Þjóðviljinn - 03.09.1964, Side 3

Þjóðviljinn - 03.09.1964, Side 3
Ftmantudagur 3. september 1964 ÞIÖDVILÍINN SÍÐA Herútboð í Saigon sökum oriréms um árás Daí-Víet SAIGON 2/9 — Stjórnarhersveitunum í Saigon var í dag fyrirskipað að vera við því búnar, að þaer yrðu kvaddar til orustu þá og þegar. Yar or- sökin sú, að borizt höfðu óstaðfestar fregnir þess efnis, að hersveitir undir stjóm liðsforingja, sem stæðu Daí-Víet-flokknum nær, væru á leið til höf- uðborgarinnar og hyggðust gera enn eina stjóm- arbyítinguna. Opinberlega var tilkynnt í Saigon, að Nguyen Khanh hershöfðingi dveljist enn í Dalat, 320 km. frá Saigon. A þriðjudag dró leiðtogi Daí- Víetflokksins, dr. Nguyen Ton Hoan, varaíorsætisráðherra landsins, síg úr stjóminni og kvaðst ekki geta unnið með Nguyen Khanh. Það er haft fyrir satt í Saigon, að stjórnin hafí gert ráðstafanir til þess að minnka hernaðarmátt þeirra liðsveita, sem eru tmdir stjórn Kðsforingja, sem hlynntir eru Daí-Víet. Er einkum talað um 7. herdeildina í þessu sambandi, svo og nokkrar skriðdrekasveit- ir. Khanh heldur heim Þá berast þær fregnir frá Saigon, og eru hafðar eftir góð- um heimildum að Nguyen Khanh hershöfðingi muni snúa aftur til höfuðborgarinnar í næstu viku frá Dalat, en þar hefur hann Flúði frá Pathe! Lao WASHINGTON 2/9 — Banda- rískum herflugmanni, Charles Kluzmann að nafni, hefur tekizt að flýja úr fangelsi Pathet Lao á Krukkusléttu. Komst hann yfrr til Thailands, en þaðan fhittu landar hans hann til Fil- ippseýja. Ekki hefur verið skýrt frá nánari atvikum að flótta Kluzmanns, sem handtekinn var í júní sl. AFTÖKUR ALGEIRSBORG 2/9 — Fimm menn, sem dæmdir voru tíl dauða fyrir hermdarverkastarf- semi gegn stjóminni í Alsír, voru teknir af lífi á miðviku- dag. Mennimir voru skotnir. Frá þessu var skýrt í opinberri til- kynningu Alsírstjómar. dvalizt undanfarið sér til hvíld- ar og hressingar eftir stjórn- málaátökin, sem urðu þess vald- andi, að hann varð að segja af sér forsetaembætti. Það er enn- fremur hald manna í Saigon. að Khanh hafi sett það skilyrði fyrir því að snúa aftur til Saigon, að hann fái vald til þess að fjarlægja fylgismenn Daí-Víet úr öllum mikilvægum stöðum, Föngum sleppt úr haldi Á fimmtudag lét stjórnin undan kröfum foringja Búdda- trúarmanna og sleppti úr haldi meir en fimm hundruð manns, sem handteknir höfðu verið í óeirðunum í síðustu viku. Ekki eru þó allir stjómarliðar því hlynntir að sýna slíka „rnildi". Þannig hefur hópur af valda- miklum, ungum liðsforingjum séð sig tilknúinn að benda Khanh hershöfðingja á það, að hann verði að hefja öflugar að- gerðir gegn trúarlegum og stjóm- málalegum áróðursmönnum. Telja liðsforingjarnir, að komið geti til mikilla mótmælaðgerða. verkfalla og jafnvel trúarbragða- styrjaldar, verði ekki að gert. Bjargráðaráð I Saigon störfuðu stjómarmeð- limir á miðvikudag að því að gera áætlun um ráð, sem bjarga skal landinu, eins og það er orðað í fréttastofufregnum. Ráð þetta á að samanstanda af fremstu mönnum hers og ó- breyttra borgara og hafa stjóm- armeðlimir ráðgazt við fulltrúa Búddatrúarmanna, stúdenta og kaþólskra manna. Hvaðanæva að úr landinu berast fréttir af aukinni ásókn kommúnista og Búddatrúarmanna. Pravda ræðir landakröfur Kínverja MOSKVD 2/9 — Pravda, mál- gagn Kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna, sakaði í dag Kínverska aiþýðulýðveldið og þá sérstak- iega Mao tse-tung fyrir að á- girnast hvorki meira né minna en hálfa aðra miljón ferkílómetra af sovézku landi. Er það aðal- lega Mongólía, sem við er átt. Kennedy í kjöri NEW York 2/9 — Robert Kenn- edy var í gærkvöld með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða kjörinn frambjóðandi Demó- krataflokksins til Öldungadeild- arkosninganna í New York. Furiuleg vankunn■ átta þingmanna STOKKIIÖLMI 2/9 — Það framgengur af athugun, sem róttækt stúdentablað hefur látið gera, að 33 þingmenn af 383 á sænska þinginu sögðu ekki orð á þingi allt árið 1963. Hitt er þó verra, að rannsóknin leiddi í Ijós hjá þessum 33 al- veg furðulega vanþekkingu á störfum þingsins og stjórnmál- um yfirleitt. Enginn hinna 33 gat sagt til um það, hve há væru fjárlög yfirstandandi árs, og kom fyrir ekki þó að þeir væru beðnir að Vopnahlé Tyrkja og Grikkja á Kýpur var rofið í gær NICOSIA 2/9 — Talsmenn Sameinuðu þjóðanna í Nicosia skýrðu svo frá í dag, að rofið hefði verið vopnahlé það, er gert var milli Tyrkja og Grikkja á eynni 11. ágúst sl. Skotið var um 200 skotum og er þessum vopnaviðskiptum lýst sem hinum alvarlegustu frá því að vopnahléð var gert. Það var í Lefka-héraðinu á norðurhluta eyjarinnar, sem þessi átök urðu. Sænskir her- menn úr liði SÞ á Kýpur voru sendir til héraðsins til þess að rannsaka orsakir þessa atburð- ar. Ber deiluaðilum að vanda ekki saman, og kveður hvor um sig hinn hafa byrjað. Bandaríkin mótmæla Þá var það tilkynnt í Nicos- ia á miðvikudagskv. að Banda- ríkjastjórn hafi skrifað Makar- Lendingarleyfi SAS til umræðu LONDON 2/9 — Enska flug- málaráðuneytið vildi seint í gærkvöld hvorki játa né neita fréttum þess efnis, að enska stjómin yfirvegi nú að taka tii endurskoðunar þá ákvörðnn sína ÞÝZKU RÍKIN HEFJA SAM- EIGINLEGAR FRAMKV. BERLÍN 1/9 — Leiðtogi Aust- ur-þýzkra kommúnista, Walter Ulbricht, segir, að f jölmargir op- inberir samningar hafi vcrið gerðir milli fulltrúa Austur- og Vestur-Þýzkalands. Ulbricht sagði frá þvi í aust- ur-þýzka þjóðþinginu, að ekki væri aðeins um að ræða undir- búningsviðræður, en venjulega samninga sem oftast væm til lykta leiddir. Ulbricht sagði að stórkapítal- istar hefðu reynst furðulega raunsæir og samningar við þá hefðu gengið sýnu betur en samningar við fulltrúa flokks- stjórnar Sósíaldemókrataflokks Vestur-Þýzkalands. Lumumbaháskóli MOSKVU 2/9 — Patrice Lum- umba-háskólinn í Moskvu tekur í ár við 600 stúdentum frá Asíu, Afríku og Suður- og Mið Amer- íku. Verður þá stúdentatala há- skólans komin yfir 3000 og koma stúdentarnir frá 84 lönd- um. Það er Tass-fréttastofan, sem frá þessu skýrir. Hann sagði, að samningar um brúarsmíði hjá Hirshberg á þjóð- veginum milli Berlínar og, Niirn- berg hefðu aldrei tekizt án við- ræðna fulltrúa þeirra stjómar- deilda, sem hlut eiga að máli. Hann sagði, að samningarnir hefðu aðeins tekizt vegna þess að vestur-þýzku fulltrúarnir höfðu ábyrgst það, að ekki yrðu lagðir steinar í götu þeirra vest- ur-þýzku kaupsýslumanna. sem vilja sýna vörur sínar á kaup- stefnunni í Leipzig. f Vestur-Berlín sagði vestur- þýzki fulltrúinn Kurt Leopold, sem skrifaði undir samninginn um brúarsmiðina, að staðhæfing Ulhrichts væri röng. Leopold sagði að vestrænu fulltrúarnir hefðu ekki gengið að neinum skilmálum. Lögfræði- leg afstaða i sambandi við heimsóknir á kaupstefnuna í Leipzig væri óbreytt og þyrftu vestur-þýzkir kaupsýslumenn ekki leyfi hins opinbera til þess að fara á kaupstefnuna, og þeir sem vildu sýna þar vömr sínar fengju nauðsynleg leyfi, þegar þeir sæktu am þau. að skerða lendingarleyfi SAS í Prestwick í Skotlandi. Noregur, - Svíþjóð og Danmörk hafa mótmælt þeirri ákvöröun Englendinga að minnka vikuleg' ar lendingar SAS úr sjö í fjór- ar og allt niður í þrjár á næsta ári. Stjómir landanna þriggja tilkynntu það í apríl sl. að þær myndu fara fram á nýjar viðræður um þetta mál að hausti. Þangað til myndu þær bíða átekta og sjá hverju fram yndi um þróun flugmála á Atlanzhafi. Talsmaður enska flugmála- ráðuneytisins sagði hinsvegar, að sem stendur hafi ráðuneytið engu að bæta við fyrri yfir- lýsingar sínar um lendingar- SAS í Prestwiek. iosi forseta bréf og krafizt skýringa á þeim ummælum, sem eftir honum eru höfð, að Bretar og Bandaríkjamenn séu meðsek- ir í loftárásum Tyrkja á Kýp- ur í síðasta mánuði. Á Makarios að hafa látið þau ummæli falla við hámessu í Alexandríu nú um helgina. Bretar hafa einnig beð- ið skýringa. Vísað á bug Síðar um kvöldið vísaði svo Kýpurstjórn á bug mótmælum Breta og Bandaríkjamanna vegna þessa máls, og fylgdi það orð- sendingunni, að þessar tvær þjóðir hefðu látið sig loftárás- ir Tyrkja á saklausa borgara litlu varða. Frá New York ber- ast þær fréttir, að Ú Þant, fram- kvæmdastjóri SÞ, hafi látið svo um mælt er hann kom þangað í nótt frá Genf, að hann muni innan fárra daga skipa nýjan sáttasemjara í Kýpurdeilunni í stað Finnans Tuomioja. Gífurleg flóð í Indlandi NEW DELHI 2/9 — Gífurleg flóð eru nú í Indlandi, og er þeim lýst sem verstu floðum frá því 1920. 125.000 hektarar lands eru undir vatni, aragrúi fólks hefur misst heimili sín en síðustu fréttir hermdn, áð 38 manns hefðu drukknað. gizka á sennilega upphaeS, 'öt- koman varð jafnt fyrir þvi fjarri lagi. Það fylgir fréttinni, að 30 þessara þingmanna séu sósí- aldemókratar, tveir eru hægri- menn og einn frá Miðflokkn- um. Það er ekki eingöngu árið 1963. sem þessir þingmenn hafa búið um sig þögn, því dagblað eitt í Stokhólmi bætir því við frásögn stúdentablaðsins, það heitir Origo. að til fjögurra þessara manna hafi yfirleitt ekki heyrzt stuna né hósti í nefnd eða á þingi allt kjörtímabilið, sem er á enda runnið í haust. Þessi athugun hefur þegar verið notuð í kosningabarátttmni og var það ungur hægrimaður, sem skýrði frá niðurstöðum rannsóknarinnar til stuðnings þeirri kröfu sinni, að yngra blóði væri veitt inn í þingið. Fátt hefur orðið um vamir af hálfu hinna 33, en þó benda nokkrir þeirra á það. að þeir séu tiltölulega nýir af nálinni á þinginu, þar sé nógu mikið talað fyrir og betra sé að þegja en tala ef maður hafi ekkert nýtt fram að færa. Fornleifafundur í Pearyland KAUPMANNAHÖFN 2/9 — Danski Grænlandsfarinn Eigil Knuth hefur á þriðju ferð sinni til Pearylands fundið leifar af bústað Eskimóa, sem talið er að sé um 4000 ára gamall. Ekstra- bladed skýrir frá því á mið- vikudag, að Knuth, sem er ný- kominn til Hafnar frá Græn- lanái, hafi fundið þessar fáffi- minjar um það bil 100 km. frá aðalstöðvum leiðangurs- manná í Brönlundfjord. Rústir fundust eftir að minnsta kosti 27 hús. í Járnhliðínu BELGRAD 31/8. — 7. septem- ber næstkomandi verði þeir Tito forseti Júgóslavíu og Georghiu- Dej forseti Rúmeniu viðstaddir hátíðlega athöfn við svonefnt Jámhlið á Dóná við landmæri ríkjanna, þar sem hafizt verður handa við smíði geisimikillar rafstöðvar, sem löndin reisa í sameiningu. 30. nóvember í fyrra skrifuðu Tito og Georghiu-Dej undir samning um þessar framkvæmd- ir, sem áætlað er að muni kosta sem svarar rúmlega 16 milljörð- um ísl. króna. Verkinu á að verða lokið á sjö árum. Jafnfrámt verða miklar fram- kvæmdir til að bæta siglinga- leiðir á Dóná. ÚTSALA ÚTSALA Seljum í dag og næstu 3 daga mikið úrval af karlmanna- fatnað og stökum jökkum. VERÐIÐ AFAR LÁG T, Notið þetta sérstaka tækifæri að fá ódýr föt ANDERSEN & LAUTH hl. Vesturgötu 17 — Laugavegi 39. jr Oskum eftír að ráða mann til starfa að slysavörnum í umferð og öðrum slysavörnum á landi. Æskilegt er að viðkomandi hafi aflað sér sérþekkingar á þessu sviði. Umsóknir sendist til skrifstofu Slysavarnarfélags íslands í Reykja- vík, fyrir lok september merkt „starfsmaður“, pósthólf 1094. STJÓRN S.V.F.Í.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.