Þjóðviljinn - 16.09.1964, Qupperneq 3
Miðvikudagur 16. september 1964
ÞI6ÐVILTINN
SlÐA 3
Landamæradeilur
KHARTOUM 15/9 — I dag
tók til starfa í Khartoum
nefnd, sem Samband afrískr-
ar einingar hefur skipað, til
þess að reyna að finna lausn
á landamaeradeilum Alsír og
Marokko.
önnuæ nefnd sem Sam-
bandið hefur skipað hélt
fundi í Casablanca í maí til
þess að komast að niðurstöðu
um það, hvort ríkið bæri
ábyrgð á hernaðarárekstrun-
um, sem urðu á landamærum
þeirra í október í fyrra.
Sabry í Moskvu
MOSKVU 15/9 — Forsætis-
ráðherra Sameinaða Araba-
lýðveldisins, Aly Sabry, kom í
átta daga opinbera heimsókn
til Sovétríkjanna í dag.
Þegar Krústjoff forsætis-
ráðherra var í Egyptalandi í
maí síðastliðnum bauð hann
honum í þessa heimsókn.
Sabry mun eiga viðræður
við forystumenn í miðstjórn
Kommúnistaflokksins og m.a.
semja um það, hvernig 250
miljón rúblna láni, sem Sov-
étríkin hafa veitt Egyptum
verði bezt vajið.
Indversk aðstoð
NÝJA DELHI 15/9 — Ind-
verski utanríkisráðherrann
Swaran Singh skýrði frá því
á þingi í dag, að Indland
hefði heitið að veita Suður-
Víetnam þá efnahagslega.
félags- og líknaraðstoð, sem
það gæti.
Hann skýrði frá þv{ að
Khanh hershöfðingi hefði
farið fram á þessa aðstoð í
órðsendingu til forsætisráð-
herra Indlands Lal Shastri.
Ekki kæmi nein hernaðar-
aðstoð til greina því fulltrúi
Indlands er formaður í al-
þjóðlegu eftirlitsnefndinni
um Víetnam.
Berlín
BERLIN 15/9 — Herstjór-
inn í Austur-Berlín Helmuth
Poppe hershöfðingi hefur sent
herstjóranum í Vestur-Berlín
orðsendingu, þar sem hann
mótmælir skothríð banda-
riskra hermanna og vestur-
þýzkra lögregluþjóna austur
yfir Berlínarmúrinn síðastlið-
' inn sunnudag.
Vesturveldin viðurkenna
el^ki að Poppe sé herstjóri í
Austur-Berlín. en telja Sov-
étríkin bera ábyrgð á borg-
inn. og í samræmi við þessa
skoðun hafa þau sent þeim
mótmælaorðsendingu vegna
skothríðarinnar yfir múrinn,
sem hófst þegar austurþýzk-
ir landamæraverðir skutu að
flóttamanni.
Hamfarir
SEOUL 14/9 — Samtals
382 létu lífið eða óttazt er
að hafi farizt er ofsalegar
rigningar gengu yfir suður-
hluta Suður-Kóreu um helg-
ina.
170 manns fórust í skriðu-
föllum og öðrum hamförum.
1 höfuðborginni Seoul og
héruðunum þar um kring
stórsködduðust eða gereyði-
lögðust 17000 hús og 28 þús-
und manns hafa nú ekkí þak
yfir höfuðið.
Kosningar í Bret-
landi 15. október
LONDON 15/9 — Kosningabar-
áttan liófst opinberlega í Bret-
landi í dag er forsætisráðherr-
ann Alec Douglas-Home til-
kynnti eftir fund með drottn-
ingu að kosningar færu fram
fimmtudaginn 15. október.
Fimm ára kjörtímabil núver-
andi stjórnar rennur út í haust,
og hefur þá ríkisstjórn íhalds-
flokksins farið með völd í Bret-
landi samfleytt í 13 ár.
Á kjörskrá eru hátt á 36. milj-
ón og kosið verður um 630 þing-
sæti.
Það þykir mjög tvísýnt hver
verði úrslit kosninganna, en tal-
ið er víst, að hvor höfuðand-
stöðuflokkanna, íhaldsflokkurinn
eða Verkamannaflokurinn sem
sigri, muni ekki hljóta nema
nauman meirihluta.
Við síðustu kosningar haustið
1959 hlaut íhaldsflokkurinn 365
þingsæti og Verkamannaflokkur-
inn 258. Atkvæðamunur var þó
ekki svo mikill sem þessar töl-
ur benda til, þar sem íhalds-
flokkurinn hlaut 49,3% atkvæða
en Verkamannaflokkurinn 43,6%.
En þingsætin skiptast svona
ójafnt því landinu er öllu skipt
í einmenningskjördæmi.
MALASÍU-SAMBANDIÐ
Ríkisstjórn Indónesíu telur að stofnun Malasíu-sambandsins í september í fyrra sé þáttur í ný-
lendustefnu Breta, en þá steyptu þeir saman í eina ríkisheild fyrrverandi nýlendum sínum í Sarawak
og Sabah (Norður-Borneo), Singapore og Malaíaríkinu, sem þeir höfðu veitt sjálfstæði 1957. —
Malasíu-sambandið er óraunhæf ríkisheild, hvort sem vera skal frá Iandfræðilegu, hernaðar- eða
efnahagslegu sjónarmiði, og það er frekar talið heppni en stjórnvizka sem hefur haldið þessu
skrítilega samsetta ríki saman.
f því eru sameinuð háþróaðar borgir eins og Singapore og óþekkt samfélög í Kapuasfjöllum, kín-
verskir kaupsýslumenn og nokkur frumstæ8ustu mannfélög sem eru þekkt á jör^inni. Af 10 miljón
íbúum sambandsríkisins eru 42% af malaísk-indónesísku bergi brotnir, 38% eru kínverskir, Indi-
ánar eru 10% og afgangurinn eru mjög mismunandi frumstæðir þjóðflokkar.
Stóra-Bretland hefur þó sýnt það i verki, að það ætlar að reyna að halda ríkinu saman og mun
það ekki hvað sízt vera vegna gríðarlegrar brezkrar fjárfestingar í fefnahagslífi þessara fyrrverandi
nýlendna, sem eiga sér mikil náttúruauðævi í gúmi, timbri og tini. Hernaðarmáttur Malasiu er
kominn undir hernaðarbandalagi, sem það hefur gert við Breta, sem hafa sjó-, land- og flugher í
herstöðvum um allt sambandsríkið. Bandarikin styðja Breta við að halda uppi röð og reglu í
gervirikinu Malasíu, þyí nánasta bandalagsríki þeirra í Suðaustur-Asíu er Thailand, sem á landa-
mæri með Malasíu.
Afvopnun
GENF 15/9 — Fulltrúar hinna
átta óháðu ríkja á afvopnunar-
ráðstefnunni í Genf skoruðu i
dag á kjarnorkuveldin að auka
við samninginn um bann
við kjamorkusprengjutilraunum,
þannig að tilraunir neðanjarðar
yrðu einnig bannaðar.
f sameiginlegri yf irlýsin ?u
I landanna átta segir, að það hljóti
að vera hægt að leysa vandann
j um eftirlit með því að slíkt bann
j yrði virt.
Fulltrúar þeirra lýsa yfir
j ánægju sinni með þær undir-
j tektir sem Moskvu-sáttmáTino
frá því í fyrra hlaut, en ri'im-
lega hundrað ríki hafa skrifað
undir hann.
Óháðu ríkin átta á afvopn-
j nnarráðstefnunni i Genf eru
! Burma, Egyptaland, Brasilía.
Tndland, Mexico, Nigería og Eþ-
íópía.
annsékn og hreins-
anir 6 stjórnarher
SAIGON 15/9 — Valdhafarnir í
Suður-Víetnam hafa ákveðið að
hreinsa rækilega til í herstjórn-
inni.
Duong Van Duc, sem stjóm-
aði hersveitunum sem héldu inn
í Saigon á aðfaranótt sunnudags
og hófu þar með uppreisnartil-
raunina, hefur verið settur af.
Jafnframt skýrir AFP frá að
Khanh hershöfðingi hafi skipað
lögreglu, leyniþjónustu og her
að hefja víðtækar rannsóknir i
sambandi við uppreisnartilraun-
ina.
Stjórnmálamenn í Saigon eru
I einnig þeirrar skoðunar að hers-
Friðarhorfur á Kýpur
NIKOSIA 15/9 — í dag aflétti Makarios forseti um-
sátri því, sem Kýpurgrikkir höfðu um landssvæði
Kýpurtyrkja til að beita þá efnahagslegum þving-
unum.
Kýpurgrikkir telja, að horfurnar á friðsamlegri
þróun mála á Kýpur séu nú vænlegri en vérið
hefur um langt skeið.
I símskeyti til U Þant aðalritara SÞ segir Makar-
ios einnig að ríkisstjórn hans sér reiðubúin að gefa
fyrirskipun um það að leggja niður öll hernaðar-
mannvirki grískumælandi manna á eynni, ef leið-
togar Kýpurtyrkja séu fúsir til að gera það líka-
Kýpurstjórn ér einnig tilbúin til þess að veita
þeim Kýpurtyrkjum efnahagslegan stuðning og
aðra aðstoð, sgm óska þess að snúa til heimabyggð?
sinna, þaðan sem leiðtogar þeirra hafa neytt þá
til að flytjast, og gera sitt til að koma á eðlilegu
ástandi aftur.
höfðinginn muni breyta ríkis-
stjóminni verulega.
f dag hélt ríkisstjómin fund
með Khanh og Oanh forseta í
höfuðstöðvum hersins, og þó
ekki sé vitað hvað var rætt
þykir líklegt að Khanh hafi kraf-
ið Oanh sagna, hvers vegna
hann kallaði saman ríkisstjórn-
arfund á skrifstofu forsætisráð-
herrans, þegar uppreisnarmenn
höfðu hana á valdi sínu á sunnu-
dag.
f stað Duc hefur Nguyen Van
Thieu verið skipaður yfirmaður
fjórða hersins og þóttu það ó-
vænt tíðmdi því hann hefur áð-
ur verið grunaður um andstöðu
við Khanh.
Þá hefur fallhlífaliðinn Nguy-
en Can Thi verið skipaður yfir-
maður fyrsta hersins, en hann
var foringi í misheppnaðri upp-
reisnartilbaun 1960.
f Saigon er skýrt frá þvi að
hersveitir sem tóku þátt í upp-
reisninni verði sendar á vígvell-
ina til að berjast við skæruliða
Víetkong.
„Oi-óaástandið í Saigon síðustu
mánuði hefur grafið svo alvar-
lega undan stöðu Bandaríkjanna
i Suður-Víetnam, að endanlegt
hrun er fyrirsjáanlegt. Líklega
verður það i vetur — og sjái
Washington ekki að sér i tæka
tíð og dragi sig til baka —
munu vorrigningarnar sem hefj-
ast í febrúar flýta fyrir fallinu".
Ofanritað skrifar danska borg-
arablaðið ,,Information“ eftir
síðustu atburði í Saigon og
munu þessi orð spegla almennt
álit flestra, sem gerst þekkja
til mála.
WÍD
illlft
(plastmálning)
utanhúss og innan í mörgum litum
Sterk
*£» Áferðarfalleg
Auðveld í notkun
2$. Ódýr
Fæst víða um land og í flestum málningarvöruverzl-
unum í Reykjavík.
Framleiðandi: SLIPPFÉLAGH) í Reykjavík. Sími 10128.
Iðja, félag verksmiðjufólks
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kosningu fulltrúa félagsins á 29. þing Alþýðusam-
bands fslands.
Hér með er auglýst eftir uppástungum um 19 aðalfull-
trúa og jafnmarga til vara. Framboðsfrestur er til kl.
12 á hádegi föstudaginn 18. september.
Hverrj uppástungu skulu fylgja skrifleg meðmæli 100
fullgildra félagsmanna.
Uppástungum skal skila í skrifstofu félagsins, Skip-
holti 19.
Reykjavík, 16. september 1964,
Stjóm Iðju, félags verksmiðjufólks
í Reykjavík.
TRÉSMIÐAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Ákveðið hefur verið að ALLSHERJARATKVÆÐA-
GREIÐSLA skuli viðhöfð um kjör fulltrúa Tré-
smiðafélagsins til 29. þings Alþýðusambands
íslands.
Tillögum um 6 fulltrúa og 6 til vara, ásamt með-
mælum að minnsta kosti 60 fullgildra félags-
manna, skal skila til k'jörstjórnar í skrifstofu fé-
lagsins að Laufásvegi 8 fyrir kl- 19 föstudaginn
18. þ.m.
Stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur.