Þjóðviljinn - 24.09.1964, Qupperneq 3
^lmmtudagur 24. september 19&i
ÞIÓÐVILIINN
SlÐA
Makarios
NIKOSIA 23/9 — I Nikós-
íu var skýrt frá því í dag, að
Makaríos forseti muni taka
þátt í ráðstefnu æðstu
manna óháðra þjóða í Kairo,
sem hefst í október.
Samtímis var skýrt frá því,
að Spyros Kyprianou utanrík-
isráðherra fari til Moskvu á
morgun til viðræðna við rík-
isstjórn Sovétríkjanna.
Heræfingar
PARlS 23/9 — Talsmaður
franska varnarmálaráðu-
neytisins viðurkenndi það í
dag, að frönsk skip hefðu
verið tekin úr hinum sameig-
inlegu heræfingum Nato, scm
nú fara fram á Norður-Atl-
anzhafi.
Hann vildi ekkert segja um
ástæður, en kvað þær ekki
mikilvægar.
Blaðiö „Le Monde“ segir að
skipin hafi verið tekin úr æf-
ingunum í þeim tilgangi að
sýna fram á það, að sam-
skipti franska fIotans og Nato
væru raunverulega breytt.
í»að er vísað til þess, að
Page Smith flotaforingi og
yfirmaður sjóhers Nato. hefði
sagt að ekkert hefði breytzt
í samvinnu hans við Frakka
síðan það var kunngert í ap-
ríl, að franskir sjóliðsforingar
yrðu teknir úr Natoflotanum.
Goldwater
DALLAS 23/9 — Forseta-
efni Republikana Barry Gold-
water varaði við því í dag,
að hemaðarútgjöld yrðu skor-
in niður í Bandaríkjunum, og
sagði að Bandaríkin yrðu að
vera miklu öflugri en óvinur-
inn, ef það ætti að geta
stöðvað kommúnismann.
Hann ákærði einnig Mc-
Namara landvamaráðherra
fyrir mistök á mistök ofan
i afstöðu hans til kommún-
ismans og bætti við, að Mc-
Namara væri að reyna að
breyta landvarnaráðuneyt-
inu í afvopnunarráðuneyti.
Handtökur
JÓHANNESARBORG 23/9
— Suður-afríski lögfræðing-
urinn Abraham Fischer, sem
var höfuðverjandi í hinum
umfangsmiklu málaferlum
gegn þjóðernisleiðtoganum
Nelson Mandela og félögum
hans, var handtekinn í dag.
Jafnframt handtók öryggis-
lögreglan fyrrum aðalritara í
samtökum verzlunarmanna
EIi Weinberg.
Þeir eru báðir handteknir
í samræmi við lögin um bar-
áttuna gegn kommúnisma.
Danska ríkisstjórnin missti
meiríhluta sinn í kosningum
KAUPMANNAHÖFN 23/9 — í dag gekk Jens Otto Krag
forsætisráðherra fyrir konung og baðst lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt. Úrslit kosninganna í Danmörku urðu
þau að ríkisstjórnin missti meirihluta sinn, en það verð-
ur ekki fyrr en á föstudag að Ijóst verður, hvernig núver-
andi stjórnarkreppa verður leyst, en þá eiga flokkarnir
að hafa skýrt konungi frá viðhorfum sínum. Sennilegast
er talið að Krag muni mynda minnihlutastjórn Sósíal-
demókrata-
Ríkisstjórnin hafði, haft 87
þingmenn, Sósíaldemókratar 76
þeirra, en Róttæki vinstri flokk-
urinn hafði 11 en tapaði einu
sæti og þá var grundvöllur fyr-
ir frekari stjómarsamvinnu úr
sögunni. Flokkurinn ákvað á
landsfundi sínum í sumar að
sitja ekki í stjóm með Sósíal-
demókrötum áfram, nema það
yrði meirihlutastjórn og flokk-
urinn tapaði ekki í kosningun-
um.
Úrslit þingkosninganna eru
annars mikið rædd og eftirtekt-
arverðast þykir hinn mikli sig-
ur íhaldsflokksins í öllum kjör-
dæmum. Annað þykir koma á
óvart hve Vinstri flokkurinn
hefur unnið mikið á í borgun-
um og vegur það alveg upp á
móti því sem hann tapaði til
sveita, þar sem hann hefur áður
verið öflugastur. Róttækir töp-
uðu enn og fjórir smáflokkar
Hér fara á eftir úrslit kosninganna, í svigum tölur frá
síðustu kosningum:
Sósíaldemókratar 1.103.216 (1 .023.974) 76 (76)
Róttæki vinstri flokkurinn 139.731 ( 140.049) 10 (H)
íh aldsf lokkurinn 527.921 ( 435.764) 36 (32)
Vinstri flokkurinn 546.940 ( 512.041) 38 (38)
Sósíalski þjóðarflokkurinn 152.085 ( 149.440) 10 (11)
Óháði flokkurinn 65-659 ( 81.134) 5 X 6)
Kommúnistaflokkurinn 32-245 ( 27.298) 0 ( 0)
Friðarflokkurinn 9.032 ( 0) 0 ( 0)
Réttarsambandið 34.115 ( 52.330) 0 ( 1)
Dansk Samling 9.708 ( 0) 0 I 0)
Bandarískir herráðunautar
þjálfuðu uppreisnarmenn
SAIGON 23/9 — Víetkong hefur aukið aðgerðir sínar í
Suður-Víetnam á sama tíma og Khanh hershöfðingi á
erfitt með að ráða fram úr vandamálum sínum í Saigon.
í fyrri viku framkvæmdi Víetkong 975 hernaðaraðgerðir
í landinu, og hafa ekki verið svo athafnasamir síðan í
nóvember í fyrra, þegar Diem sáluga var steypt. Þá vex
óðfluga styrkur uppreisnarmanna í fjöllunum í norður-
héruðum landsins og hefur það valdið ergelsi milli vin-
anna: stjórnarinnar í Saigon og Bandaríkjamanna, því
þeir höfðu einmitt þjálfað fjallabúana rækilega.
Ný ÆF-deild
Framhald af 2. síðu.
um, fonn., Armbjörn Árnason,
Finnsstöðum, ritari, Guðmund-
ur Jóhannsson, Egilsstöðum,
gjaldkeri.
Endurskoðendur deildarinn-
ar voru kjörnir: Jón Ámason,
Finnsstöðum og Ásmundur Þór-
arinsson, Vífilsstöðum.
1 næstu æskulýðssíðu verða
birtar myndir af fundinum.
B. S.
TAPAZT
Ihefur innkaupataska
jvið Þóroddsstaði.
ÍVinsamlegast hringið
lí síma 24931.
I orustu sem tókst við her- ~
stöð 65 km, suður af Saigon fyr-
ir birtingu í morgun felldu her-
menn stjórnarinnar rúmlega 50
liðsmenn Víetkong, að eigin
sögn. Sagt er að herdeild úr Ví-
etkong hafi ráðizt á herstöðina
Luong Phu um tvö leytið að-
faranótt miðvikudags. I herstöð-
inni voru 500 hermenn, sem köll-
uðu strax á hjálp og fengu hana,
þar með sprengjuþotur og flug-
vélar sem köstuðu Ijóssprengjum
yfir vigvöllinn fram á morgun.
Fréttastofan AFP skýrir frá
því, að stjórnarherinn hefði
misst tvær „Skyraider” orustu-
þotur, sem hermenn Víetkong
skutu niður í dag. Voru flug-
vélar þessar á leið til tveggja
henstöðva til aðstoðar gegn á-
rásum Víetkong. 1 hvorri flug-
vél vom tveir liðsforingjar,
anna, sem búa í fjöllunum í
Mið-Vietnam fer vaxandi. 4000
hermenn af þessum þjóðflokkum
eru sagðir hafa sagt sig úr lög-
um við ríkisstjóm landsins. Upp-
reisnarmenn krefjast fullveldis
fyrir þjóðarbrotin og berjast nú
i þrem héruðum, Darlac, Quang
Duc og Pleiku.
Stjórnarvöldin eru farin að
leita samninga við uppreisnar-
menn. Bandaríkjamenn þjálfuðu
þá til baráttunnar gegn Víet-
kong og reyna nú að koma á
sættum milli þeirra og ríkis-
stjórnarinnar. Uppreisnarmenn
hafa tekið upp eigin fána til
merkis um sjálfstasði sitt.
Að minnsta kosti sex herbúðir
og sveitabæir hafa veitt þeim
fullan stuðning.
Bandaríkjamenn hafa átt í úti-
stöðum við stjómarvöldin í S-
Víetnam vegna þessara síðustu
atburða, og segist ríkisstjómin í
Saigon hafa verið á móti því að
fjallabúar yrðu sérstaklega þjálf-
aðir, einmitt af ótta við að þeir
réðust gegn yfirvöldunum.
KR-frjáls-
íþróttamenn!
Innanfélagsmót í köstum fer
fram í dag og n.k. laugardag.
Stjórnin.
komu engum fulltrúa á þing.
Þá hefur það yfirleitt komið
mjög á óvart hve Sósíalski þjóð-
flokkurinn (Axel Larsen) tapaði
miklu minna en búizt hafði ver-
ið við. Hann hélt tíu þingsætum
þó hann hafi tapað einu, var þó
reyndar búinn að tapa þrem
sætum á þingi áður, þar sem
þingmenn sem vom kosnir á
hans vegum í síðustu kosning-
um höfðu gengið úr flokknum á
kjörtímabilinu.
Annars draga menn þá álykt-
un helzta af úrslitum kosning-
anna, að smáflokkar eigi stöðugt
erfiðara uppdráttar og það lítur
út fyrir að stóru flokkamir sópi
að sér og stækki enn.
Menntaskólinn
Framhald af 1. síðu.
gangi á kjallarahæð. Þar verður
fatageymsla og matstofa fyrir
nemendur. Einnig em þar stofur
fyrir verkstæði til viðhalds á
kenn sluáhöldum.
Kennsluáhöld fyrir náttúru-
fræði og eðlisfræði hafa verið
pöntuð frá Svíþjóð og er þar
miðað við nýjustu tæki í þeirri
grein og eru nýlega komin á
markaðinn.
Sennilega dregst afhending á
þessum tækjum fram eftir vetri
frá sænsku verksmiðjunum, þar
sem þær fullnægja ekki eftir-
spuminni á innanlandsmarkaði.
Mál og menning
Framhald af 12. síðu.
kvöldi. Ætlunin er að Ijúka
því safni á næsta ári með 4.
fjórða bindi.
Þá var einnig gefin út fyrr
á árinu smásagnabók eftir
Guðberg Bergsson; Leikföng
leiðaús.
Þetta er það helzta sem út-
gáfan hefur að segja eins ‘og
stendur, en hugsanlegt er að
útgáfubækurnar verði fleiri
og það bækur sem þyki slæg-
ur í.
Bandarískur hermaður í feni í
S-Víetnam og má víst segja að
þarna sé réttur maður á réttum
stað.
bandarískur og Suður-víetnami.
Ekkert hefur spurzt til Banda-
ríkjamannanna, en Suður-Víet-
ramarnir fundust.
Uppreisnin meðal þjóðarbrot-
Hvað gerðist á Tonkinflóa?
NEW YORK 23/9 — New York Times skrifar í leiðaia í
dag að bandaríska stjórnin neiti þjóðinni um nákvæma
skýrslu um það, hvað hún viti um síðustu atburði á
Tonkinflóa vegna ruglingslegrar skriffinnsku og leyndar-
dómsheita.
Blaðið segir, að það sem valdi mestum áhyggjum í
sambandi við þetta mál, sé sú frásögn Johnsons forseta,
að þegar fyrstu skýrslurnar bárust voru ýmsir, líklega
meðal stjórnmála- og hernaðarráðunauta hans, þeirrar
skoðunar, að þegar í stáð ætti að grípa til gagnráðstafana
með því að gera loftárásir á Norður-Víetnam.
☆ ☆ ☆
Lundúnablaðið DAILY TELEGRAPH hefur nýverið birt
álit fréttaritara sinna á seinustu atburðum á Tonkinflóa,
kallar blaðið þá fáránlegt grín og heldur því fram að
blettir á ratsjá hafi orðið að fjórum ókenndum skipum.
Var bardaginn milli bandarísku tundurspillanna og
hinna óþekktu árásarskipa í rauninni aðeins á milli tund-
urspillanna og ímyndaðra ókunnra skipa, spyr blaðið.
Og segist það álíta að svo muni hafa verið. Bendir blað-
ið á, að þeir í Washington vilji nú umfram allt að þetta
gleymist og geri það sem í þeirra valdi stendnr til að
svo verði. Atburðirnir áttu sér stað um dimma nótt, að-
faranótt 18. september s.l. Vera má að einhver fyrir-
brigði á ratsjá tundurspillanna hafi verið látin heita
„óþekkt skip-‘, en tilkynningarnar um slík fyrirbrigði er
það eina sem sagan um hin óþekktu skip er byggð á,
segir Daily Telegraph að lokum.
SÖLUUMBOÐ FYRIR
laFMIDIR
tCELANDIC AIRUNES
í Kópavogi.
Haustfarg’iöldin
25% afsláttur
Nú er tækifærið til að heimsækja nokkrar
skemmtilegustu borgir Evrópu fyrír stórlækk-
að verð. Sumaraukafargjöld Loftleiða gilda
fyrir 30 daga ferðir í september og október.
Kynnið yður sem fyrst ferðamöguleikana hjá
okkur. Upplýsingar og farpantanir alla daga
frá kl. 9—22 í síma 40810 eða 40980.
LITASKÁLINN
Kársnesbraut 2. — Sími 40810
A L U M I N I U M
FYRIRUGGJANDI
D-PRÓFÍLAR
L-PRÓFÍLAR
U-PRÓFÍLAR
FLATALUMINIUM
ALUMINIUMRÖR
ALUMINIUMSTIGAHANDRIÐ
SLÉTTAR ALUMINIUMPLÖTUR
BÁRAÐAR ALUMINIUM
ÞAKPLÖTUR
ALUMINIUMGÓLFPLÖTUR
Laugavegi 178 — Sími 38000
i
1