Þjóðviljinn - 22.10.1964, Blaðsíða 1
DIODVIUINN
Fimmtudagur 22. október 1964 — 29. árgangur — 240. tölublað.
SÁ SPRETT
HARÐASTI I
HEIMINUM
ASgerSarleysi ráSamanna horfir fil vandrœcSa
Skjótra úrræða er þörl
Ragnar Arnalds.
■ í gær var fundur í Sameinuðu þingi og tekið fyrir fyrst hvort leyfðar skyldu um-
ræður um ákveðin mál, en síðan var tekin fyrir fyrirspurn frá Ragnari Arnalds um iðn-
rekstur í kaupstöðum þeim og kauptúnum, sem verst eru sett vegna atvinnuleysis
og um störf stjórnskipaðrar nefndar í þessu máli.
■ Miklar umræður spunnust út af fyrirsnurnum Ragnars og í ræðu iðnaðarmála-
ráðherra, Jóhanns Hafsteins kom fram, að hin stjórnskipaða nefnd hafði engu við al-
mannavissu að bæta og hann vissi sjálfur ekkert hvernig við þessu vandamáli verður
að bregðast.
-<S>
HlPheldur
íundíkvöld
Sáttafundur með deiluaðilum
í prentaradeilunni og sáttasemj-
ara hófst kl. 5 í gær og stóð
enn þegar blaðið frétti síðast í
gærkvöld.
Hið íslenzka prentarafélag hef-
ur boðað félagsfund í kvöld í
Tjarnarbæ, , kl. 9 og er þar um-
ræðuefni samningarnir.
Ekki vissi Þjóðviljinn betur í
gærkvöld en allt væri enn í ó-
vissu um samningana, og fari
svo að ekki verði samið í dag,
hefst verkfall á miðnætti í nótt.
Ragnar Amalds tók fyrstur til
máls/Og sagði í stuttu máli frá
gangi þessara mála á Alþingi í
fyrra. Þar bar Bjöm Pálsson
fram tillögu um nefndarskipun
til að athuga ástandið miðað
við landið allt og var hún sam-
þykkt með litilsháttar breyting-
um. Ragnar bar hins vegar fram
aðra tillögu um Norðurland
vestra sérstaklega en hún var
svæfð.
Þá benti þingmaðurinn á að
nú liggur fyrir álit frá hinni
stjómskipuðu nefnd og hafði
húp einkum fjallað um ástand-
ið á Norðurlandi vestra þ.e. tek-
ið tillögu sína frá þinginu í fyrra
til meðferðar. Nefndin hafi eytt
miklum tíma til að komast að
þeirri sjálfsögðu niðurstöðu, að
ástandið er lang verst á Norður-
landi vestra en bendir hins veg-
ar ekki á neinar nýjar leiðir til
úrbóta.
Síðan sagði Ragnar orðrétt:
..Langrfterkilegustu upplýsing-
amar í áliti nefndarinnar eru
ýmsar tölur um fjölda þess
fólks sem orðið hefur að flýja
heimabyggð sína í atvinnuieit að
vetrinum. Að vísu er lítt eða
ekki unnið úr þessum tölum í
álitinu og þær lítið samræmdar,
en af þeim og öðrum upplýsing-
um hef ég leitazt við að reikna
út, hve margir miðað við hundr-
að hafa leitað á brott á hverjum
stað, svo að sjá megi svart á
hvítu, hve alvarlegt ástandið er.
Eftir þessum útrcikningi virð-
ist mér Ijóst, að ástandið er
verst á Skagaströnd og Drangs-
nesi, en á báðum þessum stöðum
hafa nálægt 80 prósent vcrka-
manna farið á brott í atvinnu-
leit að vetrinum.
Á Hofsósi og Hólmavík hafa
nálægt 40 prósent af verka-
mönnum leitað á brott og á
Siglufirði meir, en fjórði hver
verkamaður og sjómaður.
Nefndin minnir á, að tölur um
fjölda þeirra, sem verða að
hverfa á brott í atvinnuleit, segi
ekki nema hálfan sannleik um
ástandið á hverjum stað, því að
misjafnt sé, hversu auðvelt
menn eigi með að fara frrá
heimilum sínum. Margir eigi
þess alls ekki kost vegna heim-
ilisástæðna, og aðrir kjósi af
ýmsum ástæðum að vera um
kyrrt, þótt litla atvinnu sé að
fá.
Það hefur mikið verið rætt um
Frumvörp um vinnuvernd og Áætlun
arráð ríkisins flutt á Alþingi á ný
hið alvarlega atvinnuástand á
vestanverðu Norðurlandi, og
margir hafa átt erfitt með að
trúa þvi, að ástandið væri jafn
illt og af er látið. En að fengn-
um þeim upplýsingum, sem
vinna má úr áliti nefndarinnar,
hlýtur öllum að vera það ljóst,
að hér er um hreint kreppuá-
stand að ræða, — ástand, sem
er svo fekyggilegt, að ríkisstjóm-
in kemst ekki hjá því að gera
tafarlausar ráðstafanir til úrbóta.
Af þessum sökum hef ég lagt
fram eftirfarandi fyrirspum til
hæstvirtrar ríkisstjómar:
Hvaða ráðstafanir hyggst rík-
ÍLstjómin gera til að ráða bót
á hinu ískyggilega atvinnuá-
standi á vestanverðu Norður-
landi?
Ég vil að lokum bæta því við,
að hin stjórnskipaða nefnd á
þakkir skilið fyrír unnið starf.
f áliti nefndarinnar eru að vísu
engar endanlegar tillögur um úr-
Framhald á 9. síðu.
★ Þetta er Bandaríkjamaðurinn
★ Bob Hayes, sprettharðasti
maður í hcimi. Hann sigraði
★ í 100 metra hlaupinu á Ol-
★ ympíuleikunum í Tokíó á
★ dögunum og í gær var hann í
★ sigursveit Bandarikjamanna í
★ 4x100 m. boðhlaupi.
Nánari OL-fréttir
á síðu 0
Einar Olgeirsson.
2 lögreglumenn
á vakt um borð í
sovét-skipunum
Ennþá er beðið átekta á Seyð-
isfirði í máli sovézku skipstjór-
anna og standa nú tveir ís-
lenzkir lögregluþjónar á vakt
um borð í sovézku skipunum,
sem liggja bundin utan á varð-
skipinu Ægi. Sovézku áhafnirn-
ar hreyfa sig ekki frá borði,
nema helzt yfirmenn. og er þeim
þó frjálst að fara í land eins
og öðrum erlendum sjómönnum,
sagði Erlendur Björnsson bæj-
arfógeti í viðtali við Þjóðviljann
í gærdag.
■ Þingmenn Alþýðubanda-
lagsins, Hannibal Valdimars-
son ~og Einar Olgeirsson,
lögðu fram á Alþingi í gær
tvö veigamjkil frumvörp.
H Hannibal Valdimarsson
flytur að nýju frumvarpið
um „vinnuvernd, greiðslu
vinnulauna, uppsagnarfresti
o. fl.“, en það var frumflutt
á þinginu í Vvrra. Það frum-
varp er í mörgum köflum, og
heita þeir m.a. Holl og góð
vinnuskilyrði, Vinnutími og
tilhögun, Sérstök ákvæði um
vinnu kvenna, Sérstök á-
kvæði um vinnuvernd barna
og unglinga, Um greiðslu
vinnulauna, Unnsagnarfrest-
ir. Refsiákvæði. Frumyarnið
og greinargerð þess verður
<5>birt f heild hér í blaðinu.
Einar Olgeirsson flytur
"'nn frnmvarn sitt um Áætl-
unarráð ríkisins. Er bar kveð-
ið á um slnínun níu manna
óætlunarráðs rfkisins, og
"kulu fíórir tilnefndir af nú-
nerandi bingfiokkum, en auk
hess tilnefna Albvðusamband
íslands, Stéttarsamband
bænda, Landssamband ís-
leníkra útvegsmanna og Fé-
lag íslenzkra iðnrekenda
einn hvert. Einn skipar ríkis-
stjórnin án tilnefningar. Ráð-
ið á að semja heildarúœtlanir
um þjóðarbúskap fslendinga
er gerðar skulu í samráði við
ríkisstjórn. Ýtarleg greinar-'
gerð og fvlgiskjöl fylgja
frumvarpi Einars og munu
bau og frumvarpið sjálft
kynnt hér í blaðinu á næst-
unni.
Hannibal Valdimarsson.
Sjór gekk á Itmd i
Reykjavik i gær
Mikil ólga var í Reykjavíkurhöfn í Hvassviðr-
inu í gær og gekk sjór allmjög á land á Skúlagöt-
unni og vestur við Grandagarð. Bar sjórinn hnull-
unga og þang upp á Skúlagötuna og var umferð
um götuna hætt þegar mest gekk á. Vesturfrá bar
upp á land spýtnabrak og annað rusl og varð að
setja jarðýtu á það til að ryðja því burt.
Stórstreymt er og gekk mest á við höfnina á
háflóðinu, um kl. hálf sjö í gærkvöld, en dró úr
með fjörunni. Ekki var í gærkvöld vitað að slys
eða skemmdir hefðu orðið í Reykjavíkurhöfn eða
nágrenni af völdum veðurofsans og sjógangsins.
Menn eru uggandi um að sjór gangi á land í
Reykjavík í dag, því flóð verður hærra og spáð
norðlægri átt. Framhald á 3 sídu.
Vélbátur losnar
I fyrradag slitnaði vélbátur-
inn Hrönn ÞH 36 upp í Húsa-
víkurhöfn í ofsaroki af suðvestri.
Bátinn rak út úr höfninni fyrir
veðri og hafnaði að lokum á
sandfjöru fyrir utan bæinn. Bát-
urinn mun lítið skemmdur.
Hrönn er 15 tonna bátur og hef-
ur verið gerður út á línu. Eig-
andi er Eysteinn Gunnarsson.
Íslenzkir skólar dreilingarkerfí
fyrir bandaríska áróðursstofnun
■ í gagnfræðaskólum borgarinnar ér
nú tekið að dreifa bókum um Banda-
ríkin. Bækur þessar eru á íslenzku og
gefnar út af hinni alræmdu „Upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna“, og er
nafn þeirrar bandarísku áróðursstofn-
unar prentað á bækurnar sem út-
gefandi. Fær hver unglingur hvorki
meira né minna en tvær stórar bæk-
ur í skammtt
■ Það verður að teljast mjög óvið-
kunnanlegt, að ekki sé meira sagt, að
ríkisskólarnir íslenzku skuli þannig
gerðir að dreifingarkerfi fyrir banda-
ríska áróðursstofnun, og er ólíklegt
að foreldrar yfirleitt séu þakklátir
þeim sem ábyrgð bera á slíkri mis-
notkun skólanna. Líka væri rétt, að
fram kæmi hvort ákvörðun um þetta
„dreifingarkerfi" er tekin af einstök-
um skólastjórum eða kennurum og þá
hverjum. Sjálfsagt er að þirta nöfn
þeirra.
■ Eigi að gera íslenzka unglingaskóla
þannig að dreifingarkerfi má búast við
að á eftir bandarísku „gjöfunum“
komi aðrar þýzkar, enskar, rússnesk-
ar, danskar og svo framvegis, svo ís-
lenzkir unglingar fari þess ekki á
mis að frétta hvílík fyrirmyndarríki
þetta eru að eigin dómi!
■ Væri ekki heilbrigðara að vanda
eftir megni til kennslunnar í landa-
fræði og sögu og mælast til þess við
áróðursstofnaoir erlendra ríkja að þær
létu íslenzka skóla afskiptalausa? Og
gera skólastjórum og kennurum ljóst
að ekki er sæmilegt að nota skólana
sem dreifingarkerfi fyrir „Upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna“ eða aðr-
ar hliðstæðar stofnanir.
V
i