæðinginn til að teygja
? of langt á miðborðinu og
Ea það síðan upp líkt og í
sssari skák. Ma í þvi sam-
mdi nefna A.liéchins-vöm).
5. e5
6. f4
7. Be3
Re8
d6
c5!
(Fischer hefur nú aðgerðirn-
irnar enda verður hann að
tefla hvasst til að verða ekki
undir í barattunni).
8. dxc5 Rc
l3
xd6
9. cxd6
10. Re4
(Sækir að peðinu á d6 og
nú strandar 10. — — dxe5 á
11. Dxd8 — Rxd8 12. Bc5 og
vinnur skiptamun).
10.--------
11. Rg3
12. Rf3
13. Dbl
Bf5
Be6
Dc7
(Hvítur á þegar við ýmis
vandamál að etja).
13. -------
14. f5
dxe5
c4!
(Það væri synd að segja
annað en Fischer tefli skemmti-
lega til vinnings).
15. fxe6
16. gxf3
exf3
f5
17. f4
18. Be2
19. Kf2
20. Hel
21. Bf3
Rf6
Hfe8
Hxe6
IIae8
(Það er ekki auðvelt að
benda á nokkuð betra en nú
hrynur allt i nokkum leikj-
um).
21______
2. Hxe3
23. Kxe3
Hxe3!
Hxe3
Dvf4f!! '
Bobby Fischer
(Glæsileg drottningarfórn. Ef
nú 24. Kxf4 þá Bh6 og eftir
24. Kf2 — Rg4+, 25. ,K£2. —
Re3+, 26. Kf2 —Rd4! nfeð gjör-
tapaðri stöðu á hvítt). *
Hvítur gafst upp.
OrðsenJing frá Þjéðviljanum
Þar sem skólarnir hefjast í næsfa mánuði og fyrirsjáanlegar eru
miklar breytingar á útburðarliði blaðsins eru beir sem gætu te|:ið að
sér útburð á blaðinu í september vinsamle^n bpðnir að hafafUam'-
band við afgreiðsluna hið fyrsta. Þjóðviijinn. Sími 17.500.
' '1
LAUS HVERFI TTM m4nA«AM^TTN:
Höfðahverfi — Seltjarnarnes’ (ytra) — Skjól — Safamýri — Grunnar
Þjóðvil.jinn Sími 17.500.