Þjóðviljinn - 24.09.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.09.1964, Blaðsíða 6
g SlÐA ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagnr 24. september 1964 □ Rithöfundurinn Mogens Linck skrifar í þessari grein um bar- áttuna í Danmörku fyrir því, að mega skapa list og því, að mega njóta hennar. Einnig um þá örðugleika sem listamenn verða að glíma við því yfirvöldin líta enn þann dag í dag á list sem dægra- dvöl og því verði hún að borga sig. Menningarbaráttan ■mmm Þýtt úr Land og Folk, stytt Það er hægt að skoða hug- takið menningarbarátta — eða menningarbaráttan — frá ýms- um hliðum og það er haegt að taka þátt í henni með mis- mundandi viðhorfum. Hér verður þó aðeins spjali- að um hina eiginlegu menn- ingarbaráttu, sem fer fram á tveim sviðum: Annars vegar barátta fyrir því að mega skapa menningarverðmæti, hins vegar baráttan fyrir því að fá aðstöðu til að njóta þeirra. Athugum fyrst hið fyrr- nefnda, þar sem vísindin berj- ast við hlið l'starinnar til að leggja þokkalegan grundvöll, svo hægt verði að halda áfram að reisa á honum það, sem við eigum við með menningu. Þessi grundvöllur hlýtur auðvitað að vera þau lífskjör sem vísinda. og listamönnum eru búin og nú á dögum virð- ast þau vera býsna þröng mið- að við þá „góðu tíma,i sem sagt er að’ v:ð njótum öll góðs af. Fyrir nokkrum árum fannst prófessorum listaakademíunnar tilefni til þess að fara í fylk- ingu f kröfugöngu til Krist- jánsborgar til að fá kjör lista- manna hérlendis drjúgum bætt. Hvemig eru þau nú? Engar vinnustofur Enn er dýrri Listaakademíu haldið uppi, en þegar námi er lokið og unga fólkið út- skrifað, kastar samfélagið því „út í lífið" þ.e.a.s. persónu- leg velgengni (heppni) er látin ein um það, hvernig það get- lifað lífinu áfram í list sinni, það ef bent á minningarsjóði og önnur form á stuðningi einkaaðila um leið og fram- farandi þroskamöguleikar þeirra eru látnir lönd og leið, Listamenn skulu líða neyð og baslast áfram, þar til þeir verða svo heppnir að þeir verða „uppgötvaðir" og þeir eru fáir sem njóta þess eftir- lætis örlaganna að ári. Allt virð- ist undir tilviljunum komið, obb- inn af listamönnum eiga sitt undir auðugum velgerðar- mönnum, listfrömuðum, fólki sem safnar listaverkum — oft af gróðasjónarmiðum. Sér ríkið t.d. þessu fólki fyr- ir vinnustofum? Nei. Farið í gönguferð um Kaupmannahöfn og sjáið hve margar dýrlegar vinnustofuíbúðir eru reyndar til — aðeins við österbrogade eru þær um allt — en látið ykkur ekki detta i hug, að það séu listamenn s.em búa í þessum íbúðum. I þeim búa velstæðir borgarar sem hafa efni á að greiða svimháa húsa- leigu, en ekki ungir nýútskrif- aðir listarúenn, sem eru að hefja lífsverk sitt. Húseigend- um ber engin skylda til aö le:gja listamönnum vinnustof- ur og ríkið gerir ekkert, né heldur borgaryfirvöld til að hafa hönd í bagga með húsa- leigu þar. sem skapandi lista- menn geta haldið áfram að vinna að list sinni. í sömu sporum eru þeir listamenn, sem Ijúka námi i Tónlistarskólanum. Þe:r svífa í lausu lofti einmitt þann dag, þegar þeir eiga raunverulega að hefjast handa eftir dýrt nám í fjölmörg ár. Geti þeir ekki klófest eitthvert starf við kennslu í hljó^færaleik eða söng, eða spilað á ýeitingaliús-' um, geta þe:r náttúrulega reynt að berjast um sæti í einhverri þeirri hljómsveit sem þegar er til, en margur velgefinn tón- listarmaður verður að standa í langri baráttu og strangri i happa og glappa s.pili tilviljan-^ anna, þar til hann hlýtur það næga velgengni í blöðum og með- al alls almennings, að hann verði þekktur. Þeir verða t.d. að leigja sér tónlistarsal með öUu sem því fylgir, aðgöngumiða- sölu, fatageymslu. prentun á efnisskrá og boðsmiðum til blaðanna — og árangurinn er allt of oft 10—12 línur í blöð- unum um efnilegan tónlistar- mann. Beðið um verndgegn sjóráni Kúbuútiaga MADRID 22/9 — Eigendur spánska flutningsskipsins Sierra Aranzazu, sem í fyrri viku var ráðizt á fyrir ströndum Kúbu með þeim afleiðingum, að skipið sökk og þrír menn létu Iífið, kröfðust í gær tryggingar fyrir því að slíkt ætti sér ekki stað aftur, en systurskipið Sierra Maria kemur til Kúbu innan skamms. Sierra Maria liggur um þess- ar mundir í höfn í Alicante á Norður-Spáni, og er enn ekki vitað, hvenær skipið leggur upp í Kúbuferð sína. Talsmaður út- gerðarfélagsins lét svo um mælt í gær. að félagið hefði beðið spánsku stjómina um nánari fyrirmæli, en vildi ekkert um það segja, hvaða aðgerðir komi helzt til greina til þess að vemda skipið. Allt bendir til þess, að það hafi verið kúbanskir útlagar sem árásina gerðu á Sierra Ar- azazu. en Fídel Kastró hefur lýst þeirri árás sem hreinu sjó- ráni. Kastró heldur því enn- fremur fram, að Bandaríkja- stjóm hljóti að vita með hverj- um hætti árásin varð, þar eð Bandaríkjastjóm hafi nákvæmt eftirlit með skipum og flugvél- um á hafinu umhverfis Kúbu. Johnson lofar nn öllu fögru ATLANTIC CITY 22/9 — Johnson Bandaríkjaforseti lét svo um mælt í dag, að hann muni lækka á næsta ári útgjöld ríkisin9 og sé það framhald beirrar lækkunar á tekjuskatti sem gerð var í ár. Þá kvaðst hann enn myndu auka á félags- legar umbætur í landinu. Það var á fundi með fulltrúum verkamanna í stáliðnaðinum, sem forsetinn hét þessu. Eins og myndlistarmönnum er þeim vísað til minningar- sjóða, auðmanna o.s.frv. Húsgangur Þannig er nú barizt fyrir því í Danmörku að mega skapa menningarverðmæti. Lista- mennimir verða að fara á húsgang og sníkja ölmusur til að vinna að markmiði, sem ríkið ætti að telja- sjálfsagð- an þátt í almennri þróun. Hugs'ð aðeins um umræð- urnar sem endurteknar eru á hverju ári um hallann á rekstri Konunglega leikhússins. Rótt eins og hér væri um verzlun að ræða. Því verður að skjóta hér inn, að öllu betur er búið að vísindunum en listinni, sem yfirvöldin líta enn á sem dægradvöl sem á að geta borg- að sig. En framlag til vís- nda er, þegar öllu er á botn- inn hvolft vel hægt að skoða sem góðan business, því oft er hægt að sýna fram á tölu- verðan áþreifanlegan árangur, sem „skilar peningunum aftur". þar sem aftur á móti hvaða listgrein sem er heimtar bara eilíf útgjöld. Þessi þröngsýni er alvarleg- ur hemill á alla menningar- þróun og kæfir margar góðar gáfur í fæðingu, því v'nnu- skilyrðin, já, lifskjörin sjálf, eru svo aum að margur gefst upp og leitar annarrar atvinnu, sem liggur þó kannski oftast engan veginn við honum. I þeim dæmum hefur fjármun- um þeim, sem ríkið hefur var- ið til að kosta listnámlð ver- ið hent í sjóinn. Dýrt að yrkja Og Joks er sömu sögu að segja af bókmenntum: tilvilj- anir ráða öllu: „Finndu útgef- anda og þiggðu velgengni". Á fjárlögum er gert ráð fyr- ir nokkrum ölmusugjöfum, en þær eru hvorki nægjanlegar tíl þess að lifa af né deyja. Og þar að auki eru 'pær skatt- lagðar. Konunglega leikhúsið kemur aftur til sögu. Þannig er mál með vexti, að það býður ekki ungum rithöfundum að skrifa leikrit (fyrir heiðarlegt kaup) Ekkert er gert í Danmörku til að glæða leiklist. Þess er kraf- izt af höfundum, að þeir komi með fullgert og alskapað le'k- rit, s.em breytingalaust er hægt að setja á svið og svo verður bað sko að hljóta góð- ar undirtektir. Það dýrt að yrkja í landi okkar — og margir bezt gefnu skálda okkar eyða tíma sín- um við önnur störf — þeir vinna á bókasöfnum, annast hjúkrun. aðstoðarmenn í ein- hverju leikhúsinu, kennarar (þakkað veri kennaraskortin- 300.000 íbúar hafa ekki bað, um) eða þeir skrifa léttar skemmtisögur undir dulnefnum í vikublöðin, til þess að hafa efni á að koma fram með verk eftir sig á bókamarkaðinn þriðja eða fimmta hvert ár. Lesa við Ijósastaur En á hinni víglínu menn- ingarbaráttunnar, þar sem barizt er fyrir því að mega njóta menningar, eru kjörin enn þá verri — vegna hús-, næðisvandræðanna. Hafi maður ekki íbúð, lang- ar mann heldur ekki til þess að kaupa listaverk til að hengja á veggina, það eru jú engir vegg'r. Þá getur maður heldur ekki keypt sér bóka- skáp, ef hvergi er hægt að setja hann. Það er náttúrulega hægt, eins og lesandi einn skrifaði . til Bomholt (menntamálaráð- herra) í blaði nokkru að finna götu með góðum Ijósastaurum og hallað sér síðan upp að einum þeirra með góða 'bók, — „þá hefur maður alltént Ijósið" skrifaði hann. Annað lesendabréf sagði frá einstæðri móður, sem hefur verið ráðin í tónlistarkennslu í Kaupmannahöfn en berst nú örvæntingarfullri barátu til þess að fá húsnæði — og pláss fyrir barnið á vöggustofu: „6g fór i Ráðhúsið til að láta skrifa mig á lista, en fékk það svar að 20.000 aðrir aðilar væru að leita að íbúðum og 5000 væru bókstaflega á götunni, en ég gæti komið nokkrum sinnum á næsta ári að forvitnast um hvernig gengi". Já vissulega lifum við „góða tíma". Og það eru einnig önnur form menningarlífs. Það þyk- ir t.d. sjálfsagt að ,,kúltíverað“ fólk stundi bað hreinlæti að fá sér hressandi bað á morgn- ana áður en gengið er til dag- legra anna, og vinni maður ó- þrifalega vinnu er auðvitað nauðsynlegt að baða sig að vinnudegi loknum. Og það ætti nú að vera auðvelt í nú- tímaborginni Kaupmannahöfn — en 300.000 íbúar hafa ekki bað, og 170.000 hafa ekki e'nu sinni klósett. Samt er kyrjað ae hærra um þá „góðu tíma“ sem við lif- um á hér í velferðarrikinu Danmörk og einnig sungið um það að við skulum gera gott betra. En ættum við ekki að byrja á því, að gera þá tíma sem við lifum á verðuga þess að vera kallaðir góðir? Ekki vantar verkefnin. Tveggja mínútna sjálfsdáleiðsla í stað tveggja tíma eftirmiðdagshvíldar Samkvæmt strangasta bók- stafsskilningi laganna, mega ekki aðrir en læknar notfæra sér dálciðslu í mcðfer'ð sjúkl- inga sinna, cn nú ætti einnig að leyfa tannlæknum og sál- fræðingum sömu heimild. Bæði tilraunadáleiðsla og dálciðsla til lækninga eru svo mikils- verð hjálpargögn, að tími er til þess kominn að notfæra sér hana. Þetta cru ummæli Rudolf AI- næs Iæknis við Lier sjúkra- húsið í Oslo. Hann segir einnig að svonefnd autogen þjálfun — þjálfun í sjálfsdá- leiðslu — geti hjálpað mörg- um til að slappa af og verið þeim andleg endurnæring. Smávægileg lagabreyting, jafnvel aðeins breiðari túlk- un gildandi lagaákvæða er allt og sumt sem til þarf og við munum getað nálgazt tann- læknisstólinn óttalaust. Skammvinnt dáieiðsluástand útskúfar bæði ótta og sárs- auka. Heimildir fyrir þessu eru sóttar í stutt námskeið, sem var haldið fyrir u.þ.b. 80 starf- andi lækna, sálfræðinga, sál- lækna og tannlækna í Oslo. Þetta var í fyrsta skipti sem fjöldi tannlækna tók þátt í svona námsfceiði, en á því voni haldnir víðtækir vísr indalegir fyrirlestrar ásamt verklegum æfingum. Þátttak- endur framkvæmdu tilraunir á sjálfum sér og lögðust hver af öðrum á tilraunabekkina.. Dr. Alnæs og þýzki prófess- orinn Dietrich Langen sállækn- ir frá háskólanum í Túbingen stjómuðu námskeiðinn. Þeir hafa skrifað bók saman: „Avspenning ved konsentra- lækna fólk, sem óttast tann- lækna. Venjulegar tannaðgerð- ir verða sársaukalausar og fólk getur óttalaust látið draga úr sér. Áhrif dáleiðslunnar á sjúklinginn eru einmit þau, að óttinn hverfur og sársauk- inn minnkar verulega. Við fæðingár dregur hún úr spennu og sársaukinn hverfur, með dáleiðslu er jafnvel hægt ■ í viðtali við norvska blaðið ,,Dagbladet“ skýrði dr. Randolf Alnæs nýlega frá merkum nýjungum í sambandi við dáleiðslu, sem hann telur opna miklar framfarabrautir í hvers konar lækning- um og andlegri heilsugæzlu. •t sjon", sem kemur út um þetta leyti. Dáleiðslu segir dr, Alnæs vera nokkurs konar millistig svefns oi vöku. Svið meövit- undarinnar rninnkar og næmi fyrir utanaðkomandi áhrifurn eykst mjög — verður tíu sinn- um meira en í vcku. Námskeiðið var haldið til þess að æfa lækna, tannlækna, Qg sálfræðinga í notkun dá- leiðslu, en hana má nota á mörgum sviðum. T.d. má alveg að koma hriðum af stað, ef konan er kominn fram yfir tímann. Einnig er hægt að nota hana við staðdeyfingu við skurðaðgerðir og í sál- Iækningum er hún þekkt hjálp- nrmeðal með víðtækum mögu- leikum. Þjálfun í sjálfsdáleiðslu er kerfi afslöppunaræfinga, sem geta komið viðkomandi í dá- leiðsluástand um styttri eða lengri tíma. Tveggja mínútna afslöppun eftir þessu kerfi kemur fullkomlega í staðinn fyrir tveggja tíma eftirmið- dagssvefn. Tveggja mínútna afslöppun tvisvar á dag væri stórkostleg andleg endurnær- ing. Fyrst og fremst virkar hún róandi, við verðum siður ergileg, vandamálin færast fjær og virðast ekki e:ns mik- ilvæg. Hægt er að komast hjá taugaspennu við sérstakar að- stæður t.d. sviðsótta, og rétti- lega gerðar æfinggr geta einn- ig létt svefnerfiðleika að vissu marki. Þá telur Alnæs mega bæta minni, og fleira telur hann dáleiðslu til ágsetis. Aðspurð- ur hvers vegna möguleikar dá- leiðslu hafi ekki fyrr verið kynntir í Noregi, svaraði hann: „Fyrst og fremst vegna þess, að möguleikar á vísindalegri kennslu hennar hafa verið mjög af skomum skammti hér- lendis. Enn eigum við enga sállækningastofnun, sérfræð- ingar á því sviði eru mjög fáir og kennslubækur sömu- leiðis. Þess vegna vonum við að þetta námskeið leggi und- irstöðu að nýrri þróun og opni möguleika til notkunar þessa hjálpargagns, sem mun verða mjög þýðingarmikið í almennri andlegri heilsugæzlu". 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.