Þjóðviljinn - 24.09.1964, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.09.1964, Blaðsíða 4
4 SIÐA MðÐVILJINN Fimmtudagur 24. september 1964 Otgelandi: Sameiningarflokkur aiþýöu — SósíaUstaflokk- urinn — Kitstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Siguróur Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19, Simi 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kl 90.00 á mánuði. Islenzk fönvæðing eða erlend auðdrottnun j meira en öld höfum vér íslendingar háð baráttu fyrir efnahagslegu sjálfstæði voru, brotið af oss nýlendufjötrana, unnið hvern sigurinn á fæt- ur öðrum, — gert erlendar konungsjarðir að ís- lénzkum þjóðjörðum og bændaeign, — rofið er- lenda verzlunareinokun og gert verzlunina ís- lenzka, — skapað íslenzka útgerð, — komið upp íslenzkum fiskiðnaði, — náð fossunum, sem komn- ir voru í hendur erlendra auðfélaga, undir íslenzk yfirráð, — náð fiskveiðilandhelginni úr erlendum tröllahöndum. Vér íslendingar eigum sjálfir at- vinnutæki vor, njótum sjálfir og einir auðlinda vorra. Jþetta er stefnan, sem vér höfum fylgt, stefnan sem þorri þjóðarinnar hefur sameinazt um. Og þetta er stefnan, sem vér eigum að fylgja áfram. í krafti þessarar stefnu efnahagslegs sjálfstæðis höfuni vér gerbreytt lífskjörum þjóðarinnar á einni öld. | SósSTalistaflokkurinn berst eindregnast jjllra flokka fyrir þessari stefnu efnahagslegs sjálfstæð- is. Höfuðbarátta hans nú er að tryggja íslenzka iðn-, væðingu, fullvinnslu íslenzkra afurða, sem sé í höndum íslendinga sjálfra. Og þessi stefna er um leið lausn á vandamálum Norðlendinga og ann- arra sem við atvinnuskort búa, eins og baráttan fyrir stórum niðurlagningarverksmiðjum á Siglu- firði, Skagaströnd og víðar og öruggum mörkuð- um fyrir afurðum þeirra bezt sýnir. gn það er táknrænt fyrir spillingu þá, sem upp hefur komið hjá auðvaldinu á íslandi, að Morg- unblaðsliðið skuli nú brjóta í bág við aldagamla sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og beita sér fyrir því að hleypa erlendu auðvaldi inn í landið. Er- lendur aluminiumhringur og amerísk olíueinokun er nú orðið „hugsjónir“ þessarar fimmtu herdeildar erlends auðvalds. Aluminiumhringurinn talar um 1100 miljón króna fjárfestingu „til að byrja með“. Þreföldun þess, upp í 90000 smálesta framleiðslu á aluminiummálmi, sem er nú meðalstærð alum- iniumverksmiðja, myndi jafngilda 3300 miljón króna erlendri fjárfestingu. En það er meira en allt íslenzkt fjármagn í öllum sjávarútvegi og fiskiðnaði. ]V|eð baráttunni fyrir aluminiumhringnum er því 1 stefnt að því að ofurselja ísland erlendri auð- drottnun. Efnahagsleg sjálfstæðisbarátta íslands stendur því um bað í dag að halda áfram íslenzkri iðnvæðingu, halda tryggð við okkar gömlu sjálf- stæðishugsjón, — og gegn því að ofurselja ísland erlendum auðbringum til arðráns og kúgunar., Kjörorð Morgunblaðsliðsins virðist í dag vera: ,.1^’and fyri7: ameríska auðhringa“. En kiörorð fcle«dinga verður hið forna: „fsland fyrir íslendinga eina“. — e. □ Frumkvæði verkalýðsfélaganna á Siglufirði og hin myndarlega ráðstefna um atvinnumál staðarins og nær- liggjandi byggðarlaga sem haldin var um sl. helgi hefur vakið mikla athygli um allt land. □ Þjóðviljinn hefur birt fréttir af ráðstefnunni og birti í gær orðrétta eina af ályktunum hennar, varðandi Niðurlagningarverksmiðju Síldarverksmiðja ríkisins og markaðsöflun fyrir fullunnar síldarvörur. Hér eru birtar allar aðrar samþykktir þessarar merku ráðstefnu, en all- ar ályktanir hennar voru samþykktar einróma. Um Tunnuverksmiðju ríkisins Atvin-numálaráðstefna verka- lýðsfélaganna á Sigluf. treystir því, að allt verði gert, sem unnt er til að hraða byggingu hins nýja verksmiðjuhúss Tunnuverksmiðju ríkisins á Siglufirði, svo að starfræksla hennar geti hafizt eigi síðar en upp úr næstu áramótum. Einnig treystir ráðstefnan því, að þær einar af eldri vél- um verksmiðjunnar, sem á all- an hátt standast samanburð við nýjar vélar af beztu gerð í er- lendum tunnuverksmiðjum, verði settar upp í hinni end- urbyggðu verksmiðju, svo að hún af þeim sökum hafi alla möguleika til að standast sam- keppni um verð og gæði fram- leiðslunnar. Með tilliti til atvinnuþarfa siglfirzkra verkamanna og þéss að verksmiðjan af eðlilegum á- stæðum tekur svo seint til starfa á þessu ári, skorar ráð- stefnan á stjórn Tunnuverk- smiðja ríkisins að láta vinna á tveimur vöktum. Um útgerð og hrað- frystihús Ráðstefna um atvinnumál Siglufjarðar; haldin að tilhlut- an verkalýðsfélaganna Brynju og Þróttar 19. og 20. sept. 1964, lítur svo á, að útgerð smærri báta og vinnsla afla i hrað- írystihúsum, sé sú atvinnu- grein, sem Siglfirðingar verði a. m.k. i næstu framtíð að treysta á að mjög verulegu leyti, og skorar á stjórn SR, að Hrað- frystihús S.R. tryggi sér afia af, a.m.k. 4 bátum á þessum vetri til vinnslu í hraðfrystihúsi S.R. Þá beinir ' ráðstefnan þeim ákveðnu tilmælum til ríkisstjómarinnar, að hún veiti þeim aðilum á Siglufirði, sem hefja vilja útgerð og vinnslu sjófangs nauðsynlega fyrir- greiðslu til slíkrar starfrækslu. f því sambandi télur ráðstefn- an nauðsynlegt og skilyrði fyr- ir slíkri starfsemi, að mögu- leikar séu á vinnslu í hrað- frystihúsi allan ársins hring. f framhaldi af framansögðu tel- ur ráðstefnan æskilegt að Hafn- arsjóður Siglufjarðar láti byggja 3 til 4 verbúðir sem fyrst. Þá samþykkir ráðstefnan enn fremur, að skora á stjóm Út- gerðarfélags Siglufjarðar að kaupa tvo fiskibáta, sem gerð- ir verði út frá Siglufirði allt árið, og legðu allan afla sinn, eða meginhluta hans, á land i Siglufirði. Um lýsisherzlu- verksmiðju Ráðstefna verkalýðsfélaganna á Siglufirði um atvinnmál Siglufjarðar, skorar eindregið á ríkisstjórn að undirbúa fram- kvæmd laga um byggingu lýs- isherzluverksmiðju og láta reisa hana á Siglufirðl. Leggur ráðstefnan áherzlu á hve afarmikla býðingu það haf; jafnt fyrir atvinnuupDbygs- ingu bæjarins sem efnahagslíf landsins að slík verksmiðja yrði reist hér. Um Niðuriagningar- verksmiðju Egils Stefánssonar Ráðstefna verkalýðsfélaganna um atvinnumál Siglufjarðar leggur áherzlu á, að Niður- suðu- og niðurlagningarverk- smiðju Egils Stefánssonar sé veitt fyrirgreiðsla af opinberri hálfu til starfsemi sinnar og eflingu hennar. Síldarleit og síldar- flutningar Ráðstefna haldin í Siglufirði 19.—20. sept. 1964 samþykkir eftirfarandi: a) að beina þeim tilmælum til sjávarútvegsmálaráðh., að hann beiti sér fyrir því að n.k. vor verði síldarleit fyr- ir Vestur- og Norðurlandi hafin mun fyrr en verið hefur, eða eigi siðar en um mánaðamótin apríl-maí. Ráð- stefnan telur og nauðsyn- legt, að veiðiskip fylgi rann- sóknarskipum við framan- greinda leit. b) að beina þeim tilmælum til Sildarútvegsnefndar, að hún á komandi sumri láti hefja tilraunir um flutning • söltunarhæfrar síldar til Siglufjarðar af fjarlægum miðum. Jafnframt samþykk- ir ráðstefngn að skora á Al- þingi að heimila Síldarút- vegsnefnd að sinna þessu verkefni ef lagaheimild brestur til þess að nefndin taki þetta hlutverk að sér. c) að beina þeim tilmælum til stjórnar S.R. og rikis- stjorriarinnar að athuga nú þegar möguleika á að láta byggja eða kaupa tankskip til síldarflutninga á milli verksmiðja, og til lýsisflutn- inga að aflokinni síldarver- tíð Um aðstoð við útgerð þegar aflabrestur verður Ráðstefna um atvinnumál haldin 19. og 20. sept. 1964 að tilhlutan verkalýðsfélaganna Þróttar og Brynju fer fram á það, að þegar slikur atvinnu og/eða aflabrestur verður sem hér hefur orðið, geri stjórnar- völdin eftirfarandi ráðstafanir: 1. Láti fresta að krefjast af- borgana óg vaxta af skuld- um útgerðar- og atvinnu- fyrirtækja við opinbera lánasjóði og njóti nefndra fríðinda þeir aðilar, serri út- gerð eða aðra starfsemi reka á þeim landssvæðum, sem atvinnu- eða aflabrest- ur hefur bitnað á. 2. Reglum aflatryggingasjóðs verði breytt þannig að ekki sé skylt að miða við 5 ára aflameðaltal fiskiskipa við greiðslu uppbóta, heldur verði heimilað, ef nauðsyn ! ber til, að tryggja fiskibát- um, sem stunda línuveiðar hærri framlög úr aflatrygg- ingasjóði, en ákveðið er með núverandi reglugerð. Hafnargerð, skipa- smíðastöð, dráttarbraut Ráðstefna haldin í Siglufirði 19.—20. sept. 1964 lítur svo á, að varanleg atvinnuuppbygg- ing í Siglufirði velti að veru- legu leyti á uppbyggingu Innri- hafnarinnar, þannig, að þar komi verulega góð aðstaða til þorskútgerðar. Telur ráðstefnan eðlilegast að slik aðstaða sé byggð upp frá grunni við Innri- höfnina og telur að því máli verði að hraða og hefja fram- kvæmdir hið fyrsta. Ráðstefnan telur, að eðlilegt sé, að bæjarfélagið skapi þessa bráðnauðsynlegu aðstöðu, sem síðan verði framleigð eða nýtt á annan hátt. Þá lýsti ráðstefnan ánægju sinni yfir því, að þegar eru komnar af stað umræður um byggingu skipasmíðastöðvar og dráttarbrautar við Innri-höfn- ina og er sammála um, að það sé eitt hið þýðingarmesta nauð- synjamál fyrir atvinnuupp- byggingu Siglufjarðar og skor- ar á ríkisstjórn að veita því máli öflugan stuðning. Um Strákaveg Atvinnumálaráðstefna verka- lýðsfélaganna á Siglufirði lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að lagning Strákavegar hafi mjög mikilsverða þýðingu fyrir Siglu- fjörð. Hún geti með öðru haft mikil áhrif á framtíðarviðhorf manna til búsetu í kaupstaðn- um, auk þeirrar beinu hag- rænu þýðingar, sem öruggt ak- vegasamband allt árið vissu- lega hefur fyrir atvinnulíf kaupstaðarins. Þá hefur vegarlagningin gagnkvæma þýðingu fyrir Siglufjörð og landbúnaðarhér- uð Skagafjarðarsýslu. f því tilliti yrði Strákavegur lyfti- stöng beggja. Ráðstefnan hvetur til þess, að áherzla verði lögð á að ljúka vegargerðinni sem fyrst ogi telur, að nota ætti vetrartím- ann til framkvæmda við gerð jarðgangnanna, séu ekki tækni- leg atriði því til fyrirstöðu, þannig, að gerð þeirra gæti orðið til aukningar atvinnu á þeim tíma, sem minnst er um atvinnu hér, og hvetur viðkom- andi aðila til að láta vinna að undirbúningi og gerð þeirra í vetur. Um jarðhitaleit Ráðstefna um atvinnumál Siglufjarðar, haldin að tilhlut- an verkalýðsfélaganna Brynju og Þróttar 19. og 20. sept. 1964, beinir þeim tilmælum til bæjarstjórnar Siglufjarðar að hún hlutist til um það við við- komandi aðila að jarðhitaleit í Siglufirði verði haldið áfram og hraðað með fullkomnustu tækjum sem ríkið nú á til jarðborana svo úr því fáist skorið sem fýrst hvort jarðhiti sé fyrir hendi í nágrenni Siglufjarðarkaupstaðar til alls- herjar hitaveitu fyrir kaup- staðinn. Jáningaást' sýnd aftur IÍWÍÉ«í1IPI|Ií;;/s1;*;ímIÍÍ Leikritið „Táningaást“ var sýnt 19 sinnum í Þjcjijileikhúsinu á s.l. leikári. Um það bil 7000 gestir sáu sýninguná| Leikur þessi hefur allstaðar vakið mikla eftirtckt, þar sem hann hefur verið sýndur, þó að vinsældir Iciksins hafi hvergi orðið jafn miklar og í Danmörku, en þar var hann sýndur i tvö ár við metaðsókn. Hin vandmeðförnu aðalhlutverk eru hér Icikin af Herdísi Þorvaldsdóttur og Rúrik Haraldssyni og hlutu þau bæði mjög góða dóma fyrir túlkun sína í hlutvefkunum. Aðr- ir Ieikendur eru Bryndís Schram og Benedikt Árnason, en hann er jafnframt leikstjórinn. Auk þess hefur Erik Bidsted samið og séð um sviðshrcyfingar í leiknum. Fyrsta sýning ieiks- ins á þessu leikári verður n.k. sunnudag. — Myndin er af Herdísi og Rúrik í hlutverkum sinum. • I á k

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.