Þjóðviljinn - 20.12.1964, Qupperneq 1
DDMJMJ
Sunnudagur 20. desember Í1964 — 29. árgangur — 279. tölublað.
TÁ
\
\
\
\
Magnús Kjartansson.
Stefán ögmundsson.
Páll Bergþórsson.
SÓSlALISTAFÉLAG REYKJAVlKUR EFNIR TIL:
ALMENNS BORGARAFUNDAR I DAG UM
SKATTARÁN RÍKISSTJÓRNARINNAR
Tryggvi Emilsson.
□ í dag gengst Sósíalistafélag
Reykjavíkur fyrir almennum borgara-
fundi um skattarán ríkisstjórnarinnar
og stríðsyfirlýsingu hennar á hendur
launþegum í landinu. Er fundurinn
haldinn í Austurbæjarbíói og hefst
hann kl. 1.30 e.h.
□ Ræðumenn á fundinum verða
Magnús Kjartansson ritstjóri, Stefán
Ögmundsson prentari og Páll Berg-
þórsson veðurfræðingur. Fundarstjóri
verður Tryggvi Emilsson varaformað-
ur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar.
□ Ríkisstjórnin hefur með síðustu
aðgerðum sínum í skattamálum, stór-
hækkun söluskattsins, sém fylgir í
kjölfar skattaránsins mikla síðastliðið
sumar sem engin leiðrétting hefur
fengizt á þrátt fyrir loforð ríkis-
stjórnarinnar þar um, endanlega rofið
júnísamkomulagið er hún gerði við al-
þýðusamtökin og kastað stríðshanzk-
anum í andlit alls almennings í land-
inu.
□ Á borgarafundinum í dag verð-
ur um það rætt hvernig launþegarnir
eigi að bregðast við þessari síðustu
árás ríkisvaldsins á lífskjör alþýðunn-
ar í landinu.
□ Skattgreiðendur í Reykjavík. —
Fylkið liði á fundinn í Austurbæjar-
bíói í dag og sýnið ríkisstjóminni með
því, að þið eruð einþuga úm að
hnekkja árás hennar og krefjast rétt-
ar ykkar til mannsæmandi lífs.
!
I
HIN ÓÐA SKATTHEIMTA HLlTUR
AD KALLA A GAGNRÁÐSTAFANIR
■ Hin óða skatt- og útsvarsinnheimta hlýtur að kalla á 1
gagnráðstafanir verkalýðsfélaganna, ekki hvað sízt þegar
hún er framkvæmd af því fullkomna miskunnarleysi gagn-
vart verkamönnum og öðrum launþegum f desember, jóla-
mánuðinum, sem raun ber vini, og á sama tíma sem ekki
er hægt að hreyfa við öðrum tekjustofnum, stórgróðafyrir-
tækjunum er hlíft.
Eitthvað á þessa leið fórust
Cuðmundi J. Guðmundssyni
'’araformanni Verkamannafél.
^’igsbrúnar orð á borgarstjórn-
■'undinum á fimmtudag, er
'' vrhagsáætlun Reykjavíkur fyr-
ír- árið 965 var til síðari um-
ræöu.
Miskunarlaus skattheimta
Guðmundur varaði alvarlega
við þeim ásetningi borgaryfir-
valdanna að ætla að halda á-
fram hinni gengdarlausu útsvars-
innheimtu hjá launafólki. Svo
miskunnarlaus væri innheimtan,
að nú — viku fyrir jól fengju
verkamenn vart annað í launa-
SUNNU-
DAGUR
1 f dag fylgir „Sunnudag-
ur“ ekki blaðinu, hann
kemur á Þorláksmessu.
Þess í stað fylgir því
jólaþlað „Óskastundar-
innar“, sem er mjög fjöl-
breytt og skemmtilegt að
efni.
1 Þar er meðal annars að
finna vísur um jólasvein-
ana einn og átta eftir
Böðvar Guðlaugsson, sög-
urnar: Jól hjá búálfum,
Jólaljósið og Rauði bíll-
inn, tvær síður með alls
kyns heilabrotum, mynd-
ir frá lesendum, skrítlur
og fleira.
umslögunum sínum en gjalda-
kvittanir einar. Tekinn væri
helmingur af kaupi þeirra, tveir
þriðju eða jafnvól hver einasta
króna upp í opinber gjöld! —
J‘á, sagði Guðmundur, það er
svo sannarlega greiðari Ieið
borgaryfirvaldanna í launaum-
slög verkamannsins í jólamán-
uðinum cn í fjárhirzlur stór-
gróðamannanna. Svo hróplegt
cr ranglætið, að mcginhluti út-
svars- og skattbyrðanna hvílir
á launamönnum — en stórgróða-
mennirnir og fyrirtækin sleppa,
þeir aðilar sem sýnt hafa bók-
haldslegt tap árum saman en
hafa þó haldið áfram jafnt og
þétt að auka við eignir sínar.
Það er svo sannarlega kominn
tími til, sagði Guðmundur, að
rekstur fyrirtækjanna sera
borgarstjómaríhaldið ber alltaf
fyrir brjósti verði bættur og
þau hætti að byggja afkomu sina
fyrst og fremst á skattsvikum
og lágu kaupi verkafólksins.
Guðmundur J. Guðmundsson
benti á að stjórnarvöldin hefðu
alltaf, þegar þau boðuðu hækk-
un tolla- og skatta, lofað því
að tekjuskattyr og útsvör yrðu
lækkuð að sama skapi. En
þessum orðum hefði varla verið
fyrr sleppt en hækkun væri ekki
aðeins orðin á tollum og ó-
beinu sköttunum heldur líka
tekjusköttum og útsvörum!
I sambandi við breytingu
skatt- og útsvarsstiga hefði því
t.d. verið lofað á sínum tíma,
að útsvör og tekjuskattur yrðu
lækkuð til mikilla muna, en f
framkvæmdinni hefðu útsvörin
almenni tvöfah' azt á Iauna-
mönnum!
Nú er ýmsu lofað, t.d. auknu
skattaeftirliti, en verður fram-
kvæmdin ekki svipuð og reynsl-
an sannar? spurði Guðmundur.
Eða er líklegt að skattalögregl-
unni verði stefnt til rannsóknar
á bókhaldi stórgróðafyrirtækj-
anna, sem árum saman hafa
sýnt tap á rekstri sínum en þó
haldið áfram að margfalda 'eign-
ir sínar?
Hvar er bezt rukkað?
Að gefnu tilefni frá ' einum
borgarfulltrúa íhaldsins spurði
Guðmundur J. Guðmuhdsson:
Hvort hefur verið rukkað bet-
ur ógreiddi stóreignaskatturinn
cða útsvör verkamannanná nú
fyrir jólin?
Það varð heldur fátt um svör-
in, en þó muldraði íhaldsfulltrú-
inn í barm sér: Það munar
engu!
Afgreiðslutími styttist hjá F.l.
Að undanförnu hafa staðið yf-
ir breytingar og endurbætur á
flugafgreiðslu Flugfélags Islands
á Reykjavíkurflugvelli. Ipessum
breytingum er nú að mestu lok-
ið. Afstaða til afgreiðslu flug-
farþega, hefir mjög breytzt til
batnaðar og getur flugfélagið,
af þeim sökum, stytt afgreiðslu-
tíma farþega félagsins í milli-
landaflugi.
Hingað til hefur farþegum
til útlanda verið gert að mæta
í flugstöðinni 45 mínútum fyr-
ir brottför, en frá næstu ára-
mótum styttist afgreiðslutími
þannig, að farþegar mæti 30
mínútum fyrir brottför flugvél-
ar þeirrar, sem þeir ætla fneð.
Um leið og afgréiðslutíminn
styttist er það og mjög áríðandi,
að farþegar mæti stundvíslega.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■• i
Jóhannes og Árstíðirnar
A „Litlu jólunum” í Austur-
bæjarskólanum í fycj-adag
sýndu nokkrar stúlkur í 5.
bekk F skemmtiþáttinn „Ars-
tíðimar” eftir Jóhannes úr
Kötlum. Jóhanncs, sem var
viðstaddur sýninguna sagðist
nú raunar hafa verið búinn
að gleyma áð hann hefði ein-
hverntíma samið þetta leik-
rit. Börnunum fannst mikið
til þess koma að höfundurinn
sjálfur skyldi Vera viðstaddur
og það lá við að Jóhannes
vekti meiri athygli fyrst í
stað en það sem fram fór á
Ieiksviðinu.
Hér á myndinni er Jóhannes
ásamt stúlkunum sem léku
Arstíðimar, en þær eru talið
frá vinstri: Magga Alda
Magnúsdóttir, sem lék Haust-
ið, Rósa Björg Helgadðttir
sem lék Sumarið. Sigrún
Njálsdóttir, sem Iék Vorið og
síðast er Asgerður Svavars-
dóttir sem lék Vetur konung.
A 3. síðu blaðsins í dag em
fleiri myndir og frásögn af
litlu jólunum í Austurbæjar-
skólanum.
*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
)■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
□ 4 dagur eftir. — Opið
kl. 2—5 e.h. í dag. — Ger-
ið skil — Happdrá'tti
í»jóðviljans, Týsgötu 3,
,ími 17514.
□ Vegna þess hve blaðið
fór snemma í prentun í
gær var ekki hægt að
birta deildasamkeppnina
í blaðinu í dag.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■)
1
/